Morgunblaðið - 08.01.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Engir nýir tilkynnt framboð
Framboðsfrestur í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins rennur út á miðviku-
dag Aðeins tveir borgarfulltrúar tilkynnt framboð Nokkrir að hugsa málið
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Nú þegar tveir dagar eru í að fram-
boðsfrestur vegna þátttöku í leið-
togaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík rennur út hafa aðeins
tveir frambjóðendur tilkynnt fram-
boð, borgarfulltrúarnir Áslaug
María Friðriksdóttir og Kjartan
Magnússon.
Leiðtogaprófkjörið fer fram 27.
janúar nk. en kjörnefnd gerir tillögu
að skipan annarra sæta á listanum.
Búist var við tilkynningu frá Jóni
Karli Ólafssyni, framkvæmdastjóra
hjá Isavia og formanni íþrótta-
félagsins Fjölnis, sem hefur verið
orðaður við framboð, um hvort hann
hyggist fara fram í borginni, en í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi sagðist hann enn vera að
íhuga málið, og má því vænta þess
að hann gefi það út í dag hvort hann
gefi kost á sér eða ekki.
Eyþór Arnalds fjárfestir hefur
ekki heldur gefið út hvort hann ætli
í framboð eða ekki, en ekki náðist í
hann við vinnslu fréttarinnar og til-
raunir mbl.is um helgina til að ná í
hann báru heldur ekki árangur.
Björn Jón Bragason sagnfræð-
ingur kveðst vera að íhuga sína
stöðu. „Þó það sé klisjulegt að segja
það, þá hafa nokkrir komið að máli
við mig,“ segir Björn Jón í samtali
við Morgunblaðið. Hann vildi þó
ekkert segja um hvort af framboði
hans yrði.
Gísli Kr. Björnsson, formaður
Varðar, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að enginn frambjóð-
andi væri búinn að skila formlega
inn framboði og átti ekki von á að
framboð bærist fyrr en á síðasta
degi framboðsfrestsins.
Unnur Brá fer ekki fram
Unnur Brá Konráðsdóttir, vara-
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
greindi frá því á laugardag að hún
ætlaði ekki að gefa kost á sér í
Reykjavík. „Ég er afar þakklát ykk-
ur sem hafið skorað á mig og lýst
yfir stuðningi. En staðreyndin er sú
að ég er með hugann við landsmálin
og því ekki rétt af mér að snúa aftur
í sveitarstjórnarmálin,“ skrifaði
Unnur Brá á Facebook-síðu sína á
laugardag.
Morgunblaðið/RAX
Valhöll Leiðtogaprófkjör sjálf-
stæðismanna er framundan.
Júlíus Hafstein,
fyrrverandi
sendiherra og áð-
ur borgarfulltrúi í
Reykjavík, gefur
kost á sér á lista
sjálfstæðismanna
í Kópavogi fyrir
komandi sveitar-
stjórnarkosn-
ingar. Uppstill-
ingarnefnd flokksins er að undirbúa
tillögu að lista sem lögð verður fyrir
fund fulltrúaráðsins síðar í mán-
uðinum.
„Ég sendi mitt nafn inn, eins og
tuttugu aðrir, eftir að kjörnefndin
óskaði eftir að menn létu vita af sér.
Því fylgdu engin skilyrði og ég get
engu svarað um það hver niðurstaða
kjörnefndar verður,“ segir Júlíus.
Hann starfaði í borgarmálum í
Reykjavík í sextán ár, þar af í átta ár
sem borgarfulltrúi. Eftir að hann
flutti í Kópavog hefur hann starfað
fyrir Sjálfstæðisflokkinn þar.
Áhugaverður hópur
Sjálfstæðisflokkurinn er nú með
fimm bæjarfulltrúa í Kópavogi. Þeir
gefa allir kost á sér áfram, þar á
meðal Ármann Kr. Ólafsson bæjar-
stjóri sem var oddviti listans í síð-
ustu kosningum. Alls gáfu 22 kost á
sér þegar uppstillingarnefndin aug-
lýsti eftir framboðum en það er jafnt
þeim sætafjölda sem þarf að fylla.
Ragnheiður S. Dagsdóttir, for-
maður uppstillingarnefndar, segir
að þetta sé áhugaverður hópur. Öll-
um frambjóðendum hafi gefist kost-
ur á að hitta nefndina og nú sé verið
að setja saman tillögu að framboðs-
lista. helgi@mbl.is
Júlíus
Hafstein
vill fram í
Kópavogi
Júlíus Hafstein
Uppstillingar-
nefnd að störfum
„Við erum salla-
ánægðir með
það,“ sagði Sturla
Þórðarson, skip-
stjóri á loðnuskip-
inu Beiti frá Nes-
kaupstað, um
ágætt hal sem
skipverjar náðu á
loðnumiðunum
austur af Langa-
nesi í gær. 650
tonn voru í trollinu.
Sjö skip voru í gær á miðunum,
bæði skip sem komu að austan og
vestan. Að minnsta kosti eitt skip var
á leið til löndunar í heimahöfn. Á
þessum slóðum veiddist fyrsta loðnan
á vertíðinni sl. föstudag.
Ekki mikið að sjá
Beitir kom á miðin í gærmorgun og
var þetta fyrsta halið. Beitir veiðir
fyrir vinnslu í landi og hélt áfram
veiðum eftir fyrsta togið í gær. Sturla
sagði að veðrið væri frekar leiðinlegt
og ekki mikla loðnu að sjá.
Loðnan er ágæt, að sögn Sturlu, 40
stykki í kílóinu, og lítil áta í henni.
Sturla sagði að of snemmt væri að
hugsa til heimferðar, miklu þyrfti að
bæta í lestir skipsins áður en til þess
kæmi.
Beitir fékk
650 tonn í
fyrsta hali
„Við erum salla-
ánægðir með það“
Sturla
Þórðarson
Íbúðarhúsið í Stardal í Mosfellsbæ eyðilagðist í eldsvoða í gærmorgun.
Húsið var mannlaust. Ekki er vitað um eldsupptök en lögreglan rannsakar
þau. Virðist húsið hafa orðið alelda á skömmum tíma.
Þegar slökkviliðsmenn komu á staðinn var húsið þegar alelda og sam-
kvæmt upplýsingum slökkviliðsins var ákveðið í ljósi aðstæðna að leyfa því
að brenna þar til eldurinn fjaraði út. Hins vegar var kröftunum beint að því
að verja svæðið í kring, ekki síst útihús. Fimmtán slökkviliðsmenn frá
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins fóru á brunavettvang á þremur dælubíl-
um, tveimur tankbílum og einum körfubíl.
Ekki hefur verið búið í Stardal í nokkur ár.
Íbúðarhúsið í Stardal eyðilagðist í bruna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigríður Hrólfsdóttir
viðskiptafræðingur lést
laugardaginn 6. janúar
síðastliðinn, 50 ára að
aldri. Sigríður varð
bráðkvödd í fríi með
fjölskyldunni í Frakk-
landi. Sigríður lauk
viðskiptafræðiprófi frá
Háskóla Íslands árið
1990 og MBA-námi frá
University of California
í Berkeley árið 1994.
Sigríður starfaði hjá
Íslandsbanka að loknu
námi, m.a. við fjárstýringu og miðlun.
Á árunum 1998 til 2004 starfaði hún
hjá Eimskipafélagi Íslands hf., fyrst
sem forstöðumaður fjárreiðudeildar
en síðar sem framkvæmdastjóri fjár-
málasviðs. Síðar starfaði hún sem
framkvæmdastjóri fjárfestinga- og
fjármálasviðs hjá
Tryggingamiðstöðinni
hf. Sigríður var fram-
kvæmdastjóri Árvak-
urs 2009 til 2010. Sig-
ríður var stjórnar-
formaður Símans frá
2013, stjórnarformaður
Landsbréfa, stjórnar-
formaður í Eldey TLH.
ehf. og í stjórn Mílu.
Hún var varaformaður
stjórnar Landsbankans
árin 2010 til 2013 og í
stjórn Valitor 2009 til
2010.
Eftirlifandi eiginmaður Sigríðar er
Gunnar Halldór Sverrisson, forstjóri
Odda. Sigríður lætur eftir sig þrjú
börn, Halldór Árna Gunnarsson,
Sverri Geir Gunnarsson og Þórunni
Hönnu Gunnarsdóttur.
Andlát
Sigríður Hrólfsdóttir