Morgunblaðið - 08.01.2018, Page 4

Morgunblaðið - 08.01.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 2018 Sumarið 2018erkomið Allt að 25.000kr. afsláttur á mann Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Nokkrar djúpar lægðir sem koma að landinu suðvestanverðu valda um- skiptum í veðrinu. Veður verður hvasst og vætusamt á köflum alla vik- una, sérstaklega suðaustanlands, og hlýrra verður í loft en undanfarnar vikur. Á móti kemur að búast má við hálku á götum og vegum og hafa orðið óhöpp og slys vegna þess. Þannig valt rúta út af veginum á Mosfellsheiði í gær. Umskiptin í veðrinu eru mikil. Lengi hafa norðlægar áttir verið ríkjandi og veður rólegt en kalt. „Við erum búin að skipta um gír, fáum lægðirnar nær okkur en áður,“ segir Helga Ívarsdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Lægðirnar eru nokkuð djúpar og yfirleitt við suð- vesturströndina. Skil frá þeim gengu yfir landið í gær, næstu koma í kvöld og enn ein skilin ráða væntanlega veðrinu hér á fimmudag. Er því útlit fyrir að svipað veður verði næstu daga. Búast má við hvössum sunnan- og suðaustanáttum og vætusömu veðri með köflum, sér- staklega sauðaustanlands, en frekar úrkomulitlu fyrir norðan. Þessari átt fylgir hlýnandi veður þannig að hitinn verður um eða yfir frostmarki. Helga býst við þessu veðri út vikuna, að minnsta kosti. Ók á kyrrstæðan bíl í skafli Aðeins snjóaði um helgina en sjó- inn tók fljótt upp á láglendi. Nokkur óhöpp urðu á norðanverðu landinu vegna þess. Árekstur varð á Jökuldal en engin slys á fólki. Um klukkan fimm í gærmorgun var lögreglunni á Ísafirði tilkynnt að flutningabíll hefði ekið á kyrrstæðan bíl við Svansvík í Ísafjarðardjúpi. Bíllinn hafði verið skilinn eftir ljóslaus í miðjum snjó- skafli. Bílstjóra flutningabílsins sak- aði ekki en hann þurfti að bíða lengi í bílnum eftir aðstoð þar sem ekki var hægt að senda hjálp frá Ísafirði vegna þess að vegurinn um Súðavíkurhlíð var lokaður vegna snjóflóðahættu. Þá átti eftir að ryðja veginn um Djúpið. Þegar rigna fer á snævi þakta vegi og götur myndast klaki og hálka. Fólk átti víða í erfiðleikum vegna þess í gær, meðal annars í húsagötum á höfuðborgarsvæðinu. Átti það jafnt við gangandi vegfarendur sem ak- andi. Vegagerðin varaði við hálku eða flughálku víða um land. Vatnavextir og hálka Þótt snjó taki fljótt upp af láglendi vegna hlýnandi veðurs er enn kalt á fjallvegum og því má búast við hálku áfram á ýmsum vegum næstu daga. Alvarlegasta óhappið í þessum að- stæðum varð á Þingvallavegi við Leirvogsvatn á Mosfellsheiði um klukkan 14 í gær. Þá fór rúta með níu ferðamönnum út af veginum og valt á hliðina. Enginn var talinn alvarlega slasaður. Nokkur hálka var á vegin- um. Farþegarnir fengu skjól í annarri rútu frá sama fyrirtæki en sú átti leið um Þingvallaveg, skömmu eftir óhappið. Fólkið fékk far með henni til Reykjavíkur. Gengið var í það verk að ná rútunni aftur upp á fjögur hjól. Vegagerðin varaði við rigningu á Suðaustur- og Austurlandi í gær. Helga Ívarsdóttir veðurfræðingur segir að helst á þeim slóðum geti orð- ið vatnavextir, sérstaklega ef það rignir mikið marga daga í röð. Hún segir þó ómögulegt að segja fyrir um þá þróun. Helga segir einnig mikilvægt að fólk gæti að niðurföllum um allt land, til að tryggja að rigningar- og leys- ingavatn eigi greiða leið niður í hol- ræsakerfið. Hálka fylgir umhleypingum í veðri  Umskipti í veðri vegna breytts lægðagangs  Hvassviðri með rigningu og hlýindum í stað norðan- áttar með frosti og stillum  Rúta með níu ferðamönnum fór út af Þingvallavegi á Mosfellsheiði í gær Morgunblaðið/Árni Sæberg Mosfellsheiði Lögreglumenn og slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins unnu á vettvangi rútuslyssins. Á níunda tímanum í fyrrakvöld barst lögreglunni tilkynning um að verið væri að ræna bifreið í Kópa- vogi. Ökumanni hafði verið kippt út úr bifreiðinni og hann skilinn eftir á vettvangi en bílnum ekið á brott. Skömmu síðar var bifreiðin stöðv- uð. Tveir karlmenn voru í henni og voru þeir báðir handteknir og vist- aðir í fangageymslu vegna frekari rannsóknar málsins. Ökumaður var undir áhrifum fíkniefna og var tek- ið úr honum blóðsýni. Lögreglan þurfti að sinna fjöl- mörgum útköllum vegna óláta og ofbeldis á þrettándanum og aðfara- nótt sunnudags. M.a. var kveikt fjölda gáma og tunnum, stúlka var slegin í andlitið svo tennur brotn- uðu og beita þurfti piparúða á tvo ofurölvi menn í heimahúsi í Hraunbæ. Kipptu ökumanni út og óku á brott Annir Mikill erill var hjá lögreglunni um helgina vegna óláta og ölvunar. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það virðist […] sem borgarlínan sé einstaklega óhagkvæm og áhættu- söm framkvæmd og það mætti með minni útgjöldum og margvíslegum hætti ná fram mun meiri árangri í að bæta samgöngur á svæðinu,“ skrifar Frosti Sigurjónsson, rekstrarhag- fræðingur og fyrrverandi alþing- ismaður, í grein sem hann skrifar um borgarlínu á vef sinn, frostis.is. Frosti rekur að stofnkostnaður við nýtt kerfi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu sé áætlaður 70 til 150 milljónir kr. Það svari til 1-2 milljóna króna á hvert heimili á svæðinu. Lítil eftirspurn eftir þjónustu Frosti telur rangt að borgarlína stórauki flutningsgetu samgöngu- kerfisins. Bendir hann á að sáralítil eftirspurn sé eftir þeirri tegund flutningsgetu sem borgarlínan bjóði. „Það er lítið gagn í því að hálftómir borgarlínuvagnar hringli um leiða- kerfið. Hins vegar er öruggt að sú tegund flutningsgetu sem nú er mjög eftirsótt mun skerðast verulega þeg- ar akreinar sem nú nýtast fólksbílum verða helgaðar borgarlínu. Borg- arlínan mun því auka umferðarteppu á álagstímum en ekki draga úr henni.“ Tapar 67 klukkustundum Frosti telur að borgarlína muni ekki spara fólki tíma. Hún muni sól- unda tíma allra íbúa á svæðinu, hvort sem þeir noti hana eða ekki. Reiknar hann út að þeir sem ferðast með borgarlínu verði að meðaltali 15-20 mínútur lengur að komast leiðar sinnar en þeir sem ferðast með raf- bíl. Er þá miðað við þann tíma sem fer í að ganga á biðstöð, bíða eftir vagni, stoppa á biðstöðvum og svo ganga á áfangastað. Sá sem fer til vinnu með borgarlínu tvisvar á dag í 200 daga á ári tapi því 67 klukku- stundum. „Þeir sem meta tíma sinn mikils munu því forðast að nota borgarlínu nema yfirvöld grípi til aðgerða til að minnka þennan mikla tímamun,“ skrifar Frosti. Auðveldasta leiðin sé sú sem danska ráðgjafarfyrirtækið COWI leggi til í skýrslu sinni en það felist í því að tefja þá sem vilja nota fólksbíl. Akreinum fyrir almenna umferð verði fækkað sem og bíla- stæðum. „Það er ótrúlegt að borg- arstjóri og sveitarstjórnir telji slík áform „auka lífsgæði“ íbúa.“ Kjósendur með neyðarhemil Frosti segir að borgarlínuverk- efnið sé þrátt fyrir alla sína vankanta á fullri ferð, fast á sjálfstýringu. Eina vonin sé að einhver sýni frumkvæði og grípi í neyðarhemilinn. Spurður hver ætti að grípa í hem- ilinn nefnir Frosti hinn almenna kjósanda. „Þessi áform eru af góðum huga gerð hjá borgarstjóra og bæj- arstjórum og þeir hafa væntingar til þess. Þau eru hins vegar ekki sann- færandi þegar málið er skoðað nánar og erfitt að fallast á að þau standist við okkar aðstæður. Málið hlýtur að verða rætt í aðdraganda komandi sveitarstjórnarkosninga,“ segir Frosti. Sólundar tíma allra íbúa höfuðborgarsvæðisins  Frosti Sigurjónsson gagnrýnir áform um borgarlínu Morgunblaðið/Kristinn Merking Borgarlína fær sérstakar akgreinar og þrengir þar með að al- mennri umferð og græn svæði skerðast, að sögn Frosta Sigurjónssonar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.