Morgunblaðið - 08.01.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 08.01.2018, Qupperneq 10
Morgunblaðið/Árni Sæberg Brenna Þúsundir söfnuðust saman á þrettándabrennu í Mosfellsbæ og fylgdust með glæsilegri flugeldasýningu. Á laugardag var þrettándi og síðasti dagur jólahátíðarinnar. Víða um land voru haldnar þrettándabrenn- ur af því tilefni, til dæmis í Mos- fellsbæ þar sem ljósmyndari Morg- unblaðsins var staddur. Þar er jafnan mikið lagt í skemmtiatriði, brennu og flugeldasýningu á þrett- ándanum og jólin kvödd með hátíð- legum hætti. Engin undantekning var á því nú og Mosfellingar og gest- ir þeirra gengu í blysför frá mið- bænum og að brennunni við Leir- voginn. Þar komu Stormsveitin og Skólahljómsveit Mosfellsbæjar fram, auk þess sem álfadrottning og álfakóngur mættu á svæðið ásamt hjúunum Grýlu og Leppalúða og af- komendum þeirra, sem nú hafa haldið aftur til fjalla. Íkveikjur víða um borg Þrátt fyrir að flestir hafi verið í góðu skapi í Mosfellsbæ á laug- ardagskvöld átti það ekki við um alla á höfuðborgarsvæðinu, en slökkviliðið hafði í nógu að snúast vegna íkveikja í blaðagámum og ruslatunnum. Alls voru þrettán út- köll vegna slíkra mála á laugardags- kvöld. Meðal annars var kveikt í ruslatunnu á tjaldsvæðinu í Laug- ardal og þar hefði eldurinn mögu- lega getað borist í útisalerni sem var skammt frá. Vegfarandi afstýrði því hins vegar og dró logandi tunnuna frá salerninu áður en illa fór. Íkveikjur sem þessar eru algeng- ar á þrettándanum, að sögn slökkvi- liðsins. athi@mbl.is Jólin kvödd á þrettándanum  Töluvert um íkveikjur í borginni 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 2018 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Loftkæling Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666 og varmadælur Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það þarf að brúa bilið á milli bænda og afurðastöðvanna sem þeir reynd- ar eiga. Mér heyrist að það sé komin einhver þreyta í samstarfið og það er ekki aðeins öðrum aðilanum að kenna. Bændur þurfa að líta í eigin barm og tengjast markaðsstarfinu betur og vita hvað þar er að gerast,“ segir Ásmundur Friðriksson alþing- ismaður um fund um markaðsmál lambakjöts sem hann tók þátt í að halda á Hellu sl. laugardag. Talið var að um 300 manns hefðu verið á fundinum, mest bændur af Suðurlandi en einnig úr öðrum lands- hlutum. Þá voru þarna forystumenn bænda, Sláturfélags Suðurlands og fleiri gestir. Ásmundur kveðst ánægður með fundinn. Þórarinn Æv- arsson, framkvæmdastjóri IKEA, og Jón Örn Stefánsson í Kjötkomp- aníinu í Hafnarfirði voru aðalfram- sögumenn. Ásmundur segir að þeir hafi komið með ný sjónarhorn inn í umræðuna um framleiðslu og sölu lambakjöts og sagt frá því hvað þeir væru að gera í sínum fyrirtækjum. Taldi Ásmundur að orð þeirra hefðu vakið vonir í brjósti fundarmanna. Þórarinn Ævarsson sagði í fram- sögu sinni að IKEA hefði selt 84 þús- und skammta af lambakjöti á veit- ingastað sínum á síðasta ári. Fyrirtækið legði aukna áherslu á lambakjöt og stefndi að því að selja 150 þúsund skammta á þessu ári og reiknaði Þórarinn með að þeir yrðu 250 þúsund á árinu 2020. Hann telur að IKEA hafi sýnt fram á það að vel sé hægt að selja lambakjöt og hagn- ast á því, bæði til útlendinga og Ís- lendinga. Þórarinn lýsti þeirri skoðun sinni að selja ætti lambakjöt sem alþýðu- mat á alþýðuverði. Kjötið væri nú of fjarlægt hinum almenna neytanda. Hann hvatti bændur til að krefjast þess að fyrirtæki þeirra, eins og SS, ynni með þeim og einnig fyrirtæki sem lifa á því að þjónusta bændur og nefndi N1 í því sambandi. „Ef ég fengi öllu að ráða myndi ég læsa Steinþór Skúlason frá SS, Ágúst Torfa Hauksson frá Norðlenska, Þórólf Gíslason frá KS og Eggert Kristófersson frá N1 saman inni í litlu herbergi og ekki hleypa þeim út fyrr en þeir væru komnir með raun- hæf plön um að selja 4 milljónir skammta af lambaréttum hið minnsta á ári,“ sagði Þórarinn og vís- aði til möguleika á aukinni sölu lambakjöts til ferðafólks. Þar með væri öll offramleiðslan farin. Aftarlega á merinni „Ég held að við séum aftarlega á merinni í markaðsmálum lamba- kjöts,“ segir Ásmundur Friðriksson um niðurstöðu fundarins. Hann tek- ur þá samlíkingu úr sjávarútveginum að enginn bátur fari á sjó án þess að vita hvað markaðurinn biður um. Sama þurfi bændur að gera. Hann vísar til orða frummælenda og segir að bændur ættu að einbeita sér að innlenda markaðnum. „Mér sýnist skilningur á stöðu bænda fara minnkandi. Þess vegna þurfa þeir að koma með lausnina. Erfitt er að framleiða vöru til útflutnings ef það bitnar á afurðastöðinni sem svo getur ekki borgað bændum sanngjarnt verð fyrir vöruna,“ segir Ásmundur. Ætti að selja lamba- kjötið sem alþýðumat  Þórarinn Ævarsson í IKEA talaði tæpitungulaust við bændur Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bændafundur Rósa J. Guðmundsdóttir og Ari Páll Ögmundsson í Stóru- Sandvík mættu á bændafundinn og kjötkynninguna sem var eftir fund. Jóhannes Gunnarsson, fyrrverandi formaður Neytendasamtakanna, er látinn, 68 ára að aldri. Jóhannes lést á heimili sínu í Reykja- vík á laugardag. Jó- hannes var formaður Neytendasamtakanna í 30 ár, frá 1984 þar til hann lét af formennsku árið 2016. Jóhannes útskrif- aðist sem mjólkurfræð- ingur frá Højby mejeri í Danmörku árið 1971 og vann störf tengd mjólkurfram- leiðslu þar til hann varð útgáfustjóri hjá Verðlagsstofnun árið 1980. Jó- hannes var tvíkvæntur og lætur eft- ir sig fimm uppkomin börn. Jóhannes var kjör- inn varaformaður Neytendasamtakanna árið 1982 og formaður 1984 eins og áður sagði. Jóhannes var upp frá því formaður allt til 2016, að tveim- ur árum und- anskildum, en fram- kvæmdastjóri um skeið. Auk starfa sinna fyrir Neytenda- samtökin gegndi Jó- hannes margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir ýmis fé- lagasamtök og var um skeið ritstjóri Strokkhljóðsins, blaðs Mjólkurfræð- ingafélags Íslands, og Neyt- endablaðsins. Andlát Jóhannes Gunnarsson Magnús Örn Guðmundsson viðskiptafræð- ingur býður sig fram í 2. sæti í prófkjöri Sjálf- stæðisfélags Seltirninga sem haldið verður 20. janúar næstkom- andi. Magnús Örn situr í bæjarstjórn Seltjarnarness, er for- maður íþrótta- og tómstunda- nefndar og situr í skólanefnd bæj- arins. Hann er forstöðumaður hjá Stefni hf. Í tilkynningu sem Magnús sendi frá sér kemur fram að hann leggi áherslu á lága skatta, gagnsæja og skilvirka stjórnsýslu, hátt þjón- ustustig í grunnþjónustu og for- gangsröðun framkvæmda án skuldasöfnunar. Hann leggur jafn- framt áherslu á að skipulagsmál þurfi að nálgast með meiri yfirveg- un í sátt við bæjarbúa og vill raunsæi í samgöngumálum. Magnús Örn sækist eftir 2. sæti á Nesinu Magnús Örn Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.