Morgunblaðið - 08.01.2018, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.01.2018, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 2018 EXPLORE WITHOUT LIMITS ® ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF. KLETTHÁLSI 3 110 REYKJAVÍK SÍMI: 540 4900 NETFANG: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.is DEKKJAÞJÓNUSTA TÍMABÓKANIR Í SÍMA 540 4900 JEPPADEKK fyrir íslenskar aðstæður VÖNDUÐ OG HLJÓÐLÁT DEKK UNDIR FLESTAR GERÐIR JEPPA OG JEPPLINGA. Vegfarandi í París tekur mynd af vegglistaverki til minningar um blaða- menn sem féllu í árás öfgamanna á skrifstofu blaðsins Charlie Hebdo fyrir þremur árum. Upptök árásarinnar voru vegna skopmyndar blaðsins af Mú- hameð en 11 voru myrtir í árásinni. Þeirra var minnst í París í gær. Ljósmynd/Christophe Archambault AFP Árásin á tjáningarfrelsið Þrjú ár liðin frá morðunum á Charlie Hebdo í París Ríkisstjórn Bretlands hyggur á end- urskipulagningu í mikilvægum mála- flokkum í dag en Theresa May for- sætisráðherra leitast nú við að treysta völd sín fyrir BREXIT- átökin fram- undan, greinir AFP-fréttastofan frá. Molnað hefur undan stjórn May en varaforsæt- isráðherrann Da- mien Green, steig til hliðar eftir klámhneyksli. Skömmu áður hættu tveir aðrir ráð- herrar, þau Michael Fallon og Priti Patel vegna annarra mála. Talið er víst að utanríkisráðherra Boris Johnson, fjármálaráðherra Philip Hammond og BREXIT ráðherra David Davis muni halda stöðum sín- um, en búist er við að aðrir hátt sett- ir aðilar verði færðir til eða reknir. May staðfesti að breytingar yrðu gerðar en neitaði að tjá sig um hverj- ar þær yrðu. Búist er við auknum klofningi innan breska Íhaldsflokks- ins vegna þessa. Einhverjir verða reknir Heilbrigðisráðherrann Jeremy Hunt, er talinn líklegur til að verða varaforsætisráðherra en vandræði hjá NHS undanfarið gætu þó sett strik í reikninginn. Dómsmálaráð- herrann Dominic Raab, stuðnings- maður BREXIT, þykir líklegur til að hækka í tign. Haft er eftir The Sunday Tele- graph að menntamálaráðherrann Justine Greening og formaður Íhaldsflokksins Sir Patrick McLoug- hlin verði rekin úr ríkisstjórninni. Því er spáð að May muni hækka kon- ur og fólk af fjölbreyttari uppruna í tign. May sagðist vonast til að leiða Íhaldsflokkinn í næstu kosningum og sagði: „Ég læt ekki deigan síga. Ég er í þessu til lengri tíma litið.“ Lætur ekki deig- an síga  Theresa May stokkar stjórnina upp Theresa May Takist að mynda nýja ríkisstjórn Kristilegra demókrata og Jafn- aðarmanna í Þýskalandi gæti sú stjórn tekið við völdum í mars eða apríl. Þetta kemur fram í frétt AFP en viðræður eru hafnar á milli flokk- anna tveggja um stjórnarsamstarf að frumkvæði Angelu Merkel en jafn- aðarmenn höfðu áður lofað að vera í stjórnarandstöðu. Um er að ræða könnunarviðræður en ef niðurstaðan verður að flokk- arnir eigi málefnalega samleið verða hafnar formlegar viðræður. Kosið var í lok september í Þýskalandi en enn hefur ekki tekist að mynda sam- steypustjórn. Þingkosningarnar skil- uðu ekki niðurstöðu sem benti til þess að kjósendur vildu stjórn til hægri eða vinstri. Fráfarandi stjórn er sam- steypustjórn flokkanna tveggja en í gegnum tíðina hafa þeir ekki starfað saman heldur myndað stjórnir sitt á hvað í samstarfi við minni flokka. Vilja forðast nýjar kosningar Ákveðið var að hefja viðræður til þess að forða því að boða þyrfti til nýrra kosninga en flokkarnir tveir eru tveir stærstu flokkarnir á þýska sambandsþinginu. Angela Merkel, kanslari landsins og leiðtogi Kristi- legra demókrata, sagðist í dag bjart- sýn á stjórnarmyndun meðJafn- aðarmannaflokknum. „Ég held að þetta sé mögulegt. Við munum vinna mjög hratt og af ein- urð,“ sagði kanslarinn. Mörg mál þarf að leysa, þ. á m. hvað gera eigi í mál- um yfir einnar milljónar hælis- leitenda í landinu sem komið hafa þangað síðan árið 2015, en talið er að aukið fylgis flokksins AfD, sem lagt hefur áherslu á harða stefnu í inn- flytjendamálum, hafi kostað Merkel góða niðurstöðu í þingkosningunum og Jafnaðarmenn fengu enn verri út- reið. Þetta kemur fram á mbl.is. Hillir undir nýja stjórn í Þýskalandi  Könnunarviðræður hafnar á milli CDU, flokks Merkel, og Jafnaðarmanna Ljósmynd/Tobias Schwarz AFP Blaðamannafundur Angela Merkel tilkynnir upphaf viðræðna. Stephen Bannon, fyrrverandi aðal- ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkja- forseta, lýsti því yfir í gær að hann sæi eftir því að hafa ekki brugðist fyrr við „ónákvæmum fréttaflutningi“ af þeim ummælum sem höfð eru eftir honum í nýútkominni bók blaða- mannsins Michael Wolff, sem ber nafnið Fire and Fury: Inside the Trump White House. Í bókinni, sem vakið hefur miklar umræður, er haft eftir Bannon að sonur forsetans, Donald Trump yngri, hafi setið fund með rússnesk- um lögfræðingi í aðdraganda forseta- kosninganna árið 2016 sem líkja hafi mátt við landráð. Nú hefur Bannon vísað þessu á bug. Segir hann í yfirlýsingu sinni að þessum orðum hafi verið beint að Paul Manafort, fyrrverandi kosninga- stjóra Trumps, en ekki að Trump yngri. Bannon segist jafnframt harma hvað það hafi tekið hann lang- an tíma að leiðrétta misskilninginn. „Donald Trump yngri er bæði föðurlandsvinur og góður maður,“ segir í yfirlýsingu Bannons og þar ítrekar hann einnig að hann styðji stefnu Bandaríkjaforseta og sé einn helsti talsmaður „Trump-isma“ á al- þjóðavettvangi. Bannon hefur verið harðlega gagn- rýndur af Bandaríkjaforseta fyrir ummælin sem höfð eru eftir honum í bókinni og sagði Trump meðal annars á Twitter-síðu sinni að Bannon hefði „misst vitið“ er honum var sagt upp störfum í Hvíta húsinu síðasta sumar. Þá hefur Bannon misst fjárhagslega bakhjarla út úr fjölmiðlarekstri sín- um vegna ummælanna í bókinni. Donald Trump yngri hefur ítrekað neitað því að hafa haft rangt við er hann sat fund með rússneskum full- trúa í Trump-turninum árið 2016, eft- ir að hafa verið lofað upplýsingum um Hillary Clinton, frambjóðanda demó- krata, sem gætu sér vel fyrir Trump í kosningabaráttunni. Bannon segir Wolff fara rangt með  Segist hafa verið að tala um Manafort AFP Metsölubók Bókin er umdeild, en selst þó eins og heitar lummur. Karlmaður um sextugt slasaðist al- varlega en lést síðan eftir spreng- ingu við Varby gard-lestarstöðina í Huddinge skammt frá Stokkhólmi kl. 11.07 að staðartíma í gær. Kona hans, 45 ára, hlaut áverka í andliti en slasaðist þó ekki lífshættulega. Talið er að maðurinn hafi tekið hlut upp af jörðinni sem sprakk í hönd- unum á honum. Ekki hafði verið staðfest hvað olli sprengingunni en heimildir Aftonbladet herma að um handsprengju hafi verið að ræða. Lögreglan segir að svo virðist sem parið hafi einfaldlega verið á röngum stað á röngum tíma og slysið hafi því verið tilviljun. Ekk- ert bendi til þess að þau hafi verið skotmark árásar og engar vísbend- ingar séu um að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Svipuð atvik áttu sér stað fyrir og um síðustu aldamót og mátti rekja þau til glæpagengja. Karlmaður lést í sprengingu í Svíþjóð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.