Morgunblaðið - 08.01.2018, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 08.01.2018, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Landinn hafðiaf þvíáhyggjur að seint og illa myndi ganga að mynda stjórn eftir að önn- ur stjórnin í röð sat ekki út kjörtímabilið. Sú seinni fór svo fljótt að segja má að hún hafi sprungið á fyrstu metr- unum. Við Íslendingar erum óvanir pólitískum hryðjuverk- um sem betur fer og þess vegna tókst svona illa til. Björt fram- tíð spennti á sig stjórnar- sprengjubeltið og sprengdi það á næturfundi með sjálfri sér. Ekkert var út á sprengjugerð- ina sjálfa að setja því aðeins var um rúmlega 1% eftir af Bjartri framtíð þegar komið var að kjósendum. En vegna allra þessara sviptinga og flokka- gers á þingi í kjölfarið óttuðust margir, ekki síst þeir sem ótt- ast allt sem upp kemur, að seint og illa tækist að mynda rík- isstjórn. Kosið var seint í október og ný stjórn var komin í upphafi aðventu. Horfa má til samanburðar til Þýskalands. Það er um sumt burðugra land en Ísland og hef- ur á einni öld náð að starta tveimur heimsstyrjöldum á meðan eyjarskeggjar hér hafa aðeins slegið í tvö eða þrjú landhelgisstríð. Vissulega er stærðarmunur á þessum þjóð- um nokkur, en það má vera inn- legg í umræðuna að íslenskir unnu sín landhelgisstríð á með- an Þjóðverjar töpuðu báðum heimsstyrjöldunum. Þjóð- verjar kusu í lok september, heilum mánuði á undan Íslend- ingum. Og þeir eru enn ekki búnir að mynda stjórn í Berlín. Eitthvað hefðum við sagt um okkur. En á mbl.is um helgina var sagt frá því að nú væru hafnar könnunarviðræður um stjórnarsamstarf. Fráfarandi stjórn er samsteypustjórn flokkanna tveggja sem nú ætla að hefja könnun á samstarfs- möguleikum. Ætla mætti að flokkar sem hafa setið saman í stjórn í fjög- ur ár ættu að kannast sæmilega hver við annan. En vandinn er sá að þýskir jafnaðarmenn höfðu áður lýst því yfir að end- urnýjað samstarf við Kristilega demókrata kæmi ekki til greina í ljósi slæmrar útkomu Jafn- aðarmannaflokksins í kosning- unum. Í fréttinni sagði: Angela Merkel, kanslari landsins og leiðtogi Kristilegra demókrata, sagðist í dag bjartsýn á að henni tækist að mynda sam- steypustjórn með Jafn- aðarmannaflokknum. „Ég held að þetta sé mögu- legt. Við munum vinna mjög hratt og af einurð,“ sagði kansl- arinn. Mörg mál þarf að leysa. Þar á meðal hvað gera eigi í málum yfir einnar milljónar hælisleit- enda í landinu sem komið hafa þangað síðan 2015. Í fréttinni sagði að gengju væntingar frú Merkel eftir gæti sama stjórnin verið komin á (sama) koppinn aftur í mars eða apríl. Hálfu ári eftir kosningar! Hálft ár í stjórnarmynd- unarþref þætti vandræðalegt hér} Gott að flýta sér hægt Einhverjumhefur eflaust brugðið í brún þegar ljóstrað var upp um það að sérfræðingar í tölvu- og öryggis- málum hefðu komist að tveim- ur alvarlegum göllum í flest- um þeim örgjörvum, sem framleiddir hafa verið síðustu tvo áratugi eða svo. Voru gall- arnir sagðir þess eðlis að eng- in leið væri að vita hvort óprúttnir aðilar hefðu komist á snoðir um þá eða jafnvel hvort þeir hefðu hagnýtt sér þá í ólöglegum tilgangi. Helstu fyrirtækin sem framleiða tölvustýrikerfi, eins og Microsoft, Apple og Go- ogle, hafa þegar hafist handa við að búa til lausn fyrir ann- an gallann, en sá hefur fengið viðurnefnið „Meltdown“. Sá galli er þó á gjöf Njarðar, að þar sem vandinn liggur í ör- gjörvanum muni lausnirnar líklega hægja verulega á þeim tölvum sem taka þær í gagnið. Hinn gallinn sem uppgötvast hefur og fengið hefur heitið „Spectre“, er hins vegar sagður svo alvarlegur, að ekki muni duga minna en að skipta alveg um örgjörva vilji menn komast fyrir þann skaða sem óprúttnir aðilar geti valdið með aðgangi að honum. Á móti komi að mun erfiðara sé fyrir tölvuþrjóta að færa sér þann galla í nyt. Ef reynslan kennir eitt- hvað, sem engin ástæða er til að efast um í þessu tilviki, er ljóst að tölvuþrjótar munu nú reyna allt hvað þeir geta til þess að hagnýta sér þá örygg- isgalla sem komu í ljós á dög- unum. Það verður því enn brýnna en oft áður að þeir sem nota nettengdan tölvu- búnað, sem eru nú orðið nán- ast allir, sýni fyllstu aðgætni á netinu. Alvarlegir ágallar á örgjörvum koma í ljós og ógna öryggi almennings} Bakdyrnar standa opnar E r réttarríkið eitthvað sem skiptir máli í daglegu lífi eða er þetta bara fyrir einhverja fræðinga úr háskólunum til að fjalla um sín á milli? Hugmynd okkar um réttarríkið hefur verið álitin sá leiðarvísir sem ríkisvaldið hefur til beitingar reglna gagnvart borgurunum. Það að ríkisvaldið hafi ákveðnar leikreglur er talið auka öryggi borgaranna, réttlæti meðal þeirra og efla lýðræðið í heild. Ríkisvaldið er jú það vald sem borgarar í lýðræðisþjóðfélögum hafa kosið yfir sig en það skal ekki hafa ótakmark- að vald heldur hafa verið skapaðar ákveðnar leikreglur fyrir ríkisvaldið sem myndar svo hugmynd okkar um réttarríkið. Hugmyndin um réttarríkið verður þannig ekki skilgreind í eitt skipti fyrir öll heldur hefur mannfólkið í tímans rás þróað með sér sameiginlega sýn á það hvað réttarríkið þarf að innihalda til að geta kallast sterkt. Sagt hefur verið að grunneinkenni réttarríkisins séu þrennskonar. 1. Að lög stjórni valdbeitingu. 2. Að allir þegnar séu jafnir fyrir lögum. 3. Að borgararnir sjálfir hafi í eðli sínu ákveðin grund- vallarmannréttindi sem ekki verði af þeim tekin. Nýsjálenski réttarheimspekingurinn Jeremy Waldron hefur sett fram lýsingar sínar á fyrsta þættinum, er varðar lögin sem valdbeitingartæki. Þar segir hann grundvallaratriði að opinber stjórnsýsla fari fram fyrir opnum tjöldum og sé gegnsæ, að lög séu almenn og ekki afturvirk, að þau séu fyrirsjáanleg og að beit- ing þessara laga fari fram á grundvelli rétt- látrar málsmeðferðar fyrir sjálfstæðum dóm- stólum. Þannig er það talið eitt af grundvallaratriðum er varða réttaröryggi borgaranna og þar með öflugt réttarríki að það fari ekki eftir geðþótta valdhafa hvernig lögum skuli beitt. Það hefur örlað á því í umræðum und- anfarna daga að óháðir dómstólar séu létt- vægt viðfangsefni. Í viðtali við fulltrúa fjöl- miðla hér á landi fyrir helgi var fjallað um skipan dómara af mikilli léttúð og henni líkt við hverja aðra stjórnvaldsaðgerð. Sama má heyra í máli stöku stjórnmálamanns sem hef- ur fjallað um efnið. Hugmyndin um að allir séu jafnir fyrir lögum er einfaldlega órjúf- anlega tengd hugmyndinni um sjálfstæða dómstóla. Ekkert getur tekið frá okkur nauðsyn þess að það sé algjörlega hafið yfir allan vafa við skipun dómara að eingöngu málefnanleg sjónarmið ráði för og að skip- unin beri hvergi merki persónulegrar og eða pólitískrar skoðunar þess ráðamanns sem með skipunarvaldið fer hverju sinni. Því miður virðist okkur hér á landi ganga erfiðlega að halda þeirri nauðsyn á lofti heldur höfum við of oft á undanförnum áratugum lent í erfiðum málum er varða skipan dómara við dómstóla landsins. Þetta veikir traust allra á stjórnvöldum í heild og þar bera ráðamenn einir alfarið ábyrgð. helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir Pistill Réttarríkið Ísland Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Lögreglunni á höfuðborg-arsvæðinu var tilkynntum 309 kynferðisbrot ár-ið 2017. Það eru tæplega 12% fleiri tilkynningar en bárust árið á undan og 7% fleiri en að meðaltali síðustu fimm ár. Um helmingur tilkynntra kynferðis- brota árið 2017 voru nauðganir og fjölgaði tilkynntum nauðgunum um 16 prósent milli ára. Árni Þór Sigmundsson, yfir- maður kynferðisbrotadeildar lög- reglunnar, segir að umræðan um kynferðisbrot hafi valdið því að fleiri tilkynni kynferðisbrot, bæði eldri og ný brot. „Þessi fjölgun af tilkynntum brotum er ekki síst eldri mál. Mál sem hafa ekki átt sér stað nýlega og eru jafnvel ein- hverra ára gömul brot,“ segir Árni og bætir við að opnun Bjark- arhlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis, spili einnig inn í fjölg- unina. „Við höfum fengið eldri mál og þau hafa tengst Bjarkarhlíðinni, sem er miðstöð fyrir þolendur of- beldis, bæði kynferðisofbeldis og annars ofbeldis, og við höfum merkt aukningu í kjölfar opnunar á Bjarkarhlíð og þó það sé ekki bein- línis hægt að nefna tölur, þá hefur #metoo-umræðan án efa ýtt undir að fólk hefur tilkynnt eitthvað sem það hefur beðið með að tilkynna“. Spurður um hvort þessi mikla fjölgun mála hafi mikil áhrif á álag og rannsókn kynferðisbrotamála segir hann öll kynferðisbrotamál vera erfið og krefjast mikillar vinnu. „Þetta eru flókin mál til rannsóknar. Það er mikilvægt að fá tilkynningar sem fyrst svo við get- um hafist handa við gagnaöflun. Bæði til að geta rannsakað vett- vang ef um er ræða nýleg brot til að geta hugsanlega náð lífssýnum og einnig til að geta talað við meintan geranda og tekið nauðsyn- leg sýni. Allt þetta styrkir rann- sóknina og því meiri gögn sem við höfum sem styðja frásögnina þeim mun betri verður rannsóknin.“ Fjölgun í flestum flokkum Árið 2017 var tilkynnt um 144 nauðganir sem er fjölgun úr 124 nauðgunum árið 2016. Tilkynningar um kynferðisbrot gegn börnum fækkaði hins vegar úr 62 málum í 51 mál. Málum sem flokkast undir klám/barnaklám fjölgaði hins vegar til muna og fóru úr 4 málum árið 2016 í 14 mál árið 2017. Vændis- málum fjölgaði einnig úr 3 til- kynntum málum í 9 tilkynnt mál árið 2017. Önnur kynferðisbrot, m.a. blygðunarsemisbrot og kyn- ferðisleg áreitni, voru 90 á árinu sem leið en 84 slík mál komu upp árið 2016. Unnið úr öllum málum „Það sem ber að hafa í huga er tvíþætt, annars vegar tilkynnt brot í hverjum mánuði fyrir sig og brot sem gerðust í mánuðinum. Það geta verið 14 mál sem áttu sér stað í mánuðinum en það getur verið tilkynnt um 25 þannig að það er heildarfjöldi tilkynntra brota á árinu sem er sjálfu sér talan sem snýr að okkur því það þarf að vinna að öllum málunum hvort sem þau gerðust í gær eða í fyrra. Það þarf að rannsaka mál sem gerðust fyrir einhverjum árum, það fer mikil vinna í það þó vinnan sé öðruvísi,“ segir Árni. Að meðaltali, fyrir árin 2016 og 2017, var rúmlega eitt af hverj- um þremur kynferðisbrotamálum sem komu á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í hverjum mánuði brot sem hafði átt sér stað fyrir þann tíma. Upplýsinga- og áætlanadeild lögreglunnar setur einnig þann fyrirvara að alls ekki öll brot séu tilkynnt til lögregl- unnar og skráning eftir brotaflokk- um getur tekið breytingum eftir að rannsókn máls hefst. Tilkynntum brotum fjölgar með umræðunni Fjöldi tilkynntra nauðgana 2014 til 2017 126 71 124 144 16% fleiri en 2016 2014 2015 2016 2017* *Bráðabirgðatölur Heimild: Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Morgunblaðið óskaði eftir sundurliðun á tilkynntum brotum eftir mán- uðum fyrir síðustu tvö ár. Í tölulegum upplýsingum lögreglunnar sést að flestar nauðganir eru tilkynntar yfir hásumarið og við lok árs. Í júní og júlí á síðasta ári voru tilkynntar 29 nauðganir. Tilkynntar nauðganir í sömu mánuðum á árinu á undan voru 33. Mikill munur er á tilkynntum nauðgunum fyrir haustið 2017 og 2016. Á tímabilinu september til nóvember árið 2016 var lögeglunni tilkynnt um 27 nauðganir en á sama tímabili í fyrra voru 50 tilkynntar nauðganir. Rúmlega 40% kynferðisbrota sem tilkynnt voru á haustmánuðum 2017 voru eldri brot. Telur lögreglan að aukin umræðan um kynferðisbrot eigi þátt í aukinni tíðni tilkynninga. Sundurliðun tilkynninga 50 TILKYNNT KYNFERÐISBROT HAUSTIÐ 2017

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.