Morgunblaðið - 08.01.2018, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 08.01.2018, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 2018 Nýlöguð humarsúpa Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00 Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686 Glæný lúða Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði fyrir þig til að taka með heim Ný línuýsa Klaustur- bleikja Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú mátt ekki láta aðfinnslur sam- starfsmanna þinna draga úr þér kjarkinn. Reglurnar eru hreinar og beinar, og þú hef- ur mikið vald á þeim. 20. apríl - 20. maí  Naut Láttu það eftir þér að dekra svolítið við sjálfan þig. Heimurinn er nógu erfiður, þótt ekki sé allt upp á alvarlega mátann. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft að leysa ákveðið mál heima fyrir og það þolir enga bið svo þú verður hreinlega að láta það ganga fyrir öllu öðru. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það ríður á miklu að þú haldir ró þinni, þótt eitthvað gangi á í kring um þig. Gættu þess að ganga ekki á hlut annarra. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það leikur enginn vafi á því að þú ert skarpur. Reyndu að nýta þér það og trúðu á sannfæringu þína. Láttu þig fljóta með straumnum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þetta er góður tími til að leysa göm- ul deilumál og ganga frá lausum endum. Reyndu að dæma aðra með sama umburð- arlyndinu og þú vilt verða dæmdur með. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú vilt skipuleggja alla hluti sem er í góðu lagi ef þú reynir um leið að vera sveigjanlegur þegar það á við. Farðu yfir öll efnisatriði og gefðu þér tíma til þess að vega þau og meta. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Takturinn í lífi þínu verður hraðari á næstunni og á næstu vikum getur þú átt von á meira annríki en venjulega. Engin dyggð nær hámarki án iðni og rækt- arsemi. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Í dag er þér sérstaklega annt um frelsi og velferð annarra. Þér er alveg óhætt að hafa meiri trú á samstarfs- mönnum þínum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert upp á þitt besta og hefur jákvæð áhrif á umhverfi þitt með léttleika þínum. Það er sama í hvaða formi, þú hefur fulla stjórn á verkefnunum þínum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú áleist þig vita í hverju þú værir bestur, en sumir hæfileikar þínir eru svo augljósir að þú sérð þá ekki. Láttu and- stöðu samstarfsfélaga ekki verða þér fjötur um fót. 19. feb. - 20. mars Fiskar Mundu að allt á sinn stað og stund og nú er ekki rétti tíminn til að tala hreint út um hlutina. Gefðu þér nú tíma fyrir sjálf- an þig. Skúli Pálsson lét þess getið áBoðnarmiði 29.desember að Jósefína Meulengracht Dietrich ætti afmæli og orti: Hylla skulu hagyrðingar heillalæðu, rjóma, mjólk og mjá þeir bjóði, mæri hana vel í ljóði. Fröken Dietrich, fimust er hún flugubani, þekkt af lítillæti sínu, lofa skal ég Jósefínu! Pólitíska klæki kann og kisa gula; lengi megi ljóðin gala, lepja mjólk og náðug mala. Limra fylgir nýárskveðjum Ólafs Stefánssonar á Leir, – sem vonandi er ekki sannspár! Vor Leir er í ljósárafirrð, frá lífi, ef dapur þú spyrð. Var lengi svo sprækur, lið- oftast tækur, en lognast nú útaf í kyrrð. Sigurlín Hermannsdóttir sendi kveðjur og þakkaði fyrir kveðskap á liðnu ári. Að baki jólum og ára- mótum skildist sér að margir væru farnir að undirbúa sig undir næstu törn. – „Á þorrablótinu“: Jósafat hentist á hliðina því hlaupin var illska í liðina í rjúkandi rokki og Ranka í sjokki en hann bað hana að afsaka biðina. Páll Imsland sendi nýárskveðjur og bætti við: „Vonandi verður líf í leirnum. Ég léttist um hátíðarnar og er því þegar farinn að huga að máltíðum framtíðarinnar.“ Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir um vandræðagang við Sements- verksmiðjuna á Akranesi: Svo ljótt er að lít́upp á Skagann að langflestir fá þá í magann því turninn svo hallast að hörmung má kallast. Þeir ætt́að fá ISIS að laǵann. Sigmundur Benediktsson fór í fyrstu gönguferð ársins á Langa- sand og segir að þar sé erfitt að komast hjá að gera vísu: Undir ljúfum ölduklið, eftir blessuð jólin. Lognölduna leikur við lárétt vetrarsólin. Fyrir helgi hafði Sigmundur orð á því að máninn væri á fylliríi og sólin á norðurleið. Ofurmána vegleg veisla við er loðandi, lárétt sólin lengir geisla, lífsafl boðandi. Halldór Blöndal halldorblondal@simsnet.is Vísnahorn Afmæli kattarins og fjör á Leirnum FYRSTA FALLIÐ HANS EGGBERTS HEPPNAÐIST EKKI SVO VEL. „KOMDU NIÐUR, ÉG ER AÐ HEKLA ÞETTA FYRIR KONUNA Í NÆSTA HÚSI.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að horfa á þig og ekki stjörnurnar. …Á HVERJUM MORGNI… …AÐ LÍKJAST SJÁLFUM MÉRÞAÐ TEKUR LENGRI TÍMA… ÉG SAGÐI KON- UNNI MINNI AÐ ÉG VÆRI AÐ YFIR- GEFA HANA! VARÐ HÚN SÁR? LAGAKRÓKAR HF. SKAÐABÓTALÖGMENN JÁ… HÚN BRAUT ÖKKLA VIÐ AÐ FARA Í FLIKK FLAKK KOMDU AFTUR ÞEGAR ÞÚ HEFUR EITTHVAÐ SEM ÉG GET UNNIÐ MEÐ Á miðjum aldri finnur Víkverji velhve öflugt ýmsar bækur sem hann las á barnsaldri mótuðu viðhorf hans til lífs og tilveru. Kannski hefur ekkert haft meiri áhrif þegar öllu er á botninn hvolft. Eitthvað síaðist inn í undirmeðvitundina og í álitamálum líðandi stundar finnur Víkverji stundum, ef gaumgæfilega er hugs- að, að afstaða hans til hlutanna á rætur sínar að rekja í barnabækur, Biblíusögurnar og fleira góðgæti. Sitthvað merkilegt sem kennarar í barnaskóla sögðu situr jafnvel eftir og er leiðarljós enn í dag – þótt ann- að hafi skolast burt og sé gleymt og grafið. x x x Í foreldrahúsum um hátíðarnarfann Víkverji í kössum og hillum ýmsar bækur bernskunnar sér merktar. Ein þeirra sérstaklega rifj- aði upp góðar minningar, sagan Jón Elías eftir þau Jennu Jensdóttur og Hreiðar Stefánsson. Þar segir frá ungum dreng utan af landi sem kem- ur til nokkurra vikna dvalar hjá ömmu sinni í Reykjavík. Ýmislegt drífur á daga drengsins í borginni svo sem að á förnum vegi hittir hann gamlan blindan mann sem vantar að einhver fylgi honum yfir götu, frá heimili sínu að næsta strætóstoppi. Skemmst er frá því að segja að þetta rennur stráknum til rifja, svo hann tekur upp hjá sjálfum sér að fylgja manninum þennan spöl næstu daga og tekst með þeim einlæg og góð vin- átta. x x x Sagan af Jóni Elíasi er frá árinu1976 og mjög sennilegt er að lið- sinni ungs drengs við gamlan mann væri í dag allt öðrum augum litin. Brýnt er fyrir börnum að gefa sig helst ekki að ókunnugu fólki og svo er mjög sennilegt að blinda mann- inum hefði verið komið í „sérstök úr- ræði“ svo þekktur orðaleppur vandamálafræðinga sé notaður. – En þetta á ekki að vera svoleiðis og mik- ilvægt er að vinda ofan af vitleys- unni. Boðskapurinn úr umræddri bók er sá að við höfum öll skyldur við næsta mann, velferð má aldrei að öllu leyti fela opinberum aðilum þó þróun mála í nútímanum sé ískyggi- lega mikið í þá áttina. vikverji@mbl.is Víkverji Lofaður sé Guð er hvorki vísaði bæn minni á bug né tók frá mér miskunn sína. (Sálm: 66:20)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.