Morgunblaðið - 08.01.2018, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JANÚAR 2018
Sú ákvörðun for-
svarsmanna
bókaútgáfunnar
Simon & Schus-
ter að rifta
snemma á síðasta
ári útgáfusamn-
ingi við Milo Yi-
annopoulos um
bókina Dangero-
us vegna um-
mæla hans um barnaníð hefur nú
leitt til málaferla í Bandaríkjunum.
Samkvæmt frétt The Guardian
höfðaði Yiannopoulos málið gegn
forlaginu í júlí vegna vanefnda á
samningi. Málsvörn útgáfunnar
byggist á því að ritstjóri bókarinnar,
Mitchell Ivers, hafi snemma í vinnu-
ferlinu haft miklar efasemdir um
bókina. Máli sínu til stuðnings hefur
útgáfan lagt fram uppkast af bók-
inni með fjölmörgum athuga-
semdum ritstjóra. Meðal þess sem
Ivers skrifar í athugasemdum sínum
er að Yiannopoulos þurfi sterkari
rök gegn femínistum en að „þær séu
ljótar og kynlausar og eigi ketti“.
Ritstjórinn hvetur Yiannopoulos
ítrekað til að sleppa tilgangslausum
og yfirborðskenndum bröndurum
sem byggjast á kynþáttaníði og seg-
ir beittustu röksemdir hans drukkna
í sjálfsdýrkun.
Jafnframt kallar Ivers eftir því að
höfundur vísi í heimildir til að sanna
ýmsar fullyrðingar sínar. Þegar
Yiannopoulos leggur til að öllum
lesbíum verði hent út úr háskólum
og sendar „aftur þangað sem þær
eiga heima – í klámmyndum“ skrif-
ar Ivers: „Oj, bara. Strika út.“
Ritstjóra ofbauð ummæli um lesbíur
Milo Yiannopoulos
»Nýlistasafnið fagnar
fjörutíu ára starfs-
afmæli í ár. Hátíðarhöld
félagsmanna hófust með
fjölsóttum afmælisfagn-
aði á föstudagskvöldið
var, í nýjum og rúmgóð-
um sýningarsölum Nýló
í Marshall-húsinu á
Granda þar sem meðal
annars komu fram
hljómsveitir skipaðar
myndlistarmönum. Af-
mæli Nýlistasafnsins,
sem hefur verið leiðandi
í mynlistarlífi landsins
undanfarna áratugi, er
síðan fagnað með röð
allrahanda sýninga á
árinu sem er að hefjast.
Fjörutíu ára afmælisfagnaður Nýlistasafnsins
Uppstilling í rými Unnar Örn, Birna Bjarnadóttir og Sædís Karlsdóttir mættu í afmælisfagnaðinn.
Tímamót Þóranna Dögg Björnsdóttir við afmæliskökuna.
Gestir Sigmann Þórðarson og Kristján Jón Pálsson.
Fögnuður Claudia Hausfeld og Chooc Ly létu sig ekki vanta.
Morgunblaðið/Hanna
ALLT FYRIR
HÁR & HÚÐ
harvorur.is
Modus Hár- og Snyrtistofa - Smáralind | Modus Hársnyrtistofa - Glerártorgi
Sími: 527 2829 harvorur.is
ICQC 2018-20
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
NÝ VIÐMIÐ
Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI
LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR
DOLBY ATMOS
LUXURY · LASER
Sýnd kl. 7.50, 10.30
Sýnd kl. 5.30, 8, 10.15 Sýnd kl. 5.30
Sýnd kl. 5.30, 10.30