Morgunblaðið - 29.01.2018, Side 4
4 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 2018
12. febrúar í 10 nætur
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Bókaðu sól
FUERTEVENTURA
Allt að
25.000kr.
afsláttur á mannFrá kr.
89.995
Frá kr.
69.995
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Eyþór L. Arnalds er ótvíræður sig-
urvegari leiðtogaprófkjörs Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík.
Eyþór hlaut 2.320 atkvæði eða
61% af greiddum og gildum atkvæð-
um. Næst á eftir Eyþóri kom Áslaug
María Friðriksdóttir með 788 at-
kvæði, Kjartan Magnússon með 460,
Vilhjálmur Bjarnason með 193 og
Viðar Guðjohnsen með 65.
Eyþór Arnalds segir viðbrögð sín
við niðurstöðum leiðtogakjörsins
fyrst og fremst þakklæti og auðmýkt
gagnvart verkefninu sem framundan
er.
„Það kom á óvart hversu afger-
andi niðurstaðan var. Ég ætlaði að
vinna þrátt fyrir að tíminn væri
naumur. Ég lít á þetta sem byr í
seglin fyrir framboð okkar sjálfstæð-
ismanna og breytingar fyrir borgar-
búa. Niðurstaðan var skýr og hún
segir okkur að fólk vill breytingar í
borginni,“ segir Eyþór.
Hann segist finna hljómgrunn fyr-
ir þeim hugmyndum sem hann talaði
fyrir og sjálfstæðismenn eigi bjarta
von í vor.
Listinn nýtt upphaf í borginni
Eyþór segir að nú sé það verkefni
kjörnefndar að stilla upp á lista „Ég
ber virðingu fyrir störfum kjör-
nefndar og mun ekki segja henni fyr-
ir verkum. Ég styð hana í þeim
ákvörðunum sem hún tekur,“ segir
Eyþór og bendir á að allir
sjálfstæðismenn í borginni geti haft
samband við kjörnefnd og boðið sig
fram.
„Listinn þarf að vera nýtt upphaf
fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borginni
og kjörnefndar bíður það hlutverk að
setja upp sterkasta listann.“
Eyþór þakkar gott afgerandi kjör
því að íbúar borgarinnar séu búnir
að fá nóg og niðurstaðan sé ákall um
breytingar.
„Í fyrsta lagi í samgöngumálin þar
sem skutlið hefur breyst í langferð.
Húsnæðismálin, sérstaklega gagn-
vart ungu fólki sem getur ekki keypt
húsnæði þar sem það vill. Skólamálin
þarf að laga. Það er ótækt að leik-
skólabörn séu send heim. Það þarf
að gera átak í lestrarmálum í grunn-
skóla og að lokum þarf að breyta
stjórnkerfinu sem er orðið allt of
dýrt og þungt,“ segir Eyþór.
Eyþór ótvíræður leið-
togi sjálfstæðismanna
Ný byrjun í borginni Ákall um breytingar Skutlið orðið að langferð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Leiðtogi Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, óskar Eyþóri til hamingju.
Áslaug María Friðriks-
dóttir hlaut næst flest at-
kvæði í leiðtogakjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík,
alls 788 atkvæði.
Ekki náðist í Áslaugu við
vinnslu fréttarinnar en á
fésbókarsíðu sinni þakkar
hún fyrir allan stuðning,
símtöl, skemmtun og falleg
skilaboð meðan á snarpri og góðri baráttu
stóð. Hún segist stolt af baráttunni.
Áslaug óskar sigurvegara prófkjörsins, Ey-
þóri Arnalds, til hamingju og segir að næst
taki við verkefni kjörnefndar að stilla upp sig-
urstranglegum lista.
Þakklát fyrir stuðninginn
Kjartan Magnússon, borg-
arfulltrúi segir niðurstöðu
leiðtogaprófkjörsins ekki
hafa komið alveg á óvart.
Hann hafi samt vonast eft-
ir meiri stuðningi.
„Ég óska Eyþóri inni-
lega til hamingju með kjör-
ið. Ég fann það í aðdrag-
anda baráttunnar að það
var mikil krafa um endurnýjun og mikil
stemming fyrir nýjum manni í efsta sætið,“
segir Kjartan.
„Nú er leiðtogakjörinu lokið og kjörnefnd
tekur við. Ég hef ekki hugað að framhaldinu
en ég er tilbúinn að ræða setu á listanum.“
Tilbúinn að skoða setu á
lista sjálfstæðismanna
Vilhjálmur Bjarnason
sættir sig við niðurstöðu
prófkjörsins og óskar þeim
sem taka sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík
velfarnaðar.
„Þetta snerist um leið-
togakjör og það var á
brattann að sækja þar sem
ákveðin forystuöfl snerust
á sveif með Eyþóri Arnalds. Nú er þetta mál-
efni Reykvíkinga og þeir telja Eyþór rétta
manninn. Ég tek ekki sæti á listanum og er
fluttur aftur í Garðabæinn,“ segir Vilhjálmur
sem fæddur er og uppalinn í borginni.
Tekur ekki sæti á lista.
Fluttur í Garðabæinn
Viðar Guðjohnsen er sáttur
við niðurstöðu leiðtoga-
kjörsins og hefur fulla trú á
Eyþóri sem leiðtoga. Hann
segir að hann hafi aldrei
ætlað sér að taka sæti á
lista, það væri nóg af góðu
fólki í Reykjavík til þess.
„Ég var ekki að sækja um
vinnu, ég vildi hræra upp í
hlutunum og það tókst,“ segir Viðar sem finnst
doði hafa verið í pólitískri umræðu og vinnu-
brögðum fjölmiðla ábótavant.
Ætlaði sér aldrei á lista,
vildi hræra í hlutunum
Gísli Kr. Björnsson, formaður
Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík, er
ánægður með afgerandi niður-
stöðu leiðtogaprófkjörsins.
„Ég vonaði að sá sem myndi
vinna sæti í góðu og öruggu
umboði kjósenda og það varð
niðurstaðan. Leiðtoginn hefur
tæplega 62% atkvæða á bak
við sig,“ segir Gísli og bætir
við að þetta sé í fyrsta sinn sem leiðtogakjör hafi
farið fram með þessum hætti hjá sjálfstæðis-
mönnum í Reykjavík.
Gísli segir næsta skref í höndum kjörnefndar
undir forystu Sveins H. Skúlasonar.
„Ég get ekki svarað hvenær nefndin verður búin
að stilla upp lista en vonandi verður það sem fyrst
svo frambjóðendur geti farið að vinna að mál-
efnum sjálfstæðismanna í borginni í heild sinni.“
Gísli segist treysta því að kjörnefndin raði
þannig á listann að tekið verði tillit til allra hópa
en fyrst og fremst þurfi að velja á listann, hafa
valinn mann í hvert rúm og að hæfustu menn og
konur skipi hann. Varðandi jafnt hlutfall kynjanna
segir Gísli það ekki rétt að það halli á annað kynið.
Sem dæmi þá hafi verið jafnt hlutfall í þingkosn-
ingunum 2016 í Reykjavík. Kona hafi leitt annað
kjördæmið og karl hitt.
„Sjálfstæðismenn í Reykjavík hafa ekki þurft að
breyta listum til þess að ná jafnvægi milli kynja.“
Leiðtogakjörið var fyrsta prófkjörið frá hruni
þar sem kjörsóknin jókst.
„Í kjörinu tóku þátt á sjötta hundrað fleiri en í
prófkjöri til Alþingis 2016. Ég get sem formaður
Varðar ekki verið annað en sáttur,“ segir Gísli og
bætir við að hann hafi heyrt í hverfafélögum, að-
ildarfélögum og fleirum og ekki sé annað að heyra
en að menn beri fullt traust og flykki sér á bak við
nýjan leiðtoga.
Framhaldið er nú í höndum kjörnefndar
VEL HEPPNAÐ LEIÐTOGAKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Gísli Kr. Björnsson
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Flokksráðsfundur Vinstri hreyfing-
arinnar græns framboðs fór fram á
Grand hóteli á laugardag, en fundur-
inn var helgaður sveitarstjórnarmál-
um. Fimm stjórnmálaályktanir um
sveitarstjórnarmál voru samþykktar
á fundinum.
Sérstök ályktun var einnig sam-
þykkt um #metoo og siðareglur
stjórnmálamanna. Um 200 flokks-
menn sóttu fundinn.
Mál dómsmálaráðherra rætt
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráð-
herra og formaður flokksins, sat fyr-
ir svörum auk annarra ráðherra VG í
ríkisstjórn, en hún flutti einnig
ræðu. Lagði Katrín áherslu á inn-
flytjendamál, jafnréttismál, verk-
efnalista ríkisstjórnarinnar og sveit-
arstjórnarkosningar. Kjaramál og
markmið ríkisstjórnarinnar í um-
hverfismálum ræddi Katrín einnig.
„Hitnar undir ráðherra“
Varaformaður VG, Edward Huij-
bens, flutti einnig ræðu og ræddi við
fundarmenn um málefni dómsmála-
ráðherra og samstarf VG við systur-
flokka í Norður-Evrópu.
Um mál Sigríðar Andersen, dóms-
málaráðherra, sagði Edward að
kröfur um að Katrín viki henni úr
embætti ættu ekki við rök að styðj-
ast. Stjórnskipanin gerði ráð fyrir
ferli fyrir mál sem þessi og stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefnd ætti orð-
ið. Edward hafði það einnig á orði að
það hitnaði undir Sigríði í embætti.
„Já, kæru félagar. Það hitnar undir
Sigríði Á. Andersen og til að þetta
eldist nú allt vel og brenni ekki, er
betra að hækka hitann rólega,“ sagði
Edward og uppskar hlátur nokkurra
fundarmanna.
Sveitarstjórnarmálin í
forgrunni á flokksráðsfundi
Vinstri græn skerptu á stjórnmálastefnunni fyrir vorið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ræða Katrín Jakobsdóttir, formað-
ur VG, í ræðustól um helgina.