Morgunblaðið - 29.01.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 2018
Páll Vilhjálmsson blaðamaðurrifjaði í gær upp atburð sem
var ánægjulegur
fyrir íslensku þjóð-
ina en kom sér illa
fyrir ýmsa: „Vinstri-
stjórn Jóhönnu Sig.
stóð höllum fæti í
janúar 2013. ESB-
umsóknin hafði ver-
ið lögð á ís um ára-
mótin og stjórnarskrármálið
hreyfðist ekki spönn frá rassi.
En það var EFTA-dómstóllinnsem endanlega drap Jóhönnu-
stjórnina fyrir fimm árum upp á
dag. Eftir að Icesave-dómurinn féll
Íslendingum í vil og þar með reynd-
ist allt rangt sem þau Jóhanna, Öss-
ur og Steingrímur J. sögðu um
ábyrgð Íslendinga á skuldum einka-
banka.
Nokkrir einstaklingar urðu fyrirverulegum álitshnekki með
dómnum, t.d. hagfræðingarnir Þór-
ólfur Matthíasson og Gylfi Magnús-
son sem boðuðu að Ísland yrði Kúba
norðursins ef þjóðin axlaði ekki
ábyrgðina á Icesave.
Framsóknarflokkurinn og for-maður hans, Sigmundur
Davíð, voru sigurvegarar Icesave-
málsins.“
Icesave-málið fór að lokum vel,þrátt fyrir vinstri stjórnina sem
barðist gegn hagsmunum þjóðar-
innar í málinu. En það var þjóðinni
engu að síður dýrt, vegna Icesave-
málsins og fleiri mála, að búa við
ríkisstjórn sem lagði slíkt kapp á að
kljúfa þjóðina að hún tók jafnvel af-
stöðu með erlendum kröfugerð-
armönnum frekar en að leitast við
að þjappa þjóðinni að baki sér.
Mikilvægt er að slík framkomagleymist ekki en verði víti til
varnaðar.
Páll Vilhjálmsson
Baráttan sem ekki
má gleymast
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 28.1., kl. 18.00
Reykjavík 0 skýjað
Bolungarvík -3 léttskýjað
Akureyri -1 léttskýjað
Nuuk -9 skýjað
Þórshöfn 5 skýjað
Ósló 1 þoka
Kaupmannahöfn 6 þoka
Stokkhólmur 1 súld
Helsinki 0 snjókoma
Lúxemborg 5 þoka
Brussel 10 þoka
Dublin 12 skýjað
Glasgow 11 rigning
London 12 skýjað
París 10 súld
Amsterdam 9 skýjað
Hamborg 7 súld
Berlín 8 skýjað
Vín 8 skýjað
Moskva -6 alskýjað
Algarve 15 léttskýjað
Madríd 12 skýjað
Barcelona 14 heiðskírt
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 13 heiðskírt
Aþena 11 heiðskírt
Winnipeg -22 skýjað
Montreal 2 skýjað
New York 8 rigning
Chicago 2 þoka
Orlando 24 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
29. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:17 17:06
ÍSAFJÖRÐUR 10:40 16:53
SIGLUFJÖRÐUR 10:24 16:35
DJÚPIVOGUR 9:51 16:31
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Kíktu á útsöluverðið!
Teygja á rist.
Góður sóli með
dempun í hæl.
Laust leðurinnlegg.
Leður sandali
Útsöluverð
.
er ur .
„Tilnefningin er til vitnis um sterka framtíðarsýn
og verði hún samþykkt getur það skapað ýmis tæki-
færi hér um slóðir,“ segir Björn Ingi Jónsson,
bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Vatnajökulsþjóðgarður og hluti gosbeltisins sem
liggur þvert um landið verða tilnefnd á heimsminja-
skrá UNESCO, Menningarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna, skv. yfirlýsingu sem Guðmundur Ingi
Guðbrandsson, umhverfisráðherra, og Lilja Al-
freðsdóttir, menntamálaráðherra, undirrituðu við
Hoffellsjökul í gær. Tilnefningin verður afhent
UNESCO á miðvikudag, en um mitt næsta ár ætti
ákvörðun um tilnefningu að liggja fyrir. Þar er
áhersla lögð á rekbeltið, heita reitinn undir landinu,
eldstöðvakerfi og samspil elds og íss. Á heimsminja-
skrá eru staðir sem hafa gildi fyrir allt mannkyn. Ís-
lenskir staðir þar nú eru Þingvellir og Surtsey.
Formlegur undirbúningur vegna tilnefningar-
innar hófst 2016 og hefur staðið síðan. „Samþykkt á
heimsminjaskrá gæti styrkt Vatnajökulsþjóðgarð
sem ferðamannastað auk þess sem meiri fjármunir
fást vonandi til reksturs þar og starfsemi,“ segir
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri. sbs@mbl.is
Heimsminjaskráin er tækifæri
Vatnajökulsþjóðgarður
tilnefndur hjá UNESCO
Veröld Við Hoffellsjökul í gær þar sem ráðherrar
undirrituðu tilnefninguna til UNESCO.
Skjálftahrina hófst kl. 07.49 í gær-
morgun 12,5 kílómetra norð-
norðaustur af Grímsey með skjálfta
að stærð 4,1 stig. 22 mínútum síðar
reið annar skjálfti yfir, 3,3 stig að
stærð.
Einar Hjörleifsson, náttúruvár-
sérfræðingur hjá Veðurstofu Ís-
lands, sagði í samtali við Morgun-
blaðið um kvöldmataleytið í gær að
skjálftahrinunni væri lokið og að á
þriðja tug skjálfta hefðu mælst.
Einar segir að ekkert óeðlilegt sé í
gangi við Grímsey.
Hann segir Veðurstofuna hafa
mælt stærsta skjálftann 4,1 en er-
lendar skjálftaveitur hefðu mælt
hann 4,3 stig.
Einar segir að þrjár tilkynningar
hafi borist í gegnum skráningu
Veðurstofunnar sem nefnist
Fannstu skjálftann. Ein úr Þingeyj-
arsveit og tvær frá Akureyri.
ge@mbl.is.
Jarðskálfti
4,1 að stærð
Morgunblaðið/ÞÖK
Grímsey Íbúarnir eru öllu vanir
þegar kemur að jarðskjálftum.