Morgunblaðið - 29.01.2018, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 29.01.2018, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 2018 OCEAN MIST Modus Hár og Snyrtistofa Smáralind | harvorur.is REF Stockholm er 12 ára gamalt Professional haircare merki Ocean Mist er 100 % Vegan , sulfate, Paraben, glúten og Cruelity free Verð 2.560 kr. Sjá nánar á harvorur.is Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Sauli Niinisto, forseti Finnlands, var í gær endurkjörinn í embættið og mun hann því gegna embættinu öðru sinni. Þegar meirihluti atkvæða hafði verið talinn í gærkvöldi var stuðningur við Niinisto 62 prósent. „Þetta kom á óvart og ég er djúpt snortinn vegna þessa mikla stuðn- ings,“ sagði Niinisto þegar úrslitin voru kunngjörð, en hann hefur notið mikilla vinsælda í Finnlandi frá því hann var kjörinn fyrst. Forsetakjörið í gær er það fyrsta frá árinu 1994 þar sem finnska þjóð- in þarf aðeins eina umferð kosninga til að ákveða sig. Það ár var lögunum breytt þannig að forseti þyrfti að hafa stuðning meirihluta þjóð- arinnar og er Niinisto því fyrsti for- setinn sem kjörinn er með hreinum meirihluta í fyrstu umferð. AFP Endurkjörinn Sauli Niinisto hefur verið vinsæll meðal finnsku þjóðarinnar og fékk örugga kosningu í gær og situr því sitt annað kjörtímabil. Niinisto endurkjör- inn forseti Finna  62% stuðningur í fyrstu umferð Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Tyrkir gerðu í gær árás á bæki- stöðvar sveita Kúrda, YPG, í norð- urhluta Sýrlands, nánar tiltekið á fjallinu Barsaya í Afrin-héraði. Náðu Tyrkir yfirráðum á fjallinu sem staðsett er á miðjum landa- mærum Tyrklands og Sýrlands. Undanfarið hefur skyggni verið slæmt og þoka mikil, en í gær nýttu Tyrkir sér að himinn var heiður og gerðu atlögu úr lofti. Yfirlýstur tilgangur umræddra hersveita Kúrda er landamæra- varsla, en Tyrkir telja samtökin til hryðjuverkasamtaka. Árásirnar staðið í viku Árásirnar hófust 20. janúar sl. og hafa staðið yfir í rúma viku. Fjallið Barsaya er staðsett á landamærum Tyrklands og Sýrlands og þaðan er útsýni yfir bæina Kilis og Azaz sem eru sinn hvorum megin við landa- mærin. Fjallið er því hernaðarlega mikilvægt. Á mánudag töldu Tyrkir sig hafa náð yfirráðum á fjallinu, en skömmu síðar féll stjórnin aftur í hendur Kúrda. Sjö tyrkneskir hermenn hafa fallið frá því innrásin hófst og um 40 hafa særst. Rúmlega sextíu kúrdískir hermenn hafa fallið. Talið er að um 42 óbreyttir borgarar hafi fallið, þar á meðal tólf börn. Tyrkir hafa neitað ásökunum um að hafa að skotmörkum svæði þar sem al- mennir borgarar hafast við. Samskipti NATO-ríkja stirðna Stjórnmálaskýrendur telja að að baki hernaðaraðgerðunum liggi pólitísk markmið Recep Tayyip Er- dogan, Tyrklandsforseta, í heima- landinu, en hann hefur áður nýtt sér deilur Tyrkja og Kúrda til að afla sér fylgis. Mismunandi afstaða Tyrkja og Bandaríkjamanna til YPG hefur höggvið skarð í samstöðu ríkjanna tveggja. Þannig hafa Tyrkir skil- greint sveitir YPG sem hryðju- verkasamtök og telja þau vera af- sprengi Kúrdíska verkamanna- flokksins, PKK. Bandaríkjamenn og aðrar NATO-þjóðir hafa hins vegar stutt sveitir YPG og m.a. séð þeim fyrir vopnum sem notuð hafa verið í átökum víða um Sýrland. Þannig hefur YPG lagt hönd á plóg í átök- um Bandaríkjamanna við liðsmenn hryðjuverkasamtakanna Ríkis ísl- am. Donald Trump, Bandaríkjafor- seti, hvatti Erdogan til að láta af hernaðaraðgerðunum í síðustu viku, en Erdogan hefur hótað því að ráðast inn í Manbij í austurhluta Afrin-héraðs, en þar eru um tvö þúsund bandarískir hermenn. Tyrkir hafa krafist þess af Banda- ríkjamönnum að þeir kalli um- rædda hermenn heim hið snarasta. Friðarviðræður í uppnámi Friðarviðræður um stríðið í Sýr- landi sem fyrirhugaðar eru í rúss- nesku borginni Sochi í næstu viku eru í uppnámi vegna hernaðarað- gerða Tyrkja, en talsmenn Kúrda kveðast ekki munu taka þátt í þeim fyrr en árásum Tyrkja linni. Viðræðunum er ætlað að binda enda á stríðið í Sýrlandi og leysa úr stjórnmálaflækjum milli ríkja og þjóða sem tekið hafa þátt í stríðinu. Fjölmargar tilraunir hafa verið gerðar í þessa veru, en engin þeirra heppnast. Um 340 þúsund manns hafa látið lífið í stríðinu í Sýrlandi sem nú hefur staðið yfir í sjö ár. Í árásum Tyrkja á föstudag skemmdist um þrjú þúsund ára gamalt hof í Ain Dara, en yfirvöld í Sýrlandi segja að um 60 prósent þess séu ónýt. Í tilkynningu frá hinu opinbera var skemmdarverk- unum líkt við skemmdarverk hryðjuverkasamtakanna Ríkis ísl- am á fornminjunum í Palmyra í Sýrlandi sem samtökin eyðilögðu vísvitandi á síðustu árum. Átökin magnast í Sýrlandi  Tyrkir náðu yfirráðum á fjallinu Barsaya  42 óbreyttir borgarar fallnir  Samskipti Bandaríkjamanna og Tyrkja stirðna  Fornt hof var eyðilagt AFP Afrin-hérað Reykur stígur til himins eftir loftárásir tyrkneskra hersveita í Afrin-héraði í gær. Sýrland » Hersveitir Tyrkja náðu fjalls- hlíðum Barsaya á sitt vald í gær. » Samband Bandaríkjanna og Tyrklands versnar enn að mati stjórnmálagreinenda. » 42 óbreyttir borgarar hafa fallið í átökunum í Afrin-héraði í Sýrlandi. » Tyrkir hafna ásökunum um að hafa varpað sprengjum á griðasvæði almennra borgara. » Friðarviðræður vegna stríðs- ins í Sýrlandi í uppnámi vegna hernaðaraðgerða Tyrkja » Sýrlendingar líkja eyðilegg- ingu forns hofs í Ain Dara við skemmdarverk Ríkis íslams. Rússneska lög- reglan handtók í gær leiðtoga rússnesku stjórn- arandstöðunnar, Alexei Navalny. Upplýsti hann sjálfur um hand- tökuna á Twit- ter, en hann var handtekinn í kjölfar mótmæla- fundar í Moskvu sem hann hafði boðað til vegna fyrirhugaðra for- setakosninga. Navalny gagnrýndi á fundinum framkvæmd kosninganna og sagði komandi forsetakjör lítið annað en krýningu Vladmirs Pútín, forseta Rússlands, en talið er að hann muni bera sigur úr býtum og sitja til árs- ins 2024. Nacalny á yfir höfði sér ákæru fyrir að hafa skipulagt mótmælin í óleyfi. RÚSSLAND Handtóku leiðtoga andstöðunnar Alexei Navalny Yfirvöld í París eru í viðbragðs- stöðu vegna vatnshæðar ár- innar Signu, en yfirborð hennar er nú um fjórum metrum hærra en venjulega, tæpir sex metr- ar. Í gær hækk- aði vatnsborðið um níu sentimetra á einum sólar- hring. Mikil rigning hefur verið í borg- inni síðustu daga og hafa um 1.000 íbúar yfirgefið heimili sín vegna væntra flóða. Um 1.500 heimili eru án rafmagns. Allar siglingar eru bannaðar á Signu að undanskildum neyðarflutningum og hefur ástand- ið því haft mikil áhrif á þjónustu við ferðamenn í borginni. Árið 2016 urðu flóð í París vegna vatnavaxta í Signu, en þá þurfti að loka Louvre-listasafninu í fjóra daga. Þá var vatnshæð árinnar rúmlega 6,1 metri. FRAKKLAND Vatnshæð Signu veldur áhyggjum Signa Flóð gætu orðið í París.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.