Morgunblaðið - 29.01.2018, Page 17

Morgunblaðið - 29.01.2018, Page 17
Jafnrétti: Stundum en ekki alltaf jákvætt? Hæfnisnefnd lagði til við dómsmálaráð- herra í maí á síðasta ári að nákvæmlega 15 einstaklingar yrðu skipaðir dómarar við nýjan Landsrétt. Af þeim 15 einstaklingum voru aðeins fimm kon- ur. Í fyrsta skipti í sögu lýðveldisins kom Alþingi að skipan dóm- ara og var það samkvæmt lögum. Þegar leitað var eftir skoðun þing- manna, þvert á flokka, á tillögum nefndarinnar varð strax ljóst að Al- þingi myndi ekki samþykkja þær óbreyttar. Á síðustu árum hefur krafan um aukið jafnræði kynjanna í opinber- um störfum styrkst svo um munar. Fram til þessa hefur hallað veru- lega á konur við skipan í dómara- stöður þótt fleiri konur starfi nú innan lögfræðistéttarinnar en áður og hafi víðtæka þekkingu og reynslu til starfans. Jafnara kynjahlutfall meðal dómara er til þess fallið að efla traust til dómstóla, til dæmis þegar kemur að meðferð kynferð- isbrotamála fyrir dómi. Við skipun dómara við Landsrétt taldi Sigríður Á. Andersen, dóms- málaráðherra, nauðsynlegt að líta til fleiri þátta en hæfn- isnefndin hafði gert, en þó sérstaklega auka vægi dómarareynslu. Þær tillögur sem dómsmálaráðherra lagði til við Alþingi í lok maí um skipun 15 dómara við Landsrétt leiddu jafnframt til þess að fjöldi kvenna jókst úr fimm í sjö. Þar með var kynjaskipting við Landsdóm orðin jafnari, sjö konur og átta karlar. Aukið jafnrétti kynjanna við stofnun nýs dómsstigs á Íslandi hefði einhvern tímann ver- ið álitið jákvætt skref fram á við af hálfu þeirra sem hæst hafa talað um jafnrétti á öllum sviðum samfélags- ins. Eftir Völu Pálsdóttur » Jafnara kynjahlutfall meðal dómara er til þess fallið að efla traust til dómstóla, til dæmis þegar kemur að með- ferð kynferðisbrotamála fyrir dómi. Höfundur er formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna. Vala Pálsdóttir 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 2018 Reykjavík Ungur myndasmiður við Sólfarið sýndi talsverð tilþrif og beindi linsu myndavélarinnar að fuglum himinsins, Esjunni og öðru áhugaverðu myndefni sem fyrir augun bar. Kristinn Magnússon Sameiginlegt verk- efni allra landsmanna, fyrirtækja, stofnana og hins opinbera á næstu árum er að byggja upp orðspor Íslands. Takist það þá skilar það sér í auk- inni eftirspurn eftir ís- lenskum vörum og þjónustu, vekur áhuga erlendra ferðamanna á landinu sem og áhuga erlendra fjárfesta á íslensku atvinnulífi. Þar með fæst meira fyrir vöru og þjón- ustu, meiri verðmæti en ella verða til og það skilar sér í auknum lífs- gæðum. Stefna hins opinbera í inn- kaupum skiptir miklu máli í þessu samhengi þar sem hið opinbera eyðir 45 krónum af hverjum 100 krónum í hagkerfinu. Framkvæmd útboða má ekki hygla innfluttum vörum á kostnað innlendra. Því miður hefur borið á því í útboðum hins opinbera að óskað er eftir til- teknum húsgögnum, jafnvel þekktri erlendri hönnun. Innlend hönnun og framleiðsla stendur þar með verr að vígi og fyrirætlanir um að byggja vöxt á hugviti, hönnun og framleiðslu ganga ekki eftir. Val okkar hefur áhrif Það vakti athygli nýlega þegar heilbrigðisráðuneytið valdi innflutt húsgögn inn í ráðuneytið. Með því að velja frekar ís- lenska framleiðslu og hönnun er stutt við ís- lenskt hugvit og hug- myndaauðgi. Með slíku vali taka stjórn- völd þátt í því að byggja upp iðnað á grundvelli handverks, hugvits og hönnunar auk þess að fjölga sendiherrum Íslands. Slík uppbygging tekur mörg ár en eins og í öllum ferðalögum þá þarf að leggja af stað til þess að komast á áfangastað. Byrjum núna. Því miður hafa mörg tækifæri farið forgörðum í gegnum tíðina því við ætlum alltaf að nýta næsta tæki- færi sem gefst. Stjórnvöld þurfa að ganga á und- an með góðu fordæmi og prýða op- inberar byggingar sem fjöldi fólks leggur leið sína um með íslenskum húsgögnum, sem bera menningu landsins, handverki og hönnun gott vitni. Því miður hafa fjölmörg tæki- færi ekki verið nýtt sem skyldi. Veröld – hús Vigdísar Finnboga- dóttur er prýtt innfluttum hús- gögnum. Hið sama á við um Hörpu, sendiráð Íslands víða um heim sem og húsnæði ráðuneyta hér á landi. Í forsætisráðuneytinu er skand- ínavísk hönnun áberandi svo dæmi sé tekið. Betur færi á því að ís- lenskt framleiðsla, hugvit og hönn- un væri áberandi í opinberum byggingum. Þar liggja tækifæri til að fjölga sendiherrum íslensks iðn- aðar og rækta í leiðinni orðspor Ís- lands. Ráðamenn velji íslenskt Danir hafa um áratuga skeið lagt áherslu á hönnun og framleiðslu. Þær áherslur eru svo inngrónar í þjóðarsálina að dönsk húsgögn prýða flestar opinberar byggingar, fyrirtæki og heimili þar í landi. Raunar hefur Dönum tekist svo vel til að dönsk húsgögn prýða margar byggingar hér á landi, ekki síst op- inberar byggingar. Dönsk húsgögn eru þannig sendiherrar danskrar menningar og bera hróður landsins víða um heim. Við eigum slíka sendiherra og þurfum að fjölga þeim. Það færi vel á því að ráð- herrar í ríkisstjórn Íslands veldu frekar íslenska hönnun og fram- leiðslu umfram erlenda og sýndu þar með vilja í verki. Við þurfum öll að taka þátt í því að rækta vörumerkið Ísland og auka þannig eftirspurn eftir því sem við höfum upp á að bjóða. Það er ekki eftir neinu að bíða, hefj- umst handa núna. Eftir Sigurð Hannesson »Með því að velja frekar íslenska framleiðslu og hönnun er stutt við íslenskt hug- vit og hugmyndaauðgi. Sigurður Hannesson Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Stöndum með sjálfum okkur og byrjum núna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.