Morgunblaðið - 29.01.2018, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 2018
Raðauglýsingar
Tilboð/útboð
Útboð
Sandblásturinn felur í sér að að fjarlægja harðar
kísilúrfellingar af á rótorum, leiðiskóflum, ásþéttihúsum
og öðrum búnaði.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Nánar lýst í útboðsgögnum „ONRS-2018-01 Sandblástur“
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu á vefsíðu OR
https://www.or.is/utbod
Tilboð verða opnuð hjá Orku náttúrunnar ohf. Bæjarhálsi 1,
110 Reykjavík, þriðjudaginn 06.03.2018 kl. 11:00.
Orka náttúrunnar ohf. óskar eftir tilboðum í:
Sandblástur
ORKA NÁTTÚRUNNAR
Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is
Allar fyrirspurnir vegna útboðs skal senda á utbod@or.is
j l i , j í · í i · . .i
ll i i l n.is
ONRS-2018-01 / 29.01.2018
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, Kraftur í KR kl. 10.30 (leikfimi,
allir velkomnir og frítt inn). Útskurður og myndlist kl. 13 og félagsvist
er spiluð í matsalnum kl. 13.
Boðinn Leikfimi kl. 10.30, bingó kl. 13, myndlist kl. 13.
Dalbraut 18-20 Handavinnusamvera kl. 9, brids kl. 13.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.20, opin handverks-
stofa kl. 13, botsía kl. 13.30, kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir!
Furugerði 1 Morgunverður frá kl. 8.10-9.10 í borðsal, fjöliðjan í kjall-
ara opin frá kl. 10, heitt kaffi á könnunni hjá Möggu Dögg, stólaleik-
fimi með Olgu kl. 11 í innri borðsal, hádegisverður kl. 11.30-12.30 í
borðsal, ganga kl. 13 ef veður leyfir, botsía í innri borðsal kl. 14, síð-
degiskaffi kl. 14.30-15.30 í borðsal.
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl.
9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara í síma 617-
1503, vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.40/8.20/15.15, kvennaleikfimi Sjálandi
kl. 9.05, stólaleikfimi Sjálandi kl. 9.50, kvennaleikfimi Ásgarði kl. 10.40,
brids í Jónshúsi kl. 13, Tiffany námskeið í Kirkjuhvoli kl. 13, zumba í
Kirkjuhvoli kl. 16.15.
Gerðuberg Opin Handavinnustofa kl. 8.30-16, útskurður með leið-
beinanda kl. 9-16, línudans kl. 13-14, kóræfing kl. 14.30-16.30.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta.
Grensáskirkja Síðdegissamvera eldri borgara í Grensáskirkju verður
miðvikudaginn 31. janúar kl. 17.30-19, söngur og hugvekja, Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson sálmaskáld, fjallar um sálmana sína. Að því loknu
borðum við saman létta máltíð í safnaðarheimilinu. Verð 1.000 kr. Vin-
samlega tilkynnið þátttöku í síma 528 4410 eða netfang grensaskir-
kja@kirkjan.is í síðasta lagi í dag, mánudag.
Gullsmári Postulínshópur kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10, handa-
vinna kl. 13, brids kl. 13, jóga kl. 18, félagsvist kl. 20.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
opin handavinna kl. 9–14, bænastund kl. 9.30–10, jóga kl. 10.10–11.10,
hádegismatur kl. 11.30, prjónaklúbbur kl. 14, kaffi kl. 14.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, léttar erobik-
æfingar hjá Milan kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45, jóga kl. 10 hjá
Carynu, hádegismatur kl. 11.30. Tálgun kl. 13, spilað brids kl. 13, eftir-
miðdagskaffi kl. 14.30. Jóga hjá Ragnheiði kl. 16.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, hjá afa kl. 9.30, ganga kl. 10, línudansnámskeið kl. 10, myndlisar-
námskeið hjá Margréti Zophoníasdóttur kl. 12.30, handavinnuhornið
kl. 13, félagsvist kl. 13.15, síðdegiskaffi kl. 14.30, nánari upplýsingar í
síma 411-2790, allir velkomnir óháð aldri.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga 9, gönguhópar kl. 10 frá Borgum,
Grafarvogsikrkju og inni í Egilshöll, línudans með Eddu kl. 11, félags-
vist kl. 13, prjónað til góðst kl. 13 í Borgum. Tréútskurður kl. 13 í Borg-
um og kóræfing Korpusystkina kl. 16.30 í Borgum. Minnum á félags-
fund Korpúlfa á miðvikudaginn, vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upplest-
ur kl. 11, trésmiðja kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl.14, bíó á 2.
hæð kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er
boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin.
Hádegisverður er kl. 11.30-12.30 og spiluð er félagsvist kl. 13. Kaffi og
meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-15.30. Allir eru hjartanlega vel-
komnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586.
Seltjarnarnes Leir Skólabraut kl. 9, billjard Selinu kl. 10, krossgátur
og kaffi í króknum kl. 10.30, Jógasalnum Skólabraut kl. 11, handa-
vinna Skólabraut kl. 13, vatnsleikfimi sundlauginni kl. 18.39. Á morg-
un þriðjudg verður þorrasamvera í kirkjunni kl. 12, skráning nauð-
synleg. Nk. föstudag 2. febrúar verður farið í Þjóðleikhúsið á sýning-
una Föðurinn. Síðasti skráningardagur um hádegi í dag. S. 8939800.
Stangarhylur 4, Zumba Gold kl. 10.30, undir stjórn Tanyu, ipad-
námskeið kl. 13.30, kennari Kristrún.
Vesturgata 7 Glerskurður ( Tifffanýs) kl. 13-16. Vigdís Hansen.
Föstudagur. Enska leiðbeinandi Peter R. K. Vosicky Sungið við flygil-
inn kl. 13-14, Gylfi Gunnarsson. Kaffiveitingar kl. 14-14.30.
Smáauglýsingar
Húsnæði óskast
Húsnæði óskast
Þýska sendiráðið óskar eftir vel
útbúnu húsnæði m/húsgögnum
(einbýlishús eða íbúð), 200-300 m²
frá 1. apríl til 31. október 2018, mið-
svæðis í Rvk. Bílskúr. Tilboð vinsam-
legast sendist með myndum til Þýska
sendiráðsins, Laufásvegi 31, 101
Reykjavík, einnig með tölvupósti á
info@reykjavik.diplo.de
Upplýsingar í síma 530 1100.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Þjónusta
Faglærðir málarar
Tökum að okkur öll almenn
málningarstörf. Tilboð eða
tímavinna. Sími 696 2748
loggildurmalari@gmail.com
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
Húsviðhald
Tek að mér
ýmiskonar
húsaviðhald.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Atvinnublað
alla laugardaga
Sendu pöntun á augl@mbl.is
eða hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og á mbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?
slít sundur dauðans bönd.
svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Góða ferð í sumarlandið, elsku
mamma mín, við vitum að þar
verður tekið vel á móti þér. Minn-
ingin lifir í hjörtum okkar. Guð
veri með þér.
Þinn sonur,
Yngvi Þór.
Elsku mamma mín, mikið er ég
þakklát fyrir hvernig þú fékkst að
yfirgefa okkur með þinni reisn.
Það sást á þinni stuttu banalegu
hversu mikilvæg fjölskyldan var
fyrir þig. Eftir því sem fleiri voru,
þeim mun glaðari varstu. Þú varst
alltaf til staðar fyrir mig og alla,
sama hverjir þeir voru. Besta
minning sem er ofar öðrum er
hversu mikið þú ljómaðir þegar
við fjölskyldan vorum hjá þér í öll-
um þínum matar- og kaffiboðum,
þá varstu virkilega þú sjálf. Ég á
eftir að sakna þín svo mikið, elsku
mamma mín. Það er tómlegt án
þín. Við erum búnar að vera sam-
an í sömu samtökum í áraraðir.
Og ég á margar yndislegar minn-
ingar þaðan. Öll ferðalögin sem
við fórum og þú lést þig aldrei
vanta. Þakka þér fyrir, mamma
mín, hvað þú hefur reynst börn-
unum mínum vel í mínum erfið-
leikum. Alltaf varstu tilbúin að
taka við þeim hvernig sem á stóð.
Ég þakka Guði fyrir að hafa átt
þig sem mömmu. Þú ert búin að
vera kletturinn minn í gegnum
mitt líf. Þú varst svo hress og allt-
af stutt í grínið. Síðustu æviárin
dvaldi hún á Dalbraut 27. Þar
naut hún góðrar umönnunar og
sýnir sig hvað þú varst í miklu
uppáhaldi hjá konunum þar, hvað
þú varst yndisleg. Ég vil þakka
Dalbraut og heimahjúkrun sem
hafa sinnt henni í áraraðir. Mikið
þakka ég fyrir allt sem þær gerðu
fyrir hana. Það er ómetanlegt.
Núna kveð ég þig, elsku mamma
mín. Þú varst svo trúuð, ég veit að
þú baðst fyrir öllu þínu fólki á
hverju kvöldi. Guð mun taka vel á
móti þér og ég veit að mamma þín
og fleiri taka vel á móti þér. Mikið
er ég viss um að það eru fagn-
aðarfundir. Ég elska þig mamma
mín, megir þú hvíla í friði. Blessuð
sé minning þín.
Þín
Anna Kristinsdóttir.
Elsku móðir mín er nú fallin frá
og söknuður er mér efst í huga.
Fyrstu minningarnar mínar frá
Grensásveginum eru hve gest-
kvæmt var alltaf, fólk að koma og
fara og mikið spjallað, spilað,
hlegið og nóg af bakkelsi með
kaffinu. Alltaf var mamma til
staðar ef eitthvað bjátaði á og
fyrst til að bjóða aðstoð sína. Hún
opnaði heimilið sitt fyrir þá sem
þurftu á því að halda í stuttan eða
langan tíma og það eru ekki fáir
sem leituðu skjóls hjá henni. Hún
var vinur vina minna og ég gleymi
því aldrei þegar vinir mínir
hringdu fyrir tíma GSM-síma að
spjallið milli mömmu og þeirra
var oftast mun lengra en spjallið
við mig. Svona var mamma og
þegar ég hitti æskufélaga spyrja
þeir „Hvernig hefur mamma þín
það?“ áður en þeir spyrja hvernig
ég hafi það. Þetta þykir mér vænt
um. Mamma var sannkölluð
kjarnakona og alls staðar dáð,
hvort sem það var innan fjöl-
skyldunnar, vinahópa, SÁÁ, Sam-
hjálpar eða AA-samtakanna.
Blessuð sé minning hennar. Hvíl
þú í friði Guðs, elsku mamma.
Kristinn Magnús Kristinsson.
Amma sagðist aldrei hafa
skammað börnin sín, né látið þau
gera nein verk heima. Sagði að
þau þyrftu að gera nóg þegar þau
yrðu eldri. Reyndar þurfti ekki að
skamma svo góð börn, sem voru
svo prúð að eftir var tekið.
Ein af sérgreinum ömmu var
rúllutertubakstur með heima-
gerðri rabarbarasultu. Ég sóttist
alltaf eftir að fá endana sem hún
skar af áður en hún bar tertuna
fram. Önnur sérgrein var pönnu-
kökubakstur. Ég minnist þess að
við Freyr frændi minn höfum tek-
ið jafnharðan á móti pönnukökum
er þær komu af pönnunni hjá
henni.
Amma hafði alltaf mjög gaman
af því að spila, það var mikið spilað
á æskuheimili hennar. Þegar ég
bjó hjá henni og afa þvældist ég
með til vina þeirra á spilakvöldum.
Þá var mikið hlegið og flissað. Ég
gat ekki skilið hvað spil væru
fyndin og sá aldrei þessa hunda
sem hún talaði um.
Hafandi búið hjá þeim fékk ég
líka að kynnast systkinum hennar
og vinum. Hún var ekki síður stolt
af systkinahópi sínum, foreldrum
og formæðrum. Grasaættinni.
Iðulega minntist hún á hæfileika í
handbragði, listsköpun og lækn-
ingum sem lágu í ættinni.
Ég kveð ömmu með þakklæti
fyrir að hafa fengið að njóta henn-
ar svona lengi, og að börnin mín
hafi fengið að eiga hana að.
Chien Tai.
Amma var svo mikil pæja, með
bleika varalitinn sinn, í háu hæl-
unum og með bleiku húfuna sína –
hún var ekki kölluð amma bleika
fyrir ekki neitt. Litla ljúfa káta
amma sem lék sér með barna- og
barnabarnabörnum sínum eins og
hún sjálf væri tvítug, hún var al-
gjör barnagæla. Amma var sú
sem hrósaði mest, hún studdi
mann og ýtti manni áfram í því
sem maður var að gera. Hún var
alltaf svo stolt af okkur öllum.
Amma var með fallegasta hjarta-
lag sem fyrir fannst. Umhyggja
og ást hennar til okkar allra var
ómæld, hún átti sérstaka tengingu
með hverjum og einum. Hún
amma trúði alltaf á það góða í fólki
og talaði alltaf fallega um alla. All-
ir þeir sem hittu ömmu dáðust að
hjartalagi hennar og góð-
mennsku.
Amma var líka ótrúlega fyndin,
þau voru ófá skiptin sem við hlóg-
um okkur máttlausar saman. Þeg-
ar ég var lítil þá var hafragraut-
urinn hjá ömmu betri en allir aðrir
hafragrautar, vegna þess að hún
setti svo mikið af sykri í hann og
kældi hann svo úti í glugga. Að
koma í ömmuhús var alltaf nota-
legt og gott, það var svo mikil
hlýja og kærleikur þar og ekkert
var bannað. Amma bakaði líka
heimsins bestu pönnukökur.
Amma sótti okkur systkinin einu
sinni í viku í leikskólann, þá feng-
um við að fara heim með henni og
fá fullt af knúsum og bakarísmat,
okkur þótti það sko alls ekki leið-
inlegt.
Ég man þegar amma eignaðist
kærasta, Engilbert afa, ég var ólm
í að fá að kalla hann afa. Þau voru
svo yndisleg bæði tvö, fóru með
okkur systkinin í húsdýragarðinn
en eftirminnilegustu stundirnar
voru heima hjá þeim við eldhús-
borðið að spila. Þegar ég varð
ófrísk að Leó hlakkaði ég svo til að
tilkynna ömmu það, vegna þess að
ég vissi hvað hún myndi elska
hann mikið. Það sást langar leiðir
þegar þau hittust hvað hún var
stolt af þessum litla dreng.
Ég þakka ömmu fyrir allar
góðu stundirnar og allt það sem
hún hefur kennt mér, minning
hennar mun lifa í hjörtum okkar
allra.
Hrund Steinsdóttir.
Fleiri minningargreinar
um Regínu Magdalenu Er-
lingsdóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
Fleiri minningargreinar
um Eddu Ingveldi Lar-
sen bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.