Morgunblaðið - 04.01.2018, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018 7ATVINNULÍF
Miðhrauni 13 - Garðabæ - Sími 555-6444 - www.maras.is
YANMAR
Aðalvélar
9 - 6200 hö.
Mynd: Landhelgisgæslan
Útlit er fyrir að á þessu ári verði
áfram vöxtur í ferðum Íslendinga til
útlanda. Um þetta leyti árs fara
margir að huga að ferðalögum
næsta sumars og segir Tómas
Gestsson, framkvæmdastjóri
Heimsferða, að bókunarstaðan í
byrjun árs bendi til 15-20% aukn-
ingar á milli ára, sem er svipuð
aukning og undanfarin ár. Hann
segir þróunina hafa verið í þá átt að
Íslendingar ferðast oftar til útlanda
en dvelja í skemmri tíma í hvert
sinn:
„Það skýrist kannski af háu at-
vinnustigi og fólk eigi því erfiðara
með að taka sér löng frí frá vinnu.
Er því frekar reynt að nýta þá frí-
daga sem bjóðast hér og þar til að
fara í stutta ferð til útlanda.“
Trygg Tenerife
Að sögn Tómasar eru landsmenn
áhugasamir um að prófa nýja
áfangastaði, en halda samt tryggð
við vinsæla ferða-
mannastaði eins
og Tenerife sem
flogið er til allt
árið um kring.
„Þessir sígildu
áfangastaðir
halda áfram að
laða til sín flesta
farþega, en við-
tökurnar hafa
líka verið góðar þegar við höfum
prófað nýja staði eins og t.d. Fuerte-
ventura á Kanaríeyjum, eða Króatíu
og Ítalíu sem við byrjuðum aftur að
bjóða upp á í fyrra, í fyrsta skipti
eftir hrun.“
Tómas segir ferðaskrifstofur og
flugfélög áfram glíma við þá óvissu
sem hlýst af sveiflum í olíuverði og
gengi gjaldmiðla. Kaupa má fram-
virka samninga og tryggingar sem
verja gegn þessari áhættu, en slík-
um varúðarráðstöfunum fylgi alltaf
viðbótarkostnaður. „Ferðaskrifstof-
urnar þurfa núna líka að fást við það
vandamál að verð á hótelgistingu fer
hækkandi um alla Evrópu. Það sem
helst veldur þessari hækkun er mik-
il fjölgun ferðamanna frá Asíu sem
vilja ólmir skoða bæði Evrópu og
Bandaríkin, svo að á háannatímum
er eftirspurnin eftir gistingu mun
meiri en framboðið. Hótelmarkaður-
inn er orðinn seljendamarkaður.“
Straumurinn til Rússlands
Vilhjálmur Ómar Sverrisson,
sölustjóri hjá Icelandair, segir sum-
arið líta vel út með tilliti til bókana
og að þróunin sé í samræmi við
áætlanir flugfélagsins. Að sögn Vil-
hjálms má greina að Íslendingar eru
í vaxandi mæli farnir að skipuleggja
ferðir sínar alfarið sjálfir. „Það eru
þá ferðir sem oftar en ekki tengjast
áhugamálum eins og tónleikum og
íþróttaleikjum, og ljóst að fólk fer í
fleiri ferðir yfir árið en áður.“
Meðal þess
sem mun hafa
áhrif á ferða-
mynstrið hjá Ice-
landair í sumar
er HM í knatt-
spyrnu og má bú-
ast við að margir
velji að eyða
sumarfríinu í
Rússlandi. „Við
verðum með flug beint á leiki Ís-
lands og sjáum að í kringum heims-
meistaramótið er einnig töluvert um
bókanir á okkar áfangastaði með
tengiflugi áfram inn til Rússlands.“
Hafa utanlandsferðir
Íslendinga náð hámarki?
Að sögn Ragnhildar Geirsdóttur,
aðstoðarforstjóra WOW air, líta far-
þegatölurnar vel út á næstu mán-
uðum og horfur á
að bæði íslensk-
um og erlendum
farþegum fjölgi í
samræmi við
áætlanir. Hún
segir Íslendinga
vera rúmlega
15% af heild-
arfarþegafjölda
WOW og þeim
hafi fjölgað um liðlega þriðjung á
síðasta ári.
Ljóst er að Íslendingar hafa verið
duglegir að ferðast út í heim á und-
anförnum árum og ferðalögunum
fjölgað í takt við batnandi efnahags-
ástand og styrkingu krónunnar.
Ragnhildur segir forvitnilegt að
skoða hvort aukningin í utanlands-
ferðum Íslendinga muni halda
áfram með sama hraða. „Mælingar
sýna að hinn dæmigerði Íslendingur
fer um það bil tvisvar á ári til út-
landa, sem er töluvert meira en
meðal-Evrópubúinn sem fer utan
einu sinni á ári,“ segir hún en bætir
við að innlendi markaðurinn taki
mjög vel við sér þegar nýir áfanga-
staðir bætast við og þegar völ er á
ódýru flugi.
Starfsemi WOW air hefur vaxið
mjög á undanförnum árum og á
hverju ári hefur flugfélagið bætt við
mörgum áfangastöðum bæði í
N-Ameríku og Evrópu. Næsta sum-
ar verður flogið til sextán borga í
Norður-Ameríku og því vert að
spyrja hvort sá heimshluti sé ekki
hér um bil fullnýttur og kominn tími
fyrir WOW að stækka í aðrar áttir,
en þegar hefur verið upplýst að
WOW vinnur að undirbúningi beins
flugs til Asíu. Ragnhildur segir
stækkun leiðakerfisins til austurs,
m.a. til Tel Aviv, hafa heppnast
mjög vel og flugfélagið hafi ýmsa
áfangastaði í austri til skoðunar.
„Við munum áfram vinna að því að
þétta leiðakerfið og lykilatriði að
bjóða upp á góðar tengingar yfir
Norður-Atlantshafið, en við erum
farin að horfa austar, þó svo að enn
hafi ekki neitt verið ákveðið í þeim
efnum.“
Ferðast oftar, en skemur
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Ferðavenjur Íslendinga eru
að breytast. Þeir ferðast
oftar en áður til útlanda og
skipuleggja ferðirnar í vax-
andi mæli sjálfir. HM í
Rússlandi mun setja mark
sitt á ferðalög landsmanna
í sumar og WOW air skoð-
ar möguleika á að stækka
leiðakerfi sitt til austurs.
Morgunblaðið/Ómar
Hinn dæmigerði Íslendingur ferðast núna um það bil tvisvar á ári til útlanda, og spurning hvort að sú aukning sem verið hefur í utanlandsferðum lands-
manna geti lengi haldið áfram af sama krafti, eða hvort þróunin muni jafnast út. Margir hafa takmarkaðan tíma fyrir ferðalög, þó þeir hafi efni á þeim.
Ragnhildur
Geirsdóttir
Vilhjálmur Ómar
Sverrisson
Tómas
Gestsson
Nær allt farþegaflug til og frá
landinu fer í gegnum Leifsstöð
og ljóst að vöxturinn hjá ís-
lensku flugfélögunum er farinn
að reyna á innviði flugvallarins.
Ragnhildur hjá WOW segist
sýna því ákveðinn skilning að
Isavia, sem rekur flugvöllinn,
hafi ekki getað brugðist við
þeim mikla vexti sem orðið hef-
ur á undanförnum árum. „En
það breytir því ekki að það er
mjög mikilvægt að Isavia bregð-
ist hratt við og byggi völlinn upp
á þann hátt að hann geti áfram
stutt við það viðskiptamódel
WOW og Icelandair að nota Ís-
land sem skiptistöð fyrir far-
þega á leið yfir Atlantshafið,“
segir hún. „Það skiptir máli að
þjónustan á flugvellinum sé
skilvirk svo að koma megi vél-
unum hratt í loftið, og svo að
upplifun farþega sé góð. Flug-
stöðin þarf að taka þátt í vexti
flugfélaganna, og stækka með
auknum umsvifum, því annars
er hætt við að Keflavík-
urflugvöllur sem skiptistöð sitji
hreinlega eftir.“
Flugstöðin þarf að halda í við vöxtinn