Morgunblaðið - 04.01.2018, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018 9VIÐTAL
óskum viðskiptavinanna, hvað þeir hafi áhuga á
að gera á Íslandi, segist Guy vita ýmislegt í
gegnum skráningarnar á vefsíðunni, eins og ald-
ur, kyn og fleira. „Í mörgum tilvikum hringi ég í
viðskiptavinina til að spjalla við þá um hvað þeir
vilja og þá er mikilvægt að spyrja réttu spurn-
inganna. Svo er ég með ríkulegar upplýsingar á
vefsíðunni ásamt verði og þar eru þessar ferðir
tíundaðar meðal annars á korti. Svo eftir að fólk-
ið er komið til Íslands er ég með þjónustu allan
sólarhringinn ef eitthvað kemur upp á.“
Viðskiptavinum Another Iceland frá Ísrael
hefur fjölgað hratt í gegnum árin. Að sögn Guys
komu nokkur hundruð fyrsta árið en núna skipta
viðskiptavinirnir þúsundum. Vöxturinn hefur
verið um 30% á ári. „Það eru kannski þrjú þús-
und viðskiptavinir frá Ísrael sem koma á þessu
ári og um 1.000 frá öðrum löndum, en þetta er
annað árið sem við bjóðum ferðir til fólks utan
Ísraels. Ég held að sá hluti muni vaxa og verða
stærri en ísraelski hlutinn. Það er a.m.k. framtíð-
armarkmiðið.“
Aðspurður segist hann ekki hafa nákvæmar
upplýsingar um hve margir ísraelskir ferðamenn
komi hingað til lands á hverju ári, enda séu þeir
ekki taldir sérstaklega í Leifsstöð. „Samkvæmt
Wikipedia eyða Ísraelar mestum tíma allra þjóða
í ferðalög hér á landi. Fólk frá Bandaríkjunum
og Evrópu eyðir að jafnaði fimm til sex dögum
hér á landi en Ísraelar tveimur til þremur vikum.
Líklega er þetta út af því að ferðalagið hingað er
langt og menn vilja fá sem mest út úr því fyrst
þeir eru komnir hingað á annað borð.“
Aðspurður segir Guy að líklegast sé hann um-
svifamestur í þessum Self Drive Tours til Íslands
í Ísrael. Samkvæmt heimasíðu félagsins kostar
dýrasta ferðin, svokölluð Iceland Complete 4x4
Adventure, 3.521 evru á mann eða 435 þúsund
krónur. Þeirri ferð er lýst sem „hinni fullkomnu
ferð“; ævintýralegri 17 daga ferð þar sem ferðast
er vítt um landið á jeppa. Ódýrustu ferðirnar eru
tvær sjö daga ferðir, annars vegar svokölluð Ice-
land Express-ferð, þar sem helstu perlur hring-
inn í kringum landið eru skoðaðar, og The South
& West-ferðin, þar sem staðir á Suður- og Vest-
urlandi eru skoðaðir. Þær ferðir kosta rúmar
1.000 evrur, eða 133 þúsund krónur á mann, með
bíl og gistingu inniföldu.
Guy segir að margir Ísraelar kjósi að koma
hingað í hópferðum og ferðast með öðrum lönd-
um sínum um landið í rútum. „Ég er ekkert í
slíkum ferðum. Mínar ferðir eru fyrir þá sem
vilja frekar vera á eigin vegum og blandast meira
menningunni á staðnum meðan á ferðinni stend-
ur.“
Spurður um áhrif þess að flugfélagið WOW air
hefur hafið beint flug á milli Íslands og Ísraels
segist Guy vænta þess að ísraelskum ferðamönn-
um fjölgi hér á landi. „Kosturinn við ísraelska
markaðinn er að af því að hann er svo nýr hér á
Íslandi mun hægjast seinna á ferðamanna-
straum þaðan en frá öðrum mörkuðum. WOW
air auglýsir mikið í Ísrael þessa dagana og ég á
von á því að þar með verði Ísland enn betur
kynnt í landinu fyrir vikið, og þar með gæti eftir-
spurn eftir mínum ferðum einnig aukist.“
Ísland hefur upp á margt að bjóða
Varðandi framtíð ferðaþjónustunnar á Íslandi,
sem hefur vaxið hratt á síðustu árum, segir Guy
að fréttir af dýrtíð hér á landi hafi smitast út fyr-
ir landsteinana og það hafi áhrif. „En ég held að
Ísland hafi margt að bjóða og margir vilji heim-
sækja landið. Ég held að ferðaþjónustan muni
halda áfram að vaxa, en líklega ekki á sama
hraða og verið hefur. Fólkið sem kemur hingað á
mínum vegum er alltaf heillað af því sem það
upplifir. Og þegar allt kemur til alls talar fólkið
ekki um hvað allt var dýrt hér á landi heldur um
hvað allt er frábært hér og segir öðrum frá þegar
heim er komið. Viðbrögðin hafa alltaf verið mjög
jákvæð. Ísland er einstakt land. Erlendis eru svo
margir staðir eins, og svo lengi sem menn fá ekki
þá tilfinningu á Íslandi dregur það að. Við meg-
um aldrei komast á þann stað að fólki finnist við
bara vilja hirða sem mesta peninga af gest-
unum.“
sínum af ferðalögum. Og þannig var þetta með
ferðirnar sem ég skipulagði og seldi. Það fór gott
orð af þeim og þær spurðust vel út. Það er mjög
gott að fá fólk þannig til að selja hlutina fyrir
sig.“
Guy segir að fljótlega hafi stórar ísraelskar
ferðaskrifstofur einnig komið auga á tækifærin í
Íslandsferðum. „Þau sáu þarna vaxandi markað
og þá beina menn eðlilega athyglinni þangað.
Þessi fyrirtæki fóru að bjóða upp á margs konar
ferðir. Þetta kom mér líka til góða því markaðs-
setningin á landinu í Ísrael jókst að sama skapi.
En það sem ég hafði fram yfir alla aðra sem voru
að bjóða svona ferðir var að ég bjó á staðnum. Ég
gat selt fólki þá staðreynd að ég byggi á Íslandi
og væri sérfræðingur í því. Auk þess líkaði fólki
þjónustan mjög vel og fannst ferðirnar góðar.
Þannig fékk ég góð meðmæli, sem skipti miklu
máli.“
Guy hefur frá upphafi unnið náið með einu
stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins, Iceland
Travel. „Þau keyptu fyrirtækið mitt næstum því
á tímabili, en í dag er ég feginn að hafa ekki selt.
Við vorum orðin ásátt um verð og allt var nánast
frágengið. Iceland Travel er leiðandi fyrirtæki og
ég er með sérstaka deild þar innanhúss sem sér
um mínar bókanir. Þetta veitir mér mikinn
stuðning. En þjónusta mín við mína viðskiptavini
er mjög persónuleg. Það fá allir persónulega
þjónustu og vegna samstarfs míns við Iceland
Travel er öll ferðin mjög traust og trygg. Ef eitt-
hvað kemur upp á, eins og flóð eða þvíumlíkt, þá
er auðvelt að breyta ferðatilhögun með hraði.“
Sú breyting varð nú nýverið á starfsemi
Another Iceland að farið var að bjóða ferðir á al-
þjóðamarkaði. „Þetta byrjaði eiginlega þannig að
fólk sem hafði keypt af mér ferðir fór að mæla
með ferðunum við ættingja sína í Bandaríkjunum
til dæmis, og þeir fóru því að senda mér óskir um
sérsniðnar ferðir. Málið er að ég tel mig vera með
mjög góða vöru. Ef hún er borin saman við önnur
fyrirtæki, þá er hún mjög samkeppnishæf. Verð-
ið er gott, varan er góð, og því hugsaði ég sem svo
að auðvelt gæti verið að selja ferðirnar hvar í
heiminum sem er. Ég fékk mág minn og gamlan
skólafélaga í Ísrael til að sjá um þann hluta af við-
skiptunum og hann er núna kominn inn í fyr-
irtækið með mér.“
Alþjóðlega salan fór vel af stað
Hann segir að salan utan Ísraels hafi gengið
mjög vel. „Á fyrsta árinu fékk ég meiri tekjur úr
þessum hluta en ég fékk út úr ísraelsku sölunni á
fyrsta ári, og var umfram væntingar.“
Guy og félagi hans nota leitarvélabestun og
netmarkaðsmál með góðum árangri. „Vefsíðan er
önnur leitarniðurstaðan í Google-leitarvélinni
þegar leitað er að „Self Drive Tours“ á Íslandi,
sem er mjög erfiður markaður, því mörg gam-
algróin fyrirtæki hafa selt slíkar ferðir hingað í
mörg ár.“
Hagstæðar leitarniðurstöður skapa mikla um-
ferð á vefsíðunni að sögn Guys, og vöxturinn á
heimsóknum er góður.
Guy sjálfur notar ekki Facebook og segist hafa
komist af án þess hingað til, en aftur á móti notar
félagi hans í Ísrael Facebook óspart til markaðs-
setningar. „Annars eru Ísraelar miklu meira á
WhatsApp en Facebook. Þar eru allir með það
spjallforrit.“
Ferðirnar sem Another Iceland sérhæfir sig í
eru eins og fyrr sagði svokallaðar Self Drive
Tours, þar sem viðskiptavinir eru á eigin vegum
og aka sjálfir um landið á bílaleigubílum. „Við
sérsníðum ferðir fyrir alla okkar viðskiptavini,
það er okkar sérstaða. Þetta getur verið tíma-
frekt þar sem við gerum ferðaáætlun í smá-
atriðum, þannig að nákvæmar leiðbeiningar bíði
fólks um leið og það lendir í Keflavík. Þetta er
mikil þjónusta og fólki er sagt hvert á að keyra,
hvað á að sjá, hvar á að stoppa og hvar á að sofa
o.s.frv. Þetta eru mjög hentugar ferðir fyrir fólk
sem ekki getur lagt á sig mikinn undirbúning, en
getur í staðinn treyst á góðar leiðbeiningar.
Ferðaáætlun frá a-ö bíður þess þegar það lend-
ir.“
Spurður hvernig hann geti sem best áttað sig á
einhver Ísraeli væri búsettur á Íslandi sem gæti
verið þeim innanhandar og verið með þeim í út-
sendingunni. Ég var sá eini sem kom upp í þeirri
leit og þau höfðu samband og sögðust vera að
fara að gera þessa heimildarmynd um gosið og
spurðu hvort ég vildi koma og vera með þeim og
ég var til í það. Með þessu fékk ég mjög góða
kynningu í Ísrael. Þetta var einnig mikilvægt til
að öðlast meira traust. Margir voru kannski ekki
vissir í upphafi hvort þeir ættu að treysta mér
fyrir greiðslukortinu sínu, en þarna náði ég að
byggja upp mikinn trúverðugleika.“
Það má því segja að fyrirtækið hafi fengið
fljúgandi start. „Þetta var mjög góð byrjun.
Ísraelski markaðurinn byggist mikið á með-
mælum; að fólk segi öðru fólki frá upplifunum
ári eftir 180° beygju
Morgunblaðið/RAX
Guy segist sjá samsvörun
með reynslu sinni af vinnu
á fasteignamarkaðnum í
New York og því að vinna
í ferðamennskunni á Ís-
landi, einkum hvað upp-
gang greinanna varðar.
„Ég byrjaði þegar verðið
var lágt, en svo hætti ég
rétt áður en húsnæð-
isbólan sprakk og fjármálakerfið hrundi.
Margir vinir mínir lentu illa í því. Að hluta
vorum við sem unnum í þessum geira
ábyrgir fyrir mörgu sem segja má að hafi
lagt líf fólks í rúst. Til að nefna einhver
dæmi um hvað tíðkaðist í þessum bransa
og ég tók þátt í, og þótti eðlilegt, var að ég
seldi konu sem vann á pósthúsi og var
með 60 þúsund bandaríkjadali í laun á ári,
þrjú hús, þar af tvö sem voru í slæmu ásig-
komulagi. Hún vildi verða fjárfestir og
leigusali. Lánin voru svo ódýr að í raun var
nóg að eiga 2.000 dali til að geta keypt sér
hús. Við, eins og aðrir á
þessum tíma, seldum fólki
þá hugmynd að hægt væri
að kaupa hús, leigja það
út, og leigan myndi svo
borga bæði afborganir af
húsinu og útborgunina.
Svo myndirðu verða leigu-
sali, nokkuð sem alla
dreymir um. Það er auð-
velt að ímynda sér hvernig fór fyrir þessari
konu í hruninu, sem keypti húsin þrjú. Hún
varð gjaldþrota, eins og svo margir aðrir í
sömu stöðu. Það voru ótal svona dæmi í
Bandaríkjunum. Við seldum mörgu fólki
hús sem hefði aldrei annars getað keypt
sér hús. Þetta var allt samþykkt af bönk-
unum. Þeir fengu sína þóknun og höfðu
engan sérstakan áhuga á því hver var að
kaupa. Og þannig varð til keðjuverkun sem
á endanum varð kerfinu að falli. Ferða-
bransinn er hinsvegar allt öðruvísi,“ segir
Guy.
Seldi pósthússtarfsmanni þrjú hús í fasteignabólunni í New York