Morgunblaðið - 04.01.2018, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018 11FRÉTTIR
Af síðum
Lýsi það best fyrri tilraunum mannsins
til geimferða að ferðast djarflega, þá er
það að ferðast sparlega rétta lýsingin á
væntanlegu tímabili geimferðalaga. Og
enginn telur sig geta rutt brautina út í
geim á hagkvæmari hátt en Elon Musk
og geimferðafyrirtækið hans SpaceX.
Fyrsta stig fyrirætlana fyrirtækisins
er á áætlun, en það felst í að draga veru-
lega úr kostnaði með notkun endur-
nýtanlegra eldflauga. Á næsta stigi verð-
ur kerfi gervihnatta komið á sporbaug til
að bjóða upp á háhraða internet. Ef það heppnast mun það væntanlega
skjóta fjárfestunum sem komu snemma inn í félagið rakleiðis upp í sjö-
unda himin. Þeir sem komu síðar munu ekki ná jafn hátt.
Fyrirskipun Kirk kapteins, „geislaðu mig upp, Scotty“, mun kannski
aldrei raungerast, en hins vegar gæti skipunin „flyttu mig heim,
Alexa“ ræst innan skamms. Sjálfakandi bílar munu leggja grunn að
viðskiptamódeli SpaceX. Morgan Stanley áætlar að á næstu 20 árum
muni alþjóðleg umferð gagnamagns aukast tvöhundruðfalt, og munar
þar langmest um gögn fyrir sjálfakandi ökutæki. Þó svo að hefðbundið
þráðlaust netsamband muni duga að mestu, þá munu um það bil 10%
útheimta tengingu í gegnum gervihnött.
SpaceX er þekktast fyrir geimskot sín (og lendingar) en fyrirtækið
áætlar að árið 2025 muni einungis 5 milljarðar af 35 milljarða dala
tekjum koma úr þeirri átt. Afgangurinn mun koma frá gervihnött-
unum. Endurnýtanlegar eldflaugar eru bara fyrsta skrefið í því að um-
breyta breiðbandstengingum yfir gervihnött.
Næsta stóra verkefnið er að ná niður kostnaðinum við framleiðslu
gervihnatta. Stefnt er að því að það gerist smám saman, enda hyggst
fyrirtækið skjóta 4.000 gervihnöttum á loft í fyrstu atrennu.
Leita þarf á náðir fjármálamarkaða til að borga fyrir þetta allt. Sem
stendur er áætlað að tekjur félagsins nemi um 1 milljarði dala, og
hagnaðurinn ekki meira en 100 milljónum. Í fjármögnunarlotu sem
haldin var í júlí síðastliðnum var fyrirtækið metið á 21 milljarð dala,
sem gerir SpaceX á meðal útblásnustu fjárfestingarkosta í Kísildal.
Verðmatið má að vissu marki réttlæta með því að fyrirtækið væntir
framlegðar af gervihnattarekstrinum sem nemur um tveimur þriðju
hlutum rekstrartekna. Almennt útboð áður en þetta verður að veru-
leika gæti skilað fjárfestum ríkulegri ávöxtun.
Hins vegar segir fyrirtækið að hlutafjárútboð kunni að vera jafn
fjarlægt og hugmyndir þess um að reisa nýlendu á Mars. Þegar að því
kemur gæti sporbraut hagnaðarflaugar SpaceX verið orðin
nokkuð flöt.
LEX
AFP
SpaceX: Farið með
himinskautum
Evrópsk iðnfyrirtæki skiluðu í des-
ember bestu rekstrarniðurstöðum í
einum mánuði frá því evran var tekin
í notkun. Þessi niðurstaða markaði
endann á ári þar sem atvinnulífi á
myntsvæðinu farnaðist mun betur en
búist hafði verið við.
Samkvæmt tölum sem birtar voru
á þriðjudag fór innkaupastjóra-
vísitala iðnfyrirtækja á evrusvæðinu
upp í 60,6 stig í desember, og hefur
ekki verið hærri síðan mælingar hóf-
ust um mitt ár 1997. Ef vísitalan er
yfir 50 stigum jafngildir það aukn-
ingu frá mánuðinum á undan.
Vöxtur um alla Evrópu
Þessi niðurstaða rennir stoðum
undir „skyndi“- mælingar sem höfðu
gefið til kynna að það stefndi í besta
rekstrarárið til þessa. Á sama tíma
hafa nýjustu hagtölur frá ríkjum
víðsvegar í Evrópu sýnt að almennur
efnahagsvöxtur hefur átt sér stað um
alla álfuna.
Vöxtur fyrirtækja í Þýskalandi,
Írlandi og Austurríki hefur aldrei
mælst meiri og á Grikklandi var
afkoma atvinnulífsins sú besta í nærri
áratug.
Þessi nýjustu merki um vaxandi
þrótt efnahagslífsins urðu til þess að
evran hækkaði á þriðjudagsmorgun
og var nálægt hæsta gengi sínu í þrjú
ár. Gengi evrunnar styrktist um 0,6%
og fór í 1,2082 dali, sem er næsthæsta
gengi sem mælst hefur síðan í 1. jan-
úar 2015. Almenn veiking banda-
ríkjadals hjálpaði evrunni, en evran
styrktist þó einnig um 0,4% gagnvart
pundinu.
Fyrirboði um aukinn hagvöxt
Innkaupastjóravísitalan byggist á
könnunum þar sem spurst er fyrir
um fjölda nýrra pantana, verðþróun
og fjölgun starfa, svo dæmi séu tekin,
til þess að draga upp mynd af heild-
arástandi á þessu sviði. Hún þykir
gagnleg sem fyrirboði um hagvöxt.
Það gerðist ítrekað árið 2017 að
evrópskt efnahagslíf fór fram úr
væntingum, og leiddi það til þess að
hagfræðingar og stjórnvöld hækkuðu
hagvaxtarspár sínar umtalsvert.
Seðlabanki Evrópu gerir núna ráð
fyrir að hagkerfi evrusvæðisins hafi
vaxið um 2,4% árið 2017, en spár
hljóðuðu upp á aðeins 1,7% hagvöxt í
ársbyrjun.
Chris Williamson, aðalhagfræð-
ingur hjá IHS Markit sem safnar
saman gögnum fyrir innkaupastjóra-
vísitöluna, kveðst vera sérstaklega
bjartsýnn í ljósi svara sem bárust frá
framleiðendum véla og tækja, sem
bendi til „uppsveiflu í fjárfestingum
fyrirtækja“. Williamson segir að
„aukin fjárfesting ætti að stuðla að
aukinni framleiðni og bættri arðsemi,
og þar með gera uppsveifluna sjálf-
bærari“.
Væntingar um verðbólgu
Greina mátti merki þess að verð-
bólgan sem Evrópski seðlabankinn
hefur lengi beðið eftir muni senn láta
á sér kræla. Þeir sem tóku þátt í
könnuninni sögðu verðbólguþrýsting
fara „vaxandi“ enda hefur viðvarandi
efnahagsvöxtur aukið þrýsting á
birgðakeðjur.
Verðbólga á evrusvæðinu hefur
hjaðnað undanfarna mánuði eftir að
hafa um stund náð markmiði SBE
um tæplega 2%. Seðlabankinn væntir
þess að verðbólgan muni halda áfram
að minnka á komandi mánuðum, en
Mario Draghi seðlabankastjóri hefur
lagt áherslu á að hann bíði þess með
„þolinmæði“ að verð taki aftur að
hækka.
Claus Vistesen, aðalhagfræðingur
evrusvæðisins hjá Pantheon Macro-
economics, segir hættu á að það fari
að bera á ofhitnun á þessu sviði eftir
svona langt vaxtarskeið, og bendir
einnig á að „við ættum að hafa
áhyggjur af að hægjast muni bráð-
lega á hraða uppgangsins“. Aftur á
móti segir hann að til skemmri tíma
litið bendi kannanir til að von sé á
„sjóðandi heitum tölum á komandi
mánuðum“.
Innkaupastjóravísitala Bretlands
lækkaði niður í 56,3 stig í desember,
úr 58,2 stigum mánuðinn á undan, og
var það töluvert undir þeim tölum
sem spáð var í könnun Reuters
sem hljóðaði upp á 58,3 stig.
Vöxtur iðnframleiðslu í
Evrópu í nýjum hæðum
Eftir Nicholas Megaw
í London
Atvinnulífi á evrusvæðinu
farnaðist mun betur á ný-
liðnu ári en spáð hafði ver-
ið í upphafi árs og hefur
vöxtur í iðnaði líklega
aldrei verið sterkari en á
síðustu mánuðum.
AFP
Seðlabanki Evrópu gerir nú ráð fyrir 2,4% hagvexti árið 2017 en spár hljóðuðu upp á aðeins 1,7% í byrjun ársins.
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástSnickers vinnuföt í