Morgunblaðið - 04.01.2018, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018FÓLK
SPROTAR
Íslenska tímaritið Nordic Style
Magazine er á leið í útrás til Banda-
ríkjanna. Tímaritið hóf göngu sína
sem veftímarit árið 2012 og hefur
tekist að skipa sér sess sem leiðandi
rit í umfjöllun um norræna hönnun
og tísku. Nýlega náðust samningar
við bandarísku bókabúðakeðjuna
Barnes & Noble um dreifingu á
prentaðri útgáfu af blaðinu um
gervöll Bandaríkin, og verður
Nordic Style Magazine fáanlegt á
um það bil 500 stöðum.
Soffía Theódóra Tryggvadóttir er
stofnandi og eigandi Nordic Style
Productions sem gefur Nordic Style
Magazine út. Hún segir tímaritið
hafa orðið til þegar hún var í námi
við Fashion Institute of Technology
í New York, en áður hafði hún lokið
meistaragráðu í viðskiptafræði. „Ég
tók fljótlega eftir því að sú íslenska
hönnun sem ég klæddist og auka-
hlutirnir vöktu mikla athygli í New
York, og var fólk áhugasamt um
íslenska tísku og norræna hönnun
almennt. Það var lítið um aðgengi-
legan vettvang fyrir norræna hönn-
uði að koma sér á framfæri í
Bandaríkjunum á þessum tíma og
sá ég því tækifæri í að stofna fjöl-
miðil sem fjallaði eingöngu um nor-
ræna hönnun og hæfileikafólk,
skrifað á ensku fyrir alþjóðlegan
lesendahóp.“
Gerði Soffía sér lítið fyrir og gaf
út veftímarit í desember 2012.
Tímaritið var sett upp eins og hefð-
bundið tískutímarit en aðeins að-
gengilegt yfir netið, og samhliða var
sett í loftið samnefnd vefsíða. Í
febrúar 2013 kom næsta tölublað út
og fljótlega var Soffía búin að fá til
liðs við sig fjölda fólks sem hefur
aðstoðað við skrif, umbrot og rit-
stjórn. „Lestur vefsíðunnar fór
jafnt og þétt vaxandi og árið 2014,
eftir að hafa gefið út sjö tölublöð á
netinu, ákváðum við að breyta um
áherslu og einblína á að styrkja vef-
síðuna, færa efnið úr tímaritinu
þangað og byggja upp lesendahóp-
inn þar. Í framhaldi gerðum við
samning við erlenda auglýsinga-
miðlun sem setur viðeigandi auglýs-
ingar inn á vefsíðuna og skapar
okkur þannig tekjur.“
Héldu að pósturinn væri plat
Síðan gerist það á síðasta ári, upp
úr þurru, að tölvupóstur berst frá
Barnes & Noble. „Við fáum póst frá
þeim að fyrra bragði og raunar
fengum við nokkra tölvupósta frá
þeim áður en við tókum mark á að
þessar sendingar væru raunveruleg
beiðni,“ útskýrir Soffía. „Kom svo í
ljós að þeim líkaði efnistök okkar og
framsetning, og vildu hefja við-
ræður um dreifingu á prentaðri út-
gáfu Nordic Style Magazine.“
Samningurinn við bókabúðakeðj-
una gerir ráð fyrir að Barnes &
Noble panti ákveðið upplag af tíma-
ritinu. Nordic Style Magazine
stendur straum af prentuninni og
afhendir tímaritið á dreifingar-
stöðvar Barnes & Noble, en þaðan
verður blaðinu dreift áfram til
bókabúðanna. Soffía og samstarfs-
fólk hennar markaðssetja tímaritið í
gegnum miðla Nordic Style Magaz-
ine og heldur Barnes & Noble eftir
hluta af sölutekjunum. „Það er
mjög kostnaðarsamt að byrja á
þessu ferli en eftir fyrsta tölublaðið
vonast ég til að koma jafnvægi á
tekju- og útgjaldastreymið. Það er
ánægjulegt að Barnes & Noble er
nú þegar búið að leggja inn pöntun
fyrir blaðinu sem kemur út í haust,“
segir Soffía.
Til þessa hefur útgáfan verið rek-
in í sjálfboðavinnu. „Fólkið okkar
sem skrifar í blaðið tekur það að
sér sem aukavinnu og gerir það
fyrst og fremst af ástríðu fyrir efn-
inu og líka sem leið til að koma
sjálfu sér á framfæri. Það tekur
tíma að byggja upp nægilega tekju-
öflun til að vera með launaða rit-
stjórn.“
Stefnan er að gera Nordic Style
Magazine að stöndugu fyrirtæki
sem geti haft launað teymi á sínum
snærum. „Með tilkomu prentaðs
tímarits breytist rekstrargrundvöll-
urinn og okkur gefst tækifæri til að
þróast hraðar. Möguleikarnir eru
margir, ótal leiðir sem hægt er að
fara, og verður mjög spennandi að
sjá hvaða tækifæri koma í fram-
haldi af útgáfu fyrsta prentaða
blaðsins.“
Sérhæfð tímarit sækja á
Þótt blaðamenn og stjórnendur
Nordic Style Magazine vinni í
augnablikinu launalaust, er Soffía á
þeirri skoðun að tímaritaútgáfa af
þessu tagi geti hæglega verið ábata-
söm. Hún segir tímaritamarkaðinn
vissulega ganga í gegnum sveiflur,
enda samkeppnin hörð við miðla af
ýmsu tagi, en með vönduðum efnis-
tökum, góðri framsetningu og réttri
sérhæfingu eigi tímarit eins og
Nordic Style Magazine fullt erindi
við markaðinn: „Það sem við sjáum
gerast um þessar mundir er að sér-
hæfðum tímaritum fer fjölgandi.
Þrátt fyrir mikið framboð af efni á
netinu þá er líka að eiga sér stað
vitundarvakning um að vera í núinu
og njóta, og hvað það veitir mikla
ánægju og hugarró í öllu áreiti nú-
tímans að gefa sér tíma að fletta í
gegnum eigulegt tímarit.“
Raunar grunar Soffíu að reynslan
muni sýna að prentmiðlarnir hafi
forskot á netmiðlana þegar kemur
að áhrifamætti auglýsinga. „Æ fleiri
rannsóknir sýna að auglýsingar á
netinu þykja oft óþarfa truflun og
eitthvað sem lesendur reyna að
komast hjá. Öðru máli gegnir með
fallegar auglýsingar í prentmiðlum
sem gleðja augað og eru iðulega
sérstaklega lagaðar að tímaritinu
sem um ræðir,“ segir hún. „Enda er
það hluti af tímaritaútgáfu í þessum
gæðaflokki að vinna náið með aug-
lýsendum og stýra heildarútliti aug-
lýsinga og ritstjórnarefnis.“
Morgunblaðið/Eggert
Soffíu grunar að prentmiðlar geti hafi forskot á netmiðla þegar kemur að
áhrifamætti auglýsinga. Falleg auglýsing í tímariti geti náð betur til lesenda.
Skella sér í slaginn á banda-
rískum tímaritamarkaði
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Þrátt fyrir harða baráttu um
athygli lesenda virðast sér-
hæfð tímarit vera að sækja
á. Þegar Nordic Style
Magazine fékk skeyti frá
Barnes & Noble héldu
stjórnendur tímaritsins að
pósturinn væri gabb.
Vökvakerfislausnir
Vökvadælur, vökvamótorar
og stjórnbúnaður
Stjórnbúnaður skipa. Tæknibúnaður semætlaður er til
notkunar á sjó mætir erfiðustu hugsanlegu skilyrðum.
Álag óblíðrar náttúru, miklar hitabreytingar og stöðugur
ágangur af söltum sjó, eykur þörf viðskiptavina fyrir
áreiðanlegan og skilvirkan búnað.
Danfoss hf. Skútuvogi 6, 104 Reykjavík, Sími: 510 4100
Margrét Örnólfs-
dóttir, handrits-
höfundur og tónlistar-
maður, hlaut Íslensku
bjartsýnisverðlaunin
2017 sem afhent hafa
verið árlega frá árinu
1981. Upphafsmaður
þeirra var danski
athafnamaðurinn Peter
Bröste en ISAL hefur
verið bakhjarl verð-
launanna frá því að
Bröste dró sig í hlé árið
2000. Forseti Íslands er
verndari verðlaunanna.
Bjartsýnis-
verðlaunin
afhent
Sigurður Ásgeirsson,
Torfhildur Samúelsdóttir,
Guðmundur Ágústsson og
Fríða Kristín Gísladóttir.
Rannveig Rist,
forstjóri Rio
Tinto á Íslandi.
VERÐLAUNAAFHENDING