Morgunblaðið - 24.01.2018, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
Á
rið 2017 reyndist nokkuð krefjandi
fyrir Icelandair eftir fádæma meðbyr
árið á undan. Félagið hefur nú snúið
vörn í sókn, lagað til í skipulagi sínu
og bætt við leiðakerfið. Það er hugur í fólki,
eins og glöggt má heyra á forstjóra Icelandair
Group, Björgólfi Jóhannssyni.
„Kraftur og samheldni starfsfólks félags-
ins,“ svarar hann að bragði þegar hann er
spurður út í hvað það hafi verið sem standi
upp úr starfseminni á síðasta ári þegar hann
lítur um öxl. „Samkeppnin á mörkuðum okkar
er mikil og umhverfið var mjög krefjandi á
seinasta ári. Við slíkar aðstæður reynir á
starfsfólk og stjórnendur sem aldrei fyrr og ég
er mjög stoltur af því hvernig okkar fólk tókst
á við áskoranir ársins.“
Nokkuð var fjallað um það í fjölmiðlum þeg-
ar umfangsmikil uppstokkun átti sér stað í
skipulagi fyrirtækisins nú í upphafi árs. Með
hvaða hætti sér Björgólfur að téð uppstokkun
mæti aðstæðum á samkeppnismarkaði og geri
félagið í kjölfarið samkeppnisfærara?
„Það skipulag sem við vorum með var í
grunninn frá árinu 2009. Síðan hefur félagið
stækkað mjög mikið; áfangastöðum hefur
fjölgað, umsvif og velta hefur stóraukist, flug-
flotinn stækkað og starfsfólki fjölgað,“ út-
skýrir hann. „Önnur umsvif hafa einnig aukist
mjög mikið. Markmiðið með skipulagsbreyt-
ingunum nú er að skerpa fókusinn á alþjóða-
flugstarfsemi sem er kjarninn í starfseminni. Í
grófum dráttum má segja að starfsemi félags-
ins verði skipt í tvennt; annars vegar alþjóða-
flugstarfsemi og hins vegar fjárfestingar.
Flugstarfsemi félagsins vegur þyngst í rekstri
og afkomu samstæðunnar og það er mikilvægt
að uppbygging félagsins endurspegli þá stað-
reynd. Þá starfsemi erum við að samþætta
með þessum skipulagsbreytingum, reyna að
ná fram enn skýrari heildarhugsun í alþjóða-
flugreksturinn.“
Tækifærin liggja víða um lönd
Icelandair hefur verið að bæta hressilega
við leiðakerfið til Bandaríkjanna, svo eftir hef-
ur verið tekið. Hvaða möguleika hafa nýjustu
5 áfangastaðirnir í för með sér fyrir félagið?
„Þessir áfangastaðir stækka leiðakerfið enn
frekar og fjölga tengimöguleikum. Segja má
að við höldum áfram að skerpa á þeirri grund-
vallarsýn að nýta staðsetningu landsins,“
bendir Björgólfur á. „Hún gefur okkur ein-
stakt færi á tengiflugi vegna þess að við náum
með smærri flugvélum, þ.e. ekki breiðþotum,
inn á tugi stórra borga í Bandaríkjunum og
Evrópu og getum vaxið með öðrum hætti en
stóru félögin í kringum okkur. Þannig getum
við sótt dýpra inn á einstaka markaði, fleiri
borgir, og búið til fleiri tengimöguleika.“
En Icelandair horfir ekki bara til Banda-
ríkjanna þegar kemur að nýjum áfangastöðum
og upp úr dúrnum kemur að það eru varla tak-
mörk fyrir því hve fjarlæga áfangastaði
Icelandair er reiðubúið að skoða.
Leiðakerfið vestur um haf er orðið mjög öfl-
ugt, að sögn Björgólfs, en hann bætir við að
tækifærin liggi ekki aðeins í Norður-Ameríku
þó það hafi lengi verið afar mikilvægur mark-
aður hjá Icelandair og verði það enn.
„Eins og fram hefur komið erum við að
skoða möguleika í Asíu og einnig að fara dýpra
inn í Evrópu. Asía er spennandi, líkt og Af-
ríka, því þar er mikill vöxtur. Það er að skap-
ast eftirspurn eftir flugi til og frá þessum
heimsálfum og við viljum skoða möguleika á
því að sækja sneið af þeirri köku, annað hvort
sjálf eða í samstarfi við aðra aðila.“
Flotinn í ákveðinni endurnýjun
Það eru ýmsar nýjungar í farvatninu hvað
flugflota félagsins varðar á þessu ári og þeim
næstu. Í þeim viðbótum felast ýmsir mögu-
leikar fyrir félagið, eins og Björgólfur bendir
á. „Við höfum samið við Boeing um kaup á sex-
tán Boeing 737 MAX vélum og fáum þær allar
afhentar innan fjögurra ára. Fyrsta vélin, sem
við fáum í hendurnar innan fárra vikna, er í
smíðum og við fáum þrjár vélar afhentar á
fyrri hluta þessa árs. Það verða mikil tímamót
að fá þessar nýju vélar í flotann hjá okkur.
Þær eru sparneytnar og hagkvæmar í rekstri
og eins og ég hef áður lýst munu þær opna fyr-
ir okkur nýja markaði og spila vel saman með
757 og 767 vélunum sem eru í flotanum hjá
okkur í dag.“
Ísland nálgast það sífellt að vera fyllilega
heilsársáfangastaður erlendra ferðamanna, en
er landið í stakk búið til að taka við þessum
fjölda? Hvað vill Björgólfur helst sjá gerast
hérlendis til að mæta þessum aukna straumi
fólks hingað?
Verðum að dreifa betur fjárfestingu
í ferðaþjónustu innanlands
„Fjölgunin hefur auðvitað verið mjög mikil
og þó að nú sé að hægjast á henni í prósentum
talið þá er enn gert ráð fyrir því að ferða-
mönnum fjölgi um á þriðja hundrað þúsund á
þessu ári. Eitt mikilvægasta verkefni íslenskr-
ar ferðaþjónustu núna er að nýta betur okkar
stóra land. Ef við skoðum tölur Ferðamála-
stofu yfir hlutfall ferðamanna sem heimsóttu
hvern landshluta yfir vetrartímann þá sjáum
við að á meðan allur þorri ferðamanna staldr-
ar við á höfuðborgarsvæðinu fara aðeins 8% á
Vestfirði og 17% norður í land. Mín skoðun er
sú að til þess að breyta þessu verðum við að
fjárfesta meira á þessum stöðum. Og þá er ég
ekki að tala um ómarkvissa uppbyggingu á
hótelum eða öðrum mannvirkjum heldur ekki
síður í innviðum og þjónustu og ekki síst fólki.
Lykilatriði er að það liggi fyrir stefna og að
henni sé svo framfylgt. Markviss uppbygging
og fjárfesting er það sem skilar árangri.“
Eins og Björgólfur nefndi framar er sam-
keppnin á markaðnum hörð og sókn lággjalda-
flugfélaga verður sífellt harðari. Með hvaða
hætti aðgreinir Icelandair sig helst á markaði
– hver er sérstaða þess sem flugfélags að mati
Björgólfs?
„Við erum enn að bjóða upp á mikla þjón-
ustu eins og áður en einnig nýja vöru, nýjan
fargjaldaflokk, Economy Light. Við höfum
sagt að okkar félag staðsetji sig á milli þeirra
félaga sem skilgreind eru sem fullþjónustu-
félög og þeirra sem eru hrein lágfargjaldaflug-
félög,“ bætir Björgólfur við. „En það má held-
ur ekki gleyma því þegar horft er yfir
markaðinn að félögin eru að færast nær hvert
öðru úr báðum áttum. Á meðan gamalgróin fé-
lög bjóða upp á ódýrari fargjaldaflokka eru
margir af samkeppnisaðilum okkar einnig að
bjóða upp á dýrari flokka með meiri þjónustu
en áður. Það er ekki í anda lágfargjalda-
módelsins þar sem aðeins er boðið upp á eina
tegund fargjalds.“
Boston í persónulegu dálæti
Leiðakerfi Icelandair er orðið býsna um-
fangsmikið og mörg borganöfn sem forstjór-
inn þarf að hafa á hraðberginu. Það er því ekki
úr vegi að slá á létta strengi og inna Björgólf
eftir því hvort hann eigi sér ekki eftirlætis
áfangastað? Hann reynist fljótur til svars.
„Uppáhaldsborgin mín af áfangastöðum
Icelandair er Boston. Mér finnst hún
skemmtilega evrópsk og hafa upp á mikið að
bjóða fyrir styttri og lengri heimsóknir.
Næsta ferð mín með Icelandair er hins vegar
til London þar sem ég millilendi á leið minni
áfram.“
jonagnar@mbl.is
„Markviss uppbygging og fjár-
festing er það sem skilar árangri“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
3. sæti
Icelandair
Group hf.
Björgólfur Jóhannsson
„Þessir áfangastaðir stækka leiðakerfið enn frek-
ar og fjölga tengimöguleikum. Segja má að við
höldum áfram að skerpa á þeirri grundvallarsýn
að nýta staðsetningu landsins,“ segir Björgólfur
Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.
Icelandair hefur samið við Boeing um kaup á sextán
Boeing 737 MAX vélum og verða þær allar afhentar
innan fjögurra ára. „Það verða mikil tímamót að fá
þessar nýju vélar í flotann hjá okkur því þær opna
fyrir okkur nýja markaði,“ segir Björgólfur.