Morgunblaðið - 24.01.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 24.01.2018, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI G unnþóri Ingvasyni, framkvæmda- stjóra Síldarvinnslunnar, reiknast til að fyrirtækið hafi verið frá upp- hafi á lista Creditinfo yfir framúr- skarandi fyrirtæki. „Okkur þykir vænt um að vera á listanum og hlýtur það að vera mark- mið hvers félags að vera þar. En árangur fé- lagsins er fyrst og fremst að þakka framúr- skarandi starfsfólki,“ segir hann. Viðurkenningarnar sem veittar eru í ár eru vegna rekstrarársins 2016, sem Gunnþór seg- ir hafa verið gott ár á marga vegu. „Ytri skil- yrði voru hagfelld og fengum við gott verð fyrir afurðir okkar framan af ári. Sem dæmi veiddum við um helmingi minna af loðnu árið 2016 en 2017 en verðmætið var mun meira.“ Árið 2016 var samt ekki áfallalaust og lok- aðist Rússlandsmarkaður fyrir íslenskum sjávarafurðum í ágústmánuði. „Í kjölfarið hrundi verð á uppsjávartegundum lóðbeint niður og hefur haldist lágt alla tíð síðan. Því samhliða hefur krónan styrkst mikið. Því er ekki að neita að við höfum verið að sjá sam- drátt hjá okkur síðustu árin, og þannig eru tekjur ársins 2017 30% lægri en 2015. Var 2017 að öllu leyti mun þyngra ár en 2016.“ Laga þarf formúluna að baki veiðigjöldunum „Auk umbreytinga á mörkuðum og í gengi erum við að sjá stórauknar álögur í formi veiðigjalda og kolefnisgjalds,“ segir Gunnþór. „Eins og nefnt hefur verið í umræðunni eru veiðigjöldin afkomutengd og miðast við tveggja ára gamlan afkomugrunn. Gjöldin fyrir kvótaárið 2017/2018 miðast við árið 2015 sem var mjög gott rekstrarár. Umskiptin hafa verið mjög snögg og mikil enda leggst allt á eitt; krónan er sterk, markaðir hafa gefið eftir í verði, innlendir kostnaðarliðir á borð við laun hafa hækkað og veiðigjöldin og olían eru að hækka.“ Því fer samt fjarri að allur máttur sé farinn úr Síldarvinnslunni og dótturfélögum fyrir- tækisins. Bergur Huginn í Vestmannaeyjum hefur t.d. pantað tvö ný skip sem væntanleg eru til landsins fyrri hluta næsta árs og Síldarvinnslan upplýsti síðasta sumar að stefnt væri að því að skipta út Barða NK og Gullveri NS fyrir nýja og fullkomna ísfisktog- ara. Er þegar búið að losa út hluta af ísfisk- togurunum en skipin voru orðin gömul og endurnýjun tímabær. Fjárfesting í nýjum skipum mun, að sögn Gunnþórs, leiða til þess að gæði aflans aukist og aðbúnaður áhafnarinnar verði mun betri. „Síðustu ár hafa verið greininni mjög hag- felld, sjávarútvegurinn hefur nýtt þau ár í að greiða niður skuldir og fjárfesta. En það er öllum ljóst að það var orðin mikil uppsöfnuð þörf fyrir endurnýjun skipastólsins. Við von- um auðvitað að við séum að sigla inn í tíma þar sem við getum endurnýjað og þróað skip og annan búnað með eðlilegri og jafnari hætti en áður.“ ai@mbl.is Snögg og mikil umskipti á síðasta ári 7. sæti Síldarvinnslan Gunnþór Ingvason „Ytri skilyrði voru hagfelld og fengum við gott verð fyrir afurðir okkar framan af ári. Sem dæmi veiddum við um helmingi minna af loðnu árið 2016 en 2017 en verðmætið var mun meira,“ segir Gunnþór Ingvason um rekstrarárið sem Creditinfo veitir núna viðurkenningu fyrir. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Mynd úr safni sýnir Margréti EA leggja upp hjá Síldarvinnslunni með 1.400 tonna afla. Gunnþór segir sjávarútveginn lifandi grein þar sem hver dagur feli í sér nýjar áskoranir. „Eins og áður hefur komið fram erum við að endurnýja skipastólinn hjá okkur. Við erum að vinna í áhuga- verðum þróunarverkefnum, sem miða að því að auka verðmæti afurða okkar. Þar trúi ég að leynist tækifæri til vaxtar í framtíðinni, t.d. að gera mun meiri verð- mæti úr þeim próteinum sem nú eru nýtt til mjöl- og lýsisvinnslu. Við þurfum stöð- ugt að fylgjast með þeirri tækniþróun sem á sér stað og freista þess að fylgja henni,“ segir hann. „Neysluvenjur þjóða breytast og þurf- um við að laga framleiðslu okkar að því, auk þess sem efnhagur markaðslanda okkar getur verið sveiflukenndur sem kemur niður í neyslumynstri. Stærsta áskorun íslensks sjávarútvegs og ís- lenskra stjórnvalda er samt að ná sam- komulagi um framtíð fiskveiðistjórnunar á Íslandi og að setja niður með hvað hætti menn ætla að innheimta auðlinda- gjald af greininni. Þessi stöðuga rússí- banareið með þessa hluti dregur mátt úr greininni og veikir okkur í þeirri alþjóð- legu samkeppni sem við erum í. Mín skoðun er skýr; við erum með öflugasta sjávarútveg í heimi, en það er mikilvægt að gjaldheimtan verði með þeim hætti að hún hindri ekki framþróun greinar- innar.“ Rússíbanareið dregur mátt úr greininni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.