Morgunblaðið - 24.01.2018, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
S
tarfsemi Símans er margvísleg.
Fyrirtækið hefur gengið í gegnum
magnaðar breytingar á þeim mörgu
árum sem það hefur verið til en Sím-
inn kemur nú í fyrsta sinn inn á lista Credit-
info yfir Framúrskarandi fyrirtæki. Orri
Hauksson forstjóri segir sögu Símans næstum
því vera bergmál af sögu landsins síðustu öld-
ina.
Hér ræðir Orri umhverfi og starfsemi Sím-
ans og hvernig það að fá stimpilinn „framúr-
skarandi“ – á einum tíma sem fyrirtæki – felur
í sér að takast á við urmul breytinga á næstu
stund.
„Lykilbreyta í skilgreiningunni á Framúr-
skarandi fyrirtæki er efnahagsleg afkoma.
Síminn hefur farið í gegnum miklar breyt-
ingar undanfarinn áratug og ánægjulegt að
hafa komst í flokk framúrskarandi fyrirtækja.
Við eigum heima í þessum flokki,“ segir Orri
Hauksson, forstjóri Símans, og vísar í árang-
urinn sem hefur náðst í rekstri fyrirtækisins
frá fjármálakreppunni 2008, en Síminn var
einkavæddur þremur árum fyrr og hátt kaup-
verðið varð að skuldum félagsins.
„Í kjölfar bankahrunsins og gengislækk-
unar krónunnar lét efnahagur Símans mjög á
sjá. Burðaðist félagið með ósjálfbæra skuld-
setningu í mörg ár þar á eftir. Hluta skulda
var að lokum breytt í hlutafé fyrir fimm árum,
hlutaféð sem fyrir var var skrifað niður og
efnahagur félagsins var endurskipulagður. Í
framhaldinu var ráðist í endurhönnun rekstr-
ar og viðskiptamódels félagsins.“ Félagið var
skráð á hlutabréfamarkað 2015 og byrjaði að
greiða arð til hluthafa 2016.
Sviptingar undanfarin ár
„Endursköpun tekur hins vegar aldrei
enda. Til að mynda endurfjármögnuðum við
allar skuldir félagsins í fyrrasumar og munum
örugglega gera það aftur á næstu árum, eftir
því sem aðstæður kalla á. Síminn hefur þannig
hakað í mörg box undanfarin misseri. Við er-
um stolt af umbreytingu Símans fram að
þessu, en henni er hvergi lokið.“ Margra ára
undirbúningur og aðgerðir síðustu ára hafi
unnið með félaginu.
Orri segir mikla þróun hafa orðið hjá Síman-
um á liðnum misserum. „Starfsfólki Símans hf.
fækkaði um fjórðung frá því í janúar 2016 og
um meira en helming frá því í einkavæðingunni
2005. Við notum mörg þúsund færri fermetra
undir starfsemina en fyrir skömmu og höfum
endursamið við birgja. Við höfum lagt áherslu
á að lækka kostnað þar sem hefðbundnir tekju-
póstar hafa lækkað hjá okkur, svo sem í far-
síma og talsíma. Ýmsir aðrir tekjustraumar
hafa verið skapaðir og hafa hækkað á móti, en
umsvif okkar í heild hafa dregist saman. Við
höfum líka selt frá okkur einingar og einfaldað
tilveru okkar. Fókus stjórnenda eru takmörk-
uð auðlind, sem best er að ofnýta ekki.“
Ásýnd stöðugleika
Hann segir að breytingarnar í fjar-
skiptagreininni hafi leitt til þessarar þróunar á
rekstrinum til samræmis. „Þótt ásýnd Símann
sé að vissu leyti stöðugleiki er eini stöðugleik-
inn sá að við erum í stöðugum breytingum til
að laga okkur að markaði sem er á fullri ferð.“
Hverjar eru helstu breytingarnar í dag fyrir
fyrirtæki eins og Símann, er það fjórða iðnbylt-
ingin?
„Já, meðal annars. Gervigreind, gagnagnótt,
3G, 4G, fjártækni, 5G og fjórða iðnbyltingin.
Okkur hættir til að vera sjálfhverf og einblína
á tækniheitin sem við mótumst af. Við-
skiptavininum er nokk sama hvað tæknin heit-
ir. Hann vill bara góða þjónustu, öryggi og að
við einföldum líf hans í stað þess að flækja það.
Við hugum sífellt að innri nýsköpun og umbót-
um í vinnubrögðum. Við höfum sjálfvirknivætt
mörg ferli innanhúss og lagt önnur af. Mik-
ilvægasta ákvörðunin sem hægt er að taka er
að hætta einhverju, leggja af þjónustu, selja
frá sér fyrirtæki, hætta við verkefni. Þannig
þróumst við hraðar.“
Orri segir samkeppni við Netflix, Facebook,
Google og fleiri af stærstu fyrirtækjum jarðar-
kringlunnar heilbrigt og spennandi aðhald fyr-
ir Símann. „Alþjóðleg samkeppni tryggir að
við getum aldrei slakað á í að keppa um hylli
fólks. Að sumu leyti eigum við líka jákvætt
samlífi með þessum stórveldum, til hliðar við
hið beina reipitog við þá. Þjónusta þeirra er
veitt yfir okkar grunnvörur; internet- og far-
símakerfi.“
Þurfum að veita lausnir
Orri bendir á margt hafi breyst þeim rúma
áratug sem liðinn er frá því að Síminn var
ríkisfyrirtæki. Áherslan sé á að sjá fyrir þarfir
viðskiptavinarins. „Við báðum Steve Jobs ekki
um iPhone en hann reyndist ævintýralega
sannspár þegar hann kynnti tækið á markað.
Hann breytti heiminum það hratt að nú fer
enginn yfir 10 ára að aldri út úr húsi án snjall-
síma. Kannski ekki endilega með tæki frá hans
fyrirtæki, en með svipaða græju.“
Orri segir stöðuna svipaða og þegar við
veikjumst og biðjum lækninn um sjúkdóms-
greiningu. „Hlutverk hans er að finna út upp-
runa vandamálanna og svarið við þeim. Það
sama á við um okkur, sem fyrirtæki sem vill
eiga trúnaðarsamband við viðskiptavininn. Við
þurfum að uppgötva, greina og veita bestu
lausnirnar. Jafnvel áður en viðskiptavinurinn
veit hvers hann þarfnast.“
Nálægð við fólkið skiptir máli
Í dag er markmið Símans upplifun. Fram-
úrskarandi þjónusta sem viðskiptavinurinn
mælir með við aðra. „Markmiðið er að veita
áreynslulausa upplifun í gegnum allt ferli fólks
í dagsins önn. Að veita öryggi og vera nálægt
fólkinu sem við sinnum. Við viljum bjóða upp á
afþreyingu í dag, öryggi í kvöld og upplýsingar
á morgun. Kjarninn í persónuleika fyrirtækis-
ins er að vera manneskjan sem þú fermdist
með, sem þú treystir og sem fer ekki, hvað
sem á dynur,“ segir Orri.
Síminn er enn stærsta fjarskiptafyrirtækið
á markaðnum, þrátt fyrir myndarlega sam-
keppni síðustu tvo áratugi. Nú undanfarin ár
hafa alþjóðleg fyrirtæki sem veita þjónustu um
allan heim stigið inn á sviðið líka. Orri segir að
hefðbundnar vörur fjarskiptafélaga hafi verið
að lækka í verði, þó svo eftirspurnin eftir því
að vera „tengdur“ sé að nálgast að verða frum-
þörf, eins og vatn og súrefni. Síminn hafi því
leitað á ný mið.
„Til dæmis höfum við gengið markvisst inn á
svið afþreyingar, gerð íslensks efnis, inn á svið
greiðslutækni og inn í gagnavistun. Stærsta
aðgreiningin á þó að felast í að veita bestu
þjónustuna.“
Velja vaxtarsprota
Mér leikur forvitni á að vita hvað hann á við
með greiðslutækni?
„Fjármálaheimurinn er að breytast hratt og
snögglega – rétt eins og fjarskiptaheimurinn
undirgekkst miklar breytingar í lagalegu um-
hverfi sínu í kringum aldamót.“
Orri segir að nýsköpun í fjártækni þýði að
fólk verði með greiðslutækin sín og næstum líf
sitt í símanum. „Fyrst skilurðu veskið eftir
heima. Það er einfalt, öll kortin þín verða í
„veskinu“ í símanum. Hitt er stærra, þegar öll
þín vild og punktar og bónusar fara að dúkka
upp sjálfkrafa, bara af því að þú notar símtæki
þitt sem greiðslutæki. Þegar þú svo hefur ekki
mætt í einhvern tíma þangað sem þú ert vön
eða vanur að versla – þá færðu upplýsingar um
að þín bíði afsláttur á vanabundnum stað. Eða
að það kemur sérsniðið tilboð á þig – bara þig –
frá staðnum sem þú vissir ekki að væri til en er
handan við hornið sem þú ert staddur við þá
stundina. Snjalltækin eru að verða enn snjall-
ari, þegar þau tengjast þjónustuveitum og
smásölum, sem vilja keppa um að sinna fólki
sem best. En tæki eru tæki. Aðalmálið er að
okkur fólkinu líði sæmilega snjöllu og líði vel
með tæknina við höndina.“
elinros@mbl.is
Endursköpun Símans tekur aldrei enda
Morgunblaðið/Golli
17. sæti
Síminn
Orri Hauksson
„Þótt ásýnd Símann sé að vissu leyti
stöðugleiki er eini stöðugleikinn sá að
við erum í stöðugum breytingum til að
laga okkur að markaði sem er á fullri
ferð,“segir Orri Hauksson.