Morgunblaðið - 24.01.2018, Side 38
J
arðböðin við Mývatn hafa ekki farið
varhluta af stóraukinni aðsókn ferða-
manna til Íslands og þó að sumrin séu
ennþá mest sótti tími ársins er aðsókn-
in öll að „styrkjast í öxlunum“ eins og fram-
kvæmdastjórinn Guðmundur Þór Birgisson
segir frá. Nánar að öxlunum hér á eftir.
„Það hefur verið mikill straumur hjá okkur
af erlendum ferðamönnum, og það hefur því
munað um að vera með framúrskarandi starfs-
fólk sem hefur staðið sig frábærlega. Það er
þetta tvennt sem gerði síðasta ár svo gott sem
raun ber vitni,“ segir Guðmundur um árið
2017.
Hann tekur undir að nú sé svo komið að
hægt sé að tala um heilsársferðamennsku þeg-
ar aðsókn í Jarðböðin er annars vegar.
„Fyrst og fremst eru það axlirnar sem hafa
verið að styrkjast, og svo veturinn.“
Hér á hann vitaskuld við brekkurnar tvær á
aðsóknarlínunni yfir árið, þ.e. vorið og haustið
sitt hvorum megin við sumarhápunktinn; sum-
arið ber eftir sem áður höfuð yfir herðarnar en
aukin aðsókn yfir vor, haust og vetur er heldur
að minnka brattann í brekkunum tveimur á að-
sóknarlínunni.
Opið alla daga ársins – nema nýársdag
Aðsóknaraukningin milli ára var hressileg
að sögn Guðmundar, eða rúmlega 8%. Mark-
miðið um heilsársferðaþjónustu færist því
stöðugt nær.
„Það eru mjög margir á ferðinni á veturna
og stór hluti þeirra sem leggja leið sína norður
í land koma til okkar. Jarðböðin við Mývatn
eru einn af þeim ferðamannastöðum sem eru
opnir allt árið, hvern einasta dag nema nýárs-
dag,“ útskýrir Guðmundur og bætir við að
gestir í desember hafið verið um 4.000 sem
teljist alveg ágætt á þeim bænum.
Guðmundur skilur sjálfur mætavel þá sem
koma í jarðböðin yfir veturna. Þá klæðast þau
oftar en ekki sínum glæsilegasta búningi, þeg-
ar snjór liggur jafnvel yfir og í froststillunum
virðist gufan úr böðunum stíga alla leið til
himna, alls óáreitt af gjólu eða kalda.
„Á þessum tíma er heimsókn í Jarðböðin
töfrum líkust og persónulega finnst mér vet-
urinn langskemmtilegasti tíminn í böðunum,“
segir hann. „Í 15-20 stiga frosti er engu líkt að
fara í vatnið sem er 39-40 °C heitt. Ef veður er
alveg stillt þá eiginlega gerist það ekki betra.“
Gestirnir sjá bara fegurðina
Guðmundur segir það einkar gefandi fyrir
sig og starfsfólkið að sjá ómengaða ánægju
skína úr andlitum gesta. Sömu ánægju hafi
hann svo lesið út úr þeim þjónustukönnunum
sem Jarðböðin hafi framkvæmt síðasta sumar
og einnig nú í vetur.
„Slíkar kannanir framkvæmum við til að
halda okkur upplýstum um hvað það er sem
gestir okkar vilja fá út úr heimsókn til okkar.
Það er gaman að segja frá því að við réðumst í
að stækka hjá okkur veitingasalinn í haust
ásamt því að stækka anddyrið og móttökuna
alla. Það sem gladdi okkur sérstaklega var að í
einni þjónustukönnuninni spurðum við gesti
okkar hvort framkvæmdirnar hefðu truflað
viðkomandi og hann/hún orðið mikið var/vör
við þær. Hjá allmörgum var svarið einfaldlega:
„Hvaða framkvæmdir?“ Fólk labbaði bara í
gegnum framkvæmdasvæðið en var svo frá sér
numið yfir fegurð Jarðbaðanna að það tók ekk-
ert eftir því að verið var að vinna. Það sá bara
fegurðina.“
Ævintýralegur vöxtur í aðsókn
Jarðböðin við Mývatn hafa notið mikillar
aukningar í aðsókn síðustu fimm ár og töl-
urnar tala sínu máli þegar þær eru skoðaðar.
„Árið 2012 koma hingað 92.000 gestir yfir allt
árið, og árið 2016 er heildargestafjöldinn
202.000 manns.“
Þetta er talsvert brött aðsóknaraukning en
Guðmundur segir aðstöðuna, umgjörðina og
innviðina engu að síður hafa haldið – nokkuð
sem víða um land er í deiglunni hérlendis í ljósi
aukins ferðamannafjölda – og það þakkar hann
fyrst og fremst sínu framúrskarandi starfs-
fólki. Starfsmannaandinn er með miklum
ágætum á vinnustaðnum að sögn Guðmundar
og Jarðböðunum helst einkar vel á starfsfólki.
Fyrir bragðið séu Jarðböðin við Mývatn með
ákaflega reynt og gott starfsfólk.
„Þetta hefur gengið alveg ótrúlega vel, og
þess má geta að síðastliðið haust bættum við
ekki bara veitingasalinn heldur líka aðstöðuna
fyrir starfsmenn. Við vorum að betrumbæta
kaffiaðstöðuna til muna og þar sem við höfum
þurft að fjölga fastráðnu starfsfólki var ekki
um annað að ræða en að byggja tvö raðhús hér
í Reykjahlíð, því hér var ekkert húsnæði að fá
og ekkert verið að byggja. Þarna erum við með
alls sjö íbúðir. Þetta var okkur nauðsynlegt til
að getað ráðið til okkar fólk, og því réðst fyr-
irtækið í þessa framkvæmd.“
Þegar heildarfjöldi gesta er skoðaður kemur
kunnuglegt mynstur í ljós; af þeim sem koma í
Jarðböðin eru 90% erlendir ferðamenn, 10%
eru Íslendingar. Túristarnir eru semsé ekki að
setja það fyrir sig að bregða sér norður í land,
og Guðmundur bætir því við að langflestir séu
þeir að ferðast á eigin vegum, þ.e. á bíla-
leigubíl, en ekki sem hluti af skipulagðri hóp-
ferð.
Svo sérkennilega blátt og mjúkt
Þegar Guðmundur er inntur eftir því hvað
það er sem ljái Jarðböðunum við Mývatn sér-
stöðu sína meðal annarra baðstaða hér á landi
– eða bara meðal annarra áfangastaða fyrir
ferðamenn yfirleitt – þarf hann ekki að hugsa
sig lengi um.
„Sérstaða okkar er vatnið, þetta sérstaka
jarðhitavatn sem við erum að nýta. Fólk sækir
í það bæði fyrir þennan sérstaka bláa lit sem
er á vatninu og svo ekki síður hefur það oft
heyrt af því, og finnur svo líka sjálft, að það er
sérkennilega mjúkt viðkomu. Auk þess er ekki
bara gott að vera í vatninu heldur er vatnið
líka gott fyrir húðina. Allir þessir eiginleikar
vatnsins okkar orsakast af því að það inniheld-
ur kísil, og svo er blái liturinn þörungum að
þakka, hvernig vatnið fær á sig annan lit í
ljósaskiptunum. Fólki finnst þetta alveg
ógleymanlega magnað. Vatnið er bæði sér-
stakt á litinn og svo hefur það alveg sérstaka
áferð.“
Guðmundur bætir því við að sér þyki það
einstaklega ánægjulegt að flestir gestir Jarð-
baðanna hafi samkvæmt þjónustukönnunum
heyrt af þeim af afspurn frá vinum eða ætt-
ingjum – og orðspor sé einmitt alla jafna
áhrifaríkasta auglýsingin, frekar en almennar
auglýsingar. „Fólk heyrir af okkur, hrífst af
því sem það heyrir og kemur til okkar í kjölfar-
ið. Gott umtal og góðar heimtur í framhaldinu.
Þetta er okkur ákaflega verðmætt því umtalið
er eins og áður sagði ein áhrifaríkasta auglýs-
ingin og það sem meira er, hún er líka sú ódýr-
asta,“ bætir hann við.
jonagnar@mbl.is
Fólk sér bara fegurðina
„Sérstaða okkar er vatnið. Fólk sækir í það fyrir þennan sérstaka bláa lit sem er á vatninu og
hversu sérkennilega mjúkt það er viðkomu,“ segir Guðmundur Þór Birgisson.
108. sæti
Jarðböðin
Meðalstórt 4. sæti
Guðmundur Þór
Birgisson
„Á þessum tíma er heimsókn í Jarðböðin
töfrum líkust og persónulega finnst mér
veturinn langskemmtilegasti tíminn í
böðunum,“ segir Guðmundur. „Í 15-20
stiga frosti er engu líkt að fara í vatnið
sem er 39-40 °C heitt. Ef veður er alveg
stillt þá eiginlega gerist það ekki betra.“
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
Á næstu árum ætla Jarðböðin að mæta auknum gestafjölda með því að stórbæta aðstöð-
una enn frekar. Þeim framkvæmdum er áætlað að ljúka sumarið 2020 og óhætt er að
segja að það standi mikið til.
„Áætlunin er semsagt að stækka aðstöðuna og við erum í hönnunarferli þar að lútandi
um þessar mundir,“ útskýrir Guðmundur. „Við ætlum sem sagt að byggja nýja aðstöðu frá
grunni og bætum um leið við baðlónið sjálft. Þarna erum við að tala um gerbreytt um-
hverfi, því þetta verður í raun alveg nýr baðstaður og nýtt þjónustuhús með öllu.“
Að sögn Guðmundar er þó ekki meiningin að fjölga skápum til mikilla muna með það
fyrir augum að geta fengið fleiri gesti inn, heldur er verið að horfa til þess að auka rýmið og
bæta aðstöðuna fyrir hvern og einn gest til að auka á upplifun hans enn frekar. Engu að
síður fjölgar skápaplássum nokkuð og fara þau úr 440, eins og nú er, og yfir í 550. „Við er-
um ekki að einblína á að bæta við gestum, heldur er markmiðið að auka við upplifun þeirra
sem hingað koma.“
Stór áform fyrir næstu ár
Morgunblaðið/Birkir Fanndal