Morgunblaðið - 24.01.2018, Page 68
68 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
Þ
að er líklega óhætt að segja að við-
skiptavinir Norðurflugs séu yfirleitt í
sjöunda himni, ef ekki í skýjunum, því
fyrirtækið er vinsælasta þyrluflug-
þjónusta landsins og í hópi framúrskarandi fyr-
irtækja.
„Það eru nú kannski fyrst og fremst gömul og
góð gildi sem við höfum í hávegum í rekstri fyr-
irtækisins, sem hafa fleytt okkur í þessa stöðu,“
segir framkvæmdastjórinn, Birgir Ómar Har-
aldsson, um stöðu Norðurflugs á listanum og
gott gengi undanfarin ár. „Við höfum verið
mjög varkár í því sem við höfum verið að gera,
höfum passað vel upp á allar skuldsetningar og
hugað vel að fjárhagslegri heilsu fyrirtækisins í
alla staði. Þetta er eiginlega bara uppskera af
því að vera varkár og fylgjast vel með því hvað
er að gerast í rekstrinum. Eiginlega finnst
manni ekkert spes í þessu, bara hafa í heiðri
gömul og góð gildi.“
„Ísland er talið öruggt land“
Birgir Ómar bætir því við að til að hlutirnir
gangi jafnvel upp og raun ber vitni hjá Norður-
flugi á árinu sem leið, þurfi ákveðnar aðstæður
að vera til staðar. „Ef við bætist svo ákveðin
yfirlega yfir rekstrinum og varkárni í allri nálg-
un er hægt að nýta hagfellt umhverfi með góð-
um árangri. Undanfarin ár, þar sem við Íslend-
ingar höfum notið þess að vera með vöxt í komu
erlendra ferðamanna upp á 30-40% milli ára,
hefur umhverfið verið með hagstæðasta móti.“
Norðurflug var stofnað árið 2006 og Birgir
man því tímana tvenna, beggja megin við
bankahrunið í október 2008. Við tóku þá erfiðir
tímar en lægra gengi íslensku krónunnar, eld-
gos, Inspired by Iceland átaksverkefnið og
gróska í kvikmyndagerð séu meðal helstu þátta
sem hafi komið Íslandi á þann stað sem það er
gagnvart erlendum ferðamönnum.
Birgir bætir því við að það séu ákveðnar ytri
aðstæður, eins og krónan, sem hafi skipt máli,
„en líka ytri aðstæður sem fáir tala um en ég hef
alltaf talið mjög mikilvægar og þar á ég við að
Ísland er talið öruggt land. Það eru hryðjuverk
og óróleiki víða um heim og það fer enginn í frí í
slík lönd. Þá eru ótalin áhrifin af verkefnunum
sem True North er að vinna við, svo dæmi sé
tekið. Hvað heldurðu til dæmis að kvikmyndin
The Secret Life of Walter Mitty hafi skilað okk-
ur miklu? Eða Prometheus eftir Ridley Scott?
Ég get sagt þér það að það var haft eftir honum
þegar hann var hér við tökur á þessari mynd við
Dettifoss, að skotið þar sem er flogið upp eftir
Dettifossi, veran stendur við fossinn og svo birt-
ist geimskipið – þetta væri að líkindum flottasta
sena sem hann hefði nokkru sinni tekið. Svona
orð frá Ridley Scott hafa svo mikið að segja.
Þetta er ótrúleg landkynning.“
Starfa í miklu dýrara umhverfi
Norðurflug er eins og framar greindi eina
þyrluflugsþjónustan á lista Creditinfo yfir fram-
úrskarandi fyrirtæki. Það eitt og sér skapar
fyrirtækinu nokkra sérstöðu en Birgir bætir við
að í tilfelli Norðurflugs sé rekstrarumhverfið
auk þess allt annað. „Þá á ég við að Norðurflug
er að vinna í meginatriðum samkvæmt sömu
lögum og reglugerðum og Icelandair. Það er af
því að allt sem er flugtengt, það er allt saman
undir EASA [European Aviation Safety
Agency] sem setur allar reglur um starfsemi
flugrekenda. Við erum þar af leiðandi að vinna í
miklu dýrara umhverfi en ella, sem ég held að
fæstir átti sig á. Ég gantast stundum með það
við starfsfólkið mitt að líklega væri ég að græða
meira á pylsusölu en ég geri með Norðurflugi,“
bætir Birgir við og hlær. „Nú er ég auðvitað að
krydda þetta aðeins, en engu að síður er það svo
að allir stjórnendur í Norðurflugi, svokallaðir
„post-holders“ samkvæmt EASA-reglugerð-
inni, verða að vera vottaðir. Það er umhverfið
sem við erum að starfa í. Einnig nefni ég að í
svona fyrirtæki verðurðu að hafa mjög sterkt
teymi af sérfræðingum. Og það tekur tíma að
byggja slíkt upp, það get ég sagt þér.“
Nýtt og betra viðskiptamódel
Birgir bendir á að þyrlurekstur í þeirri mynd
sem er hjá Norðurflugi hafi einfaldlega ekki
verið til hér á landi fyrir árið 2009.
„Árið 2009, í kjölfarið á hruninu, þá umbylt-
um við okkar viðskiptamódeli. Það sem við
gerðum þá var að byrja að bjóða upp á pakka-
ferðir. Þar höfum við alltaf verið algerlega leið-
andi á markaðnum. Auk þess höfum við alltaf
lagt gríðarlega áherslu á markaðsstarf enda er
markaðsdeildin okkar mun stærri en hjá sam-
bærilegum fyrirtækjum hér á landi. Hér áður
fyrr buðu fyrirtækin bara upp á ferðir þar sem
þyrlan var leigð út á tímagjaldi, en við erum
með fullmótaða vöru í boði, rétt eins og veit-
ingastaður þar sem pantað er eftir matseðli.
Við erum þannig með ódýra rétti, millidýra
rétti og dýra rétti,“ útskýrir Birgir. „Við skipt-
um framboðinu okkar á heimasíðunni upp í
stuttar ferðir, millilangar ferðir og loks langar
ferðir.“
Þar sem ferðirnar eru mislangar hefur
Norðurflug mismunandi þyrlur klárar í ferð-
irnar, fjórar talsins alls. Þyrlurnar eru um
þessar mundir af tegundunum Bell 206 Jet
Ranger, sem er minnst; þá eru tvær AS 350 B2
Ecureuil Astar og loks ein af gerðinni AS365N
Dauphin. Þó ólíkar séu um eitt og annað eiga
vélarnar sitthvað sameiginlegt sömuleiðis.
„Öll farþegasæti snúa fram í þyrlunum okkar
og auk þess eru gluggar það stórir að þú nýtur
180° útsýnis í þeim öllum,“ bendir Birgir á.
„Þær eru allar með svokallaðan „open cabin“
eða opið farþegarými og ekkert sem er að þvæl-
ast fyrir útsýninu.“
Að hlusta á náttúruna
Útsýnisflug með þyrlum er ekki ýkja gamall
bransi hér á landi og Birgir tekur fram að til að
gera fólki á jörðu niðri sem allra minnst ónæði
leggur fyrirtækið sig fram við að fljúga ekki of-
an í gönguleiðum, svo dæmi sé tekið, né heldur
yfir sumarhúsahverfum.
„Við höfum verið að leggja á það áherslu að
gæta vel að umhverfinu á allan máta, og það er
liður í umhverfisstefnu okkar.“
Spurður um vinsælar ferðir sem í boði eru hjá
Norðurflugi segir Birgir að það sé ákaflega vin-
sælt hjá útlendingum að komast í einhvers kon-
ar snjó, og þar af leiðandi séu jöklar vinsælir.
„Við erum til að mynda með ferð upp á Þóris-
jökul sem heitir Fire and Ice, og hún er mjög
vinsæl. Að upplifa náttúrulegar aðstæður þar
sem alger kyrrð ríkir, í ósnortnu náttúrulegu
umhverfi, það er það sem heillar einna mest og
flestir virðast sækja í. Geothermal-ferðin okkar
er flug þar sem áfangastaðurinn er háhitasvæð-
ið við Hengilinn. Þar erum við að lenda í ná-
grenni við hverinn og þar sér fólk gufuna stíga
upp úr iðrum jarðar, heyrir vatnið krauma og er
að öðru leyti í algerri þögn, fjarri umferðarnið
og mannfjöldaþvarginu í verslunarmiðstöðv-
unum. Erlendir gestir upplifa svo sterka nátt-
úrutengingu á svona stöðum því þetta þekkist
ekki í heimalöndum þeirra. Þar bjóðast varla
lengur staðir þar sem þú getur farið og aftengt
og hlustað á náttúruna. Við sem hérna búum
eigum til að gleyma þessu en með því að horfa á
landið með augum erlendra ferðamanna, og
upplifa náttúruna með þeirra skynjunarfærum,
þá gerum við okkur kleift að koma best til móts
við óskir þeirra um ógleymanlega upplifun.“
jonagnar@mbl.is
Á þyrluflugi yfir landið
457. sæti
Norðurflug
Meðalstórt 224. sæti
Birgir Ómar Haraldsson
Að sögn Birgis Ómars Haraldssonar, fram-
kvæmdastjóra Norðurflugs, sækjast erlendir
ferðamenn einna helst eftir því að stíga fæti í
snjó. Það eru hæg heimatökin að verða við
því þegar maður hefur þyrlur til taks.
Ljósmynd/Norðurflug
Þyrlur Norðurflugs eiga það sam-
merkt að bjóða farþegum upp á
óheft 180° útsýni. Hér er flogið yfir
Grænahrygg í Landmannalaugum.