Morgunblaðið - 05.02.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2018
12. febrúar í 10 nætur
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Bókaðu sól
FUERTEVENTURA
Allt að
25.000kr.
afsláttur á mannFrá kr.
89.995
Frá kr.
69.995
Himinninn var heiðskír þegar gæsir í miðborginni hópuðust
saman og hófu sig til flugs. Algengt er að gæsir fljúgi saman í
hópum, en það gera þær til að auðvelda sér leit að æti og
minnka líkurnar á árás óvina. Alls er óvitað hvað gæsahópur-
inn á ofangreindri mynd er að hugsa en ekki er ólíklegt að
það sama sé upp á teningnum þar.
Morgunblaðið/Hari
Heiðskír himinn þegar gæsir í miðborg Reykjavíkur hófu sig til flugs
Gæsirnar finna fyrir öryggi innan hópsins enda auðveldar það leit að æti og minnkar líkur á árás óvina
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Við útilokum ekki að fleiri til-
kynningar um brot gætu borist á
næstu dögum en rannsókninni á
kynferðisbrotamálinu hefur miðað
mjög vel. Það sama má segja um
athugunina á því hvað fór úrskeið-
is við meðferð lögreglunnar vegna
kæru á hendur stuðningsfulltrúa
sem starfaði á vegum barna-
verndaryfirvalda og grunaður er
um kynferðisbrot í starfi sínu með
skjólstæðingum barnaverndaryfir-
valda,“ segir Karl Steinar Valsson
lögreglumaður, sem stýrir innri at-
hugun á málsmeðferð lögregl-
unnar.
Karl Steinar segir að samhliða
þessu fari fram vinna við að setja
niður aðgerðir til þess að hraða
vinnu við þau 170 kynferðisbrota-
mál sem liggja á borði kynferðis-
brotadeildar lögreglunnar en þau
eru öll á mismunandi stigum.
Lögreglan harmar mistök
„Við vinnum myrkranna á milli
og ef ekkert óvænt kemur upp á
ættum við að geta skilað niður-
stöðum í öllum þessum þremur at-
riðum í lok næstu viku, þ.e.a.s.
rannsókn kynferðisbrotamálsins,
hvað fór úrskeiðis við rannsókn
þess og aðgerðaáætlanirnar sem
við leggjum til í þeim 170 málum
sem nú liggja fyrir,“ segir Karl
Steinar.
Hann segir að vinnan sé á pari
við áætlanir og allt kapp sé lagt á
að vera innan tímaramma.
Í fréttatilkynningu lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu frá því á
föstudag harmaði hún þau mistök
að fimm mánuðir skyldu líða frá
tilkynningu um ætlað kynferðis-
brot gegn barni á vegum barna-
verndaryfirvalda og þar til rann-
sókn á málinu hófst.
Skýrsla um drátt á kyn-
ferðisbrotamáli í lok viku
Innri athugun gengur vel Aðgerðaáætlun í vinnslu
Rannsókn Karl Steinar Valsson og
Grímur Grímsson sitja fyrir svörum.
Morgunblaðið/Eggert
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Enn hefur ekki tekist að koma
Sunnu Elviru Þorkelsdóttur, sem
lamaðist eftir fall á Malaga á Spáni, á
bæklunarspítala sunnan Madrídar.
Þetta segir Jón Kristinn Snæhólm,
talsmaður Sunnu, í samtali við
Morgunblaðið, en hann er nýkominn
til landsins eftir að hafa dvalið hjá
Sunnu undanfarna daga.
Hann segir það vera mikil von-
brigði að hafa ekki komið Sunnu á
spítalann, enda sé liðinn langur tími
án viðeigandi meðhöndlunar. „Hver
einasta klukkustund skiptir máli í
svona málum og nú er liðin meira en
vika. Málið er því grafalvarlegt og
mikil vonbrigði að þetta skyldi ekki
takast nú fyrir helgi,“ segir Jón
Kristinn. Hann segir að utanríkis-
ráðuneytið hafi ekki fengið staðfest-
ingu frá bæklunarspítalanum um að
þar ætti að taka á móti Sunnu og þar
af leiðandi hafi ekki þótt óhætt að
senda hana þangað því ekki var
öruggt að læknir tæki á móti henni.
„Spítalinn er í um 500 km fjarlægð
frá Malaga og því ekki hægt að senda
hana alla þá leið upp á von og óvon
um að læknir tæki á móti henni.
Sunna var hinsvegar búin að undir-
rita útskriftarpappíra og ég var bú-
inn að tryggja flutning en þá kom í
ljós að utanríkisráðuneytið hafði
ekki fengið staðfestingu. Þetta voru
því mikil vonbrigði,“ segir Jón
Kristinn.
Kemst ekki heim til Íslands
Sigurður Kristinsson, eiginmaður
Sunnu, var hnepptur í varðhald á
Spáni í tengslum við rannsókn á falli
Sunnu, en honum var síðan sleppt og
telst málið upplýst. Hann kom til Ís-
lands fyrir rúmri viku og var þá hand-
tekinn í tengslum við fíkniefnasmygl.
Í kjölfarið var vegabréf Sunnu
tekið af henni og hún er því föst á
Spáni. Jón Kristinn segir að búið sé
að safna fyrir flutningi á Sunnu heim
til Íslands, enn sé þó beðið eftir að
hún fái vegabréfið afhent.
Staða Sunnu er grafalvarleg
Enn föst á spítalanum í Malaga þar sem ekki fékkst staðfesting frá utanríkisráðuneytinu um flutning á
bæklunarspítala sunnan Madrídar Vegabréfslaus í kjölfar handtöku eiginmannsins og kemst ekki heim
Sunna Dóttir Sunnu ásamt móður sinni á spítalanum í Malaga, en þar hefur hún dvalið undanfarna daga.