Morgunblaðið - 05.02.2018, Síða 8

Morgunblaðið - 05.02.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2018 Sigurður Már Jónsson blaða-maður fjallar í pistli á mbl.is um íbúðamarkaðinn og segir hann upp- haf og endi flestra vangaveltna um íslenskt efnahagslíf næstu misserin.    Hann bendir á að húsnæðis-skortur sé fyrirsjáanlegur á höfuðborgarsvæðinu næstu árin og því ekki nema von að formaður Sam- taka iðnaðarins hafi uppi viðvörunarorð, því staðan sé grafalvarleg.    Um leið sé fyrir-sláttur borgar- stjóra undarlegur. „Að það vanti verktaka og mannskap útskýrir ekki af hverju byggt er í nágrannasveitarfélög- unum af fullum krafti. Borgarstjóri verður að gera betur en þetta.“    Borgarstjóri hélt því líka fram aðþað vantaði byggingarkrana, og reyndi að skýra skort á húsnæði og byggingarframkvæmdum með því. Mbl.is leitaði til stjórnenda fyrir- tækja sem leigja út eða selja slík tæki og hjá þeim fengust þær upp- lýsingar að enginn skortur væri á krönum, en þeir væru ekki fluttir inn nema þörf væri fyrir þá.    Vandinn væri að það vantaði lóðirtil að byggja á og helst á ný- byggingarsvæðum.    En borgaryfirvöld hafa staðiðgegn því að leyfa uppbyggingu á nýbyggingarsvæðum. Þau hafa einblínt á þéttingu byggðar og þar er komin meginskýringin á hús- næðisvandanum.    Hann er því miður heimatilbúinnog leysist ekki nema með nýrri stefnu í uppbyggingu höfuðborgar- innar. Sigurður Már Jónsson Borgarstjórinn og byggingarkranarnir STAKSTEINAR Dagur B. Eggertsson Veður víða um heim 4.2., kl. 18.00 Reykjavík 5 súld Bolungarvík 5 alskýjað Akureyri 8 rigning Nuuk -14 snjókoma Þórshöfn 6 heiðskírt Ósló -7 heiðskírt Kaupmannahöfn 0 skýjað Stokkhólmur -4 léttskýjað Helsinki -11 heiðskírt Lúxemborg -1 skýjað Brussel 1 skýjað Dublin 5 skúrir Glasgow 6 léttskýjað London 4 rigning París 2 skýjað Amsterdam 3 slydduél Hamborg 1 snjókoma Berlín 0 súld Vín 2 léttskýjað Moskva -9 snjókoma Algarve 14 léttskýjað Madríd 1 snjókoma Barcelona 7 rigning Mallorca 13 léttskýjað Róm 10 léttskýjað Aþena 15 léttskýjað Winnipeg -23 skýjað Montreal -4 snjókoma New York 2 alskýjað Chicago -5 snjókoma Orlando 23 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 5. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:56 17:29 ÍSAFJÖRÐUR 10:15 17:19 SIGLUFJÖRÐUR 9:59 17:02 DJÚPIVOGUR 9:29 16:55 PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu Umtalsverðir vatnavextir hafa ver- ið í Kerlingardalsá í Mýrdal vegna mikillar snjókomu undanfarna daga og hlýinda sem fylgdu í kjöl- farið. Jónas Erlendsson, fréttaritari Morgunblaðsins, tók myndir og myndskeið af vatnavöxtunum seinnipartinn í gær. Jónas sagði að vatnavextirnir væru með því mesta sem gerist í ánni. „Fyrir nokkrum dögum var mesta snjókoma vetrarins og síðan kom þessi mikla hláka ofan í snjó- inn og þá fór allt á flot. Það hlán- aði langt inn úr, alveg undir jökli, og mikið vatn rann fram,“ sagði Jónas í samtali við mbl.is í gær. Hann sagði að aðalvegir hefðu sloppið en eitthvað mætti sjá á stöku sveitavegum. Í gærkvöldi var búist við að færi að draga úr vatnavöxtunum þegar liði á kvöldið og kólnaði. Fádæma vatnavextir í Kerlingardalsá  Mikil snjókoma, síðan kom hláka og „þá fór allt á flot“ Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Kerlingardalsá í vatnavöxtum Aðalvegir sluppu en eitthvað mátti sjá á stöku sveitavegum, að sögn fréttaritara Morgunblaðsins. Í gærkvöldi var búist við að færi að draga úr vatnavöxtum þegar liði á kvöldið og kólnaði. Áformum um að byggja Kársnesbrú, sem tengir saman Kópavog og Reykjavík, miðar áfram en skipu- lagsráð Kópavogsbæjar samþykkti á dögunum breytingartillögu sem ger- ir kleift að ráðast í verkið. Um er að ræða tillögu á aðalskipu- lagi Kópavogs fyrir árin 2012 til 2024 sem gerir ráð fyrir að á göngu- og hjólabrú yfir Fossvog, sem er nú þegar í aðalskipulagi, verði einnig heimilaður akstur almenningsvagna. Málið er nú komið í hendur bæjar- ráðs og bæjarstjórnar. Kristinn Dagur Gissurarson, sem situr í skipulagsráði fyrir hönd Framsóknarflokksins, greiddi at- kvæði gegn tillögunni. Í bókun frá Kristni Degi segir að hann geti ekki fallist á tillöguna þar sem „svokölluð borgarlína“ sé ein meginröksemdin fyrir þessari breytingu á land- notkun. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri svarar Kristni í bókun sinni og segir að menn hafi einungis verið að sam- þykkja skipulag fyrir göngu- og hjólreiðabrú, ásamt akrein fyrir al- menningssamgöngur. „Athyglisvert er að Framsóknar- flokkurinn skuli leggjast gegn þessu framfaramáli í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu; þá vekur það líka athygli að fulltrúi VG sjái sér ekki fært að styðja þetta mikla um- hverfismál,“ segir í svari Ármanns. Strætó mun aka yfir Kársnesbrú  Skiptar skoðanir meðal bæjarfulltrúa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.