Morgunblaðið - 20.02.2018, Page 4

Morgunblaðið - 20.02.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2018 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli undir flestar tegundir bíla Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Þau 14 aðildarfélög BHM sem gengu frá endurnýjun kjarasamn- inga við samninganefnd ríkisins á dögunum, hafa nú lokið atkvæða- greiðslu um samningana. Voru samningarnir samþykktir í þeim öllum, í sumum tilvikum þó með naumum meirihluta. Þannig voru samningarnir t.d. samþykktir með 52,3% greiddra atkvæða í Félagi háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins. Í Félagi lífeinda- fræðinga samþykktu samningana 70,8% þeirra sem greiddu atkvæði. Þrjú aðildarfélög BHM sem vísuðu kjaradeilu sinni við ríkið til ríkissáttasemjara fyrr í vetur eiga enn ósamið. Kjarasamningar BHM- félaganna eru til skamms tíma og renna út 31. mars á næsta ári. Þeir kveða á um að laun hækki um 2,21% afturvirkt frá 1. september sl. og aftur um 2% 1. júní nk. Þá fá félagsmenn sérstaka eingreiðslu, 70 þúsund krónur miðað við fullt starf 1. febrúar á næsta ári. Samkomulag náðist um sér- stakt framlag ríkisins til stofnana í þeim tilgangi að draga úr mönn- unar- og nýliðunarvanda og lag- færa lægstu laun í stofnanasamn- ingum. Skv. bókun lofar ríkið að leggja allt að 200 milljónir kr. til þessa verkefnis sem á að leiða til þess að frá 1. janúar sl. skulu mánaðarlaun starfsmanna ekki vera lægri en 417.409 krónur. Gyða Hrönn Einarsdóttir, formaður Félags lífeindafræðinga og varaformaður BHM, segir félagsmenn binda vonir við yf- irlýsingu þriggja ráðherra, sem gefin var í tengslum við samn- ingana, m.a. um að ráðist verði í átak og umbætur á starfsumhverfi og kjörum heilbrigðisstarfsmanna á næstu árum. Að sögn hennar kom sú krafa frá ríkinu að samningstíminn yrði aðeins fram í mars á næsta ári. Rúmlega 4% hækkun og 70 þúsund kr. eingreiðsla  BHM-félög samþykkja  200 millj. framlag til stofnana Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Strætó bs. hefur gert samning við kínverska rafbílaframleiðandann Yutong Eurobus um framleiðslu á 13 rafmagnsstrætisvögnum, fyrir samtals um 880 milljónir króna. Enn hefur enginn rafmagnsstrætó verið afhentur Strætó. Samningarnir voru gerðir í þremur örútboðum, eins og áður hefur komið fram og áttu fyrstu fjórir vagnarnir að afhendast í júní í fyrra, að sögn Jóhannesar Rún- arssonar, forstjóra Strætó, og næstu fimm vagnarnir áttu að af- hendast í október í fyrra. Loks var gerður samningur um fjóra vagna í viðbót í síðustu viku sem ættu að af- hendast í lok ágúst 2018, en enginn vagn hefur enn verið afhentur Strætó. „Það er rétt að við reiknum dag- sektir á kínverska framleiðandann fyrir hvern dag sem afhending dregst 50 þúsund krónur á vagn og stendur dagsektin í dag í um það bil 110 milljónum króna,“ sagði Jó- hannes í samtali við Morgunblaðið í gær. Aðspurður hvort eitthvert vit væri í þessum viðskiptum fyrirtæk- isins við Kínverjana, þegar afhend- ing vagnanna drægist svona úr hömlu og hvort þetta kostaði ekki allt of mikið fyrir skattborgarana sagði Jóhannes: „Við borgum þriðj- ung við pöntun gegn bankaábyrgð og meira borgum við ekki fyrr en vagnarnir eru afhentir. Við þurfum auðvitað að vinna samkvæmt lögum um opinber innkaup og því getum við ekkert hróflað við þessum skil- yrðum sem eru í útboðinu,“ sagði Jóhannes. Farið að valda okkur tjóni Aðspurður hvort hann teldi að það væri traustvekjandi fyrir Strætó að hafa ekki fengið einn vagn afhentan tæpu ári eftir að hann átti að afhendast, sagði Jó- hannes: „Þetta er auðvitað mjög óheppilegt, en kínverski framleið- andinn hefur alveg staðfest það við okkur að vagnarnir muni koma. Þeir hafa sagst hafa lent í ákveðnum vandræðum við hönnun á vagninum, sem hafi útskýrt þá töf sem orðið hefur á afhendingu og nefna sérstaklega fjölda hraða- hindrana hér. Við teljum þær skýr- ingar ekki vera fullnægjandi. Þetta mjög óheppilegt og farið að valda okkur tjóni, því við erum að keyra á eldri bílum, sem við ætluðum að vera hættir að nota.“ Aðspurður hvort hann teldi að Kínverjarnir myndu greiða dag- sektirnar sagði Jóhannes að þeim hefðu verið sendir reikningar, en svo væru sérstök ákvæði í samn- ingnum sem gerðu ráð fyrir að ef menn væru ósammála um einhver atriði settust þeir niður og reyndu að ná samkomulagi. Ekkert bólar á rafstrætó frá Kína  Dagsektir á framleiðandann komnar í 110 milljónir króna  Yutong Eurobus ber fyrir sig að hér séu of margar hraðahindranir  Forstjóri Strætó segir dráttinn á afhendingu farinn að valda tjóni Morgunblaðið/Ófeigur Strætó Strætó notar enn eldri vagna sem áttu að vera komnir úr notkun. Hópur Borgfirðinga kom saman í Njarðvíkur- skriðum í gærdag og steypti um þriggja metra langan vegarkafla. Þetta gerðu þeir í mótmæla- skyni, en íbúarnir segjast vera orðnir lang- þreyttir á ástandi vegamála á svæðinu. Eyþór Stefánsson, annar skipuleggjandi viðburðarins, segir að með gjörningnum vilji heimamenn senda stjórnvöldum skýr skilaboð, en fjöldi íbúa tók þátt í vegagerðinni í dag. „Það var þrusu- mæting og við hófumst handa við að steypa þennan fyrsta kafla. Það tóku allir þátt í að leggja og slétta,“ segir Eyþór. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Borgfirðingar steyptu fyrstu metrana sjálfir Ljósabekkjum hefur fækkað umtalsvert á síð- ustu árum, sam- kvæmt talningu sem Geislavarnir ríkisins stóðu fyrir. Stofnunin hef- ur talið ljósa- bekki á þriggja ára fresti frá árinu 2005. Það ár voru slíkir bekkir 277 talsins, þar af 144 á höfuðborgar- svæðinu og 133 á landsbyggðinni. Þremur árum síðar voru bekkirnir 196, þar af 98 bæði á höfuðborg- arsvæðinu og landsbyggðinni. Árið 2011 voru 168 ljósabekkir í notkun, þar af 92 á landsbyggðinni og 76 á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2014 hafði bekkjunum fækkað í 121, þar af voru 60 á landsbyggðinni og 61 á höfuðborgarsvæðinu. Í nýjustu talningunni, sem fór fram í lok síð- asta árs, reyndust vera 90 ljósa- bekkir á landinu, þar af 58 á höf- uðborgarsvæðinu og 32 á landsbyggðinni. Á vef Geislavarna segir að skað- leg áhrif ljósabekkja séu vel þekkt og því sé nauðsynlegt að takmarka notkun þeirra sem mest. Ljósabekkj- um fækkar stöðugt  Fækkunin mest á landsbyggðinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.