Morgunblaðið - 20.02.2018, Side 16

Morgunblaðið - 20.02.2018, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2018 Þreifingar hafa átt sér stað um kaup á Bernhard, sem er með um- boð fyrir Honda. Þær hafa þó ekki leitt til formlegra viðræðna, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins. Askja, sem er með umboð fyrir KIA og Mercedez Bens, sýndi áhuga á að kaupa Honda í haust. Bílabúð Benna, sem er með umboð fyrir Porsche, Opel og SsangYong, hefur einnig viðrað áhuga. Fyrir skemmstu kom hópur fjárfesta einnig að máli við eigendur Bern- hards, herma heimildir blaðsins. Eftir að stofnandi bílaumboðs- ins, Gunnar Bernhard Guðjónsson, féll frá í september á síðastliðnu ári fjölgaði fyrirspurnum um fé- lagið. Synir hans stýra fyrirtæk- inu. Hluthafar eru sjö og enginn þeirra á stærri hlut en 15% við árs- lok 2016, samkvæmt nýjasta opin- bera ársreikningi. Velta Bernhards var 3,4 millj- arðar króna árið 2016 og jókst um 18% á milli ára. Hagnaður félags- ins dróst saman um 61 milljón á milli ára og nam 25 milljónum króna. Það ár hóf fyrirtækið starf- semi bílaleigu og fjárfesti í bílaleigubílum fyrir um hálfan milljarð. Eigið fé félagsins var 365 milljónir króna í árslok 2016. At- hygli vekur að Bernhard skuldaði eigendum sínum 86 milljónir króna við árslok og hafði sú skuld lækk- að um 28 milljónir króna á milli ára. Til samanburðar námu tekjur Öskju 13,7 milljörðum króna árið 2016 og jukust um 30%. Eigið fé var 855 milljónir við árslok 2016. Hagnaður félagsins var 317 millj- ónir árið 2016 og dróst saman um 117 milljónir króna á milli ára. Tekjur Bílabúðar Benna jukust um 2% á milli ára og voru fimm millj- arðar króna árið 2016. Hagnaður- inn dróst saman um 33 milljónir á milli ára og var 213 milljónir króna. Eigið fé félagsins var 1,8 milljarðar króna. helgivifill@mbl.is Keppinautar hafa sýnt Honda áhuga  Þreifingar enn ekki leitt til viðræðna Morgunblaðið/Árni Sæberg Bifreiðaumboð Bernhard, umboðs- aðili Honda, er fjölskyldufyrirtæki. www.securitas.is BÚÐUÞIG UNDIR HEIMAVÖRN FRAMTÍÐAR SAMSTARFSAÐILI E N N E M M / S ÍA / N M 8 5 6 8 9 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Fjármálafyrirtækjum er óheimilt að veita lán sem tryggð eru með veði í hlutabréfum eða stofnfjárbréfum út- gefnum af þeim. Hið sama gildir um aðra samninga, sé undirliggjandi áhætta á eigin bréf. Sú lagabreyting tók gildi í júní árið 2010. Þetta kemur fram í svari frá Fjármálaeftirlitinu við fyrirspurn Morgunblaðsins. Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum er stefnt að því að skrá Arion banka á hlutabréfamarkað, væntan- lega í vor á Íslandi og í Svíþjóð. Enn fremur er stefnt að skráningu fjár- festingabankans Kviku á First North-hliðarmarkaðinn í ár. Af þeim sökum vaknar meðal annars spurn- ingin hvort mögulegt verði að fjár- festa í bankanum með lánum frá hon- um, líkt og tíðkaðist á meðal bankanna á árunum fyrir hrun. Eins og fyrr segir hefur verið spornað við því með lagabreytingum. Lán til stjórnenda gegn traustum tryggingum Fram kemur í breyttum lögum frá 2010 að fármálafyrirtækjum sé óheimilt að veita stjórnarmanni, framkvæmdastjóra, lykilstarfsmanni eða þeim sem á virkan eignarhlut í því, eða aðila í nánum tengslum við framangreinda, lán eða aðra fyrir- greiðslu sem teljist áhættuskuld- binding, nema gegn traustum trygg- ingum. Fjárhæð áhættuskuld- bindingar skuli ekki fara yfir 1% af eiginfjárgrunni en megi þó nema allt að 100 milljónum króna. Aukinheldur á Fjármálaeftirlitið að setja reglur um með hvaða hætti lán sem eru tryggð með hlutabréfum eða stofnfjárbréfum annars fjár- málafyrirtækis koma til útreiknings á áhættu- og eiginfjárgrunni og í mati á eiginfjárþörf til að tryggja að ekki sé hætta á að lánveitingin skapi kerfislæga áhættu í fjármálakerfinu. „Eigið fé úr engu“ Endurskoðendurnir Jón Þ. Hilm- arsson og Stefán Svavarsson birtu fyrir skömmu grein á vef Viðskipta- blaðsins undir fyrirsögninni „Eigið fé úr engu“. Þar benda þeir á að eigin hlutabréf megi ekki telja til eignar og því verði að draga keypt eigin bréf frá eigin fé sem þá lækkar. Sú ráð- stöfun eigi einnig við þegar veitt eru lán og eigin bréf eru veðið. „Með þessháttar lánveitingum varð ekki til neitt peningamagn í venjulegum skilningi. Lánsféð eða skuldaviður- kenningar voru notuð sem gagngjald fyrir seld eigin bréf bankanna og með veði í sömu bréfum. Það er algengur misskilningur að í þessum viðskipt- um hafi orðið til reiðufé enda þannig séð ein verðlaus eign látin í skiptum fyrir aðra álíka verðlausa,“ rituðu þeir og sögðu að raunverulegt eign- arhald eigin bréfa hefði í fæstum til- fellum verið fært til meints kaupanda þar sem hlutabréfin voru að fullu veðsett bönkunum. Bréfin voru því undir beinum yfirráðum þeirra og áhættan hafi verið bankanna eftir sem áður. Það er viðurkennd regla í reikn- ingshaldi, segja þeir í grein sinni, að sölu er ekki heimilt að færa í bók- hald, hvort sem selt er fastafé eða hlutafé, nema að minnsta kosti tveimur skilyrðum sé fullnægt. „Annað skilyrðanna er að ábati af eignarhaldi flytjist frá seljanda til kaupanda og hitt er að áhættan af eignarhaldi færist líka til kaupanda. Fyrirtæki hafi sem sagt aðeins í bók- um sínum eignir sem með þokka- legum hætti geta talist eign þeirra. Þegar banki kaupir hlutabréf í sjálf- um sér lækkar eigið fé hans í raun enda ekki verið að kaupa eign heldur er verið að breyta fjármagnsskipan viðkomandi banka.“ Eigið fé oftalið um milljarða Að þeirra sögn voru reglur um skráningu sölu ekki í heiðri hafðar við bókun á sölu eigin bréfa bank- anna gegn skuldaviðurkenningum. „Ábatinn sýnist þó hafa verið fluttur enda fengu meintir kaupendur að njóta móttekins arðs en hins vegar sýnist áhættan af kaupunum hafa í miklum mæli eða jafnvel nær ein- göngu setið eftir hjá seljendunum, það er bönkunum sjálfum.“ Að þeirra sögn var reikningsskil- um föllnu viðskiptabankanna „veru- lega áfátt“ þegar kemur að kaupum bankanna á eigin bréfum, sem hafi verið komin vel upp fyrir 40% að mati Rannsóknarnefndar Alþingis. Af þessum sökum segja þeir að eigið fé bankanna hafi verið oftalið eða rangfært um 230 milljarða króna í árslok 2007 og vitna til gagna frá rannsóknarnefndinni. „Samkvæmt þessu þurfti að leiðrétta oftalið eigið fé bankanna um allt að 50% til lækk- unar og það munar um minna,“ rita þeir. Óheimilt að lána gegn veði í eigin bréfum Endurskoðendur Jón Þ. Hilmarsson og Stefán Svavarsson segja að eigið fé föllnu bankanna hafi verið oftalið um 230 milljarða króna árið 2007.  Lítil hætta á að eigið fé banka verði oftalið vegna lána fyrir kaupum á eigin bréfum Engin dómsmál » Jón og Stefán benda á að rétt tæpur áratugur sé nú lið- inn frá birtingu síðustu árs- reikninga íslensku viðskipta- bankanna fyrir hrun. » Orðið sé ljóst að ekki verða flutt nein mál fyrir dómstólum sem varða reikningsskil þeirra. 20. febrúar 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 99.91 100.39 100.15 Sterlingspund 140.69 141.37 141.03 Kanadadalur 80.09 80.55 80.32 Dönsk króna 16.761 16.859 16.81 Norsk króna 12.887 12.963 12.925 Sænsk króna 12.586 12.66 12.623 Svissn. franki 108.45 109.05 108.75 Japanskt jen 0.9422 0.9478 0.945 SDR 145.74 146.6 146.17 Evra 124.85 125.55 125.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.3502 Hrávöruverð Gull 1347.4 ($/únsa) Ál 2189.0 ($/tonn) LME Hráolía 64.66 ($/fatið) Brent ● Hagnaður Símans nam 3,1 milljarði króna á síðasta ári og jókst um 11,7% á milli ára. Heildar- tekjur drógust sam- an um 3,9% og námu 28,4 millj- örðum króna, en leiðrétt fyrir aflagðri starfsemi dróst velta saman um 1,8% milli ára. „Tekjur lækkuðu vegna lægra verðs á farsímamarkaði, minni búnaðarsölu og aflagðrar starfsemi,“ segir Orri Hauks- son forstjóri í afkomutilkynningu til Kauphallar. „Kostnaðurinn lækkaði hins vegar enn hraðar, til að mynda dróst launaliðurinn saman um 642 milljónir milli ára. Skuldir lækkuðu á árinu um rúma fimm milljarða.“ Stjórn Símans leggur til að arð- greiðsla nemi 10% af hagnaði, eða 310 milljónum, og að farið verði í fram- kvæmd endurkaupaáætlunar hlutabréfa fyrir allt að 40% af hagnaði ársins 2017. Hagnaðurinn jókst um tæp 12% hjá Símanum Orri Hauksson STUTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.