Morgunblaðið - 20.02.2018, Side 27
aðeins fram á haustið en um veturinn
sinnti ég kennslu hjá Svifflugfélag-
inu.. Ég fékk síðan aftur vinnu hjá
Loftleiðum sumarið eftir en að
reynslutímanum loknum var ég fast-
ráðinn um haustið 1948. Ég var síðan
flugmaður og flugstjóri hjá Loftleið-
um og Flugleiðum frá 1948-91.“
Með atvinnufluginu hefur Magnús
alltaf flogið einkaflug og jafnframt
stundað listflug, allt frá árinu 1946:
„Segja má að listflug hefjist ekki hér
á landi fyrir alvöru fyrr en hingað
kemur tékknesk vél árið 1965. Þessi
vél er enn í notkun. Fyrsta keppnin í
listflugi sem haldin var hér á landi
var árið 1996. Listflugið hefur svo
sannarlega veitt mér ómældar
ánægjustundir.“
Magnús hefur orðið Íslandmeist-
ari í listflugi í fimm skipti og síðast
árið 2001. Hann hefur verið iðinn við
að miðla öðrum flugmönnum af
reynslu sinni í listflugi og hefur tekið
þátt í flest öllum flugsýningum hér á
landi á undanförnum áratugum. Síð-
ast sýndi hann listflug á flugdeginum
vorið 2017, þá 89 ára.
Aðrar flugvélar sem Magnús hef-
ur átt í eru Yakolev YAK 55, TF-
CCB og TF-UFO sem er af gerðinni
Avions Mudry, en hún kom hingað
árið 1978. Voru vélar af þessari gerð
notaðar í grunnþjálfun herflug-
manna hjá franska hernum.
En hver eru önnur áhugamál
Magnúsar þegar fluginu sleppir?
„Engin. Öll mín áhugamál hafa
alltaf snúist um að bruna um háloftin
– frjáls eins og fuglinn.“
Fjölskylda
Eiginkona Magnúsar var María
Sigurðardóttir Norðdahl, f. 25.4.
1932, d. 7.5. 2017, húsfreyja og heild-
sali. Foreldrar hennar voru hjónin
Magndís Guðmundsdóttir, f. 18.7.
1906, d. 25.9.1997, og Sigurður Jón-
asson, f. 12.9.1903, d. 19.7. 1933. Þau
hjónin stunduðu búskap á Álfgeirs-
völlum í Skagafirði.
Börn Magnúsar og Maríu eru: 1)
Sigurður, f. 22.11. 1952, verkfræð-
ingur og verkefnastjóri í Kópavogi,
en kona hans er Sigríður Þorsteins-
dóttir, ljósmóðir og hjúkrunarfræð-
ingur, og eru barnabörnin María, f.
1978, Sigrún Jóna, f. 1981, og Snorri,
f. 1985, en langafabörnin eru þrjú; 2)
Guðrún, f. 22.9. 1956, arkitekt og
listamaður í Noregi, en maður henn-
ar er Grímur Hannesson rafvirki og
eru barnabörnin Helga Dís, f. 1981,
og Árný Rún, f. 1989, en langafa-
börnin eru tvö; 3) Guðmundur, f.
10.9. 1960, tækniteiknari í Reykja-
vík; 4) Magnús Steinarr, f. 27.8. 1962,
forstjóri í Kópavogi, en kona hans er
María Másdóttir atvinnurekandi og
eru barnabörnin Magnús, f. 1986,
Bjarki, Þór, f. 1989, og Thelma
Björk, f. 1993, og eitt langafabarn,
og 5) Jóna María, f. 17.6. 1967, klæð-
skeri og atvinnurekandi í Kópavogi,
og eru barnabörnin Heiðrún María,
f. 1993, og Daníel Steinþór, f. 1995.
Systir Magnúsar: Anna Elísabet
Norðdahl, f. 6.6. 1933, d. 2.2. 2013,
húsfreyja í Reykjavík.
Hálfsystkini Magnúsar: Guðrún
Guðmundsdóttir, f. 12.7. 1909, d. 2.6.
1988, húsfreyja í Reykjavík, og Vig-
and Brúnó Guðmundsson, f. 14.12.
1905, d. 2.10. 1907.
Foreldrar Magnúsar voru Guð-
mundur Guðmundsson Norðdahl, f.
26.4. 1880, d. 26.8. 1963, bústjóri og
ráðsmaður á Úlfljótsvatni og síðan
trésmiður í Reykjavík, og Guðrún
Karólína Pálsdóttir, f. 4.4. 1899, d.
29.11. 1991, ráðskona á Úlfljótsvatni
og síðar húsfreyja í Reykjavík.
Magnús er að heiman á afmælis-
daginn.
Magnús Norðdahl
Ástríður Þorsteinsdóttir
húsfreyja á Helgafelli
Jónas Sigurðsson
b. á Helgafelli í
Helgafellssveit
Ástríður Helga Jónasdóttir
húsfreyja í Ögri
Páll Guðmundsson
b. og sjóm. í Ögri við Stykkishólm
Guðrún Karólína Pálsdóttir
húsfreyja í Rvík
Katrín Andrésdóttir
húsfreyja á Arnarstöðum
Guðmundur Illugason
b. á Arnarstöðum í Helgafellssveit
Dr. Hreggviður
Norðdahl
jarðfræðingur
Magnús Norðdahl
lögmaður
Guðmundur
M. Norðdahl
leigubílstj.í
Rvík
Eggert
Guðmundsson
Norðdahl
b. á Hólmi í
Mosfellssveit
Guðmundur Pálsson verkam. í Hveragerði
Jónas Pálsson b. og form. í Elliðaey
Dagbjörg Elsa
Ágústsdóttir
húsfr. í Rvík
Hannes Ágúst
Pálsson skipstj.
í Stykkishólmi
Yngvi Rúnar
Grétarsson
yfirflugmaður í
Bandaríkjunum
Kjartan S. Norðdahl
b. og verkamaður á
Úlfarsfelli
Bragi K.
Norðdahl
flugstjóri
Grímur Norðdahl b. á
Úlfarsfelli í Mosfellssveit
Skúli Norðdahl
vegaverkstj. og
b. á Úlfarsfelli
Jóhannes Víðir
Haraldsson
flugstjóri
Haraldur S.
Norðdahl
tollvörður í Rvík
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja í Langholti
Jón Gissurarson
b. í Langholti í
Meðallandi
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja í Elliðakoti
Guðmundur M. Norðdahl
trésmiður í Elliðakoti í Mosfellsbæ
Rannveig Eggertsdóttir
húsfr. á Sandfelli,
sonardóttir Bjarna
Pálssonar landlæknis og
Rannveigar, dóttur Skúla
fógeta
Magnús Norðdahl
pr. á Sandfelli í Öræfum
Úr frændgarði Magnúsar Norðdahl
Guðmundur G. Norðdahl
trésmiður í Rvík
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2018
Guðlaugur Pálsson fæddist áBlönduósi 20.2. 1896, sonurPáls Halldórssonar skó-
smiðs og Jóhönnu Ingólfsdóttur.
Jóhanna var norðlensk en faðir
hans var austfirskur í föðurætt, en
að móðerni af Rauðnefsstaðakyni á
Rangárvöllum. Páll fór til Englands
og stundaði þar sína iðn í áratugi,
giftist þarlendri konu, en flutti svo
að henni látinni heim til Íslands.
Eiginkona Guðlaugs var Ingi-
björg Jónasdóttir, sem lést 1984.
Þau hjónin eignuðust sjö börn og
áttu eina uppeldisdóttur.
Guðlaugur flutti tveggja ára til
Eyrarbakka og ólst þar upp hjá
ömmu sinni, Ingveldi Þorgilsdóttur,
og föðursystur, Þorgerði Halldórs-
dóttur.
Guðlaugur lærði skósmíði.
Hann starfaði við mjólkurflutn-
inga frá Engey á árunum 1911-13
og var næsta sumar á síld á Siglu-
firði en vann við skósmíðar á vetr-
um. Hann fór til Sigurðar Guð-
mundssonar, kaupmanns og
póstmeistara á Eyrarbakka, og
starfaði hjá honum í tvö ár en að
þeim tíma liðnum leigði Guðlaugur
verslunarplássið af Sigurði og
keypti af honum vörubirgðirnar.
Fyrstu tvö árin verslaði hann við
Búðarstíg en keypti þá verslun-
arplássið þar sem hann verslaði síð-
an til dánardags.
Guðlaugur hóf rekstur sinnar eig-
in verslunar 4.12. 1917, þá 21 árs að
aldri, og rak hana til dánardags, eða
í rúm 76 ár, lengur en nokkur annar
kaupmaður í veröldinni, samkvæmt
heimsmetabók Guinness.
Síðustu 10-15 árin sem Guðlaugur
sinnti verslunarrekstri sínum, birt-
ust oft viðtöl við hann í fjölmiðlum
vegna hans óvenjulanga versl-
unarreksturs. En hann var ætíð
hógværðin uppmáluð og lét sér fátt
um finnast.
Guðlaugur var sæmdur fálkaorð-
unni 1985, gerður að heiðursfélaga
Kaupmannafélags Suðurlands 1991
og hlaut auk þess viðurkenningar
fyrir verslunarstörf..
Guðlaugur lést 16.12. 1993.
Merkir Íslendingar
Guðlaugur
Pálsson
90 ára
Elín Ellertsdóttir
Ingunn Vígmundsdóttir
Sigríður G. Magnúsdóttir
85 ára
Gerður Jóhannsdóttir
Guðjón Gauti Arnþórsson
Jensen
Sigríður Sigurðardóttir
Vígdögg Björgvinsdóttir
80 ára
Finnlaug G. Óskarsdóttir
Guðný K. Guðjónsdóttir
Guðný Pétursdóttir
Hörður Haraldsson
Kolbrún Kristjánsdóttir
Skúli Jón Sigurðarson
Sverrir Karvelsson
75 ára
Ásta Sigurðardóttir
Guðrún Jónsdóttir
Helga Elísabet Árnadóttir
Pétur V. Ólafs
Svanhildur G. Jónasdóttir
70 ára
Anna L. E. Ipsen
Bergur Hjaltason
Börkur Aðalsteinsson
Haukur Helgason
Helga Sigurðardóttir
Hulda Guðvarðardóttir
Jón Haukur Ólafsson
Kolbrún Kolbeinsdóttir
Sigrún Sigurgeirsdóttir
Sigtryggur I. Jóhannsson
Sigurjón Páll Hauksson
Steingrímur Hallgrímsson
Örn Helgason
60 ára
Anna María Gestsdóttir
Auður Jónsdóttir
Björn Rúnar Sigurðsson
Dagur Brynjólfsson
Einar Jóhann Þorgeirsson
Eiríkur Egill Sverrisson
Eyjólfur K. Eyjólfsson
Guðný Aðalsteinsdóttir
Gunnar Óli Björnsson
Gunnar Örn Gunnarsson
Hrafnhildur Hákonardóttir
Inga Rut Sigurðardóttir
Jón Ólafur Ísberg
Jón Þór Friðvinsson
Juliet Ann Newson
Sigurbjörg Á. Óskarsdóttir
Snorri Styrkársson
Snæbjörn Þór Ólafsson
50 ára
Elín Ellingsen
Fjóla S. Friðriksdóttir
Guðmundur Benediktsson
Gunnhildur
Gunnsteinsdóttir
Henryk Szpiech
Jón Hannes Karlsson
Kolbrún G. Kjartansdóttir
Leifur Örn Haraldsson
Louise Eileen Harrison
María Ágústsdóttir
Ólöf María Jóhannesdóttir
Sigurður H. Kristjánsson
40 ára
Anna Þóra Þórhallsdóttir
Elva Ásgeirsdóttir
Guðrún D. Gunnarsdóttir
Gunnar Ingi Björnsson
Heiða Brynja Heiðarsdóttir
Helga D.M. Magnúsdóttir
Smári Guðjónsson
Sveinbjörn D. Magnússon
Sveinlaug Friðriksdóttir
Unnar Þór Garðarsson
Unnur S. Þorbjargardóttir
30 ára
Elfar Pétursson
Helgi Már Kristjánsson
Til hamingju með daginn
30 ára Sunna ólst upp í
Mosfellsbæ, býr þar, lauk
BA-prófi í tónsmíðum frá
LHÍ og er verslunarstjóri í
Snúrunni, hönnunar-
verslun.
Systir: Greta Salóme, f.
1986, tónlistarmaður.
Foreldrar: Kristín Lillen-
dahl, f. 1955, kennari við
HÍ, og Stefán Jóhann
Pálsson, f. 1954, starfs-
maður hjá Esjueiningum
og glerlistamaður. Þau
búa í Mosfellsbæ.
Sunna Rán
Stefánsdóttir
30 ára Páll ólst upp í
Hafnarfirði, býr þar, lauk
stúdentspróf frá Flens-
borg og rekur Hafið –
fiskverslun í Spönginni í
Grafarvogi og verður með
afmælistilboð á morgun.
Maki: Vera Dagsdóttir, f.
1989, fjármálastjóri hjá
Hafinu.
Foreldrar: Páll Breiðfjörð
Eyjólfsson, f. 1954, skip-
stjóri, og Svava Hlíð Svav-
arsdóttir, f. 1955, svæða-
nuddari.
Páll Fannar
Pálsson
30 ára Guðný býr í
Grindavík, lauk hús-
mæðraskólaprófi og við-
skiptafræðiprófi frá HÍ, og
er gjaldkeri hjá Arion
banka í Leifsstöð.
Maki: Emil Daði Sím-
onarson, f. 1988, starfs-
maður við leikskóla.
Dóttir: Gunnhildur Lína,
f. 2015.
Foreldrar: Ólafur Thor-
dersen, f. 1966, og Þór-
laug Jónatansdóttir, f.
1965.
Guðný S.
Thordersen