Morgunblaðið - 20.02.2018, Síða 36

Morgunblaðið - 20.02.2018, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 51. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Fá fullnægingu með hvor annarri 2. Hjörvar og Heiðrún eignuðust son 3. „Búinn að sofa sáralítið í nótt“ 4. Lýsa yfir óvissustigi vegna skjálfta »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Kvartettinn Frændólkið kemur fram á djasskvöldi Kex Hostels í kvöld, kl. 20.30. Kvartettinn leikur nýja tónlist eftir Inga Bjarna Skúla- son píanóleikara og Oddrúnu Lilju Jónsdóttur gítarleikara, auk heims- tónlistar og djass. Frændsystkinin Ingi og Oddrún hafa leikið saman við tónlistarháskólann í Osló. Frændfólkið leikur nýja tónlist og djass  Kvennakór Suð- urnesja fagnar hálfrar aldar af- mæli kórsins með stórtónleikum í Stapa á fimmtu- dagskvöldið. Fríða Dís, söngkona Klassart, og Valdi- mar Guðmunds- son syngja nokkur lög með kórnum en flutt verður tónlist frá síðustu ára- tugum eftir ýmis Suðurnesjatónskáld og textahöfunda. »12 Stórafmæli Kvenna- kórs Suðurnesja  Linda Ólafsdóttir myndskreytir hef- ur gert alþjóðlegan útgáfusamning við bandaríska forlagið Holiday House sem gefur út bækur fyrir börn og ung- menni. Forlagið mun sumarið 2019 gefa út bók án orða eft- ir Lindu, In the Middle, um tvo óþekka brodd- gelti sem skríða út úr myndabók og opinbera hulda heima. Bók Lindu kemur út í Bandaríkjunum Á miðvikudag Suðaustan 18-25 m/s. Snjókoma, slydda eða rign- ing, talsverð úrkoma syðra og mikil á Suðausturlandi. Úrkomulítið nyrðra. Suðvestan 8-15 vestast síðdegis, él og kólnandi veður. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 10-18 m/s en mun hægari í kvöld. Él sunnan- og vestanlands. Bjartviðri nyrðra og eystra. Hiti víða 1-8 stig en kólnar niður undir frostmark um allt land síðdegis. VEÐUR „Umboðsmaður minn hringdi í mig og sagði mér frá íslensku deildinni því hann talda hana vera heppilega til að byrja at- vinnumannaferilinn. Flóknara var það nú eiginlega ekki og ég veit ekki einu sinni hvort mér bárust önnur tilboð eða aðrar fyrirspurnir. Ég stökk á þetta tækifæri og reyni að vinna eins vel úr því og ég get,“ segir Ryan Taylor, bandaríski körfuboltamað- urinn hjá ÍR. »3 Taldi gott að byrja ferilinn á Íslandi „Mig langaði til þess að takast á við eitthvað nýtt eftir þrjú ár hjá Århus. Takast á við nýja áskorun í öðru landi. Toppliðið í Noregi býður upp á ýmsa möguleika, eins og til dæmis að leika í Meist- aradeild Evrópu,“ segir hand- knattleiksmað- urinn Sigvaldi Björn Guð- jónsson sem yf- irgefur Århus í Danmörku í sum- ar og gengur til liðs við norsku meistarana El- verum. »1 Vildi takast á við nýja áskorun í nýju landi Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði sig- urmark FH gegn Val á lokasekúndu leiksins þegar liðin mættust í Kapla- krika í gærkvöld í Olís-deildinni í handbolta. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Óðinn kemur sér í fyrirsagnirnar í vetur. Stjarnan er langt komin með að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni eftir sigur á Fjölni sem situr í næst- neðsta sæti. »2 Óðinn endurtók leikinn og FH í toppmálum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Súrkál er sælkeramatur að mati Dagnýjar Hermannsdóttur súr- kálsgerðarkonu. Hún sendi nýver- ið frá sér uppskriftabókina Súrkál fyrir sælkera til að breiða súrkáls- fagnaðarerindið út til Íslendinga. Hún heldur einnig súrkálsgerðar- námskeið og þá er súrkál úr henn- ar framleiðslu nýkomið í valdar verslanir. Dagný kynntist súrkálsgerð fyrst þegar hún var 17 ára nemi í lýðhálsskóla í Noregi. „Mér óx þetta í augum og hafði þá hug- mynd að það þyrfti hinar full- komnu aðstæður og græjur í súr- kálsgerðina. Fyrir fáeinum árum safnaði ég kjarki og skoðaði þetta af alvöru. Verandi hrikaleg dellu- manneskja sökkti ég mér ofan í súrkálsgerðina og komst að því að hún er hvorki flókin né hættuleg. Þetta er einhver öruggasta geymsluaðferð á matvælum sem til er,“ segir Dagný. Henni hefur síð- an tekist að smita flestalla í kring- um sig af súrkálsáhuganum. „Mér fannst svo merkilegt að uppgötva hvað súrkál er gott og fann mikla þörf fyrir að troða því upp á alla. Fólk hefur mismikinn áhuga til að byrja með, sumir þurfa að venjast súrkálinu áður en þeim finnst það gott en aðrir falla strax fyrir því.“ Grænmeti, salt og krydd Súrkálsgerð er talin vera upp- runnin í Asíu löngu fyrir tíma akuryrkju. Dagný segir gerjuð matvæli þekkjast í öllum menn- ingarheimum þó að margir hér á landi tengi súrkál oftast við Þýskaland. Í súrkál og annað gerjað græn- meti er aðeins notað salt og krydd. „Mjólkursýrubakteríur eru til staðar á grænmetinu og við gerjunina eru skapaðar réttar aðstæður þannig að mjólkursýru- bakteríurnar nái yfirhöndinni. Það er hægt að sýra allt grænmeti, möguleikarnir eru óendanlegir.“ Í uppáhaldi hjá Dagnýju er súr- krásin Curtido sem hún segir mjög ljúffenga og passa með öllu, hún borðar hana meðal annars með morgunmatnum. „Ég er alltaf að prófa eitthvað nýtt. Ég er rosalega spennt núna fyrir súrkáls-chutneyi sem er svo gott að við ákváðum að setja það í framleiðslu.“ Dagný segir mikla súrkálsvakn- ingu vera um allan hinn vestræna heim. „Fólk er að átta sig á að lif- andi fæða skiptir máli. Það sem ég framleiði er lifandi og ógerilsneytt en margt af því súrkáli sem er flutt hingað inn er niðursoðið þannig að bakteríurnar eru drepn- ar og hollustugildið þá að miklu leyti farið.“ Sökkti sér ofan í súrkálsgerð  Dagnýju Hermannsdóttur finnst súrkál gott Morgunblaðið/Hari Súrkrásir Dagný Hermannsdóttir sendi nýlega frá sér uppskriftabók um súrkálsgerð, Súrkál fyrir sælkera. Súrkál er talið hafa mjög góð áhrif á meltinguna og heilsuna almennt. Dagný segist geta vottað það, hún hafi aldrei verið jafn góð í maga og eftir að hún fór að borða súrkál reglulega. „Það er alltaf að koma betur og betur ljós hvað þarmaflóran er mikilvæg og hvað bæði ytri þættir og mataræði hafa mikil áhrif á hana. Við þurfum að fá góðgerla úr matn- um og fullt af góðum trefjum og súrkál inni- heldur hvort tveggja. Það er alltaf verið að selja skyndilausnir við öllu, ég er ekki hrifin af þeim. Það er miklu eðlilegra að fá það sem þarf úr hollu og náttúrulegu mataræði án þess að vera í brjáluðum öfgum. Við eig- um að borða góðan og alvörumat og njóta þess, það er heilbrigð skynsemi,“ segir Dagný. Súrkál er gott fyrir meltinguna HEILBRIGÐ SKYNSEMI AÐ BORÐA ALVÖRUMAT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.