Morgunblaðið - 20.02.2018, Page 12
Rétt glitti í köflótta efnið, sem áratugum sam-
an hefur verið helsta vörumerki breska fata-
framleiðandans Burberry, í fatalínunni sem
kynnt var á Tískuvikunni í London um helgina.
Sú var tíðin að fátt þótti virðulegra en að
klæðast drapplitum Burberry-rykfrakka með
köflótta fóðrinu og vera með trefil í stíl.
Burberry-flíkurnar á tískupöllunum í
London voru öllu ungæðislegri en forðum,
jafnvel hipp og kúl, ef svo mætti segja um líf-
legan, litríkan og frjálslegan fatnaðinn. Ef
grannt er skoðað sést að köflótta munstrið er
enn á sínum stað; í fóðri og fylgihlutum.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2018
Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
◆ KASSAR
◆ ÖSKJUR
◆ ARKIR
◆ POKAR
◆ FILMUR
◆ VETLINGAR
◆ HANSKAR
◆ SKÓR
◆ STÍGVÉL
◆ HNÍFAR
◆ BRÝNI
◆ BAKKAR
◆ EINNOTA VÖRUR
◆ HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað
Árið 2018 Kvennakór Suðurnesja á æfingu fyrir afmælistónleikana 22. febrúar. Dagný Jóns-
dóttir stjórnar af röggsemi og einbeitnin skín úr andlitum söngkvennanna.
Svanhildur Eiríksdóttir
svei@simnet.is
K
vennakór Suðurnesja
hóf 50 ára afmælis-
hátíð föstudaginn 9.
febrúar með opnun
sögusýningar í Duus
Safnahúsum. Þar er saga kórsins
rakin í máli, myndum og munum. Á
sjálfan afmælisdaginn verða tón-
leikar í Hljómahöll þar sem kórinn
hefur fengið til liðs við sig þekkta
tónlistarmenn af Suðurnesjum,
hluta hljómsveitarinnar Valdimars,
Valdimar sjálfan (Guðmundsson) og
Fríðu Dís Guðmundsdóttur. Þau tvö
síðastnefndu munu syngja með
kórnum en á efnisskránni eru m.a.
þekkt Suðurnesjalög. Með vorinu
ætlar kórinn svo á kóramót í Fær-
eyjum en kóraferðir á erlendri
grundu hafa verið reglulegar í sögu
kórsins. Sú fyrsta var farin til Kork
á Írlandi árið 1974 og sú síðasta til
Minneapolis í Bandaríkjunum árið
2014.
Blaðamaður fór á stúfana í
Hljómahöll þar sem stíft er æft
þessa dagana. Aldursforsetinn í
reynsluárum, Sigurbjörg Sveins-
dóttir, var tekin tali sem og stöll-
urnar Ína Dóra Hjálmarsdóttir og
Bergný Jóna Sævarsdóttir sem
keyra úr höfuðborginni á æfingar.
Áhugi og elja þessara þriggja gefur
til kynna að það sé mikið varið í að
vera í Kvennakór Suðurnesja.
Sigurbjörg hefur verið í
Kvennakórnum í tæp 40 ár, byrjaði
sem ung kona og rétt tók sér frí
meðan fjölskyldan var að stækka.
Þegar hún er spurð hvað hafi haldið
henni svona lengi í kórnum er hún
fljót til svars. „Þetta er svo upplífg-
andi. Það er svo mikil eining í kórn-
um og þetta er svo skemmtilegt.
Maður kemur kannski á æfingar
dauðþreyttur, en þreytan líður úr
manni alveg hreint. Þetta er eins og
vítamínsprauta. Ég kalla þetta mitt
jóga,“ segir Sigurbjörg.
Eining í fjölbreytileikanum
Einn af hápunktunum í kóra-
starfinu finnst Sigurbjörgu þegar
eining næst í fjölbreytileikanum,
eins og hún orðar það. Þegar allar
hafa náð laginu í einn hljóm, þá
verði kórinn eins og ein manneskja
þrátt fyrir að þær kórsystur séu alla
vega. „Það er líka mjög mikil eining
kvenna á milli. Stjórnin hóaði okkur,
sem erum með mestu starfsreynsl-
una, saman í haust og það var bara
eins við hefðum hist daginn áður,
svo sterk eru vinaböndin. Svo eru
sumar ennþá búandi hérna og það
er samgangur á milli okkar. Við för-
um í morgunkaffi til hver annarrar
eftir ræktina.“ Sigurbjörg er hér að
vísa í heilsurækt eldri íbúa sem dr.
Janus Guðlaugsson stýrir í Reykja-
nesbæ. Auðheyranlega er ekki
„Það er voða góður
andi í þessum kór“
„Þetta er mitt jóga,“ segir Sigurbjörg Sveinsdóttir sem hefur starfað í Kvennakór
Suðurnesja stóran hluta starfstíma hans. Kórinn, sem er elsti starfandi kór
landsins, fagnar 50 ára afmæli sínu 22. febrúar með tónleikum í Hljómahöll.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Mikið á sig lagt Þær Ína Dóra Hjálmarsdóttir og Bergný Jóna Sævars-
dóttir vaða oft skafla til að komast á æfingar með kvennakórnum.
Árið 1983 Kvennakórskonur í sínu fínasta pússi og allar í stíl þegar fimmtán ára afmæli kórs-
ins var fagnað með stæl árið 1983. Fremst eru einsöngvarar, kórstjóri og undirleikari.
Tískuvikan í London, haust-vetur 2018
Hið köflótta víkur ei
AFP