Morgunblaðið - 26.02.2018, Page 8

Morgunblaðið - 26.02.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2018 Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com Þeir borgarbúar sem þurft hafaað eiga samskipti við umhverf- is- og skipulagssvið á undanförnum árum þekkja vel þá endalausu bið, frestanir á afgreiðslu mála, misvís- andi skilaboð, skort á svörum, erfiðleika við að ná fundi starfsmanna, og svo framvegis, sem sam- skiptunum fylgja.    Fyrir þá semstanda í fram- kvæmdum, hvort sem það eru ný- byggingar eða viðhald og endur- bætur, er þetta óskemmtileg viðbót við viðamikið verkefni og getur verið allt að því óyfirstíganleg hindrun.    Þetta er sennilega hluti af skýr-ingunni á því hvernig fram- kvæmdir hafa gengið – eða öllu heldur ekki gengið – í Reykjavík á nýliðnum árum.    Segja má að þessi fyrirstaðaframkvæmda hafi fengist stað- fest í viðtali Morgunblaðsins við umboðsmann borgarbúa á laugar- dag. Þar kom fram að þetta svið borgarinnar er 80 daga að meðal- tali að svara umboðsmanninum, margfalt lengur en önnur svið.    Fyrir þá sem ráðið hafa til síniðnaðarmenn og vilja fram- kvæma í höfuðborginni getur þetta kostað stórfé.    Þar sem þessi vandi er síður ensvo nýr af nálinni má fullyrða að borgaryfirvöld hafi annaðhvort ekki getu eða áhuga á að leysa hann. Hætt er við að silkihúfurnar í borgarkerfinu séu einfaldlega orðnar of margar til að hægt sé að halda uppi skilvirkri stjórnsýslu. Þetta er eitt af því mikilvægasta sem breyta þarf hjá Reykjavíkur- borg. Hjálmar Sveinsson Skipulagsleysi á skipulagssviði STAKSTEINAR Veður víða um heim 25.2., kl. 18.00 Reykjavík 7 súld Bolungarvík 7 rigning Akureyri 8 skýjað Nuuk -15 skýjað Þórshöfn 5 heiðskírt Ósló -6 heiðskírt Kaupmannahöfn -3 léttskýjað Stokkhólmur -4 snjókoma Helsinki -7 léttskýjað Lúxemborg -2 heiðskírt Brussel 0 heiðskírt Dublin 6 léttskýjað Glasgow 6 heiðskírt London 3 heiðskírt París 2 heiðskírt Amsterdam 0 heiðskírt Hamborg -3 snjókoma Berlín -2 skúrir Vín -6 léttskýjað Moskva -14 snjókoma Algarve 17 léttskýjað Madríd 13 heiðskírt Barcelona 14 heiðskírt Mallorca 14 léttskýjað Róm 8 rigning Aþena 10 súld Winnipeg -11 snjókoma Montreal -1 þoka New York 5 rigning Chicago 2 léttskýjað Orlando 26 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 26. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:46 18:37 ÍSAFJÖRÐUR 8:57 18:35 SIGLUFJÖRÐUR 8:40 18:18 DJÚPIVOGUR 8:17 18:04 Stjórn Mið- floksfélags Reykjavíkur kynnti á laug- ardag ellefu efstu sætin á framboðslista flokksins fyrir borgarstjórn- arkosningarnar þann 26. maí næstkomandi. Þar skipar Vigdís Hauksdóttir efsta sætið, Vilborg Hansen ann- að og Baldur Borgþórsson það þriðja. Þeir sem fylgja á listanum eru eftirfarandi, í þessari röð: Sveinn Hjörtur Guðfinnsson markþjálfi, Jón Hjaltalín Magnússon verk- fræðingur, Sólveig Bjarney Daní- elsdóttir, aðstoðardeildarstjóri á LSH, Trausti Harðarson fram- kvæmdastjóri, Viðar Freyr Guð- mundsson rafeindavirki, Kristín Jóna Grétarsdóttir fram- kvæmdastjóri, Örn Bergmann Jónsson, bóksali og nemi, og Linda Jónsdóttir einkaþjálfari. Listi Mið- flokksins kynntur  Vigdís leiðir og Vilborg í 2. sæti Vigdís Hauksdóttir Valið var í fimm efstu sæti framboðs- lista Vinstri-grænna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar með raf- rænu forvali á laugardag. Atkvæði greiddu 493, en tvö atkvæði voru auð og tvö töldust ógild. Niðurstaða forvalsins varð á þá leið að Líf Magneudóttir skipar fyrsta sæti, Elín Oddný Sigurðardóttir ann- að sæti og Þorsteinn V. Einarsson það þriðja. Í fjórða sæti er Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm og René Biasone skipar það fimmta. Atkvæði skiptust þannig að Líf Magneudóttir fékk flest atkvæði, 401, í fyrsta sæti. Næst var Elín Oddný Sigurðardóttir með 36 atkvæði. Elín Oddný hlaut flest atkvæði í fyrsta til annað sæti, 311, og hlýtur því annað sæti. Næstur var Gústav Adolf Bergmann Sigur- björnsson með 99 atkvæði. Þorsteinn V. Einarsson hlaut flest atkvæði í fyrsta til þriðja sæti, 164, og hlýtur því þriðja sæti. Næstur var Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson með 127 atkvæði. Hreindís Ylva Garðars- dóttir Holm hlaut flest atkvæði í fyrsta til fjórða sæti, 210, og hlýtur því fjórða sæti. Næstur var Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson með 163 atkvæði. René Biasone hlaut flest atkvæði í fyrsta til fimmta sæti, 218, og hlýtur því fimmta sæti. Valið er leiðbeinandi, en kjörnefnd leggur svo fram endanlegan lista með 46 fram- bjóðendum fyrir félagsfund. Líf efst og fékk 493 atkvæði í forvali  Valið í fimm efstu sætin hjá VG í Reykjavík með forvali á laugardaginn var Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Forval Líf Magneudóttir í 1. sæti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.