Morgunblaðið - 26.02.2018, Side 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2018
Hlynur Þór Valsson, kennari í Sandgerðisskóla og tónlist-armaður, á 40 ára afmæli í dag. Hann kennir náttúrufræði ámiðstigi, þ.e. 5.-7. bekk, og er einnig verkefnastjóri í skól-
anum.
„Ég er reyndar borinn og barnfæddur Keflvíkingur en hef sterk
tengsl við Sandgerði. Hef búið hér síðan 2004 og byrjaði að kenna í
skólanum árið 2006,“ en um 250 nemendur eru í skólanum. „Ég er
ekki lærður sérstaklega í náttúrufræði, tók almenn kennsluréttindi,
en féll fyrir náttúrufræðinni þegar ég fór að kenna, tilraununum og
öðru slíku.“
Hlynur spilar á gítar og syngur og var lengi í dúettinum Hobbit-
unum. „Svo urðum við hljómsveit og þá urðu þetta Hobbitarnir og
föruneytið. Við spilum við alls kyns tækifæri suður með sjó og fram
undan eru árshátíðir og brúðkaup.
Fyrir utan tónlistina þá eru áhugamálin bara þetta klassíska, fjöl-
skyldan og starfið, það á hug minn allan.“
Þegar blaðamaður hafði samband við Hlyn fyrir helgi var hann að
koma sér fyrir í kennaraíbúð í Reykjavík. „Það verður gert vel við
mann í mat og drykk um helgina. Síðan verður afmælisdagurinn bara
hefðbundinn.“
Sambýliskona Hlyns er Ásdís Ösp Ólafsdóttir og er hún einnig
kennari í Sandgerðisskóla. Dóttir þeirra er Bergrún Embla fimm ára.
Ljósmynd/Ásdís Ösp Ólafsdóttir
Feðginin Hlynur og Bergrún Embla á ættarmóti árið 2017. Í baksýn er
eyðibýlið Heiði á Langanesi sem er ættaróðal Heiðarættarinnar.
Gerði vel við sig í mat
og drykk um helgina
Hlynur Þór Valsson er fertugur í dag
Í
var Pálsson fæddist í Reykja-
vík 26.2. 1958, ólst upp við
sjávarsíðuna í Steinnesi við
Skerjafjörð frá tveggja ára
aldri og hefur búið þar í
sama húsi í 50 ár. Þá var Skerjafjörð-
ur sunnan flugvallar lítið þorp. Ívar
var í sveit á sumrin, fyrst í A-Hún. en
síðan á Skaftafelli í Öræfum.
„Mamma átti okkur átta börnin á
tólf og hálfu ári, frá 26 ára aldri, en
ég er yngstur. Heimilið var eins og
járnbrautarstöð: börnin, foreldrar,
ein au-pair og fjölmargir vinir barna
og foreldra – en gestir sváfu stundum
í þvottahúsi, í geymslu, í stofunni og á
ganginum – og alltaf mikið líf og
fjör.“
Á unglingsárunum var Ívar í sum-
arvinnu í Kassagerðinni, við vega-
gerð, í tjöruvinnu á flugskýlum á
Keflavíkurflugvelli, flugafgreiðslu á
Reykjavíkurflugvelli, var háseti á
Vigra RE-71, við skógarhögg erlend-
is, í ofnasölu um landið og loks sölu-
maður Volvo á Íslandi, en vinnan í
fluginu veitti mikið frelsi til flugferða
innanlands og utan.
Ívar byrjaði nám hjá nunnunum í
Landakotsskóla, var í Hagaskóla og
lauk stúdentsprófi frá MR 1978. Eftir
viðdvöl í lögfræði og viðskiptafræði í
HÍ varð Ívar viðskiptafræðingur frá
Boston University árið 1984, með
markaðsfræði sem aðalgrein: „Mark-
aðsfræðin að hætti Bandaríkjamanna
heillaði mig,“ segir hann.
Eftir námið setti Ívar stefnuna á
útflutning, var markaðsstjóri hjá
Seifi hf., en stofnaði síðan og rak út-
flutningsfyrirtækið Hafex hf. árin
1986-88, með framtaksmönnum á
Ísafjarðarsvæðinu. Hann stofnaði
svo Sævörur ehf. árið 1988 með Gerði
Thoroddsen og hafa þau hjónin ann-
ast útflutning á rækju síðan. Í upp-
hafi voru helstu framleiðendur rækj-
unnar í Hnífsdal en svo á Ísafirði og
Súðavík, sem var heimabær móður-
ömmu hans, Friðnýjar Stephensen.
Síðar á Hvammstanga og Siglufirði,
en nú í Grundarfirði og Hólmavík.
En Ívar hefur haft fleiri járn í eldi:
„Verksmiðja á Ísafirði fyrir frosið
sushi var frumkvöðulsstarfsemi með
verðlaunaframleiðslu sem tókst vel.
Þaðan seldum við á breska og þýsku-
mælandi markaði. Við keyptum hálfa
götu af verksmiðjum á Ísafirði, sem
kom starfseminni af stað þar á erf-
iðum tíma.“ Þá slóst Ívar í hóp með
nokkrum fiskútflytjendum 1998-2002
í Kínaviðskipti, fiskútflutning, fram-
virk gjaldmiðlaviðskipti, milligöngu
um skipasmíði og fleira. Hann hætti
þó aldrei í rækjunni.
Ívar var varamaður í útflutnings-
ráði árin 1998-2002. Ívar elskar
ferðalög: „Ég hef farið til 40 landa,
m.a. til Kína nokkur skipti, Egypta-
lands, Rússlands, Indlands, Víetnam
og til 25 ríkja Bandaríkjanna. Vegna
vinnunnar hef ég þó oftast farið til
Bretlands, kannski 60-80 sinnum, og
ég hef mætt á árlegar sjávarútvegs-
sýningar víða um heim í rúm 30 ár.
Alls staðar eru sjávarafurðir besti
matur í heimi.“
Áhugamál Ívars eru nokkuð mörg,
t.d. hagkerfi heimsins, stjórnmál,
frjáls markaður, skrif, saga veraldar,
rafmagnstæki, vísindi, uppgötvanir,
Ívar Pálsson, viðskiptafræðingur og útflytjandi, 60 ára
Fjölskyldan Ívar, með Gerði, Magnúsi, Heru, Stefáni og tengdaforeldrum.
Skerfirðingur, rækju-
karl og ferðalangur
Hluti systkinanna F.v.: Ívar, Stefán hrl., Sella Páls og Anna Heiða rithöf-
undar, Signý skrifstofustjóri, Þórunn, kennari og leikari, og Páll Arnór hrl.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
OCEAN MIST
Modus Hár og Snyrtistofa
Smáralind | harvorur.is
REF Stockholm er 12 ára gamalt
Professional haircare merki
Ocean Mist er 100 % Vegan ,
sulfate, Paraben, glúten
og Cruelity free
Verð 2.560 kr.
Sjá nánar á harvorur.is
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.