Morgunblaðið - 26.02.2018, Side 15

Morgunblaðið - 26.02.2018, Side 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2018 Vertu viðbúinn vetrinum LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR SNJÓKEÐJUR Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti loks á laugardag tillögu um þrjátíu daga vopnahlé í Sýr- landi. Staðið hafði til að samþykkja tillöguna á fimmtudag, en atkvæðagreiðslu var ítrekað frest- að vegna þess að ekki náðist samkomulag sem Rússar gátu sætt sig við, en Rússar eru helstu bandamenn sýrlenska stjórnarhersins í stríðinu. Sendiherra Bandaríkjanna í hjá Sameinuðu þjóðunum, Nikki Haley, sakaði Rússa um að tefja framgang málsins. „Við erum ákaflega sein að bregðast við. Með hverri mínútunni sem örygg- isráðið beið, þá jukust þjáningar fólks,“ sagði hún. Vassily Nebenzia, sendiherra Rússa hjá SÞ, vís- aði ásökununum á bug. Hann sagði nauðsynlegt að semja um málið svo menn kæmust að samkomu- lagi um vopnahlé sem væri gerlegt. Í þessu þrjátíu daga vopnahléi eiga hjálparsam- tökum að gefast tækifæri til þess að flytja slasaða í burtu og koma hjálpargögnum til almennings á umsetnum svæðum sem uppreisnarmenn ráða yfir í austurhluta Ghouta-héraðs, skammt frá höfuð- borginni Damaskus. Þar hafa yfir 500 óbreyttir borgarar látið lífið á einni viku vegna stanslausra sprengjuárása stjórnarhers Sýrlands undir stjórn Bashars al-Assads forseta. Á meðal hinna látnu eru 127 börn hið minnsta. Nær ekki til allra Þrátt fyrir að vopnahlé hafi verið samþykkt af öryggisráði Sameinuðu þjóðanna heldur sýrlenski stjórnarherinn áfram árásum sínum. Talsmenn Sýrlensku mannréttindavaktarinnar, sem hefur fylgst með stríðsátökunum í landinu, segja að sýr- lenskar herþotur, sem njóta stuðnings Rússa, hafi gert árásir í Austur-Ghouta eftir að ályktunin var samþykkt. Ein af þeim breytingum sem Rússar fóru fram á, ættu þeir að samþykkja tillöguna, var sú að vopnahléið næði ekki til árása gegn hryðju- verkasamtökum íslamska ríkisins, al-Qaeda og Nusra Front. Að minnsta kosti þrír létust í árás- um í gær, sunnudag, eftir að vopnahlé var sam- þykkt. Talsmenn íranska hersins hafa sagt að þeir muni virða vopnahléið, en halda áfram aðgerðum á þeim svæðum sem það næði ekki til. Íran er mik- ilvægur bandamaður Sýrlandsforseta og hefur gegnt lykilhlutverki í að ná aftur svæðum sem uppreisnarmenn höfðu hertekið. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og Emm- anuel Macron, Frakklandsforseti, ræddu við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, í sameiginlegu símtali á sunnudag, þar sem þau ítrekuðu mik- ilvægi vopnahlésins. Þá báðu þau Pútín um að þrýsta á Assad Sýrlandsforseta að virða vopna- hléið. Árásir þrátt fyrir vopnahlé  Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti vopnahlé í Sýrlandi  Þrátt fyrir það heldur sýrlenski stjórnarherinn árásum sínum áfram  Yfir 500 látist á viku AFP Sýrland Yfir 500 óbreyttir borgarar hafa látið lífið vegna árása stjórnarhersins undanfarna viku. Yfirvöld í Suð- ur-Kóreu segja nágrannaríki sitt, Norður- Kóreu, reiðubú- ið að eiga við- ræður við bandarísk stjórnvöld. Greint var frá þessu í kjölfar fundar Moon Jae-in, forseta Suður-Kóreu, við norðurkóreska hershöfðingjann Kim Yong-chol fyrir lokaathöfn Vetrarólympíuleikanna í Pyeong- Chang. Ivanka Trump, dóttir Banda- ríkjaforseta, er stödd í S-Kóreu vegna lokaathafnarinnar. Banda- rískir embættismenn hafa úti- lokað að eiga fund með sendi- fulltrúum Norður-Kóreu, en þeir segja að fulltrúar N-Kóreu hafi hætt við fund með Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, þegar opnunarhátíð Vetrarólympíuleik- anna fór fram. NORÐUR-KÓREA Tilbúin að ræða við Bandaríkin Kim Yong-chol Áætlaðri heim- sókn Enrique Peña Nieto, for- seta Mexíkó, til Bandaríkjanna hefur verið frest- að um óákveðinn tíma í kjölfar krefjandi símtals sem hann átti við Donald Trump Bandaríkja- forseta. Fyrsta heimsókn hans í Hvíta húsið eftir að Trump tók við embætti var ráðgerð nú í febrúar eða mars. Ágreiningur forsetanna mun hafa orðið vegna fyrirætlana Trumps um að byggja vegg við landamæri landanna. Heimsókninni var aflýst eftir að Trump neitaði að viðurkenna ásetning Mexíkó um að fjármagna ekki landamæra- vegginn. MEXÍKÓ Heimsókn forsetans til BNA frestað Enrique Peña Nieto Kommúnistaflokkurinn í Kína hefur lagt fram tillögu þess efnis að ákvæði í lögum sem kveður á um takmarkaðan tíma forseta í embætti verði fjarlægt úr stjórnarskrá landsins. Samkvæmt núgildandi stjórnarskrá má forseti aðeins sitja tvö fimm ára löng kjörtímabil í röð. Tillaga þessi myndi gera núverandi forseta landsins, Xi Jinping, kleift að halda embætti sínu lengur en til 2023, þegar öðru kjörtímabili hans lýkur. Vangaveltur höfðu verið uppi um hvort Xi myndi leitast við að lengja forsetatíð sína, en þvert á hefðir var enginn eftirmaður kynntur á ráð- stefnu Kommúnistaflokksins á síð- asta ári. Xi Jinping fæddist árið 1953 og er sonur eins af stofnendum Komm- únistaflokksins í Kína. Hann gekk í flokkinn árið 1973 og kleif metorða- stigann þar til hann varð loks forseti árið 2013. Í forsetatíð sinni hefur hann lagt áherslu á efnahagslegar umbætur, herferð gegn spillingu, endurvakningu þjóðernishyggju og baráttu fyrir mannréttindum. Tíma- setning tilkynningarinnar er ekki talin vera tilviljun, en í dag snúa Kínverjar aftur til vinnu eftir að hafa fagnað kínverska nýárinu. Kína var einnig í aðalhlutverki á loka- athöfn Vetrarólympíuleikanna, þar sem Suður-Kórea afhenti landinu keflið fyrir leikana árið 2022. Þá munu helstu ráðamenn í miðstjórn Kommúnistaflokksins funda í dag. Kínverska þingið þarf að samþykja tillögu Kommúnistaflokksins en flestir telja það formsatriði. Ekki er ljóst hve lengi Xi myndi halda forsetastól en fjölmiðlar í Kína segja þetta ekki þýða að hann verði við völd ævilangt. Þá var haft eftir flokksmeðlimi Kommúnista- flokksins að um mikilvæga ákvörð- un væri að ræða þar sem Kína þyrfti stöðugan, sterkan og stefnu- fastan leiðtoga frá 2020 til 2035. Aðrir óttast aukin völd Xis, en hann hefur brotið ýmsar hefðir sem hafa verið viðhafðar í Kommúnista- flokknum, sem hefur verið við völd í landinu í áratugi. AFP Valdamikill Xi Jinpeng, forseta Kína, verður kleift að halda embætti lengur en til 2023 verði tillagan samþykkt á kínverska þinginu. Forseti Kína verði lengur í embætti  Kommúnistaflokkurinn leggur til breytingu á stjórnarskrá landsins Bandarísku flugfélögin United Airlines og Delta hafa nú bæst í hóp þeirra fyr- irtækja sem hafa slitið tengsl við sam- tök skotvopnaeigenda í landinu, NRA. Flugfélögin tvö tilkynntu á laugar- dag að félagsmenn samtakanna fengju ekki lengur afslátt hjá þeim. Áður höfðu bílaleigurnar Hertz og Enter- prise ákveðið að slíta tengsl við NRA, en félagsmenn fengu einnig afslátt hjá bílaleigunum. Neytendur hafa hvatt til þess að viðskiptavinir samtakanna sniðgangi þau, m.a. með myllumerkinu #boycottNRA. BANDARÍKIN Wayne LaPierre, framkvæmdastjóri samtaka skotvopnaeigenda, NRA. Fyrirtæki slíta öll tengsl við NRA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.