Morgunblaðið - 26.02.2018, Side 29

Morgunblaðið - 26.02.2018, Side 29
Kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein baðst skömmu fyrir helgi afsökunar á því að lögfræðingar hans hefðu beitt Meryl Streep og Jennifer Lawrence fyrir sig í vörn gegn hópmálsókn kvenna sem saka Weinstein um kynferðislegt ofbeldi. Sex konur höfðuðu nýverið mál gegn Weinstein og yfirmönnum Miramax og Weinstein Company, en þær telja augljóst að samstarfsmenn hans hafi um langt árabil hylmt yfir framferði Weinstein. Lögmenn Weinstein kröfðust þess fyrir dómi í liðinni viku að málsókninni yrði vís- að frá dómi og bentu í vörn sinni á að Streep og Lawrence hefðu opin- berlega lýst því yfir að þær hefðu ekki orðið fyrir ofbeldi af hans hálfu. Leikkonurnar tvær brugðust ókvæða við rökum lögmannanna og sendi Streep frá sér yfirlýsingu þar sem hún sagði fráleitt að nota það sem röksemd gegn öðrum konum að hann hefði ekki misboðið henni. Fordæmdi hún framferði hans í garð annarra kvenna og sagðist vonast til þess að hann hlyti mak- leg málagjöld í réttarkerfinu. Lawrence for- dæmdi Weinstein og lögmenn hans fyrir að taka hlutina úr sam- hengi. „Þetta er það sem rándýr gera og því þarf að linna. […] Tím- inn er á þrotum.“ Meira en 75 konur hafa sakað Weinstein um kynferð- islega áreitni og ofbeldi. Hann neit- ar allri sök. Biður Streep og Lawrence afsökunar Meryl Streep MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2018 Kvikmynd ársins Undir trénu framleidd af Netop Films Leikstjórn Hafsteinn Gunnar Sigurðsson fyrir Undir trénu Handrit Huldar Breiðfjörð og Hafsteinn Gunnar Sigurðsson fyrir Undir trénu Leikkona í aðalhlutverki Edda Björgvinsdóttir fyrir Undir trénu Leikari í aðalhlutverki Steinþór Hróar Steinþórsson fyrir Undir trénu Leikkona í aukahlutverki Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir fyrir Fanga Leikari í aukahlutverki Sigurður Sigurjónsson fyrir Undir trénu Heimildamynd Reynir sterki framleidd af Glassriver Stuttmynd ársins Atelier – framleidd af Den danske filmskole Sjónvarpsmaður ársins Unnsteinn Manuel Stefánsson fyrir Hæpið Skemmtiþáttur Áramótaskaup 2017 framleitt af Glassriver Menningarþáttur Framapot framleitt af Sagafilm Mannlífsþáttur Leitin að upprunanum framleitt af Stöð 2 Frétta- eða viðtalsþáttur Kveikur – framleitt af RÚV Barna- og unglingaefni Sumarbörn framleitt af Ljósbandi Upptöku- eða útsendingarstjórn Helgi Jóhannesson og Vilhjálmur Siggeirsson fyrir Söngvakeppnina 2017 Leikið sjónvarpsefni Fangar framleitt af Mystery Productions Sjónvarpsefni ársins Fangar Tónlist Pétur Ben fyrir Fanga Hljóð Huldar Freyr Arnarson, Pétur Einarsson og Daði Georgsson fyrir Fanga Kvikmyndataka Árni Filippusson fyrir Fanga Klipping Valdís Óskarsdóttir, Sigurður Eyþórsson og Sverrir Kristjánsson fyrir Fanga Leikmynd Heimir Sverrisson fyrir Fanga Búningar Helga Rós V. Hannam fyrir Fanga Gervi Áslaug Dröfn Sigurðardóttir fyrir Fanga Brellur The Gentlemen Broncos, Alexander Schepelern, Emil Pétursson og Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Undir trénu Heiðursverðlaun Guðný Halldórsdóttir Verðlaun veitt í 27 flokkum Sjónvarpsþáttaröðin Fangar hlaut flestar Eddur þegar verðlaun Íslensku kvikmynda- og sjónvarps- akademíunnar (ÍKSA) voru afhent við hátíðlega athöfn í gærkvöldi. Fangar höfðu verið tilnefndir til 14 verðlauna og hlutu alls tíu, meðal annars fyrir leikið sjónvarpsefni og sjónvarpsefni ársins. Kvikmyndin Undir trénu, sem til- nefnd hafði verið til 12 verðlauna, hlaut samtals sjö, þeirra á meðal sem kvikmynd ársins, fyrir leikstjórn, handrit og bestan leik í þremur flokk- um. Sjónvarpsmaður ársins var valinn Unnsteinn Manuel Stefánsson. Kveikur var valinn frétta- eða viðtals- þáttur ársins. Heiðursverðlaunin komu í hlut Guðnýjar Halldórsdóttur sem við afhendinguna var sögð „frumkvöðull í framvarðarsveit ís- lenskra kvikmyndagerðarkvenna og framlag hennar til fagsins ómet- anlegt“. WIFT – Félag kvenna í kvikmynd- um og sjónvarpi stóð fyrir áhrifarík- um gjörningi í upphafi verðlauna- afhendingarinnar undir slagorðinu #égerhér, en fjöldi kvenna bar rauða nælu með þeim orðum. Slagorðið #égerhér hefur á síðustu mánuðum verið notað meðal kvenna í sviðs- listum til að sýna samstöðu með þeim konum sem hafa deilt reynslu sinni af kynferðislegu ofbeldi, áreitni eða mis- munun í starfi. Orðin má einnig túlka sem háværa rödd kvenna í sjónvarps- og kvikmyndagerð um það að þær séu mikilvægur hluti af bransanum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon WIFT Félag kvenna í kvikmyndum og sjónvarpi stóð fyrir gjörningi í upphafi verðlaunaafhendingarinnar. Fangar og Undir trénu sigursælust á Eddunni  Edda, Steindi, Sigurður og Steinunn bestu leikararnir Kvikmynd ársins Undir trénu hlaut samtals sjö verðlaun. Sjónvarpsefni ársins Þáttaröðin Fangar hlaut flestar Eddur í gær. Bankastræti 12 | sími 551 4007 | skartgripirogur.is Armband 14.900,- Hálsmen 22.500,- Hálsmen 13.900,- Eyrnalokkar 6.900,- Hringur 14.900 ICQC 2018-20 Miðasala og nánari upplýsingar 5% NÝ VIÐMIÐ Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR DOLBY ATMOS LUXURY · LASER Sýnd kl. 7.50, 10.35Sýnd kl. 5.50, 8, 10.15 Sýnd kl. 8 Sýnd kl. 5.30Sýnd kl. 5.30 Eddan 2018

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.