Morgunblaðið - 26.02.2018, Side 32

Morgunblaðið - 26.02.2018, Side 32
MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 57. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Fór að pissa og gleymdi að deyja 2. Alsæl með yngri manni 3. Segir líkamann vera alvöru 4. Rúta með 26 unglingum valt … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tjarnarslamm II verður haldið í Sunnusalnum í Iðnó í kvöld kl. 20. Þar koma saman þrautþjálfaðir reynsluboltar og brakandi ferskir ný- liðar til að keppa um hylli áhorfenda á þessu fyrsta Tjarnarslammi ársins 2018. Í ljóðaslammi er keppt í flutn- ingi frumsaminna ljóðatexta og besti flutningurinn verðlaunaður. Enginn aðgangseyrir er inn á slammið en allir eru hvattir til að koma með einhvers konar lítilræði til að setja í svokallaðan „taparabauk“ en sá sem hlýtur hið ljúfsára annað sæti fær verðlaun úr þeim bauk. Við- burðurinn er studdur af Reykjavík bókmenntaborg UNESCO og Borgar- bókasafni Reykjavíkur. Tjarnarslamm í Iðnó  Þorgrímur Gestsson fjallar um Færeyjar í Borgarbókasafninu Spönginni í dag kl. 17.15. Þorgrímur hefur undanfarin ár ferðast um forn- sagnaslóðir, skoðað staði og stað- hætti sagnanna og tengt við sögu- þráð þeirra. Í erindi sínu mun hann fjalla stuttlega um þetta verkefni og beinir aðallega sjónum að þriðju bókinni sem komin er út í tengslum við það, Færeyjar – út úr þokunni. Þorgrímur segir frá rannsóknum sín- um á tengslum staðhátta á eyjunum átján við Færeyingasögu, um tengsl Færeyja við Norðurlandasöguna, hvernig færeysk nútímamenning spratt upp og varð eins og hún er og loks upp úr hvaða jarðvegi hið fær- eyska ritmál hófst eftir að það hafði legið í láginni í einar fjórar aldir. Að- gangur er ókeyp- is. Þorgrímur Gestsson fjallar um Færeyjar Á þriðjudag Suðaustlæg átt, 8-13 m/s og lítilsháttar væta á vest- anverðu landinu, skýjað með suðurströndinni en annars hægviðri og léttskýjað. Hiti 3 til 8 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Allhvöss eða hvöss suðaustanátt í dag og lít- ilsháttar væta sunnan- og vestanlands en annars þurrt. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast nyrst. VEÐUR Spænski þjálfarinn Pep Guardiola stýrði Manchest- er City til öruggs 3:0-sigurs á Arsenal í úrslitaleik enska deildabikarsins í knatt- spyrnu í gær. Síðasta tíma- bil, hans fyrsta á Englandi, er eina tímabilið á þjálf- araferli Guardiola þar sem honum hefur ekki tek- ist að landa titli, en fyrir sumarfrí gætu þeir hæglega orðið tveir og jafnvel þrír. »2 Fyrsti bikarinn kominn í hús Kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir lék frábært golf og hafnaði í þriðja sæti á Australian Ladies Classic- golfmótinu sem lauk í Bonville í Ástr- alíu í gærmorgun. Hún jafnaði besta árangur íslenskrar konu á mótaröð- inni. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir varð í 14. sæti en í fyrsta sinn voru tvær íslenskar konur á meðal fimmtán efstu á sterkustu mótaröð evr- ópskra kvenna. »1 Valdís lék frábært golf og hafnaði í þriðja sæti Framundan er æsilegur endasprettur í Olísdeild kvenna í handknattleik um heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn. Fram vann Val í gær og tyllti sér þar með í efsta sætið en hvort lið hefur 30 stig. ÍBV vann Fjölni og náði þriðja sæti deildarinnar, er með 28 stig eins og Haukar sem eiga leik til góða á efstu liðin þrjú, Fram, Val og ÍBV. »4 Spennandi endasprett- ur framundan ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við stefnum að því að hefja sölu í mars og erum rosalega spenntar fyrir þessu,“ segja þær Braga Stef- aný Mileris og Hildur Guðrún Bald- ursdóttir, nemar í matvælafræði við Háskóla Íslands. Þær hafa síðustu ár unnið að þróun vörulínu úr loft- poppuðu byggi og hefja sölu á því í Hámu á Háskólatorgi á næstunni. Morgunblaðið fjallaði um fyrstu skref þessa verkefnis árið 2016 en þá tóku þær þátt í alþjóðlegri keppni um nýsköpun í vistvænni matvæla- framleiðslu með þessar vörur sem framleiddar eru undir nafninu Arctic Barley. Fyrst um sinn setja þær stöllur tvær tegundir af byggi á markað. Önnur blandan er hugsuð til að grípa með sér milli mála og er líka með kanil, þurrkuðum eplum, kókos og kasjúhnetum. Hin er múslíblanda sem er mjög góð í jógúrt. Í hana nota þær líka stevia-súkkulaði, döðl- ur og kókos. „Þær eru báðar góðar eintómar og báðar góðar út í jógúrt. Þær eru án viðbætts sykurs og við notum ekki olíu og salt til að poppa. Byggið er ekki mikið hreinsað og er því mjög trefjaríkt og næringarríkt,“ segir Braga. Finna fyrir þörf hjá neytendum Af hverju bygg? „Það er eina kornið sem er fram- leitt í einhverju magni á Íslandi og mest af því hefur fram til þessa farið í dýrafóður. Byggið er mjög gott á bragðið – flestir verða hissa á því þegar þeir smakka. Það er stökkt og bragð- gott. Það er gott ristað hnetubragð af því. Það virðist vera þörf fyrir múslí án viðbætts sykurs hjá neyt- endum.“ Stórar hugmyndir á teikniborðinu Braga og Hildur eru nú á loka- metrunum við undirbúning áður en varan fer í sölu í Hámu. Þær þurfa að fá starfsleyfi, fá birgja og fleira fyrir vöruna, velja umbúðir og fleira slíkt. Í framtíðinni er stefnt að því að byggið verði selt víðar. „Já, við erum með stórar hug- myndir. Við byrjum í Hámu til að sjá hvernig viðtökurnar verða og safna fjármagni. Í framtíðinni myndum við vilja að þetta yrði selt í heilsudeild- um verslana og heilsubúðum. Við er- um líka að skoða samstarf við kaffi- hús og fleira.“ Stúdentar fá loftpoppað bygg  Ný vörulína frá nemum í mat- vælafræði við HÍ Morgunblaðið/Hari Nýsköpun Hildur Guðrún Baldursdóttir og Braga Stefaný Mileris hafa þróað vörulínu úr loftpoppuðu byggi. Sala á vörunum hefst í Hámu á Háskólatorgi í næsta mánuði. Stöllurnar segja markað fyrir múslí án viðbætts sykurs. Þróun á Arctic Barley-vörunum, sem verða brátt til sölu í Hámu á Háskólatorgi, er hluti af meistara- verkefnum þeirra Hildar og Brögu í matvælafræði. Þær hafa unnið að undirbúningi síð- ustu tvö árin. Þær láta vel af þeim stuðningi sem fengist hefur í Há- skóla Íslands. „Við höfum aðgang að mikilli þekkingu og höfum feng- ið rosalega góðan stuðning frá okkar deild. Við höfum fengið að taka áfanga utan matvælafræð- innar, við erum til að mynda núna í áfanga í viðskiptafræðideild til að fá betri þekkingu á frumkvöðla- starfi. Það er verið að reyna að þróa nýjan master í vöruþróun matvæla og við erum eiginlega fyrstu nemendurnir, þannig séð,“ segir Braga. Aðgangur að mikilli þekkingu HAFA FENGIÐ GÓÐAN STUÐNING Í HÁSKÓLA ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.