Morgunblaðið - 26.02.2018, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 26.02.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2018 Síðumúli 11 - 108 Reykjavík | Dalshraun 13 - 220 Hafnarfjörður 560-8888 • www.vfs.is Þegar þig vantar alvöru hörkutól POTTAR & PÖNNUR 20-50% afsláttur Talent Pro 30% Gerið góð kaup! 8304 20cm steikarpanna djúp f. span 8308 24 cm Ferköntuð steikarpanna f. span 50% 50% Lágmúla 8 • sími 530 2800 Minnum á að Samsung-setrið er nú flutt í Lágmúlann og er því með sama opnunartíma, virka daga kl. 10-18 og laugardaga 11-15. Gerið góð kaup! kr. 7.990,- JAMIE OLIVER panna 30 cm - Á TILBOÐI Áður kr. 12.900,- Morgunblaðið og mbl.is eru tilnefnd til Blaðamannaverðlauna fyrir árið 2017 en dómnefnd á vegum Blaða- mannafélags Íslands birti tilnefn- ingar sínar um helgina. Verðlaunin verða afhent í Hörpu nk. laugardag. Sunna Ósk Logadóttir, blaðamað- ur á ritstjórn mbl.is, er tilnefnd í flokknum Umfjöllun ársins fyrir að reifa hvernig raforkuþurrð náinnar framtíðar kallar á ákvarðanir um hvort draga þurfi úr notkun hennar eða virkja meira. Mátturinn eða dýrðin, umfjöllun Sunnu, birtist á mbl.is og í Morgunblaðinu. Júlía Margrét Alexandersdóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, er til- nefnd í flokknum Viðtal ársins fyrir viðtal við Sigurbjörgu Sigur- geirsdóttur þar sem hún lýsir að- komu og eftirköstum þess að eigin- maður hennar, Sigursteinn Gunnarsson, svipti sig lífi árið 1997. Tilnefningar í flokknum Viðtal ársins fengu Jóhann Páll Jóhanns- son, Stundinni, fyrir viðtal við Sig- urlaugu Hreinsdóttur, móður Birnu Brjánsdóttur, þar sem hún segir frá lífshlaupi dóttur sinnar, missinum, sorginni og viðbrögðum samfélags- ins; Júlía Margrét Alexandersdóttir, Morgunblaðinu, fyrir fyrrgreint við- tal við Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur og Viktoría Hermannsdóttir á RÚV fyrir viðtal við Árna Jón Árnason í þættinum Á ég bróður á Íslandi? Er viðtalið sagt falleg innsýn í líf manns þegar hann fregnar að hann eigi hálfbróður og hittir í fyrsta sinn. Í flokkinum Rannsóknarblaða- mennska ársins eru tilnefnd Alma Ómarsdóttir á RÚV fyrir umfjöllun um hverjir hlutu uppreist æru; Hörður Ægisson á Fréttablaðinu fyrir umfjöllun um viðskipti með hlutafé í Arion banka; Ingi Freyr Vilhjálmsson, Jóhann Páll Jóhanns- son og Jóhannes Kr. Kristjánsson, Stundinni, fyrir umfjöllun um við- skipti Bjarna Benediktssonar og fjölskyldu hans og tengsl við Glitni í aðdraganda bankahruns. Í flokknum Umfjöllun ársins fengu tilnefningar Jóhann Bjarni Kolbeinsson, RÚV, fyrir umfjöllun um aðstæður barna á Kópavogshæl- inu; Kjartan Hreinn Njálsson, Stöð 2/365, fyrir nýstárlega umfjöllun um CRISPR/Cas9-erfðatæknina og þróun nýrra lyfja; og Sunna Ósk Logadóttir, mbl.is, fyrir fyrrgreinda umfjöllun um orkumál. Í flokknum Blaðamannaverðlaun eru tilnefnd Magnús Halldórsson, Þórður Snær Júlíusson og Þórunn Elísabet Bogadóttir, Kjarnanum, fyrir umfjöllun um tillögur dóms- málaráðherra til Alþingis um skipan í stöður dómara við Landsrétt; rit- stjórn Stundarinnar fyrir ítarlega umfjöllun um uppreist æru kyn- ferðisbrotamanna og Sigríður Hagalín, RÚV, fyrir frásagnir um konur sem fengu mótmælendur fyr- ir utan heimili sín í kjölfar hrunsins. sbs@mbl.is Morgunblaðið með tvær tilnefningar Orka Greinaflokkur Sunnu Óskar Logadóttur tilnefndur til verðlauna. Viðtal Júlía Margrét ræddi við Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur.  Umfjöllun ársins og Viðtal ársins  Uppreist æru og bankamál áberandi umfjöllunarefni á árinu Sunna Ósk Logadóttir Júlía Margrét Alexandersdóttir „Sá þáttur í Íslandssögunni sem snýr að könnun nýrra landa og hnatta vekur vaxandi áhuga erlend- is. Fyrirspurnum fjölgar og eins ferðamönnum sem hingað koma til að kynnast þessum efnum,“ segir Örlygur Hnefill Örlygs- son, forstöðu- maður Könnun- arsafnsins á Húsavík. Hann er á förum vestur til Flórída í Bandaríkjunum hvar hann mun flytja fyrirlestra um Apollo- verkefnið, það er tunglferðir Banda- ríkjamanna sem stóðu frá 1969-1972. Í aðdraganda þeirra komu vænt- anlegir tunglfarar í æfingaferðir til Íslands og voru þá m.a. við Öskju, enda þóttu aðstæður þar um margt tilsvarandi því er gerðist á tunglinu. Um þetta fjallar Örlygur í fyrir- lestrum sem hann flytur fyrir far- þega í skemmtiferðaskipinu Cele- brity Reflectio. Það ber um 3.000 farþega og er gert út frá Flórída til siglinga í Karíbahafinu. Er þessi fróðleikur frá Íslandi meðal þess sem áhugasömum farþegum stendur til boða sem dægradvöl í tólf daga siglingu. „Við segjum frá könnunarsafninu hér á Húsavík og þeim verkefnum sem við erum að vinna að. Loks flyt- ur Örlygur Hrefill Jónsson faðir minn, sem er með mér í þessu verk- efni, fyrirlestur sem þessu tengist, það er um landnám víkinga, upp- hafsár Íslandsbyggðar og ferðir landkönnuða til Ameríku í kringum árið 1000,“ segir Örlygur. sbs@mbl.is Talar um tungl- ferðir vestanhafs  Íslenskur fróðleikur í Karíbahafinu Ljósm/NASA Tunglfarar Í æfingaferð á Íslandi og hér við Herðubreið árið 1967. Örlygur Hnefill Örlygsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.