Morgunblaðið - 05.03.2018, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MARS 2018
FRAMLAG ORKU- OG VEITU-
FYRIRTÆKJA TIL LOFTSLAGSMÁLA
6. MARS KL. 15-17 Á HILTON REYKJAVÍK NORDICA
ÁVARP Helgi Jóhannesson, formaður stjórnar Samorku
ÁVARP Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar
FRAMLAG ORKU- OG VEITUSTARFSEMI TIL LOFTSLAGSMÁLA Í FORTÍÐ, NÚTÍÐ
OG FRAMTÍÐ
Inga Dóra Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri Veitna og Kristín Vala Matthíasdóttir,
framkvæmdastjóri auðlinda HS Orku
SAMEIGINLEG YFIRLÝSING ORKU- OG VEITUTÆKJA UM KOLEFNISHLUTLEYSI
ÁRIÐ 2040
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, veita yfirlýsingunni viðtöku
STÓRA VERKEFNIÐ
Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs
STATE OF GREEN – NATION BRANDING AND STORYTELLING
Finn Mortensen, framkvæmdastjóri
FUNDARSTJÓRI: Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku
DAGSKRÁ
SKRÁNING Á SAMORKA.IS – ALLIR VELKOMNIR!
Stjórn Auð-
humlu, móður-
félags Mjólkur-
samsölunnar,
hefur ákveðið að
hækka sérstakt
innvigtunargjald
á mjólk sem lögð
er inn í mjólkur-
samlag umfram
kvóta. Gjaldið hækkar úr 40 krón-
um í 52 krónur hinn 1. apríl næst-
komandi.
„Takturinn í mjólkurframleiðsl-
unni er kröftugri en þörf er á. Þetta
er mótvægi við því,“ segir Egill Sig-
urðsson, formaður stjórnar Auð-
humlu. Framleiðslan er nú 4-5%
meiri en nemur sölunni á innan-
landsmarkaði. Innvigtunargjaldið
er ætlað til að standa undir kostn-
aði við útflutning umframmjólkur.
Bændur fá aðeins 35 krónur fyrir
hvern lítra umframmjólkur, þegar
innvigtunargjaldið hefur verið
dregið frá innlegginu. „Ég á frekar
von á að það dragi úr framleiðsl-
unni,“ segir Egill og bætir því við
að óvissa sé framundan vegna tolla-
samninga við Evrópusambandið
sem koma til framkvæmda í maí.
helgi@mbl.is
Reyna að stemma
stigu við aukningu
Stjórn Sjálfstæðisfélags Dalvík-
urbyggðar hefur stillt upp á lista
félagsins og óháðra fyrir sveit-
arstjórnarkosningarnar í vor. Efst-
ur er Gunnþór Eyfjörð Gunnþórs-
son, sveitarstjórnarfulltrúi og
skólastjóri, Þórunn Andrésdóttir
móttökuritari í öðru sæti og Valde-
mar Þór Viðarsson, sveitarstjórn-
arfulltrúi og ökukennari, í þriðja
sæti. Í næstu sætum koma Sigríður
Jódís Gunnarsdóttir, snyrtifræð-
ingur og flugnemi, Haukur Arnar
Gunnarsson viðskiptastjóri. Eva
Björg Guðmundsdóttir hjúkr-
unarfræðingur, Júlíus Magnússon,
sjómaður og matartæknir, Birta
Dís Jónsdóttir, verslunarstarfs-
maður og nemi, og Garðar Már
Garðarsson nemi.
D-lista í Dalvíkur-
byggð stillt upp
Ljósmynd/mats.is
Erlendur ferðamaður á leiðinni á
Keflavíkurflugvöll var stöðvaður af
lögreglu fyrir of hraðan akstur um
helgina. Hann var tekinn á 175 kíló-
metra hraða á klukkustund.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Suðurnesjum var erlendi
ferðamaðurinn á leið í flug. Hann
fékk sekt upp á 140 þúsund krónur
en staðgreiddi og fékk því 20 þús-
und króna afslátt. Ferðamaðurinn
ók BMW-bílaleigubíl.
Á fljúgandi ferð á
leiðinni út á flugvöll
Sunnudagsmessa í Landakotskirkju fór fram í
gær. Herra Davíð Tencer, Reykjavíkurbiskup
kaþólsku kirkjunnar, tók á móti börnum að
lokinni messu og ræddi við þau. Mikil gleði var
meðal barnanna sem fengu að spyrja Davíð
spjörunum úr, en glatt var á hjalla eftir mess-
una í gær.
Davíð hefur verið Reykjavíkurbiskup kaþ-
ólsku kirkjunnar frá árinu 2015, en hann tók
við embættinu af Pétri Bürcher sem sagði af
sér af heilsufarsástæðum.
Talsverður fjöldi sótti messu gærdagsins, en
líkt og fyrr segir var áhersla lögð á að börnin
fengju að ræða við Davíð. Fjöldi fólks sækir
messur kirkjunnar hérlendis en ýmist er pré-
dikað á íslensku, ensku eða pólsku, í messum á
vegum kirkjunnar.
Klæðnaðurinn sem Davíð klæðist á mynd-
inni hér til hliðar er í samræmi við reglu heil-
ags Frans frá Assisí. Í reglunni er lögð áhersla
á meinlætalíf og höfnun veraldlegra gæða.
aronthordur@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Spjall Börnin spurðu Davíð biskup spjörunum úr að lokinni messu í Landakotskirkju í gær.
Davíð biskup ræddi við
börnin að lokinni messu
Mikill fjöldi sótti messu í Landakotskirkju