Morgunblaðið - 05.03.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MARS 2018
Nýlöguð
humarsúpa
Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00
Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686
Glæný lúða
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði
fyrir þig til að taka með heim
Ný línuýsa
Klaustur-
bleikja
Víkingaklúbburinn vann öruggan
sigur á Íslandsmóti skákfélaga en
seinni hluta mótsins lauk á laugar-
dag. Skákfélagið Huginn varð í öðru
sæti og Skákdeild Fjölnis í því
þriðja. Skákdeild Breiðabliks og
Bolungarvíkur og b-sveit Akureyr-
inga féllu niður í aðra deild.
Í annarri deild varð Skákfélag
Reykjanesbæjar hlutskarpast og fer
upp um deild ásamt b-sveit Tafl-
félags Reykjavíkur sem varð í öðru
sæti. C-sveitir Hugins og Taflfélags
Reykjavíkur féllu niður um deild.
Í þriðju deildinni vann b-sveit
Víkingaklúbbsins öruggan sigur og
fer upp um deild ásamt b-sveit
Fjölnis. D- og e-sveitir Taflfélags
Reykjavíkur féllu niður um deild
ásamt b-sveit Skákfélags Reykja-
nesbæjar.
Taflfélag Akraness vann sigur í
fjórðu deild, c-sveit Víkingaklúbbs-
ins varð í öðru sæti og Taflfélag
Garðabæjar í því þriðja og unnu fé-
lögin sér inn keppnisrétt í þriðju
deild að ári.
GAMMA Reykjavíkurskákmótið
hefst á morgun í Hörpu. Um 240
keppendur eru skráðir til leiks og
eru þar af um 30 stórmeistarar.
Stigahæstur keppenda í ár er Ung-
verjinn Richard Rapport. Mótið er
að þessu sinni einnig minningarmót
um Bobby Ficher sem hefði orðið 75
ára 9. mars næstkomandi. Af því til-
efni verður teflt Fischer-slembi-
skákmót á afmælisdegi Fischers
sem verður jafnframt fyrsta Evr-
ópumótið með slíku fyrirkomulagi. Í
dag kl. 13 mun indverska undra-
barnið Nihal Sarin tefla slembi-
skákarfjöltefli við nokkra valda and-
stæðinga í höfuðstöðvum Gamma í
Garðarstræti 37. ash@mbl.is
Víkingaklúbburinn
Íslandsmeistari
GAMMA Reykja-
víkurskákmótið hefst
í Hörpu á morgun
Morgunblaðið/Ómar
Skák Um 240 keppendur verða með
á Reykjavíkurskákmótinu í ár.
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Starfsmenn Árvakurs fóru sigri
hrósandi frá afhendingu blaða-
manna- og ljósmyndaverðlauna helg-
arinnar. Sunna Ósk Logadóttir,
blaðamaður mbl.is, hlaut blaða-
mannaverðlaun í flokki umfjöllunar
ársins fyrir greinaflokkinn „Mátt-
urinn eða dýrðin“ og Kristinn Magn-
ússon, ljósmyndari Morgunblaðsins,
átti bestu íþróttamynd ársins 2017,
sem var tekin á kvennalandsliðsleik
Íslands og Færeyja í knattspyrnu á
Laugardalsvelli.
Aðrir verðlaunahafar blaða-
mannaverðlaunanna voru Viktoría
Hermannsdóttir á RÚV fyrir viðtal
ársins við Árna Jón Árnason í þætt-
inum Á ég bróður á Íslandi, Alma
Ómarsdóttir á RÚV fyrir rannsókn-
arblaðamennsku ársins í umfjöllun
um uppreist æru og ritstjórn Stund-
arinnar fyrir umfjöllun um uppreist
æru.
Júlía Margrét Alexandersdóttir,
blaðamaður Morgunblaðsins, var til-
nefnd til verðlaunanna fyrir viðtal
við Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur.
Auka þarf orkuframboð eða
draga úr raforkunotkun
Í umsögn dómnefndar um greina-
flokk Sunnu segir að hún hafi varpað
skýru ljósi á stöðu raforkumarkaðar
á Íslandi og dregið fram hvernig sí-
fellt fleiri togast á um náttúru-
auðlindirnar sem séu af skornum
skammti.
Í greinaflokknum benti Sunna á
áhrif breyttra neysluvenja lands-
manna með rafbílavæðingu og að eft-
irspurn fyrirtækja eftir raforku væri
nú meiri en hægt er að afgreiða.
„Um leið og þróun þessarar umræðu
kom vel fram var bent á hvernig nú-
verandi staða kallar á aðgerðir til að
auka orkuframboð eða draga úr
notkuninni. Sunna ræddi við tugi
manna um stöðuna: íbúa, náttúru-
verndarsinna, virkjanaaðila, for-
svarsmenn stofnana og aðra sem
hafa hagsmuni og skoðanir á málinu.
Málefnið er mikilvægt, framsetn-
ingin skýr og greinargóð, byggð á
heimildum sem sóttar voru víða,“
segir í umsögninni.
Í umsögn dómnefndar um íþrótta-
mynd ársins segir að myndin bjóði
upp á nýtt sjónarhorn, íþróttamynd
með pólitíska tilvísun, sem sé tákn-
ræn fyrir ójöfnuð kynjanna íþrótta-
heiminum. „Eitt af öflugustu fót-
boltaliðum heims skorar mark fyrir
tómum áhorfendastúkum. Það hlut-
skipti þekkir kvennalandsliðið í fót-
bolta ofurvel,“ segir í umsögninni.
Veitt voru verðlaun í sjö flokkum
fyrir bestu myndir ársins. Mynd árs-
ins 2017 tók Stefán Karlsson, ljós-
myndari Fréttablaðsins, af Nínu Rún
Bergsdóttur sem situr í stól húðflúr-
ara að flúra á öxl hennar „I am the
storm“ en Nína var ein nokkurra
kvenna sem urðu fyrir kynferðisof-
beldi af hálfu sama manns og fengu
sér eins húðflúr.
Þá var Eyþór Árnason verðlaunað-
ur fyrir bestu myndina í fréttaflokki,
Heiða Helgadóttir fyrir myndröð
ársins og Hörður Sveinsson fyrir
bestu umhverfismynd ársins. Heið-
dís G. Gunnarsdóttir fangaði bestu
mynd í flokki daglegs lífs og Aldís
Pálsdóttir tók tímaritamynd ársins.
Á laugardag var opnuð árleg sýn-
ing íslenskra blaðaljósmyndara í
Esju, austurhluta Hörpu, með bestu
myndum ársins en sjö dómarar völdu
105 myndir á sýninguna í ár úr 732
innsendum myndum íslenskra blaða-
ljósmyndara.
Sunna og Kristinn hlutu verðlaun
Sunna Ósk Logadóttir, blaðamaður mbl.is, hlaut blaðamannaverðlaun í flokki umfjöllunar ársins
fyrir greinaflokkinn „Mátturinn eða dýrðin“ Kristinn Magnússon átti íþróttaljósmynd ársins
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Íþróttamynd ársins Myndin var tekin á kvennalandsliðsleik Íslands og Færeyja í knattspyrnu í Laugardal.
Blaðamaður Sunna Ósk Logadóttir
á mbl.is með verðlaunin sín.
Morgunblaðið/Hanna
Verðlaun Handhafar blaðamannaverðlauna ársins við athöfnina í Hörpu.
Ljósmyndari Kristinn Magnússon
með verðlaunin ásamt dætrum sín-
um, Kolfinnu og Hugrúnu Eddu.