Morgunblaðið - 05.03.2018, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MARS 2018
Fimmtán barna- og unglingabækur,
sem út komu á árinu 2017, eru til-
nefndar til Barnabókaverðlauna
Reykjavíkur 2018 sem afhent verða
í Höfða síðasta vetrardag, þ.e. 18.
apríl. Tilnefnt var í þremur flokk-
um, fimm bækur í hverjum og fór
athöfnin fram í Gerðubergi um
helgina.
Best myndskreytta bókin
Í flokknum besta myndskreytta
barnabókin eru tilnefnd, í stafrófs-
röð bókartitla, Lára Garðarsdóttir
fyrir Fjölskyldan mín sem Salka
gefur út; Rán Flygenring fyrir
Fuglar sem Angústúra gefur út;
Brian Pilkington fyrir Jólakötturinn
tekinn í gegn sem Forlagið gefur
út; Högni Sigurþórsson fyrir Kvæð-
ið um Krummaling sem Dimma gef-
ur út og Halla Sólveig Þorgeirs-
dóttir fyrir Pétur og úlfurinn … en
hvað varð um úlfinn? sem Töfra-
hurð gefur út.
Best þýdda bókin
Í flokknum besta þýðing á barna-
og unglingabók eru tilnefnd, í staf-
rófsröð bókartitla, Íris Baldurs-
dóttir fyrir þýðingu sína á Bakarís-
ráðgátan eftir Martin Widmark sem
Mál og menning gefur út; Guðni
Kolbeinsson fyrir þýðingu sína á
Flóttinn hans afa eftir David Walli-
ams sem Bókafélagið gefur út; Erla
E. Völudóttir fyrir þýðingu sína á
Kepler 62 Fyrsta bók: Kallið eftir
Timo Parvela sem Bókabeitan gefur
út; Magnea J. Matthíasdóttir fyrir
Kvöldsögur fyrir uppreisnargjarnar
stelpur: 100 magnaðar konur eftir
Elenu Favilli og Francescu Cavallo
sem Mál og menning gefur út og
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson fyrir
þýðingu sína á Rummungur ræningi
sem Dimma gefur út.
Besta frumsamda bókin
Í flokknum besta frumsamda
barna- og unglingabókin eru til-
nefndar, í stafrófsröð bókartitla,
Elísa Jóhannsdóttir fyrir Er ekki
allt í lagi með þig? sem Vaka-
Helgafell gefur út; Hjörleifur
Hjartarson fyrir Fuglar sem Ang-
ústúra gefur út; Bergrún Íris Sæv-
arsdóttir fyrir Lang-elstur í bekkn-
um sem Bókabeitan gefur út;
Kristín Helga Gunnarsdóttir fyrir
Vertu ósýnilegur: flóttasaga Ishma-
els sem Mál og menning og Ævar
Þór Benediktsson fyrir Þitt eigið
ævintýri sem Mál og menning gefur
út.
Efla áhuga og bóklestur
Dómnefnd Barnabókaverðlauna
Reykjavíkur fyrir árið 2018 er skip-
uð Brynhildi Björnsdóttur for-
manni, Jónu Björgu Sætran, Gunn-
ari Birni Melsted, Davíð
Stefánssyni, fulltrúa Rithöfunda-
sambands Íslands, og Þórdísi Að-
alsteinsdóttur, fulltrúa frá Sam-
bandi íslenskra myndlistarmanna.
Samkvæmt upplýsingum frá borg-
inni er markmið verðlaunanna að
„vekja athygli á þýðingu góðra bók-
mennta í uppeldisstarfi og því sem
vel er gert á þessum mikilvæga
vettvangi íslenskrar bókaútgáfu,“
eins og segir í tilkynningu. Þar seg-
ir að verðlaunaveitingin og verkefni
henni tengd verða unnin í samvinnu
skóla- og frístundaráðs og menning-
ar- og ferðamálaráðs Reykjavíkur-
borgar í bókmenntaborginni
Reykjavík til að efla enn frekar
áhuga barna á bókum og bóklestri.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hæfileikar Listafólkið sem í ár er tilnefnt til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur sem afhent verða í næsta mánuði.
15 ólíkar bækur í þremur
flokkum tilnefndar
Barnabókaverðlaun Reykjavíkur 2018 veitt 18. apríl
Í dag hefst Únglingurinn í Reykja-
vík, listahátíð fyrir og með ungt fólk
sem er framleidd af Reykjavik
Dance Festival, og stendur hún í 12
daga,. til 17. mars. Hátíðin hefur
verið sköpuð af unglingum og fyrir
unglinga, og „alla þá sem eiga eftir
að vera unglingar og hafa einhvern
tímann verið unglingar,“ eins og
segir á heimasíðu hennar. Dagskrá
hátíðarinnar hefur verið unnin í ná-
inni samvinnu við listrænt ráð-
gjafateymi ungmenna, sem síðasta
árið hefur unnið náið með listrænum
stjórnendum og starfsmönnum
Reykjavik Dance Festival. Í list-
ræna teyminu eru ungmenni á aldr-
inum 16 til 25 ára.
Á Únglingnum í Reykjavík er í
boði fjölbreytt dagskrá, meðal ann-
ars kvölddagskrár gjörninga og
hljómsveita í Vesturbæjarlaug – er
fyrsta kvöldið í kvöld og hefst kl. 20,
og danssýningar með verkum ís-
lenskra danshöfunda. Dagskrána
má sjá á reykjavikdancefestival.com
Ráðgjafar Hópur ungs fólks hefur mótað dagskrá Únglingsins í Reykjavík,
í samvinnu við stjórnendur Reykjavík Dance Festival.
Únglingurinn í
Reykjavík að hefjast
Danslistahátíð fyrir ungt fólk
Ari Ólafsson með lagið „Our
Choice“ sigraði í Söngvakeppni
Sjónvarpsins í fyrrakvöld og verð-
ur fulltrúi Íslands í Eurovision sem
fram fer í Lissabon, höfuðborg
Portúgals, í maí. Þórunn Erna
Clausen samdi lag og texta.
Sex lög voru í úrslitakeppninni
og háðu tvö efstu einvígi um fyrsta
sætið, þar sem Ari hafði betur gegn
Degi Sigurðssyni með lagið „Í
stormi“. Lagið eftir Júlí Heiðar
Halldórsson og texti eftir hann og
Þórunni Ernu Clausen.
Í fyrri hluta keppninnar var kos-
ið á milli allra sex laganna, þar sem
atkvæði alþjóðlegrar dómnefndar
og símaatkvæði giltu jafnt. Í seinni
hlutanum voru lögin tvo sem flest
atkvæði fengu flutt aftur og þá réð
símakosning úrslitum.
Önnur lög í úrslitakeppninni
voru:
„Battleline“. Flytjandi: Fókus
hópurinn.
„Here for you“. Flytjandi: Áttan
– Sonja Valdin og Egill Ploder.
„Kúst og fæjó“. Flytjandi:
Heimilistónar.
„Gold Digger“. Flytjandi:
Aron Hannes.
Ari fulltrúi í Portúgal
Morgunblaðið/Eggert
Sigurvegari Ari Ólafsson
1.259.000
Austur vegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
S ími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Verð frá
m. vsk
ICQC 2018-20