Morgunblaðið - 05.03.2018, Page 14

Morgunblaðið - 05.03.2018, Page 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MARS 2018 Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is höfðu aðallega látið námsvalið ráðast af forvitni og vildu komast að meiru um forritun. Það var t.d. þannig með mig að áhuginn kviknaði í gegnum stærðfræðikennara sem benti mér á að þar sem ég hefði gaman af stærð- fræði ætti ég ef til vill að gefa tölv- unarfræði gaum.“ Forskotið þýddi að til að byrja með þurftu Baddý og kynsystur hennar að hafa þeim mun meira fyrir nám- inu. „Ég held að fyrstu sex mánuðirn- ir í HR hafi verið mest krefjandi tímabilið á öllum mínum námsferli, en eftir það voru allir orðnir nánast jafnfætis í náminu,“ segir hún og tek- ur fram að þó svo að einhverjir hafi helst úr lestinni á fyrstu metrunum þá hafi það ekki verið stúlkurnar: „Það var frekar að sumir strákarnir treystu sér ekki í námið, og margar stúlkurnar sköruðu fljótlega fram úr og komust t.d. á forsetalistann.“ Baddý útskrifaðist frá HR 2003 og hélt til Austurríkis 2007 í meistara- nám við Tækniháskólann í Vínar- borg. Þar gekk hún til liðs við róbóta- lið skólans og keppti á Evrópumeistaramóti í róbótaknatt- spyrnu þar sem hún var eini kven- maðurinn í hópi um það bil 200 kepp- enda. Lét hún það samt aldrei á sig fá að vera í minnihluta. „Það var erfitt að vera ekki með neinar fyrirmyndir, en að sama skapi gefandi að fá tæki- færi til að vera mögulega fyrirmynd fyrir aðrar stúlkur sem myndu koma í kjölfarið.“ Segir Baddý það einmitt tilgang- inn með vibðurðum eins og málstof- unni í dag: að auka sýnileika kvenna í tæknigeiranum: „Við konurnar sem störfum í þessum geira þurfum að vera fyrirmyndir, því það er þannig sem við fáum enn fleiri konur inn á þetta svið.“ Konur séu fyrirmyndir AFP Markmið Baddý segir sýnileikann getað laðað fleiri konur að tæknigeir- anum. Maður virðir fyrir sér tölvustæður á þessari mynd úr safni.  Þegar Baddý Sonja Breidert byrjaði nám í tölvunarfræði hjá HR um aldamótin voru karlar í miklum meirihluta í deildinni og tölvufiktið veitti þeim forskot VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Í dag efnir Háskólinn í Reykjavík til málþings um konur í upplýsinga- tæknigeiranum. Málþingið er hluti af alþjóðlegri dagskrá sem Stanford- háskóli efnir til ár hvert undir merkjum WiDS (Women in Data Science) og eru sams konar mál- stofur haldnar á yfir 50 stöðum um allan heim. Meðal frum- mælenda á mál- stofu HR verður Bjarney „Baddý“ Sonja Breidert en hún er eigandi, annar stofnenda og framkvæmda- stjóri þýska upplýsingatæknifyrir- tækisins 1xINTERNET. Baddý er einnig í stjórn Drupal en þar situr margt fremsta hæfileikafólk hugbún- aðarheimsins og heldur utan um þró- un opins vefkerfishugbúnaðar með sama nafni. Strákarnir höfðu reynslu Baddý hóf nám við Háskólann í Reykjavík skömmu fyrir aldamótin og minnist þess að þá hafi konur sennilega ekki myndað nema um 20% af nemendahópnum við tölvunar- fræðideild. „Ég fann líka mjög glögg- lega þann mun á kynjunum að strák- arnir höfðu flestir reynslu og höfðu verið að fikta við tölvur og forritun frá unga aldri, á meðan stelpurnar Baddý Sonja Breidert Hlutabréf banda- ríska skyndibita- risans McDonalds lækkuðu um 4,77% á föstudag og um 9,2% yfir vikuna. Mælt í dollurum hefur hlutabréfaverð McDonalds aldrei lækkað jafn mikið á einni viku. Að sögn CNBC stafar lækkunin að- allega af því að fjárfestingarbankinn RBC Capital Market lækkaði sölu- og hagnaðarspár McDonalds vegna þess að afsláttarmatseðill keðjunnar fékk dræmari móttökur hjá neytendum en búist hafði verið við. ai@mbl.is Mesta doll- aralækkun McDonalds Á aðalfundi Origo sem haldinn var á föstudag var ákveðið að ekki verði greiddur út arður til hluthafa á þessu ári. Hins vegar samþykkti fund- urinn að heimila stjórn félagsins að kaupa í eitt skipti eða oftar á næstu 18 mánuðum hlutabréf í félag- inu þannig að það eigi, ásamt dótt- urfélögum, allt að 10% af hlutafé þess. Er þetta leyfi veitt með fyr- irvara um að lagaskilyrði séu uppfyllt og að endurgjald fyrir keypta hluti verði ekki hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi kauptilboði í við- skiptakerfum þar sem viðskipti með bréfin fara fram, að því er segir í til- kynningu frá Origo. Aðalfundur samþykkti jafnframt að mánaðarleg stjórnarlaun verði 575.000 kr. fyrir formann og 260.000 kr. fyrir meðstjórnendur og vara- mann. Aðalstjórn Origo var sjálfkjörin en í henni sitja Finnur Oddsson, for- stjóri Origo, Loftur Bjarni Gíslason, Hildur Dungal, Ívar Kristjánsson, Emilía Þórðardóttir, Guðmundur Jó- hann Jónsson og Hjalti Þórarinsson. ai@mbl.is Origo greið- ir ekki arð Finnur Oddsson  Heimila að félagið kaupi eigin bréf ● Icelandair Group hefur sent frá sér tilkynningu um hverjir gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins. Stjórnarkjör fer fram á aðalfundi sem haldinn verður næstkomandi fimmtu- dag. Bjóða sjö sig fram en fimm sæti eru í stjórninni. Úlfar Steindórsson, formaður stjórn- ar, og Ómar Benediktsson varafor- maður sækjast eftir áframhaldandi setu, sem og Ásthildur Margrét Othars- dóttir og Katrín Olga Jóhannesdóttir sem hafa verið stjórnarmeðlimir. Einnig bjóða sig fram Guðmundur Hafsteinsson, Heiðrún Jónsdóttir og Helga Viðarsdóttir. Georg Lúðvíksson, forstjóri Meniga, býður sig ekki fram en hann var kjörinn í stjórn félagsins fyrir ári. ai@mbl.is Sjö vilja í stjórn Icelandair Group STUTT Fyrirtæki Baddýjar, 1xINTER- NET, sérhæfir sig í þjónustu við notendur opins hugbúnaðar frá Drupal. Vefkerfi Drupal er í notkun víða um heim, var meðal annars notað af skipuleggjum Ólympíuleikanna í Ríó de Ja- neiro og borgaryfirvöldum bæði í London og Boston. Nefnir Baddý að á Íslandi sé Drupal m.a. notað af Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og fjölda fyr- irtækja og stofnana. Opinn hugbúnaður hefur þann kost að ekki þarf að borga leyfisgjöld fyrir notkunina og segir Baddý að fyrir aðeins nokkrum vikum hafi Barcelona- borg ákveðið að nota eftirleiðis aðeins opinn hugbúnað til að spara peninga skattborgara. „Þar með er ekki sagt að það að nota opinn hugbúnað sé ókeypis, því þó ekki þurfi að greiða leyfisgjöld þarf áfram að kaupa þjónustu. Viðskiptavin- urinn hefur hins vegar meira svigrúm og lokast ekki inni hjá tilteknum seljanda ef honum líkar ekki lengur þjónustan eða verðið.“ Í landvinning- um með opinn hugbúnað FRELSI FYRIR KAUPANDANN Viðræður eru langt á veg komnar um að Axa, stærsta tryggingafélag Frakklands, kaupi fasteigna- og slysatryggingafélagið XL Group, að því er FT greinir frá. XL Group er með höfuðstöðvar sínar í borginni Hamilton á Ber- múda en starfrækir meira en 100 útibú um allan heim. Að sögn Bloomberg er rekstur XL Group metinn á 11 milljarða dala en í síð- asta mánuði var upplýst að þýski tryggingarisinn Allianz hefði líka áhuga á kaupunum. Gangi kaupin eftir munu þau styrkja mjög stöðu Axa á Bandaríkjamarkaði. Samruninn yrði sá stærsti í trygg- ingageiranum síðan 2015 þegar sam- ið var um kaup Anthem á Cigna fyr- ir 54 milljarða dala. Sá samruni rann þó út í sandinn árið 2017 þegar bandarískur dómstóll úrskurðaði að kaupin brytu í bága við lög um hringamyndun. Síðasta ár reyndist mörgum bandarískum tryggingafélögum kostnaðarsamt vegna mikilla skemmda af völdum náttúruham- fara. Hefur hlutabréfaverð þeirra lækkað fyrir vikið og mörg gætu þurft að sameinast til að renna sterkari stoðum undir rekstur sinn. XL hefur þó gengið ágætlega og hækkað um 23% frá áramótum. Hef- ur verið mikið um yfirtökur trygg- ingafélaga á árinu og keypti þannig AIG endurtryggingafélagið Validus fyrir 5,6 milljarða dala, og Phoenix Holdings samdi um kaup á trygg- ingarekstri Standard Life Aberdeen. Þá á japanska samsteypan SoftBank í viðræðum um kaup á allt að 30% hlut í SwissRe. ai@mbl.is AXA skoðar kaup á XL Group

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.