Morgunblaðið - 05.03.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.03.2018, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MARS 2018 ✝ Ólöf Pálsdóttirmyndhöggvari fæddist í Reykjavík 14. apríl árið 1920. Hún lést í Reykjavík 21. febrúar 2018. Ólöf var síðust eftirlifandi fimm barna Hildar Stef- ánsdóttur frá Auð- kúlu í Austur- Húnavatnssýslu og Páls Ólafs Ólafs- sonar frá Hjarðarholti í Dölum (f. á Lundi í Lundarreykjadal), fram- kvæmdastjóra og ræðismanns Ís- lands í Færeyjum. Systkini Ólafar voru: Stefán, tannlæknir, Ingi- björg, listmálari, Þorbjörg, mynd- höggvari, og Jens Ólafur Páll, prófessor í mannfræði. Ólöf giftist árið 1956 Sigurði Bjarnasyni frá Vigur, f. 1915, d. 2012, fyrrverandi þingmanni, rit- stjóra Morgunblaðsins og síðar sendiherra Íslands í Kaupmanna- höfn og London. Börn Ólafar og Sigurðar eru Hildur Helga, f. lengi við Háskólabíó en er nú við Hörpu. Ólöf var einn af stofn- endum listamannasamtakanna Den Nordiske og hélt sýningar í Kettle’s Yard Museum við Cam- bridge-háskóla og víðar í Bret- landi, svo og í Danmörku, Fær- eyjum, Frakklandi og Þýskalandi. Ólöf var sæmd íslensku fálkaorð- unni árið 1970 og var kjörin heið- ursfélagi í Konunglega breska myndhöggvarafélaginu árið 1986. Verk eftir Ólöfu er víða að finna og eru þau meðal annars í eigu Seðlabanka Íslands, Arion banka, Norræna hússins, Reykjavíkurborgar, Þjóðleikhúss- ins, Verslunarskóla Íslands, Kvennaskólans í Reykjavík, Skógaskóla undir Eyjafjöllum og Listasafns Íslands. Einnig er fjöldi verka í eigu einstaklinga hér- lendis og verk Ólafar, jafnt í op- inberri eigu og einkaeign, má finna í Kanada, Bretlandi, Ítalíu, Danmörku og Svíþjóð. Vefsíðan olofpalsdottir.com er í vinnslu. Þar verður haldið til haga efni um feril hennar. Útför Ólafar fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag, 5. mars 2018, og hefst athöfnin kl. 15. 1956, sagnfræðingur og blaðamaður, og Ólafur Páll, f. 1960, bókmenntafræð- ingur, kvikmynda- gerðarmaður og aktívisti. Sonur Hild- ar Helgu er Óðinn Páll Ríkarðsson, f. 1994, myndlist- arnemi. Ólöf nam við Kon- unglega listaháskól- ann í Kaupmannahöfn árin 1949- 1955 hjá prófessorunum Aksel Jörgensen og Utzon Frank. Hún útskrifaðist þaðan með gull- verðlaun fyrir verk sitt Sonur sem stendur nú í Hljómskálagarðinum. Frekara nám stundaði hún í Kaíró í Egyptalandi árið 1954 hjá pró- fessor Ramses Wissa Wassef og 1957 í Róm hjá prófessor Fazzini. Ólöf sýndi og seldi verk víða um heim, þar á meðal opinberum að- ilum. Höggmynd hennar Tónlist- armaðurinn, af sellóleikaranum Erling Blöndal Bengtsson, stóð Ólöf Pálsdóttir, amma mín og helsta fyrirmynd í lífinu, er látin. Að hafa átt svo sterka og sjálf- stæða konu sem fyrirmynd er heiður, en með okkur myndaðist einstök vinátta sem blómstraði með árunum. Hún kenndi mér margt en síð- ustu ár hef ég verið duglegur að spyrja hana út í viðburðaríkt líf hennar, stríðsárin í Færeyjum, feril hennar sem listamanns og tekið viðtöl við hana fyrir skóla- blöð. Það er svo sannarlega hægt að kalla það gæfu að hafa kynnst Ólöfu og ég veit að hún snerti líf margra með sínum magnaða per- sónuleika. Allt sem hún gerði, gerði hún með stíl. Ég dvaldi löngum stundum að Útsölum, húsi afa míns og ömmu, sem var ævintýri líkast. Ég man hversu heillaður ég var af öllu sem var þar inni, sérstaklega smáhlutunum, en amma mín hafði einstakt auga fyr- ir smáatriðum, enda sannur lista- maður. Ótal minningar blossa upp þeg- ar ég sest niður að skrifa þessi orð, Heitar lummur í eldhúsinu á Útsölum, sögurnar sem hún sagði mér á kvöldin sem skáldaðar voru á staðnum og þegar hún setti mig fyrir framan spegil, 6 ára og í frekjukasti. það kom í ljós að það er frekar erfitt að grenja þegar maður star- ir á sína eigin spegilmynd. Hún var besta amma sem gæti hugsast, hún var til staðar fyrir mig og var sannur vinur, hlustaði á mig og grínaðist með mér. En þessi skrítni skemmtilegi húmor hennar var yndislegur. Alveg undir það síðasta, degin- um áður en hún dó, gerði hún stól- pagrín að yfirvaraskeggi barna- barnsins og við hlógum og hlógum. Hún kenndi mér að það ætti aldrei að hætta að leika sér. Hvíldu í friði, elsku amma. Óðinn Páll Ríkharðsson Ólöf Pálsdóttir, föðursystir okk- ar, er látin. Elsku Lóla, þá er komið að kveðjustund og minningarnar streyma. Fyrsta minningin okkar um Lólu er frá aðfangadegi jóla þegar barið var að dyrum heima hjá okkur. Kátur jólasveinn í full- um skrúða stóð fyrir utan með bjöllu í rassinum sem klingdi þeg- ar hann hoppaði og dansaði. Jóla- sveinninn var Lóla. Já, hún var frumleg, uppátækjasöm, alltaf til í að gera eitthvað skondið og skemmtilegt. Enda valdi hún sér óvenjulegt starf fyrir konu á þessum tíma þegar hún lagði stund á nám í höggmyndalist. Lóla fæddist og ólst upp í Reykjavík. Hún minntist oft skemmtilegra uppvaxtarára sinna á Sólvallagötu 4, en það hús byggðu foreldrar hennar. Systkin- in voru fimm, leikfélagarnir marg- ir og heimilið gestkvæmt. Lóla flutti með foreldrum sín- um til Færeyja og bjuggu þau þar um margra ára skeið og þaðan fluttu þau til Kaupmannahafnar. Við systkinin heimsóttum þau og dvöldum hjá þeim um lengri eða skemmri tíma. Palli sigldi með Drottningunni til Færeyja 1948 og átti yndislegt sumar með afa, ömmu og Lólu. Palli minnist þess þegar hann var á ferð í Færeyjum áratugum seinna og hitti mann sem mundi vel eftir Lólu í Fær- eyjum og sagði að hún hefði verið einhver fallegasta kona sem hann hefði augum litið. Þá þegar var Lóla farin að stunda list sína og Palli sat fyrir og hún gerði af hon- um höfuðmynd. Tveimur árum seinna fór Hildur með pabba og mömmu til Kaupmannahafnar, þá þriggja ára, að heimsækja afa og ömmu. Hildur sat ekki fyrir hjá Lólu en afrekaði að steinka heim- ilishundinn með uppáhaldsilm- vatni hennar, Worth í fallegu bláu glasi. Soffía fór 1951 til sumardval- ar hjá afa og ömmu, þá 6 ára, og sat fyrir hjá Lólu, sem stundaði nám við Konunglega Listaháskól- ann í Kaupmannahöfn. Úr varð stytta sem í dag stendur í Hall- argarðinum fyrir framan Kvenna- skólann í Reykjavík og einnig er hún í Árósum í Danmörku. Þessi tími okkar systkina hjá afa og ömmu með Lólu var afar ánægju- legur og samskipti okkar við elskulega föðursystur voru náin æ síðan. Við minnumst fjölmargra samverustunda með Lólu, Sigurði og börnum þeirra, Hildi Helgu og Ólafi Páli. Það var alltaf jafn ánægjulegt að koma á heimili þeirra hvort sem það var á Íslandi, Kaupmannahöfn eða London þeg- ar Sigurður gegndi embætti sendi- herra. Þeim tókst alltaf að gera heimilið glæsilegt og smekklegt. Fatastíll Lólu var flottur, skemmtilegur, eftirtektarverður, stundum ævintýralegur, einstakur og alltaf smekklegur. Hún þurfti líka að eiga góðan klæðaskáp, því tilefnin voru mörg og margvísleg, hjá sendiherranum og listakon- unni. Lóla var bæði falleg og glæsi- leg, með gott skopskyn en gat komið með nokkuð hvassar at- hugasemdir ef því var að skipta. Ákveðnar skoðanir. Minnisstæður er sólbjartur sumardagur fyrir nokkrum árum þegar við ásamt Lólu og Hildi Helgu ókum að Lundi í Lundar- reykjadal, fæðingarstað afa Páls og síðan áfram að Hjarðarholti í Dölum. Lóla hafði frá mörgu að segja sem gaman var að fræðast um. Síðasta ár var föðursystur okk- ar erfitt því hún gat illa sætt sig við að vera ekki á sínu eigin heim- ili. Hún hélt andlegri heilsu til hinstu stundar. Að henni er sjón- arsviptir. Elsku Hildur Helga, Óðinn Páll og Ólafur Páll, innilegustu samúð- arkveðjur. Páll, Soffía og Hildur Hún Lóla var engin venjuleg frænka. Mikilhæf listakona, vel lesin og skemmtileg. Þegar ég var ungur að alast upp í Brautarholti kom Lóla stundum í heimsókn til fjölskyldunnar enda tenging henn- ar við þessa kirkjujörð mikil. Árið 1923 höfðu staðið saman að kaup- um á Brautarholti annars vegar föðurafi minn Ólafur Bjarnason og amma mín Ásta Ólafsdóttir og hins vegar bróðir hennar og faðir, Ólafur Ólafsson prófastur í Hjarð- arholti í Dölum, og Páll, faðir Lólu. Lóla hafði alltaf sterkar taugar til Brautarholts og kom þangað þegar hún gat en á þeim árum sem ég var að alast upp var hún lengst af sendiherrafrú. Eiginmaður hennar, Sigurður Bjarnason frá Vigur, sat á þingi í um 30 ár en var á þessum árum sendiherra í Kaup- mannahöfn og London. Lóla hafði yndi af því að vinna að hagsmunum Íslands og Íslend- inga erlendis og oft finnst manni sem ekki sé nægur gaumur gefinn að starfi sendifulltrúa okkar er- lendis, ekki síst maka þeirra. Lólu tókst einnig að sinna listsköpun jafnhliða starfi sínu í sendiráðinu og naut mikillar virðingar í sinni stétt og var margverðlaunuð fyrir list sína. Sem myndhöggvari var hún brautryðjandi á sínu sviði hér heima og var sæmd fálkaorðunni árið 1970. Ólöf var litríkur persónuleiki en alltaf háttvís og tignarleg og líktist um margt Páli föður sínum. Ég man sérstaklega eftir einu skipti þegar hún hafði boðað komu sína í Brautarholt í síðdegiskaffi. Tím- inn var stundum afstæður í henn- ar huga og það var ekki fyrr en rétt undir kvöldmat sem svartur BMW af stærstu gerð skreið í hlaðið. Út steig Lóla í þröngum leggings með tígrismynstri og uppsett hárið, alveg eins og 29 ára skvísa. Algjörlega grunlaus um að kaffihlaðborðið hefði staðið óhreyft á borðum í marga klukku- tíma. Henni var strax fyrirgefin óstundvísin og kaffið breyttist í kvöldverð á meðan við hlustuðum á hana segja skrautlegar og skemmtilegar sögur, bæði gamlar og nýjar. Lóla hélt reisn til síðustu stund- ar og hélt á sínum tíma vel upp á 90 ára afmæli sitt. Ég minnist frænku minnar af hlýhug; ógleym- anlegrar og ákveðinnar konu sem geislaði jafnan af gleði. Ég sendi Hildi Helgu, Óðni Páli og Ólafi Páli innilegar samúðarkveðjur. Kristinn Gylfi Jónsson. Það var 8. janúar 1972 sem ég hitti fyrst heiðurskonuna Ólöfu Pálsdóttur þegar ég kom til starfa á heimili hennar og Sigurðar Bjarnasonar í Kaupmannahöfn. Okkur Ólöfu féll strax vel hvorri við aðra og höfum verið góðar vinkonur alla tíð síðan. Ólöf var mikil listakona og bar heimili hennar þess merki. Ég var þeirrar ánægju aðnjótandi að fylgjast með þegar styttan sem stendur fyrir framan Hörpu var í vinnslu og var það lærdómsríkur tími, Sellótón- leikar í bílskúrnum á Krathusvej 32 voru sérstök upplifun. Lista- verk Ólafar eru víða s.s. í Hljóm- skálagarðinum og við Kvennaskól- ann í Reykjavík og mikið víðar. Þegar ég settist niður til að skrifa nokkur orð um Ólöfu var af svo mörgu að taka, það væri að bera í bakkafullan lækinn að ætla að skrifa það allt. Oft fórum við með ýmsa málshætti en kannski ekki alla rétta en meiningin rétt. Ólöf var mikill húmoristi og hafði gaman af að segja frá ýmsu skemmtilegu sem drifið hafði á hennar daga. Þó skammtíma- minnið væri farið að bila var frá- sagnargáfan alltaf til staðar alveg fram á síðasta dag. Ég vil að lok- um þakka Ólöfu fyrir samfylgdina og trúnað sem hún sýndi mér alla tíð og börnum hennar, Hildi Helgu og Ólafi Páli, og barnabarni, Óðni Páli, votta ég mína dýpstu samúð. Hvíl þú í friði, kæra vinkona og Guð veri með þér. Sólveig Halldórsdóttir Sólveig Halldórsdóttir Mér barst andlátsfregn Ólafar Pálsdóttur til Parísar þar sem ég vinn tímabundið að verkum mín- um í Kjarvalsstofu. Ég hef að undanförnu reikað um listasöfn Parísar og séð verk sem vitna um listir löngu horfinna menningarskeiða. Ég hef virt fyrir mér listaverk genginna lista- manna frá kynslóð til kynslóðar, allt frá örófi alda. Ekki hvað síst þeirra listamanna sem opnuðu áð- ur óþekktar dyr að myndlist okkar tíma. Það er aðeins í listum sem maðurinn varðar veg sinn með svo óbrotgjörnum hætti. Ég er þess fullviss að Ólöf hefur átt sín spor í þessum listasöfnum. Það er mér nærtækt og ljúft að minnast henn- ar. Þótt Ólöf hafi átt sér fyrir- myndir í hópi kvenna, var það ekki sjálfgefið fyrir unga konu við lok síðari heimsstyrjaldar að halda ut- an til náms við Listaakademíuna í Kaupmannahöfn. Til þess þurfti bæði viljastyrk og áræðni. Þar mótaðist hún sem myndhöggvari nestuð af módernískum straumum eftirstríðsáranna. Við heimkomu frá námi varð Ólöf einn af frum- kvöðlum myndlistar á Íslandi. Hún tók jafnframt virkan þátt í samfélagi skúlptúrista og talaði tæpitungulaust fyrir bættum hag og starfsviðurkenningu þeirra. Okkur varð vel til vina. Hún fagnaði heimkomu minni að loknu löngu námi erlendis. Ætli það hafi ekki verið líkt á komið með okkur, en hún hvarf frá hópi listvina í Danmörku, þar sem hún hafði dvalið öll sín þroskaár, til þess að starfa að myndlist sinni hér heima. Sá sem lifir langa ævi spinnur í verkum sínum óslitinn þráð í heildarmynd íslenskrar myndlist- ar, samofinn evrópskri menning- ararfleifð. Vertu sæl Ólöf Pálsdóttir. Helgi Gíslason. Kær vinkona okkar, Ólöf Páls- dóttir, hefur nú kvatt þessa jarð- vist í hárri elli. Við kynntumst henni fyrst sem starfsmenn Sel- tjarnarnesbæjar á unglingsárum okkar fyrir hartnær 30 árum og héldum vinskap alla tíð eftir það. Öll eigum við minningu um að standa á tröppunum fyrir framan volduga útidyrahurðina á Útsölum og vita ekki alveg við hverju mátti búast. Það gustaði af konunni sem tók á móti okkur, hún var bráð- myndarleg með snyrtilega uppsett hár og stolt í fasi. Þessi kona var engum lík og við vorum hálfskelk- uð í fyrstu heimsóknunum. Fljót- lega komumst við þó að því að und- ir ákveðnu yfirborðinu sló hlýtt hjarta og óforbetranlegur húmor. Ólöf var mikill fagurkeri og heimili hennar var algert ævintýri, hlaðið listmunum hvaðanæva úr heiminum. Hún var ákaflega blátt áfram manneskja, sagði það sem hún hugsaði þannig að maður vissi alltaf hvar maður hafði hana. Það hefur verið ómetanlegt fyrir okkur að fá að kynnast konu sem var fædd á fyrrihluta síðustu aldar líkt og formæður okkar en átti þó svo ótrúlega ólíka ævi flestum samtíð- arkonum sínum. Hún var sann- kallaður heimsborgari, lífskúnst- ner og einstakur gestgjafi. Það sem stendur upp úr er hláturinn og allar sögurnar sem hún deildi með okkur um prakkarastrikin sem voru framin í æsku, stríðsárin í Færeyjum, námsárin í Dan- mörku, heimsóknir til kóngafólks og ferðalög til fjarlægra landa. Í gegnum sögurnar skein húmorinn og sýn á það spaugilega í flestum aðstæðum. Við kveðjum með söknuði, þakklát fyrir að getað kallað þessa merkilegu myndlist- arkonu vinkonu okkar. Stundirnar í kringum eldhúsborðið á Útsölum og glettið bros hennar gleymast seint. Við sendum Hildi, Óla Palla og Óðni Páli okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Arna, Bjarni og Óli Þ. Ólöf Pálsdóttir ✝ Ólafur Sig-urgeirsson fæddist 9. janúar 1932 í Reykjavík. Hann lést á Vífils- stöðum 20. febrúar 2018. Foreldrar hans voru Ása María Ólafsdóttir frá Reykjavík og Sig- urgeir Bogason frá Varmadal á Rang- árvöllum. Ása María Ólafsdóttir giftist Gesti Guðmundssyni frá Sól- heimum í Hrunamannahreppi 8. nóvember 1934. Þau voru með bú- skap á Syðra-Seli í Hrunamanna- hreppi. Systkini sammæðra: Guðrún Gestsdóttir, f. 1936, Ásgeir Gests- son, f. 1937, Hjalti Gestsson, f. 1938, d. 1941, Marta Gestsdóttir, 1977, börn þeirra: Nadesha Sóley, f. 2001, Jamayah Ester, f. 2003, Bi- ankah Ísbjörg, f. 2016, Ásdís Alyah, f. 2017, b) Halldór Axel, f. 1983. 3) Kristín Ólafsdóttir, f. 14.7. 1960, maki Snorri Eiríksson, f. 7.11. 1958, börn þeirra: Einar Trausti, f. 1981, Eyþór Smári, f. 1987. Ólafur og María hófu búskap í Reykjavík og bjuggu lengst af á Kleppsvegi 122. Árið 2012 fluttu þau að Ársölum 1 í Kópavogi. Sem ungur maður vann hann á Kefla- víkurflugvelli en um 1960 hóf hann störf hjá Ísól hf. sem sölu- maður og vann þar til starfsloka. Ólafur var virkur félagi í Ferða- félagi Íslands. Sat þar í stjórn og ferðanefnd og var einnig leiðsögu- maður í ýmsum ferðum félagsins. Útför Ólafs fer fram frá Linda- kirkju í dag, 5. mars 2018, og hefst athöfnin kl. 13. f. 1940, Halldór Gestsson, f. 1942 ,d. 2008, Skúli Gests- son, f. 1947. Ólafur kvæntist Maríu Margréti Ein- arsdóttur, f. 19.11. 1934, þann 26.11. 1955. Börn þeirra eru: 1) Ása Ólafs- dóttir, f. 11.3. 1956, maki Lárus Kristinn Viggósson, f. 8.7. 1957, börn þeirra: a) Ólafur, f. 1975, b) Þórhallur Margeir, f. 1977, maki Kolbrún Jenny Ragn- arsdóttir, f. 1978, börn þeirra: Ar- on Máni, f. 1998, Alexander Ísar, f. 2000, c) Lára Kristín, f. 1983, maki Byron Nichelson, f. 1984. 2) Atli Þór Ólafsson, f. 2.6. 1957, maki Ester Halldórsdóttir, f. 23.9. 1960, börn þeirra: a) María Björk, f. 1980, maki Travis Benelli, f. Í dagsins önnum dreymdi mig þinn djúpa frið, og svo varð nótt. Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt, þeim svefni enginn rænir þig. En samt var nafn þitt nálægt mér og nóttin full af söngvaklið svo oft, og þetta auða svið bar ætíð svip af þér. Og þungur gnýr sem hrynji höf mitt hjarta lýstur enn eitt sinn: Mín hljóða sorg og hlátur þinn, sem hlutu sömu gröf. (Steinn Steinarr) Hvíl í friði. Hafðu þökk fyrir allt og allt. María, Ása, Atli og Kristín. Með þessum orðum viljum við undirrituð kveðja vin okkar og fé- laga til áratuga, Ólaf Sigurgeirs- son. Alkunna er að af ýmsum ástæðum geta myndast stórir og litlir hópar fólks sem sameigin- legt áhugamál bindur saman. Í slíkum hóp vorum við undirrituð. Þar var einnig Ólafur sem nú hef- ur kvatt þetta tilverusvið. Leikhúsferðir, setur á kaffi- húsum en fyrst og fremst ferðir og ferðalög voru sú þungamiðja sem frístundagaman okkar sner- ist um. Í áratugi var ferða- mennskan heimavöllur Ólafs. Oft var þá María kona hans með í för. Ólafur var félagi í Ferðafélagi Íslands og sat lengi í stjórn þess, m.a. sem ritari. Margar ferðir fór hann sem fararstjóri fyrir fé- lagið, hvort heldur í dags-, kvöld-, helgar- eða sumarleyfis- ferðum. Góður undirbúningur, vandvirkni og festa voru hans aðal og sem fararstjóri naut hann mikilla vinsælda. Leiðarhnoða hans í fararstjórn var að fyrst og síðast ætti fólk að hafa skemmt- un og gaman af að ferðast, fræðsla væri sjálfsögð, en þar mætti þó stundum gæta hófs. Ólafur var áheyrilegur og létt um mál, hvort sem var í fóninn í rút- unni eða úti á vettvangi. Og aldrei var húmorinn langt undan. Geng- inn er nú góður og gegn maður. Hann mun áfram og lengi lifa í minningu okkar. Til þess munu m.a. sjá allar þær stórskemmti- legu ferðir af öllu tagi sem við fórum með honum. Við vottum Maríu og öðrum aðstandendum Ólafs einlæga hluttekningu. Eiríkur Þormóðsson Ólöf Stefánsdóttir Svanhildur Jónsdóttir. Hjá Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni var um allmörg ár starfandi bókmennta- hópur, ekki ýkja fjölmennur, en samstæður og áhugasamur hóp- ur. Ólafur Sigurgeirsson kom að stjórnun hópsins í nokkur ár og gjörði svo með mikilli prýði, skemmtilegur og einkar fróður á svo mörgum sviðum. Hann var glaðlyndur og hafði gott lag á hópnum, þau hjónin María og hann miklir lestrarhestar og höfðu komið víða við. Fyrir hönd félaganna sem á sinni tíð lutu ljúfri stjórn Ólafs er hans nú minnst með miklu þakk- læti og Maríu hlýjar samúðar- kveðjur sendar. Fyrir hönd félaganna, Helgi Seljan. Ólafur Sigurgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.