Morgunblaðið - 05.03.2018, Side 20

Morgunblaðið - 05.03.2018, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MARS 2018 ✝ GuðmundaAndrésdóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 26. desember 1945. Hún lést í fallegri umönnun á Land- spítalanum við Hringbraut 23. febrúar 2018. Foreldrar henn- ar voru Andrés Guðmundsson sjó- maður og vörubifreiðastjóri og Hjálmrún Guðnadóttir fisk- verkakona og húsmóðir, þau eru bæði látin. Guðmunda átti tvö systkini, þau Magneu Krist- björgu og Guðjón Rúnar, sem í dag kveðja systur sína. Guð- munda giftist Guðmundi Kon- ráðssyni stýrimanni og kompásleiðréttingarmanni, f. 24. ágúst 1944, þann 22. júlí 1967. Guðmundur lést 12. nóv- ember 2015. Þau eignuðust fjög- ur börn: Konráð, f. 1965, Bryn- dísi, f. 1966, Svavar, f. 1968, og Guðlaugu f. 1969. Barnabörnin eru sjö talsins og eitt barna- barnabarn. Guðmunda ólst upp í Vestmannaeyjum til 17 ára ald- urs. Lífsbjörgin var harðsótt á uppvaxtarárunum upp úr stríði. Guð- munda byrjaði um 10 ára aldur að vinna í Hraðfrysti- stöð Vestmanneyja því allir þurftu að leggjast á árarnar á þessum tíma. Um 12 ára var Guð- munda fullfær í flökun og snyrtingu hjá sama fyrirtæki. Hún lauk hefðbundinni skóla- göngu og gagnfræðaprófi í Eyj- um og 17 ára flutti hún til Reykjavíkur.Yfir æsku og ung- lingsárum Guðmundu hvíldi sá skuggi að faðir hennar var berklaveikur í mörg ár, sem mótaði æsku hennar og henni varð það snemma ljóst að allir þurftu að hjálpast að og leggja sitt til heimilisins. Á fullorðins- árum starfaði hún í rúm 30 ár í Ömmubakstri. Henni féll aldrei verk úr hendi og prjónaði hún mörg þúsund lopapeysur sem yljuðu þjóðinni á köldum dög- um. Útför Guðmundu fer fram frá Garðakirkju í dag, 5. mars 2018, klukkan 13. Hendurnar hennar mömmu voru ekki stórar, þær voru fínar og mjúklegar en þær gátu gert allt. Þær gátu hamflett matfugla, gellað, kinnað og flakað fisk milli þess sem nýprjónaðar lopapeys- ur voru teknar úr þvottavélinni og lagðar til þerris á gólfið. Til allra verka var vandað. Mamma vissi að ekkert kæmi af sjálfu sér og axlaði því snemma ábyrgð á eigin velferð. Um tvítugt eign- aðist hún fjögur börn á fjórum árum. Þá var oft lítið sofið. Mörgu þurfti að sinna. Dugnað- ur og ósérhlífni einkenndi hana og þegar dagsverkinu í Ömmu- bakstri lauk var tekið til við prjónaskapinn og oft prjónað fram á nótt ásamt því að sinna öðrum verkum á heimilinu. Guð- mundur var oft að heiman vegna starfa sinna og því kom barna- uppeldið að mestu í hennar hlut. Aðstæður móður minnar voru oft erfiðar með ungan barnahóp á handleggnum ásamt því að vera í tveimur störfum. Þá hnyklaði ég oft plötulopann fyrir hana því tími hennar var takmarkaðri en unglingsins svo hún gæti prjón- að eftirsóttu peysurnar sínar og unglingurinn fengi að borða. Þrátt fyrir allskonar hafrót og brotsjói fór mamma í gegnum alla brimskaflana með velferð barna sinna og eiginmanns að leiðarljósi. Mamma var alþýðleg í hugsun, kankvís og dansaði ekki eftir annarra manna pípum, hún var sjálfstæð sterk kona. Mamma starfaði í 49 ár í Kvenfélaginu Hrönn og var stolt af að tilheyra og starfa innan þess góða félagsskapar. Hafði hún sérstaklega gaman af því að ferðast erlendis með kvenfélags- konum, þar sem hláturinn og gleðin voru í aðalhlutverki. Ein af mörgum örlagadísum sem vörðuðu lífsveg móður minnar greip harkalega inn í líf hennar og föður míns er hann veiktist al- varlega í desember 1987. Móðir mín hafði alist upp við langvar- andi berklaveiki föður síns og vissi að ekki væri hægt að slá líf- inu á frest, þess í stað að rækta og elska það sem raunverulega skipti hana máli, eiginmann sinn. Hún var allt um kring næstu áratugina, stoð hans og styrka hönd. Hún tókst á við ómælda ábyrgð á velferð eiginmanns síns, á milli þeirra var einstök falleg ást. Yfir foreldrum mínum bjó einstakt æðruleysi, sterkur grunnvilji og óbilandi þraut- seigja. Orðið uppgjöf var ekki til í þeirra tungutaki enda einstak- lega samstillt hjón. Þrátt fyrir mikil líkamleg veikindi föður míns þá ferðuðust þau mikið saman erlendis enda bæði fá- dæma dugleg og mamma með doktorsgráðu í hugrekki og út- sjónarsemi. Þau fundu sína sælu- reiti og hamingjustundir, eign- uðust góða vini erlendis sem þau heimsóttu reglulega. Foreldrar mínir ferðuðust í mörg ár til Albir, sem er lítill vinalegur bær í hálftíma fjar- lægð frá Benidorm. Ég heimsótti þau þar haustið 2008 en það var síðasta utanferð föður míns. Það var auðvelt að sjá af hverju þau fóru í frí þangað. Allur bærinn var eins og ein fjölskylda og þau voru hluti af henni, alls staðar góðvild, velvilji og falleg sól. Eft- ir að pabbi hætti að ferðast hvatti hann mömmu til ferðalaga og lagðist sjálfur í hvíldarinn- lögn meðan á ferðalaginu stóð. Mamma ferðaðist því ein eða með öðrum seinni árin, börnum sínum og vinkonum. Mér er minnisstæð ferð sem ég fór með henni til Albir haustið 2011. Við ákváðum að prófa að borða fram- andi kvöldmat í eina viku frá sjö mismunandi þjóðlöndum, mamma var alltaf til í ný æv- intýri. Hún sá fegurð í öllu hand- verki, átti mikið af fallegum hlut- um víða að úr heiminum. Ég er þakklátur fyrir þann tíma sem við áttum í Vík í Mýrdal á síðustu árum, gengum saman í fjörunni, rifjuðum upp góðar minningar, hittum lundann í bjarginu sem alltaf hafði fylgt henni á svo margan hátt í lífinu. Prófastur- inn var henni hugstæður og mik- ill uppáhaldsfugl. Nú heyrum við vængjaþyt vorsins og mamma er á leið til stranda hins eilífa vors. Ég kveð þig kært, elsku mamma. Svavar Guðmundsson. Meira: mbl.is/minningar Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig, og lýstu mér um ævistig. Ég reika oft á rangri leið, sú rétta virðist aldrei greið. Ég geri margt sem miður fer, og man svo sjaldan eftir þér. Sú ein er bæn í brjósti mér, ég betur kunni þjóna þér. Því veit mér feta veginn þinn og verðir þú æ Drottinn minn. (Pétur Þórarinsson) Takk fyrir samfylgdina, mín kæra systir. Magnea Andrésdóttir. Guðmunda Andrésdóttir ✝ Ásthildur Ólafs-dóttir fæddist í Hafnarfirði 3. febr- úar 1933. Hún and- aðist á Sólvangi 11. febrúar 2018. Foreldrar: Ólafur Þ. Kristjánsson skólastjóri (1903- 1981) og Ragnhildur Gísla Gísladóttir (1904-1996). Systk- ini: Kristján Bersi (1938-2013) og Ingileif Steinunn (1939). Maki: Hörður Zóphaníasson skólastjóri (1931-2015). Foreldrar maka: Sigrún J. Trjámannsdóttir (1898-1965) og Zóphanías Bene- diktsson skósmiður (1909-1986). Stjúpfaðir: Tryggvi Stefánsson, skósmiður á Akureyri og síðar bóndi á Þrastarhóli (1893-1983). Börn Harðar og Ásthildar: 1) Ólafur Þ. (1951), maki Hjördís Smith (1953). Börn: Sigrún (1974, móðir Svava Kristbjörg Guð- mundsdóttir); Ásthildur Hanna (1994). 2) Sigrún Ágústa (1952), maki Bjarni Helgason (1954), Börn: Hörður Kristófer Bergsson (1991); Ragnhildur (1999); Ólafur (2002). Ásthildur stundaði nám við Kennaraskóla Íslands en lauk ekki námi vegna barneigna. Hún var lengi heimavinnandi hús- móðir, en skólaritari í Víð- istaðaskóla frá 1970 í áratugi. Ásthildur bjó alla ævi í Hafn- arfirði, nema hvað hún bjó á Þrastarhóli í Hörgárdal 1954-5, á Hjalteyri 1955-8, í Ólafsvík 1958- 60 og í Kaupmannahöfn 1968-9. Í æsku dvaldi hún 11 sumur og einn vetur á Kirkjubóli í Bjarnar- dal í Önundarfirði hjá ömmu sinni, Bessabe Halldórsdóttur og föðursystkinum, Guðmundi Inga, skáldi, Jóhönnu og Halldóri. Ásthildur sinnti margvíslegum félagsstörfum, einkum eftir að börnin komust á legg. Hún starf- aði í Alþýðuflokki og Samfylk- ingu, skátahreyfingunni, vann að skógrækt og var mikil kvenrétt- indakona. M.a. flutti hún ræðu á Lækjartorgi á Kvennafrídaginn 1975. Áratugum saman komu hjónin Ásthildur og Hörður fram á samkomum fjölmargra félaga – dagskráin var oft blanda af texta og ljóðum góðskálda, stundum gamanefni. Ásthildur verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í dag, 5. mars 2018, klukkan 13. skildu. Börn: Hug- rún Ósk (1976), á einn son; Kjartan Bragi (1979), á tvo syni. 3) Tryggvi (1954), maki Edda Skagfjörð Árnadótt- ir. Börn Tryggva og Ástu Kristjáns- dóttur: Hörður Helgi (1980); Krist- ján (1986); Ásthildur Kristín (1989). 4) Ragnhildur Gísla (1955), maki Sigurður Þorláksson (1951). Börn: Hörður Þráinsson (1974); Aldís (1977), á þrjú börn; Ólöf (1991-91). 5) Elín Soffía (1958), maki Sigurjón Gunnarsson (1959). Börn: Tryggvi Freyr El- ínarson (1976), á tvö börn; Gunn- ar Þór (1994), á tvo syni. 6) Krist- ín Bessa (1963), maki Bjarni Sigurðsson (1961). Börn: Hildur Gígja Jóhannsdóttir (1980), á fjögur börn; Sigurður Halldór (1988), á einn son; Bjarki Freyr (1991); Fjóla Valdís (1994); Ólöf Birna (1994). 7) Guðrún (1966), maki Tryggvi Jóhannsson (1969). Fátt er börnum hollara en að eiga góða móður – nema kannski að eiga tvo ástríka og samhenta foreldra. Því láni áttum við systk- inin sjö að fagna. Móðir okkar var borinn og barn- fæddur Hafnfirðingur. Hún bjó þar í 78 af 85 æviárum, lengst af við Tjarnarbraut. Hún hafði útsýni yf- ir Hamarskotslæk í 70 ár – og vildi ekki annað. Einu sinni stóð til að breikka Lækjargötu og mjókka Lækinn. Þá sagði hún hvefsin: „Ég vil ekki að Lækurinn sé settur í stokk!“ og safnaði undirskriftum til að mótmæla, hvorki í fyrsta né síðasta sinn. Setningin var raunar dálitlar ýkjur, en meiru skipti að hún hljómaði vel – og málstaðurinn góður. Dæmigerð Ásthildur. Í æsku dvaldi hún löngum hjá föðurfólki sínu á Kirkjubóli í Bjarnardal í Önundarfirði. Þar voru bækur og bókmenntir í há- vegum – flestir voru annaðhvort skáld eða hagyrðingar. Búskapar- hættir voru fornir og búið í torfbæ. Á Kirkjubóli var síðast fært frá á Íslandi – og hún hafði gaman af að rifja upp þegar hún sat yfir ánum frammi á dal. Heiðarleiki, réttsýni og jafnrétti voru gildi sem henni voru innrætt bæði á Kirkjubóli og í foreldrahúsum. Samband foreldra okkar var einkar náið og fallegt. Þau gerðu flest saman, einkum á síðari hluta ævinnar. Brúðkaupsdagur þeirra var á annan í jólum. Mörg ótelj- andi ástarkvæða til hennar orti HZ af því tilefni. Þau kynntust ung í Kennara- skólanum, hann kláraði en hún hætti þegar annað barnið kom. Þegar hún var 25 ára hafði hún fimm börn í pilsfaldinum – frum- burðurinn var þá á sjöunda ári. Síðar bættust tvö við. Ekki furða að hún var heimavinnandi hús- móðir fram undir fertugt. Veturinn 1968-9 dvöldu foreldr- ar okkar í Kaupmannahöfn með fjögur barna sinna. Öll voru hjá þeim sumarið 1969 og þá var ferðast um Danmörku alla, m.a. siglt á Himmelbjerget! Þessi dvöl hafði mikil áhrif á hana. Hún kynntist breyttum hugmyndum um mat, heimilishald og samfélag – en ekki síst um jafnrétti kynjanna. Þegar heim kom hellti hún sér út í pólitík og jafnréttis- baráttu. Samtök Alþýðuflokks- kvenna lærðu margt af systur- flokkum á Norðurlöndum – og boðuðu jafnrétti af krafti. Við eldri systkinin – sem höfðum alltaf haft mömmu heima í uppvextinum – sáum hana allt í einu halda ræðu á Kvennafrídaginn á Lækjartorgi og mæla fyrir rétti kvenna til fóst- ureyðinga í umræðuþætti í Sjón- varpinu – sem allir horfðu á í þá tíð. Yngstu systurnar tvær segja að hún hafi aldrei verið heima – alltaf á einhverjum fundum! Faðir okkar lést 2015. Eftir það var hún dálítið vængbrotin – en þó hress og oftast sjálfri sér lík. Bæði dvöldu síðustu árin og önduðust sátt við lífdaga á Sólvangi – með útsýni yfir Lækinn. Starfsfólkið sinnti þeim með mikilli prýði. Fyr- ir það skal þakkað. Samband móður okkar við for- eldra, systkini og Kirkjubólsfólkið var henni mikilvægt, rétt eins og sambandið við áa sína alla. Þær systur, hún og Ingileif, voru mjög nánar. Eftir að hún fór á Sólvang og Inga flutti aftur í Hafnarfjörð hittust þær flesta daga. Fyrir þá umhyggju skal móðursystur okk- ar þakkað. En mestar eru þakkir okkar systkina til mömmu. Ólafur Þ., Sigrún, Tryggvi, Ragnhildur, Elín Soffía, Kristín Bessa og Guðrún. Árið er 1988, við Ólafur á öðr- um eða þriðja degi í okkar sam- bandi. Staðurinn er Hafnarborg, myndlistarsýning. Inn ganga nokkrar konur. Ólafur segir: „Þarna er móðir mín.“ Og ég spyr: „Hver þeirra er hún?“ „Hún er sú sem talar hæst!“ Vissulega lá henni hátt rómur, tengdamóður minni, en hún hafði alltaf eitthvað það til málanna að leggja sem maður tók mark á. Ég var kynnt fyrir Ásthildi þarna í Hafnarborg, hún tók mér vel, eins og reyndar öll tengda- fjölskyldan mín. Ég hefi sjaldan kynnst fólki sem var jafn for- dómalaust og Ásthildur og Hörð- ur. Maður skynjaði svo vel vænt- umþykju og hlýju, án þess að þau væru nokkurn tíma hnýsin, með dóma eða gagnrýni. Þessa nutu barnabörnin ríkulega. Ég nefni Hörð auðvitað í sömu andrá og Ásthildi, svo samrýnd voru þau. Kynntust sem unglingar, 17 og 19 ára að ég held. Eftir það gerðu þau flest saman. Ásthildur kynntist Herði þegar þau voru við nám í Kennaraskól- anum. Þegar ástin greip í taum- ana fóru að fæðast börn, fyrst Ólafur fæddur 1951 og svo Sigrún ári síðar. Þá hætti Ásthildur námi og varð „heimavinnandi“, því miður. Þessi skarpgreinda kona átti svo sannarlega erindi í langskólanám. Þeirri spurningu verður aldrei svarað hvernig lífshlaupið hefði orðið ef hún hefði haldið áfram námi. Hún tók á sig þær skyldur að ala upp börnin og hugsa um heimilið og aldrei heyrði ég hana harma það, börnin urðu sjö og þau ólust upp við fádæma ástríki. En börnin uxu úr grasi og þá fór Ásthildur að taka meiri þátt í félagslífi hvers konar: skátar, Al- þýðuflokkurinn, kvenréttinda- félög, kórstarf, skógrækt – og þannig mætti áfram telja. Hörður hafði reyndar alltaf verið „félags- málatröll“, þau urðu ákaflega samhent í að sinna því öllu. Kvennafrídagsins 1975 verður lengi minnst, Ásthildur var einn af ræðumönnum dagsins á Lækj- artorgi og fórst það skörulega úr hendi, ekki við öðru að búast. Dóttir okkar, Ásthildur Hanna, er svo heppin að hafa fengið að gjöf áritað auglýsingaplakat ömmu sinnar frá þessum degi; konurnar sem skipulögðu daginn skráðu þar allar nöfn sín. Plakatinu verð- ur án efa fundinn veglegur staður, hvar svo sem Ásthildur Hanna kann að búa í framtíðinni, þetta var sögulegt. Nú eru þau bæði, Ásthildur og Ásthildur Ólafsdóttir ✝ Atli heiðarÞórsson fædd- ist 12. nóvember 1959 á Selfossi. Hann lést á heimili sínu 27. febrúar 2018. Foreldrar hann voru Þór Pálsson frá Ósgerði í Ölf- usi, f. 1934, d. 2017, og Guðjóna Guðna- dóttir frá Vest- mannaeyjum, f. 1930, d. 2006. Bróðir Atla heitir Árni Þórsson, f. 1966, eiginkona Lilja Guð- börn þeirra eru: Emanúel Þór Arnars Þorgrímsson, f. 2013, og ófæddur Þorgrímsson. Lilja á son úr fyrra sambandi, Ástþór Smári Eyjólfsson. Smári á son- inn Guðmund Svafar. Atli eða Tumi eins og hann var oft kallaður ólst upp í Vest- mannaeyjum en fluttist svo til Kópavogs 1970 með foreldrum sínum. Hann lauk námi við Verslunarskóla Íslands og Há- skóla Íslands á viðskiptabraut ASÍ. Vann hann til síðasta dags hjá Hafnarfjarðarbæ. Hann var mikill stuðnings- maður Breiðabliks og Man- chester United. Hann var virk- ur meðlimur í Kiwanis og Oddfellow. Útför Atla fer fram frá Digraneskirkju í dag, 5. mars 2018, og hefst athöfnin kl. 13. mundsdóttir, f. 1966. Árni á tvær dæt- ur. Þær eru Kittý Arnars Árnadóttir, f. 1986, maki Pétur Ingi Haraldsson, f. 1991, börn þeirra eru: Dagbjört Fjóla Arnars Péturs- dóttir, f. 2014, og Arnbjörg Sara Arnars Péturs- dóttir, f. 2016. Eyrún Arnars Árnadóttir, f. 1989, maki Þor- grímur Óli Victorsson, f. 1987, Kær vinur er nú fallinn frá langt fyrir aldur fram, aðeins 58 ára gamall. Hann sleit barnsskónum í Vestmannaeyjum en flutti ungur að aldri í Kópavoginn þar sem hann bjó þar til yfir lauk. Undirrituðum vildi það til happs að fá hann til starfa í stjórn knattspyrnudeildar Breiðabliks haustið 1988. Þar skapaði Atli sér farsælan feril, fyrst sem gjaldkeri, síðan í meistaraflokksráði kvenna en þaðan lá leið hans í landsliðs- nefnd KSÍ og til starfa í móta- nefnd. Áhugamál Atla lágu víðar, hann var góður liðsmaður Sjálf- stæðisfélags Kópavogs, starfaði í Kiwanis um árabil og hlaut vígslu í Oddfellowstúkuna nr. 11 Þorgeir fyrir rúmum þremur ár- um. Þar hlaut hann traust bræðra sinna sem völdu hann til krefjandi starfa. Atli var alla tíð einhleypur og barnlaus. Hann átti hins vegar gott og ástríkt samband við dæt- ur Árna fósturbróður síns, þær Eyrúnu og Kittý og þeirra börn. Leit hann stoltur á þær sem sína nánustu fjölskyldu og sagði hreykinn frá ýmsum uppátækj- um litlu frændsystkinanna. Hef ég grun um að hann hafi á stund- um reynst þeim stoð og stytta án þess að því hafi verið flíkað. Atli var viðskiptafræðingur að mennt og starfaði við bókhald og fjármál alla sína starfsævi, nú síðast hjá Hafnarfjarðarbæ. Hann var einkar töluglöggur og fljótur að setja sig inn í alls kyns tölur og talnaflækjur og greiða þar úr. Hann var því mjög oft fenginn til þess að taka að sér störf gjaldkera í þeim stjórnum og ráðum sem hann átti aðild að. Varð það okkur til gæfu er Atli tók að sér bókhald fyrirtæk- is okkar en jafnframt að sjá um framtöl fjölskyldunnar. Hann var mjög nákvæmur í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur og átti „rétt alltaf að vera rétt og satt satt“. Atli hafði ástríðu fyrir knatt- spyrnu og eru ferðir okkar á leiki erlendis mjög minnisstæðar, á EM í Þýskalandi og á Old Traf- ford í Manchester en Man. Utd. var hans lið. Breiðablik var hans lið hérlendis og áttum við ófáar ferðir félagarnir á völlinn þar sem við sátum saman í stúkunni og glöddumst þegar liðinu okkar gekk vel en skömmuðum dóm- arana ef miður gekk. Atli var mikill fjölskylduvinur og umhugað um að okkur gengi vel, verður sjónarsviptir að hon- um á áramótum en þar var hann árviss gestur með stærstu flug- eldana og stærstu kökuna. Hann hafði gaman af því að kalla fólk öðrum nöfnum en það hét. Var hann sjálfur gjarnan stórhöfð- inginn, ég minnihöfðinginn og Helga mín var kölluð skemmt- anastjórinn. Það er nú svo að þegar góður vinur til 30 ára hverfur á besta aldri úr lífi og tilveru manns sækja að fjölmargar minningar. Atli Heiðar Þórsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.