Morgunblaðið - 05.03.2018, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MARS 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Reynið að taka hlutina ekki of per-
sónulega. Til að forðast allan misskilning
þarftu að segja það sem þér býr í brjósti.
20. apríl - 20. maí
Naut Undanfarið hefurðu sett velferð ein-
hvers annars ofar þinni eigin. Velvild ein-
hvers utanaðkomandi veitir þér tækifæri til
að eiga góðar stundir með ástvinum þín-
um.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert aftur að horfa á stóru
myndina. Ef neikvæðu þættirnir vega
þyngra en þeir jákvæðu þarftu að vera
raunsær, annars verður þú fastur á milli
tveggja elda.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Betri er krókur en kelda og þess
vegna skaltu taka þér allan þann tíma sem
þú þarft til þess að ganga frá hlutunum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Fjölskyldur hafa margar og misjafnar
skoðanir – og þú ert ekki sammála neinum
þeirra núna. Maður sér oft hlutina í skýrara
ljósi við það eitt að segja þá upphátt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Einhverjir vilja fá þig til þess að gefa
vanhugsaðar yfirlýsingar um viðkvæma
hluti. Umhyggja þín gerir að verkum að fólk
er þakklátt fyrir vináttu þína.
23. sept. - 22. okt.
Vog Láttu þér ekki detta í hug að þú getir
ekki unnið þau verk sem þér hafa verið fal-
in. Léttu andlega álaginu af sjálfum þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú munt hafa gaman af því að
kaupa eitthvað sem eykur virðingu þína í
augum annarra. Reyndu að skuldbinda þig
ekki eða lofa upp í ermina á þér er þú talar
við vini í dag.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þið eruð upptekin af peningum
og eignum í dag. Ekkert vex þér í augum
og þú mátt vera ánægður með sjálfan þig
að loknu dagsverki.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur átt erfitt með að ein-
beita þér í vinnunni að undanförnu og þarft
að beita þig meiri aga. Nú er ekki rétti tím-
inn til þess að hrinda úr vör nýju verkefni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Manstu þegar þú vildir ólmur
tilheyra vissum hóp – hvort sem það var
vinna eða vinahópur. Leyfðu öðrum að láta
ljós sitt skína og þá fer allt miklu betur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú er erfiður tími fyrir hvers kyns
vináttu og því þarft þú að sýna þolinmæði.
Gefðu þér samt tíma til að setjast niður og
ræða málin.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrk-ir í „Fyrstu Davíðsbók“:
Sigmundur ber mjög af böðlum,
er bestur í eitri og köðlum
og svo er hann þrifinn
að hann segir oft hrifinn:
„Ég hausa á höggstokk í vöðlum.“
Sigmundur Benediktsson skrif-
aði í Leirinn á miðvikudag:
Vel er öndin væn og frjó,
vetrarhönd í slaka,
en heitu löndin hulin snjó
hert í böndum klaka.
Skírnir Garðarsson bætti við:
Umræðan er ekkert grín,
og ærið margt á skjön.
Norðurpóllinn nálgast Vín,
og nístingskuldi‘ á Mön.
Í páfagarði paufast þeir,
að pjakka ís og snæ.
Á Höfn er logn, og hnúkaþeyr
í Húsavíkurbæ.
Á Svalbarða nú sólin rís,
í sautján gráðum plús.
En Barcelónas bændur ís
sér bræða í drykkjarkrús.
Og spyr síðan sjálfan sig: „Hvar
endar þetta?“ Og því svaraði Páll
Imsland fyrir hann:
Allt á skjön og skakk er snúið.
Skaflar þekja allt er lifir.
Holocene- er -hlýskeið búið
helkalt ísskeið tekið yfir.
En vorhugur er kominn í Ingólf
Ómar enda „auð jörð“:
Nú er horfin fönn af fold
fjöllin hvít þó allt um kring.
Glittir víða í gras og mold
gráa urð og mosabing.
Það lá vel á Páli Imsland á mið-
vikudag: – í lok þess örstutta vors
er skellti sér inn á milli kuldanna.
Eignaðist fola, móbrúnan, litfö-
róttan, tvístjörnóttan, hringeygan
og var að skoða hann.
Hér er niðurstaða þeirrar skoð-
unar.
Heitir folinn Fiðlungur.
Fagur er hann ekki.
Voná hann verði miðlungur
vænn og laus við hrekki.
Sigmundur Benediktsson ósk-
aði honum til hamingju með fol-
aldið:
Þér ég happa óskir el
um hvert þroskinn lendi.
Megi frískur fóðrast vel
og finna vinarhendi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af böðli, veðrinu
og Fiðlungi
„EN HVAÐ MEÐ ÞEGAR ÉG KLÁRA
VINNUNA? HVAR ER KLAPP-TAKKINN?“
„VILTU KAFFI EÐA EFTIRRÉTT?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera ein með
sjálfri þér…
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞÚ VEIST AÐ ALHEIMURINN
SNÝST EKKI UM ÞIG
OG AF HVERJU
EKKI?
ÞAÐ TÆKI OF
LANGAN TÍMA
Ó!
GÓÐUR!
ÉG GAT EKKI STAÐIST
FREISTINGUNA! ÉG
GERÐI SVOLÍTIÐ SEM
ÉG HEFÐI ALDREI ÁTT
AÐ GERA!
ÉG FLETTI ÁFRAM
OG LAS SÍÐUSTU
BLAÐSÍÐUNA Í
BÓKINNI!
SLÆMI STRÁKURINN
MINN!
Að undanförnu hefur á ýmsu geng-ið í starfsemi Eftirlitsstofnunar
ríkisins. Samkvæmt stjórnsýsluút-
tekt eru ýmis lausatök í starfseminni,
enda hefur verklagsreglum ekki ver-
ið fylgt. Ljóst þykir að endurskipu-
leggja þurfi reksturinn frá grunni og
gera markvissari. Um starfsemina
vantar skýrari reglur og eftirlit utan-
aðkomandi aðila þarf að vera öflugra.
Mesti vandinn sem steðjar að þessari
mikilvægu stofnun er annars sá að
fjárveitingar til hennar hafa alls ekki
fylgt auknum verkefnum, meðal ann-
ars vegna aðildar Íslands að Alríkis-
stofnun eftirlitsþjóða. Því hafa bið-
listar eftir skipulögðu eftirliti með
öllu mögulegu aukist. Allt hefur þetta
skapað mikið álag á starfsfólk svo
mikið er um fjarvistir þess og lang-
tímaveikindi. Ráðherra málaflokks-
ins hefur verið gert viðvart um öll
þessi vandamál og meðal þeirra er
fullur skilningur á því að kippa mál-
unum í liðinn.
x x x
Klausan hér að ofan er uppdiktuðsaga, spuni sem þó á sér óbeina
stoð í veruleikanum. Við þekkjum vel
þennan söng, það að ef upp koma
vandamál eða gerð eru mistök, takist
ekki að ljúka verkefnum í tíma,
standist áætlanir ekki eða lausatök
verði á hlutunum eru viðbárurnar frá
opinbera kerfinu gjarnan eins og
reifað er hér að framan; ríkiskassi og
sveitarsjóður er tómur og starfs-
fólkið er bugað af annríki og erfið-
leikum. Einnig vanti reglur, tæki og
tól til að sinna megi vandamálunum
svo vel sé. Allt er þetta sjálfsagt satt
og rétt og stakkur sem opinberri
starfsemi er skorinn er sjálfsagt allt-
of þröngur sé þannig litið á mál. Í
slíkt verður samt að fara mjög var-
lega.
x x x
Vandamál tilverunnar verða aldreiverri en sjónarhornið sem við lít-
um til þeirra frá. Af því leiðir sú sjálf-
sagða spurning hvort eftirlit hins op-
inbera með svo mörgu og raunar
sífellt fleiru sé hugsanlega úr hófi
komið. Sumt má bara alveg reka á
reiðanum eða vera látið afskiptalaust.
Reglur um allt mögulegt eru óþarfar
og gera lífið leiðinlegt sem aldrei get-
ur verið markmið. vikverji@mbl.is
Víkverji
Játið að Drottinn er Guð, hann hefur
skapað oss og hans erum vér, lýður
hans og gæsluhjörð.
(Sálmarnir 100.3)
KRINGLU OG SMÁRALIND
SKECHERS SPARTA HERRASKÓR
MEÐ MEMORY FOAM INNLEGGI.
TIR.
HERRASKÓR
STÆRÐIR 41-47,5. FÁST EINNIG SVAR
VERÐ: 12.995