Morgunblaðið - 10.03.2018, Síða 34
Elsku eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
ÁSDÍS SVEINSDÓTTIR GUÐFINNSSON
frá Sellandi, Sandgerði,
búsett í Lúxemborg,
lést mánudaginn 12. febrúar.
Guðlaugur Guðfinnsson
Steinunn Hulda Graas Guðlaugsdóttir, Marc Graas
Sveinn Graas
Tim Graas
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018
✝ ÞorgerðurKarlsdóttir
fæddist í Haga í
Vopnafirði 20. maí
1928. Hún lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Sundabúð 26.
febrúar 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Ingunn
Vilhelmína Guð-
jónsdóttir og Karl
Valdimar Pét-
ursson. Þorgerður giftist Stein-
grími Sigmundssyni frá
Hvammsgerði í Vopnafirði, f.
27.4. 1917, d. 1.10. 1985. For-
eldrar hans voru Kristín Stef-
ánsdóttir og Sigmundur Jóns-
son.
Systkini Þorgerðar: 1. Gunn-
steinn Karlsson, f. 1929, d. 2016.
Maki. Ástríður Helgadóttir. 2.
Ásta Birna Karlsdóttir, f. 1935.
Fv. maki Guðmundur Guð-
leifsson.
Börn Þorgerðar og Stein-
gríms: 1. Karl, f. 1948. 2. Sig-
mundur, f. 1949. M. Auður Jóns-
dóttir f. 1956. Börn a. Dagrún
Íris, f. 1976. S. Brynjar Tóm-
asson. Barn Sigmundur Bessi, f.
Ernir, f. 2008. b. Ásta Birna, f.
1979. S. Brynleifur Siglaugs-
son. Börn Ástu Birnu og Arnar
Eyjólfssonar, Arnór Freyr, f.
1999, Aníta Ósk, f. 2003, Júlía
Bjarklind, f. 2010. Börn Bryn-
leifs Guðmundur Breiðfjörð, f.
1998, Tobías Breiðfjörð, f.
2004. c. Ingibjörg, f. 1984. S.
Bryngeir Stefánsson. Börn
Anna María, f. 2012, Kristófer
Leví, f. 2014. Dóttir Bryngeirs
Dagbjört Li, f. 2002. d. Gerður
Rún, f. 1989. M. Matthías Örn
Friðriksson. Barn Líf, f. 2018,
d. 2018. e. Ingunn Vilhelmína,
f. 1991. S. Ólafur Freyr Gísla-
son. 6. Kolbrún, f. 1961. M.
Grétar Ólafsson, f. 1960. Börn
a. Inga Birna, f. 1981. M. Ár-
mann Þór Sveinsson. Synir
Grétar Eyfjörð, f. 2013, Róbert
Eyfjörð, f. 2014. Dóttir Ár-
manns og Helgu Lucia er Elín
Rós, f. 2002. b. Ívar Örn, f.
1986. S. Petra Sif Björnsdóttir.
Dætur Aldís Lilja, f. 2012, Sara
Björk, f. 2017.
Börn Steingríms og Rósu
Björgvinsdóttur: 1. Unnur
(stjúpd. Þorgerðar) f. 1942. M.
Hilmar Gunnarsson, f. 1940.
Börn a. Broddi, f. 1973, S.
Linda Björk Gunnlaugsdóttir.
b. Skjöldur, f. 1974. M. Hafdís
Gunnarsdóttir. Synir Ýmir, f.
1996, Hugi, f. 1998, Goði, f.
2001. Börn Unnar og Magnúsar
Herjólfssonar: c.Tryggvi Krist-
inn, f. 1962. S. Helga Ingibjörg
Hraundal. Börn Tryggva og
Ebbu Guðlaugar Gunn-
arsdóttur: Kristín, f. 1983.
Maki, Ingi Þór. Barn Arnar
Bogi, f. 2009. Unnur Dóra, f.
1986. M. Sævar Benónýsson.
Börn Annika f. 2008, Tryggvi
Geir, f. 2012. d. Fanney Herdís,
f. 1964. M. Guðjón Smári. Börn
Fanneyjar: Sturla Bragason, f.
1986. S. Helga Árnadóttir.
Börn Mikael, f. 2007, Matt-
hildur, f. 2009, Tómas Nói, f.
2015. Ívar Sveinsson, f. 1997. 2.
Ásvaldur f. 1944, d. 1996. M.
Anna Sólveig Gunnarsdóttir
Þorgerður fæddist í Haga í
Vopnafirði og ólst þar upp.
Hún fór í Alþýðuskólann á Eið-
um og lauk þaðan prófi 1947.
Haustið 1947 hófu þau Stein-
grímur búskap á Hróalds-
stöðum og bjuggu þar til ársin
1976 er þau fluttu í kauptúnið
á Vopnafirði. Þar vann hún við
hin ýmsu störf, s.s. við fisk-
vinnslu Tanga, á Saumastof-
unni Hrund og sem húsvörður
við Vopnafjarðarskóla. Þor-
gerður var virk í félagsmálum.
Var í Kvenfélaginu Lindinni,
myndlistarhópnum, handverks-
hópnum og einn af stofnendum
félags eldri borgara.
Útför Þorgerðar fer fram frá
Vopnafjarðarkirkju í dag, 10.
mars 2018, og hefst athöfnin
klukkan 14.
2016. b. Stein-
grímur Þór, f.
1980. Dætur Stein-
gríms og Ástu Ís-
leifsdóttur, Íris
Ósk, f. 2009, Auður
Embla, f. 2013. c.
Aðalbjörg Ósk, f.
1990. S. Guðlaugur
Helgason. Barn
Sóldögg Sara, f.
2014. 3. Kristín
Steingrímsdóttir, f.
1950. Maki Þórður Helgason, f.
1948. Börn a. Helgi Már, f.
1972. M. Dagný Baldursdóttir.
Börn Dagmar Kristín, f. 2007,
Kolfinna Mist, f. 2014. Dætur
Dagnýjar Tanja Dóra, f. 1999,
Tinna Dröfn, f. 1999. b. Þor-
gerður Þórðardóttir, f. 1975. S.
Hamish C. Stuart. c. Stein-
grímur Páll, f. 1988. S. Kristrún
María Björnsdóttir. Barn, Katla
f. 2016. 4. Hilmar, f. 1952. Barn
a. Halldór Pétur, f. 1986. S.
Edda Hilmarsdóttir. 5.Stein-
gerður, f. 1955. M. Ólafur Rún-
ar Gunnarsson, f. 1953. Börn a.
Guðrún Lauga, f. 1976. M. Guð-
mundur Hannesson. Synir
Bjartur Gabríel, f. 2002. Ísak
Elsku amma, það er svo sárt að
nú sé komið að kveðjustund. Eftir
á ég góðar minningar um góðu og
yndislegu ömmu mína sem alltaf
var til staðar fyrir mig. Ég fékk
aldrei að upplifa það að eiga afa en
þrjár yndislegar ömmur fylltu vel
í það skarð.
Ég var skírð í höfuðið á
mömmu þinni Ingunni Vilhelmínu
Guðjónsdóttur, eða Villu lang-
ömmu eins og hún var oftast köll-
uð. Ég var ekki há í lofti þegar við
kvöddum Villu langömmu, aðeins
á fjórða aldursári. Þú varst dug-
leg að segja mér sögur af Villu
langömmu og sagðir mér það oft
hversu stolt hún var að eignast
nöfnu þegar ég var skírð. Það
leyndi sér heldur aldrei hvað þér
þótti vænt um að yngsta barna-
barnið þitt hefði verið skírt í höf-
uðið á mömmu þinni. Alltaf kall-
aðir þú mig báðum nöfnunum
mínum, Ingunni Vilhelmínu en
þér þótti það svo fallegt.
Að alast upp á litlum stað og
hafa ömmu sína í næstu götu við
sig eru forréttindi sem ég er svo
þakklát fyrir. Ég var alltaf vel-
komin heim til þín og var mjög oft
hjá þér bæði sem barn og fullorð-
in. Aldrei leiddist okkur saman og
sjaldan sátum við verkefnalausar.
Þú föndraðir mikið og gerðir það
vel og ég man alltaf hversu spenn-
andi það var að fá að taka þátt í
því með þér. Oft fékk ég að gista
hjá þér og alltaf fékk ég að skríða
upp í rúm til þín og fá að vera afa-
megin í rúminu eins og þú sagðir
alltaf. Þegar ég vaknaði svo á
morgnana varst þú búin að taka til
fullt af góðgæti með morgun-
kaffinu handa okkur.
Aldrei fór maður svangur að
heiman frá ömmu og alltaf var
gaman að fá ber með sykri og
rjóma eða ís úr frystinum sem þú
áttir nú yfirleitt alltaf.
Að gera spilaborg og renni-
braut í stiganum í stofunni og
príla á steininum úti í garði var
alltaf mjög vinsælt og skemmti-
legt. Það var alltaf gaman að fara í
sveitina með þér til Kalla og
Simma frænda, þó að ég hafi nú
verið pínu hrædd við kindurnar.
Eftir að vera búin að klappa hund-
um, lömbum og hestum var svo
alltaf toppurinn að leika við Aðal-
björgu frænku í sveitinni á meðan
þú drakkst kaffi með fullorðna
fólkinu.
Þegar kom svo að því að ég fór í
framhaldsskóla norður var fjar-
lægðin á milli okkar aðeins meiri.
En við dóum ekki ráðalausar. Við
vorum duglegar að heyra hvor í
annarri og spjalla reglulega um
daginn og veginn í gegnum síma.
Þegar ég kom heim í frí kom ég
hvern einasta dag til þín. Heima
hjá þér þekkti ég allt, vissi hvar
allt var og mátti alltaf láta eins og
heima hjá mér.
Elsku amma, það er svo margs
að minnast og það á eftir að taka
mig langan tíma að trúa því að nú
sértu farin frá okkur í bili. Það fór
ekki fram hjá neinum að það sem
þér þótti mest vænt um var fjöl-
skyldan þín og að okkur öllum liði
sem best. Hér eftir verður tóm-
legt að koma heim og enga ömmu
að sjá.
Núna ertu komin til þeirra sem
þú sagðir mér sögurnar af og við
hin komum seinna.
Einn daginn eignast ég
kannski börn og barnabörn og
hlakka mikið til að segja þeim
sögur af þér, elsku besta amma
mín.
Þín
Ingunn Vilhelmína
Ólafsdóttir.
Elsku amma.
Ég á svo erfitt með að trúa því
að þú sért farin og komir ekki
aftur.
Elsku amma mín.
Ég er svo þakklát fyrir viku-
legu samtölin okkar sem við átt-
um. Ég er alltaf á leiðinni að taka
upp tólið og hringja í þig til þess
að segja þér fréttir af okkur og
börnunum, veðrinu og hvernig
staðan er hérna í Hafnarfirði hjá
okkur núna. Heyra hvað þú ert að
gera og hvernig þú hefur það, svo
furðulegt að geta það ekki.
Alltaf fannst mér jafn gott að
heyra í þér hljóðið. Svo margt sem
við töluðum um og að sjálfsögðu
töluðum við ansi oft um fallega
Vopnafjörð. Fjörðinn okkar sem
verður ekki eins án ömmu í
Fagrahjalla.
Stundum var ekkert að frétta,
þá var talað um blómin og veðrið.
Vopnfirska veðrsið var alltaf gott,
eða það fannst þér. Lýsir þér
kannski vel hvað þú varst dugleg
að reyna að gera bara gott úr
hlutunum. Mér er minnisstætt
þegar við ræddum eitt sinn um
brjálaða veðrið sem var á Vopna-
firði þegar ég hringdi eitt sinn og
þú sagðir: „Já, það er bara alveg
ágætt núna, ég er ekki frá því að
ég sjái yfir til Guðfinnu og Krist-
jáns.“ Elsku amma.
Þú varst svo stolt af okkur,
stolt af barnabörnunum og lang-
ömmubörnunum þínum. Þú varst
svo glöð fyrir okkar hönd þegar
gekk vel hjá okkur og fylgdist vel
með þegar eitthvað bjátaði á. Þér
fannst erfitt hvað við vorum mörg
sem bjuggum svo langt í burtu frá
þér og þegar við svo komum í
heimsókn fannst þér svo gott að
hafa okkur hjá þér. Hversu oft
heyrði maður „Hva, ertu að fara
strax?“ Elsku amma mín.
Þú varst svo hæfileikarík, elsku
amma. Málaðir, prjónaðir og
föndraðir svo fallega. Svo margar
góðar minningar, elsku amma,
sem við munum geyma og segja
börnunum okkar frá.
Takk fyrir allt, elsku amma.
Þín
Ingibjörg Ólafsdóttir.
Það er erfitt að koma orðum
niður á blað í því hugarástandi
sem ég hef verið síðastliðnar vik-
ur. Gat alsheimsplanið ekki beðið
með þetta eins og góð vinkona
mín orðaði. Elsku amma mín er
fallin frá. Amma var einstaklega
jákvæð og góður hlustandi. Það
var alltaf gott að leita til hennar
þegar manni lá eitthvað á hjarta.
Hún virtist alltaf vera með réttu
svörin þegar maður bar eitthvað
undir hana. Það rifjast upp marg-
ar minningar frá bernskunni eins
og þegar hún var að aga mig til
sem barn en ég gat verið óttaleg
óhemja. Einnig á ég margar góð-
ar minningar með frændsystkin-
um á steininum í garðinum hjá
henni og við leik í rennibrautinni
frægu í stiganum. Síðustu árin
gerði ég meira af því að hringja í
hana þegar ég var að keyra til
vinnu á spítalanum og þótti mér
mjög vænt um þau samtöl. Það
verður hálf skrítið að koma austur
og fara ekki í Fagrahjallann í
heimsókn til hennar. Við Matti er-
um virkilega þakklát að hafa
treyst okkur upp á spítala í byrjun
febrúar, geta sýnt henni mynd af
dóttur okkar og fengið að knúsa
hana í síðasta sinn. Þar sagði hún
við mig að það hafi verið svo gott
hjá okkur að skíra Líf áður en hún
lést. Núna er amma loksins komin
til afa en þeim öðlingi fékk ég
aldrei að kynnast. Það veitir okk-
ur smá yl í allri sorginni að vita að
þau eiga eftir að líta vel eftir litla
englinum okkar á himnum.
Gerður Rún og Matthías Örn.
Það er ómetanlegt að eiga góð-
ar minningar. Þær eigum við
margar um ömmu Þorgerði, eða
ömmu í Fagrahjallanum eins og
við kölluðum hana. Nærvera
hennar var hlý og yndisleg. Hún
gerði heimsins bestu kleinur og
kökur og vissi alveg hvað var í
uppáhaldi hjá yngri kynslóðinni.
Amma var einnig mjög flink að
teikna, mála myndir og prjóna,
allt fórst henni vel úr hendi. Hún
var dugleg að taka þátt í fé-
lagsmálum og föndri með vinum
og samferðafólki. Allir nutu þess
að koma í heimsókn til ömmu og
hún hafði ánægju af því að taka á
móti gestum og sýndi þeim mik-
inn áhuga. Amma var bæði já-
kvæð og bjartsýn og miðlaði því til
annarra.
Amma var barnabörnum og
barnabarnabörnum góð fyrir-
mynd, fylgdist vel með þeim og
mundi eftir afmælisdögum þeirra,
gaf gjafir við minnsta tilefni og
lifði í „núinu“. Hún naut þess að
eyða góðum tíma með fjölskyldu
sinni og ættingjum, talaði oft um
að njóta samverunnar því sá tími
kæmi kannski aldrei aftur.
Amma var ekki sérhlífin og
kveinkaði sér aldrei þrátt fyrir
ýmis áföll. Afi dó frá ömmu fyrir
meira en þrjátíu árum. Ég er viss
um að amma hefur saknað hans
þó að ekki hafi hún mikið haft orð
á því. Hún og afi sinntu fjölskyldu
sinni af ást og alúð ásamt því að
sinna búinu og öllu öðru sem sinna
þurfti. Það var yndislegur tími í
sumar með ömmu og stórfjöl-
skyldunni sem hittist í tilefni ald-
arafmælis Steingríms afa í garð-
inum í Fagrahjallanum.
Amma var náttúrubarn, naut
þess að vera úti öllum stundum.
Sinnti garðinum sínum vel og
sýndi manni oft afraksturinn.
Hún keyrði bíl svo að segja alveg
til hinsta dags. Það var mikið
frelsi fyrir hana að geta keyrt upp
í Selárdalinn sinn. Hún stoppaði
oft á leiðinni og oftar en ekki sá
maður hvar hún hafði fyllt aftur-
sætið á „Lödunni“ af fallegum
steinum og blómum sem hún hafði
fundið á leiðinni.
Þegar kom að merkisviðburð-
um hjá afkomendum sínum lét
amma ekki sitt eftir liggja og ferð-
aðist þess vegna þvert yfir landið.
Mér þótti voða vænt um það þeg-
ar hún kom í skírn dóttur minnar
Kötlu í sumar, hún taldi það nú
ekki vera mikið mál og talaði lengi
um það á eftir hversu gaman það
hefði verið að fara.
Kaffistundirnar okkar á
morgnana í Fagrahjalla 11 þar
sem við amma sátum oft lengi og
spjölluðum um daginn og veginn
verða þá ekki fleiri. Þær fjöl-
mörgu sem við þó áttum er ég
þakklátur fyrir núna. Það fylgdi
því alltaf einhver ákveðin ró að
koma til ömmu og spjalla við
hana; nokkuð sem maður leitaði í
aftur og aftur. Væntumþykja
hennar í garð annarra var mikil.
Öll þau góðu gildi og viðmið sem
Þorgerður
Karlsdóttir
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BJÖRGVIN HEIÐARR ÁRNASON
vélvirki,
Suðurgötu 122,
Akranesi,
lést miðvikudaginn 7. mars.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn
13. mars klukkan 13.
Hjördís Björgvinsdóttir
Anna Björgvinsdóttir Guðbjartur Agnarsson
Magnús Heiðarr Björgvinss. Eva Hauksdóttir
Sigurður Heiðarr Björgvinss. Berglind Rós Helgadóttir
Björgvin Heiðarr Björgvinss. Gunnhildur Vilhjálmsdóttir
og barnabörn hins látna
Elskuleg móðir, amma, langamma og
langalangamma,
RAGNA HÓLMFRÍÐUR PÁLSDÓTTIR,
lést miðvikudaginn 7. mars á dvalarheimili
Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á
Sauðárkróki.
Útför fer fram frá Sauðárkrókskirkju miðvikudaginn 14. mars
klukkan 14. Sérstakar þakkir færum við öllum þeim sem
önnuðust hana í veikindum hennar.
Elín H. Haraldsdóttir
Þórður Gunnar Haraldsson Joseph Piskura
Guðrún Elín Hilmarsdóttir
Ragna Rós Bjarkadóttir Gunnar Valsson
Jón William Bjarkason Guðríður Eva Þórarinsdóttir
langömmubörn og langalangömmubörn
✝
Systurnar
INGIBJÖRG SIGURGRÍMSDÓTTIR
Fururgerði 1
og
ERNA RAGNHEIÐUR SIGURGRÍMSDÓTTIR
Droplaugarstöðum
eru látnar.
Þær voru jarðsettar í kyrrþey.
Aðstandendur