Morgunblaðið - 10.03.2018, Blaðsíða 1
Mammaer alls
staðarVala Guðnadóttir á óvenjulegalífsins sögu, bæði ævintýralega eneinnig fulla af erfiðum áskorunum.Fjölskyldan naut andlegra verð-mæta en bjó við þröngan kost.Foreldrar Völu misstu heilsunaþegar hún var barn og unglinguren móðir hennar hætti að þekkjahana þegar Vala var um tvítugt. 14
11. MARS 2018SUNNUDAGUR
Tímaþjófarða gleðigjafar?
Norska undNorðmenn eru hetjur vetrarólSkýringuna á ótrúlegum árangmanna telja þeir að finna í öfluþar sem keppni er út
umir bregða á það ráðð takmarka tíma áamfélagsmiðlum 16
Fertug
samtök
Samtökin ‘78hafa gengið ígegnum ýmislegtá þeim fjörutíuárum sem þauhafa starfað.Baráttunni erhvergi nærrilokið 4
e
rið
ympíuleikannari sinna íþrótta-gu barnastarfihýst 6
S
a
s
L A U G A R D A G U R 1 0. M A R S 2 0 1 8
Stofnað 1913 59. tölublað 106. árgangur
VERK UM
HÖFNUN OG
ÁSTARSORG
EINELTI Í
BARNAHÓP ER
ÓVIÐUNANDI
VINÁTTUVERKEFNI 12HILDUR ÁSA 46
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Róbert Wessman á tilkall til ríflega
22% hlutar í lyfjafyrirtækinu Alvogen
sem hann stofnaði í félagi við sam-
starfsmenn sína árið 2009. Hingað til
hefur því verið haldið fram að Róbert
eigi ekki hluti í fyrirtækinu. Eignar-
hald hans hefur nú fengist staðfest á
grundvelli gagna sem Morgunblaðið
hefur aflað. Skjölin staðfesta að eign-
arhaldið teygir sig um flókið net eign-
arhaldsfélaga sem teygja sig frá Ís-
landi til Jersey, Lúxemborgar,
Svíþjóðar og Bandaríkjanna.
Allt að 90 milljarða virði
Gengi hlutabréfa í Alvogen er ekki
skráð opinberlega. Fréttaveitan
Bloomberg hefur það hins vegar eftir
heimildarmönnum innan fyrirtækis-
ins að það sé metið á um 4 milljarða
dollara. Sé það verðmat nærri raun-
veruleikanum má gera ráð fyrir að
eignarhlutur Róberts, sem vistaður
er í sjálfseignarsjóði á aflandseyjunni
Jersey, sé metinn á allt að 90 millj-
arða króna.
Athygli vekur að sjálfseignarsjóð-
urinn, sem ber heitið Hexalonia
Trust, var stofnaður seint á árinu
2015. Þá staðfestir Árni Harðarson,
aðstoðarforstjóri Alvogen, að sjóður-
inn hafi eignast 74% hlut í eignar-
haldsfélaginu Aztiq Finance Holding
í Lúxemborg sama ár en það félag fer
með um 30% hlut í Alvogen. Verð-
mætin sem lögð voru til grundvallar
hlutafjáraukningunni hafði Róbert
lagt inn í sjálfseignarsjóðinn. Ekki
hefur fengist staðfest hve mikið fé
það var eða hvaðan það kom.
Í Morgunblaðinu í dag er ljósi
varpað á hið flókna og umfangsmikla
net eignarhaldsfélaga sem rekja sig
allt frá hinum ört stækkandi lyfjarisa
og að sjálfseignarsjóðnum sem ætlað
er að tryggja fjárhagslega velferð
Róberts og fjölskyldu hans.
Á 22% hlut í Alvogen
Róbert Wessman stofnaði sjálfseignarsjóð um eignir sínar á eyjunni Jersey
Sjóðurinn eignaðist 22% í Alvogen árið 2015 á grundvelli hlutafjáraukningar
MLjósi varpað á eignarhald
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sala íbúða í nýjum íbúðaturni í
Bríetartúni er að hefjast. Alls eru
94 íbúðir í tveimur húsum og þjón-
usta og verslun á jarðhæð. Fá
dæmi eru um að svo margar íbúðir
hafi komið í sölu í einu lagi í mið-
borg Reykjavíkur á þessari öld.
Meðalverð íbúðanna er um 64,4
milljónir króna og samanlagt verð
um 6 milljarðar. Við það bætist
söluverð þakíbúðar á 12. hæð sem
ætla má að kosti um og yfir 400
milljónir. Þá með hliðsjón af því að
á 11. hæð kosta tvær íbúðir 186 og
195 milljónir. Þakíbúðinni fylgir
mikið geymslurými, en hún er frá-
tekin fyrir Pétur Guðmundsson,
stjórnarformaður Eyktar. Ásamt
bílskúrum í kjallara og atvinnu-
húsnæði á jarðhæð er söluverð-
mæti hússins líklega yfir 7 millj-
arðar. Bílskúrarnir kosta frá 10
milljónum.
Ólafur Ingi Ólafsson, tækni-
stjóri hjá Eykt, sýndi Morg-
unblaðinu hæðir þrjú, sjö og 11 í
húsinu, en íbúðir afhendast full-
búnar. » 10
Dýrasta
íbúðin met-
in á hund-
ruð milljóna
Teikning/Onno
Höfðatorg Sala hefst fljótlega á
íbúðum í turninum í Bríetartúni.
Samanlagt verð
íbúða um 6 milljarðar
Feðgarnir Valur Guðjónsson og Reynir Valsson
á Sunnu Líf KE 7, létu vel af aflabrögðum þegar
þeir komu til Sandgerðis um hádegi í gær. Þeir
eru á þorskanetum og voru með tæplega fimm
tonn af vænum fiski í 32 net. Þeir hafa síðustu
daga verið að veiðum norðan Garðskaga eins
og fjöldi annarra neta- og handfærabáta. Valur
segir að gefið hafi dag hvern frá 28. febrúar og
aflinn verið 4-9 tonn í róðri. » 14
Líflegt á netum og handfærum við Garðskaga
Morgunblaðið/RAX
„Ég var mjög ung
þegar hún
greindist, var
unglingur, þó að
skellurinn hafi
ekki komið strax
því framgangur
sjúkdómsins var
hægur í fyrstu.
Þegar henni fór
hins vegar að
hraka gerðist það
mjög skyndilega og hratt og smátt
og smátt hvarf hún inn í þennan
sjúkdóm sem í hennar tilfelli var
með því versta sem hægt er að fá,“
segir Vala Guðnadóttir söngkona
sem í viðtali í Sunnudagsblaði Morg-
unblaðsins segir frá æsku sinni og
lífi. Móðir hennar greindist með alz-
heimer þegar Vala var unglingur og
hvarf inn í sjúkdóminn á 15 árum.
„Þegar maður gerði sér grein fyr-
ir hvað var á seyði kom skömmin.
Maður fór að reyna að fela ástandið,
að hún væri ekki svona veik. Þegar
ég útskrifaðist úr Söngskólanum 22
ára var ég svo stressuð að mamma
færi að gera einhverjar gloríur,
segja eitthvað við fólk á lokatónleik-
unum, að ég var að deyja.“
Vala segist líklega aldrei hafa gert
sér grein fyrir, fyrr en í seinni tíð,
hvað þetta var erfitt.
„Ég hef eiginlega ekki getað talað
um þetta, ég gat ekki talað um
mömmu í mörg ár. Mér finnst mjög
mikilvægt að þessi umræða er í dag
komin á allt annan stað.“
Mamma hvarf á 15 árum
Vala
Guðnadóttir
Móðir Völu Guðna fékk alvarlegasta afbrigði alzheimer
„Þessi nýi búnaður er í raun og
veru algjör bylting í slökkvistarfi,“
segir Jón Viðar Matthíasson,
slökkviliðsstjóri á höfuðborgar-
svæðinu, í samtali við Morgun-
blaðið og vísar í máli sínu til þess að
á næsta ári fær slökkviliðið á höf-
uðborgarsvæðinu afhenta fjóra
nýja slökkvibíla. Kostnaður við bíl-
ana er rétt yfir 300 milljónum
króna, en þeir verða með nýjum
búnaði sem ekki hefur verið not-
aður við slökkvistarf hér á landi.
Búnaðurinn gerir slökkviliðs-
mönnum kleift að úða vatni inn í
brennandi rými án þess að rífa það
upp og fara sjálfir inn.
Jón Viðar segir þetta munu auka
mjög öryggi slökkviliðsmanna og
borgaranna. mhj@mbl.is »6
Nýir slökkvibílar fyrir yfir 300 milljónir
Morgunblaðið/Eggert
Brunavarnir Nýi búnaðurinn kemur
á næsta ári og þykir mikil bylting.