Morgunblaðið - 19.03.2018, Side 29

Morgunblaðið - 19.03.2018, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2018 Árni Matthíasson arnim@mbl.is Hljómsveitakeppnin Músíktilraunir hófst í Hörpu í gær og verður fram hald- ið í kvöld kl. 19.30. Á sunnudagskvöld kusu áheyrendur eina hljómsveit áfram í úrslit næstkomandi laugardag og sérstök dómnefnd valdi eina. Í kvöld keppa átta hljómsveitir, allar úr Reykjavík nema ein sem kemur frá Hvolsvelli. Meðal annars verður boðið upp á spunarokk, tilraunapopp, rapp, rokk, gítarpopp og íslenskt lo-fi folk. Þriðji í Músíktilraunum Mókrókar Reykvíkingarnir Þorkell Ragnar Grétars- son, Benjamín Gísli Einarsson og Þórir Hólm Jónsson skipa hljómsveitina Mókróka. Í lýsingu á hljómsveitinni segja þeir að hljómsveitin hafi orðið til í kjölfar þess að þeir spiluðu gömlu dansana á skemmtifundi félags ís- lenskra harmonikkuunnenda. Í framhaldinu hafi þeir svo snúið sér að spunarokki. Þorkell, sem er 21 árs, leik- ur á rafmagnsgítar, Benjamín, líka 21 árs, leikur á hljómborð og Þórir, sem er 24 ára, leikur á trommur. Rímugýgur Halldór Logi Sigurðarson, 23 ára rappari úr Reykjavík, notar listamannsnafnið Rímugýgi. Hann segist aðeins vopnaður free trial-forritum og nagandi smábæjarbiturð og hyggst höggva í jaxla niður allt sem kennt er við smekklegheit og fagurfræði. Apex Rapphópurinn Apex varð til í Árbænum árið 2016 og er skipaður þeim Guðjóni Inga Rúnarssyni og Páli Helga Rúnarssyni, sem eru báðir sautján ára. Þeir segjast hafa verið að semja lög öðru hvoru en hafi nú snúið sér að tónlistinni af fullum krafti. E-strengurinn E-strengurinn er hljómsveit frá Hvolsvelli. Jón Ágústsson spil- ar á gítar, Karel Örn Tryggvason á bassa og Bjarni Sigurðsson á trommur en Freyja Benónýsdóttir syngur. Þau eru á aldrinum fjórtán til sextán ára. Karma Brigade Hljómsveitina Karma Brigade skipa sex ungir tónlist- armenn á aldrinum 15-17 ára sem eiga heima úti um allt á höfuð- borgarsvæðinu. Steinunn Hildur Ólafsdóttir spilar á hljómborð og syng- ur, Agla Bríet Einarsdóttir syngur, Dagmar Ýr Eyþórsdóttir spilar á rafgítar, Hlynur Sævarsson á rafbassa, Jóhann Egill Jóhannsson á trommur og Kári Hlynsson á hljómborð. Þau hafa spilað saman í rúmt ár víða í Reykjavík og einnig úti á torgum í Danmörku síðasta sumar. Umbra Hljómsveitin Umbra dregur nafn sitt af skugga, sem nefnist svo á latínu. Sveitina skipa þrír fimmtán ára Hagskæl- ingar, þær Eir Ólafsdóttir, Eyrún Úa Þor- björnsdóttir og Nína Solveig Andersen. Eir spilar á selló og syngur, Nína á hljóm- borð, fiðlu, bassa og annars óskýrt þrumutæki og Eyrún á flautu, bassa og klukkuspil. Þær eru allar úr Reykjavík. Heimir Steinn Heimir Steinn Vig- fússon er nítján ára Reykvíkingur sem spilar á gítar og syngur. Hann segir að áhugi sinn á tón- list hafi kviknað þeg- ar hann var í söng- og leiklistarskóla Borgarleikhússins sem barn. Hann byrj- aði síðan að læra á gítar níu ára og tróð fyrst upp þegar hann var 15 ára. Markús Markús Bjarnason er 24 ára gamall og spil- ar íslenskt lo-fi folk með aðstoð Birkis Bjarnason- ar. Þeir eru báðir úr Reykjavík. Markús er að læra grafíska hönnun við Listaháskóla Íslands og segist lifa fyrir tónlist og grafík. Hann seg- ist oft sækja inn- blástur í grafíkina þegar hann semur tónlist og öfugt. Allt um sjávarútveg ICQC 2018-20 : Glæsilegt páskablað fylgirMorgunblaðinu föstudaginn 23.mars NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA: fyrir mánudaginn 19. mars. –– Meira fyrir lesendur SÉRBLAÐ Girnilegar uppskriftir af veislumat og öðrum gómsætum réttum ásamt páskaskreytingum, páskaeggjum, ferðalögum og fleira.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.