Morgunblaðið - 19.03.2018, Side 9

Morgunblaðið - 19.03.2018, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2018 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma SÓLMUNDURHÓLM SEGIR FRÁ REYNSLU SINNI Eftir aðalfundi Krabbam Reykjavíkur að Skógarh mun Sólmundur Hólm sinni af því að greinast Að venju verður boðið Á aðalfundunum er ste félaganna undir nafnin höfuðborgarsvæðisins þess verður Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópavog og Garðabær. einsfélags Hafnarfjarðar og Krabbameinsfélags líð 8 í Reykjavík í dag mánudaginn 19. mars fjölmiðlamaður og uppistandari segja frá reynslu með krabbamein. Erindið hefst um kl. 20.30. upp á kaffiveitingar. fnt að sameiningu u Krabbameinsfélag . Félagssvæði Mosfellsbær, ur, Hafnarfjörður Fallið verður frá þeim skilmálum að atvinnuhúsnæði á lóðum á Hlíð- arendasvæðinu verði að vera með grasflatir á þökum. Það verður val- kvætt. Í skilmálum skipulags fyrir Hlíð- arendasvæðið sem samþykktir voru á árinu 2015 er gert að skilyrði að öll þök verði lögð grasi, nema þök fimm hæða íbúðarhúsa og íþrótta- mannvirkja. Kristján Ásgeirsson, arkitekt hjá Alark arkitektum ehf., segir að upphaflega hafi ekki verið gert ráð fyrir grasþökum á húsum á stærstu atvinnulóðunum en það hafi þó orðið niðurstaðan. Nú hafi komið fram óskir um að slaka aftur á þessum skilmálum fyr- ir atvinnulóðirnar. Ekki sé talið gott að vera með gras á öllum þess- um húsum. Það myndi binda of mik- ið vatn sem ætti að fara út í mýrina og á vatnasvið Tjarnarinnar. Borg- arráð hefur samþykkt að auglýsa þessa breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Áfram verður skilyrði um gras á þökum húsa á fjórum stærstu íbúð- arhúsareitunum, nema á hæstu stigagöngunum. Kristján segir að margir þakgarðar verði í hverfinu og því mikilvægt að útsýni þaðan sé grænt og vænt en ekki á svartan þakpappa. helgi@mbl.is Ekki gras á öllum þökum á Hlíðarenda Teikning/Hlíðarendabyggð Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Biblían á íslensku var gerð aðgengi- leg í liðinni viku á Biblíusnjallforrit- inu The Bible App sem YouVersion stendur að. „Við höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð við forritinu. Við vissum af þörfinni fyrir Biblí- una á íslensku í snjallforiti og Biblíufélagið hafði samband við You- Version um út- gáfu hennar á ís- lensku á netinu,“ segir Grétar Hall- dór Gunnarsson, prestur og stjórn- armaður í Biblíu- félaginu. Hann segir að Biblíufélagið sé rétthafi íslensku bibl- íuþýðingarinnar og að það hafi verið auðsótt mál að leyfa birtingu hennar í snjallforriti YouVersion. „Það var Styrmir Hafliðason sem kom með hugmyndina að gera ís- lenska Biblíuþýðingu aðgengilega í snjallforritinu The Bible App og hann ásamt hópi sjálfboðaliða þýddi viðmót snjallforritsins á íslensku,“ segir Grétar Halldór. Hann bætir við að það geti verið flókið og raunar sjald- gæft að fólks sé með Biblíuna í fang- inu hvar og hvenær sem er en snjall- síminn fylgi manninum oftar og á fleiri stöðum. Grétar Halldór segir að snjall- forritið hafi náð gríðarlegum vinsæld- um og sé vinsælasta biblíusnjallforrit veraldar. Það sé búið að hlaða því nið- ur 315 milljón sinnum. „YouVersion býður upp á Biblíu í snjallforriti á 1.200 tungumálum og snjallviðmóti á 50 tungumálum,“ seg- ir Grétar Halldór og bætir við að auk þess sem Biblían sé nú aðgengileg hvar og hvenær sem er þá fylgi snjall- forritinu fleiri áhugaverðir kostir. „Auk þess að styðja við íslensku sem hefur átt undir högg að sækja vegna mikillar notkunar ensku í við- mótum og innihaldi í tölvum og snjall- tækjum mun snjallforitið hafa um- breytandi áhrif á Biblíulestur í landinu,“ segir Grétar Halldór. „Snjallforritið mun skapa rafrænt samfélag um Biblíulestur og gera Biblíuna fyrirferðarmeiri á sam- félagsmiðlunum. Snjallforritið heldur lesendum við efnið með gerð lestrar- áætlunar, segir Grétar Halldór og bætir við að það sé hans trú að bibl- íusnjallforritið dýpki efni Biblíunnar í huga lesenda og geri það meira spennandi. YouVersion var stofnað árið 2007 í þeim tilgangi að auka aðgengi að Biblíunni og lestur hennar. Biblían komin á ís- lensku í snjallforriti Grétar Halldór Gunnarsson Snjallforrit Nú er hægt að lesa Biblíuna hvar og hvenær sem er.  315 milljón niðurhöl  1.200 tungumál

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.