Morgunblaðið - 19.03.2018, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 19.03.2018, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2018 ✝ Maureen Pat-ricia Clark, eða Pat eins og hún var alltaf kölluð, fædd- ist í Ohio 25. febr- úar 1971. Hún lést á sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 21. desem- ber 2017 eftir erf- iða baráttu við krabbamein. Eftirlifandi eig- inmaður hennar er Snorri Jóhannsson fæddur 5. desember 1959. Pat átti eina dóttur úr fyrra sambandi, hana Magdalenu Rós Hauksdóttur, fædda 26. september 1993, faðir hennar er Haukur Barkarson fæddur 11. október 1968. Magdalena Rós er gift Arnari Sigurðardóttir, fædd 10. mars 1952, og James Clark, fæddur 10. nóvember 1950. Uppeldis- faðir hennar er Óskar Þór Ósk- arsson, fæddur 9. ágúst 1954. Systkini Pat eru: 1) William Howard Clark, fæddur 16. febr- úar 1970, giftur Guðrúnu Magn- úsdóttur, fæddri 20. mars 1970. Saman eiga þau þrjú börn: Ant- on Pétur Clark, fæddan 12. mars 1993, Matthías Leo Clark, fædd- an 14. maí 1994, og Tinnu Marín Clark, fædda 20. apríl 2001. 2) Rebecca ósk Jane Faucher, fædd 9. september 1973, gift Philippe Guy Faucher. Saman eiga þau tvo drengi, þá Michael Alex- andre Faucher, fæddan 2. nóv- ember 1999, og Dominic Adam Faucher, fæddan 5. desember 2004. Hálfsystkini Pat eru Raphael Clark, fæddur 5. apríl 1976, Jasmine Denise Clark, fædd 10. desember 1978, James Clark Jr., fæddur 9. júlí 1985. Útför hennar fór fram í kyrr- þey að eigin ósk. Þór Stefánssyni, fæddum 28. nóv- ember 1993. Pat átti fjögur stjúp- börn, þau Birgir Rafn Snorrason, fæddan 7. mars 1984, Ragnheiði Thelmu Snorra- dóttur fædda 24. febrúar 1986, Vikt- or Má Snorrason, fæddan 13. janúar 1992, hann er í sambúð með Mar- ín Jacobsen, fæddri 27. nóv- ember 1995, og Köru Lind Snorradóttur, fædda 6. maí 1994. Pat átti eina ömmustelpu hana Magneu Rún Thelmudótt- ur, fædda 7. september 2010. Foreldrar Pat eru þau Sigrún Okkur setti hljóð skömmu fyr- ir jól þegar við fréttum að Pat, fyrrverandi samstarfskona okk- ar af Grænuborg, væri látin, langt fyrir aldur fram. Pat vann í Grænuborg með hléum samtals í átta ár á tímabilinu 1996-2010 og er óhætt að segja að hún hafi öðl- ast alveg sérstakan sess í hjört- um okkar allra sem hana um- gengumst, bæði barna og fullorðinna. Þegar við fyrrver- andi samstarfsfélagar hittumst í janúarbyrjun til að minnast Pat og rifja upp gamlar minningar kom í ljós að minningarnar voru nánast einróma. Fallega brosið hennar, smitandi hláturinn, ham- ingjan og gleðin. Öll minnumst við Pat með mikilli hlýju. Hún var sérstaklega lífsglöð mann- eskja, alltaf brosandi, jákvæð og glöð og hún hafði einstakt lag á því að dreifa gleðinni í kringum sig. Bros hennar fékk okkur öll til að brosa, hlátur hennar og kátína kom öllum í gott skap. Það leiðinlegasta sem hún vissi var ef einhver var niðurdreginn eða í vondu skapi, lítill í sér eða leiður. Þá tók hún iðulega til sinna ráða og sáði gleðifræjum allt í kringum sig, brosandi beindi hún talinu á jákvæðari brautir, sagði brandara, söng, hló eða gaf knús þar til öll fýla var fokin veg allrar veraldar. Átti þetta við bæði um stóra og smáa innan Grænuborgar, allir drógust að Pat og hrifust með henni í gleðinni. Í samverustund- um naut Pat sín vel og mátti oft varla á milli sjá hvort hún eða börnin skemmtu sér betur. Hún lagði sig alla fram um að ná til hvers einasta barns, söng og lék á als oddi og kenndi börnunum tákn með tali sem hún hafði til- einkað sér og náð mikilli færni í og kenndi tveggja ára krílunum á Dropadeild bæði litina og stafina. Oft var svo mikið fjör að sam- verustundirnar teygðust á lang- inn og hefðu í minningunni getað varað endalaust. Gott dæmi um það hversu mikið Pat lagði á sig við vinnu sína á leikskólanum var þegar Pat, Snorri og Magdalena fluttu í Hveragerði eftir nokkurra ára búsetu í Reykjavík. Pat hélt áfram að vinna í Grænuborg og keyrði á milli dag hvern, í mis- jöfnu veðri eins og gengur, en aldrei kom hún samt of seint. Frekar var hún mætt of snemma til að taka brosandi á móti okkur hinum sem tíndumst inn á kaffi- stofuna, sum kannski aðeins of sein þótt við kæmum aðeins úr Vesturbænum eða Þingholtunum – en ekki úr Hveragerði eins og Pat. Pat var einstaklega hæfi- leikarík á sviði myndlistar og teiknaði og málaði ótrúlega skemmtilegar, litríkar og líflegar myndir. Hún myndskreytti fyrir Grænuborg vinsæl sönglög eins og Skrímslalag Olgu Guðrúnar, lagið um dýrin í Afríku og Gutta- vísur, og myndirnar voru svo settar í möppu sem hægt var að fletta á meðan börnin sungu. Eins teiknaði hún dýr til að skreyta hólf barnanna og jóla- myndir sem eiga heiðurssess í glugga og sal Grænuborgar um Maureen Patricia Clark ✝ Ingólfur Hall-dórsson fæddist í Borgarnesi 18. júní 1958. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 13. desem- ber 2017. Foreldrar hans voru Halldór Valdi- marsson frá Guðna- bakka í Þverárhlíð og María Ingólfs- dóttir frá Hrafn- kelsstöðum í Hraunhreppi. Ing- ólfur átti fimm systkini: Helgu Ólöfu, f. 3. mars 1953, Lilju Guð- rúnu, f. 13. apríl 1954, Garðar, f. 29. október 1956, Ólöfu, f. 13. apríl 1960, og Valdimar, f. 24. júlí 1966, d. 21. ágúst 1995. Erik Williams. Ingólfur átti fimm afabörn, sem voru honum afar náin og kær. Ingólfur ólst upp í Borgarnesi og stundaði nám við barna- og unglingaskóla Borgarness. Hann lauk iðnskólaprófi í vélvirkjun 1983 og bifvélavirkjun árið 1985 frá Iðnskólanum í Borgarnesi. Ingólfur starfaði um árabil hjá bifreiða- og trésmíðaverkstæði BTB í Borgarnesi, bæði með námi og að því loknu. Frá árinu 1986 var hann verkstjóri á véla- verkstæði varnarliðsins í Kefla- vík um 10 ára skeið. Hann starf- aði hjá Íslenskum aðalverktökum við pípulagnir í nokkur ár. Frá árinu 2006 til 2013 var hann mót- tökustjóri á bifreiðaverkstæði Krafts í Reykjavík. Síðustu árin starfaði hann á þjónustuverk- stæði vinnuvéla hjá Kletti í Reykjavík þar til hann hætti störfum sökum veikinda. Útför hans fór fram í kyrrþey 21. desember 2017. Ingólfur var kvæntur Oddnýju Ólafíu Sigurðar- dóttur, f. 1.10. 1961, þau slitu sam- vistum. Börn þeirra eru: Sigurbjörg María, f. 21. mars 1979, sambýlis- maður Böðvar P. Jónsson; Linda, f. 6. ágúst 1984; Helena, f. 24. júlí 1989; og Eyjólfur f. 23. apríl 1992. Eftirlif- andi eiginkona Ingólfs er Rut Olsen, f. 30. september 1954. Dætur hennar eru: Gunnlaug F. Olsen, f. 19. ágúst 1974, maki Sturla Ólafsson, og Jóna Kr. Ol- sen, f. 18. desember 1985, maki Ingólfur var fjórði í röðinni okkar sex systkina og það kom fljótlega í ljós að þar var á ferð- inni mjög kraftmikill drengur. Á uppvaxtarárum hans var tölu- verður gestagangur á heimili okkar í Kjartansgötu þar sem við ólumst upp, ættingjar og vinir áttu leið um. Þessum heimsókn- um fylgdi gjarnan glens og gam- an og er að hluta til sá jarðvegur sem við krakkarnir ólumst upp í. Á þessum árum var algengt að börn fengju að fara í sveit, um- gengni við náttúruna og samneyti við dýrin er flestum börnum til gleði og þroska. Ingólfur, sem þótti ansi kröftugur og orkumik- ill, eiginlega svolítið óþekkur, var nokkur sumur í sveit hjá afa og ömmu á Hrafnkelsstöðum. Ingólfi féll vel að vera í úti- verkum með afa sínum, sem hafði gott lag á stráksa. Amma Lilja vildi stundum hafa hann hjá sér í inniverkunum og ef honum hugn- aðist ekki verkið sem honum var falið þá fann hann yfirleitt ein- hverja „snilldarleið“ til að komast hjá því. Einhverju sinni þegar hann átti að sinna uppvaski ásamt yngstu systur sinni hvatti hann hana til að láta disk detta í gólfið. Hún varð ekki við því, þá gerði hann það bara sjálfur og var að sjálfsögðu leystur frá verkinu. Ingólfur var stríðinn og einu sinni var afi að veita vatni í slöngu úr ánni heim að húsi, fyr- irmælin voru skýr; það mætti ekki stíga á slönguna. En fyrst það var bannað þá var málið meira en lítið spennandi að láta reyna á það. Ingólfur var dýra- vinur og átti gott með að hæna þau að sér. Gilti einu hvort um var að ræða grimman hund eða baldinn fola. Ingólfur fór 14 ára sem vinnu- maður að Hamri í Þverárhlíð og var þar eitt sumar. Eftir iðnnám vann hann í vélsmiðju BTB í Brákarey. Hann var vel liðinn starfskraftur, enda handlaginn og nautsterkur. Ein saga er til þá er menn voru að vinna við að taka vél úr bíl að þeir treystu sér ekki til að klára verkið vegna þess að það vantaði talíu. Þá kemur Ing- ólfur að og hann hélt að það væri ekkert mál að taka vélina úr með handaflinu einu saman sem hann og gerði. Þetta lýsir honum svo vel, hann lét ekkert vefjast fyrir sér og gekk ákveðinn til verks. Ingólfur var bóngóður og jafn- an hægt að leita til hans um að- stoð. Hann hafði góða lyndiseig- inleika, var glaðvær, hnyttinn í tilsvörum, kappsamur og mjög duglegur maður. Ingólfur bjó í Borgarnesi um árabil eftir að hann var komin með fjölskyldu og hélt hesta í fé- lagi við pabba okkar. Ingólfur og Rut, eftirlifandi eiginkona hans, höfðu mikla ánægju af ferðalögum innanlands og áttu litla rútu sem þau höfðu innréttað svo úr varð glæsilegur húsbíll sem endurspeglaði fallegt handbragð þeirra beggja. Fyrir rúmu ári greindist Ingólfur með nýrnakrabbamein. Hann gekkst undir skurðaðgerð þar sem talið var að tekist hefði að fjarlægja meinið. En krabbameinið tók sig upp og síðasta sumar gekkst hann undir lyfjameðferð sem var honum erfið og ströng. Fallegar og góðar minningar um Ingólf felast í augnablikum og samveru- stundum liðins tíma. Megi þær veita fjölskyldu Ingólfs styrk á sorgarstundu. Blessuð sé minningin um Ing- ólf bróður. Helga, Lilja, Garðar og Ólöf. Mér er það minnisstætt þegar mamma kom til mín fyrir 15-16 árum til þess að segja mér frá manninum sem hún var orðin ást- fangin af. Ég gleymi ekki hvernig hún ljómaði þegar hún lýsti þess- um dásamlega manni sem var í bónus svona myndarlegur! Það var einfaldlega þannig að þau horfðust í augu í fyrsta sinn og svo varð ekki aftur snúið. Ég samgladdist mömmu enn meir þegar ég loks hitti hann Ingó okkar. Einstaklega ljúfur, dag- farsprúður og umhyggjusamur maður sem fangaði hug okkar og hjörtu um leið. Hann hafði nota- lega nærveru, ekki var langt í húmorinn og stríðnina, alltaf gott og gaman að vera í kringum hann. Ingó var mjög handlaginn maður og því mikluðu þau mamma ekki fyrir sér að kaupa sjö metra rútu sem þau rifu allt innan úr og innréttuðu upp á nýtt. Úr varð glæsilegur húsbíll sem þau áttu eftir að ferðast á um allt land næstu árin og varð þeirra helsta áhugamál. Á þess- um ferðalögum eignuðust þau marga góða vini í Félagi húsbíla- eigenda og bjuggu til hafsjó af góðum minningum. Þeirra síð- asta ferðalag saman var til Te- nerife í haust, en vitað var að stutt væri eftir af baráttunni og ekki mætti tæpara standa. Þau náðu þó að eiga þrjár góðar vikur saman áður en lokaátökin hófust. Þetta varð þeim dýrmætur tími. Ingó og mamma voru svo lán- söm að eiga hvort annað að sem bestu vini og nutu samveru hvort annars. Ég veit að það er því tóm- legt í koti hjá elsku mömmu núna. Ingó sá þó til þess að mamma yrði ekki alein eftir að hann færi burt í draumalandið. Hann var mikill dýravinur og langaði alltaf að eiga hund. Síð- astliðið sumar, þegar Ingó var orðinn veikur, fengu þau sér lít- inn loðinn glókoll sem var nefnd- ur Golli, en það var Ingó einmitt kallaður í æsku. Nú kúrir Golli í Ingó holu í sófanum og veitir mömmu félagsskap. Ingó sýndi mikið æðruleysi í veikindum sínum en hélt þó alltaf í vonina um að læknast. Það var stutt í kímnina og gott að geta haldið í það á erfiðum stundum. Ingó okkar laut í lægra haldi fyr- ir krabbameininu 13. desember síðastliðinn, umkringdur ástvin- um sínum. Ég kveð elsku Ingó með sökn- uði og þakka vináttu og kærleik sem hann sýndi mér og mínum gegnum tíðina. Hann var okkur afar kær. Þó sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý, því burt varst þú kallaður á örskammri stundu í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða svo fallegur, einlægur og hlýr en örlög þín ráðin; mig setur hljóða við hittumst ei aftur á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma gæta að sorgmæddum, græða djúp sár þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höf. ókunnur) Gunnlaug F. Olsen og fjölskylda. Elsku Ingó. Þá er stundum okkar saman lokið, ég vildi að þær hefðu getað verið fleiri. Hjá englunum situr þú nú eins og ég segi við Magnús minn þeg- ar hann spyr „hvar er afi“? Söknuðurinn um þá tíma sem hefðu getað verið er alltaf ofar- lega í huga, þá sérstaklega þá tíma sem þú og mamma hefðuð átt saman í ellinni góðu og að Magnús minn hefði haft afa sinn til að kenna sér allt um bílamálin. Þú stóðst þig eins og hetja í þessari baráttu sem bæði hjálp- aði þér og öllum þeim sem stóðu þér næst. Ég vil þakka þér fyrir hversu hlýr og góður þú varst alla tíð og varst alltaf til í að rétta mér hjálparhönd. Takk fyrir að vera besti vinur mömmu og þau frábær ár sem þið tvö áttuð saman á húsbílnum, öll ferðalögin og ævintýrin verða mömmu ógleymanleg. Elsku Ingó og elsku afi minn, við munum ávallt sakna þín. Elskum þig. Jóna Kr. Olsen og Magnús afastrákur. Ingólfur Halldórsson ✝ Garðar Ósk-arsson fædd- ist 15. desember 1952 að Króki í Ölf- usi. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 9. febr- úar 2018. Hann var sonur hjónanna Óskars Sigurðssonar, f. 28.10. 1903, og Þor- bjargar Hallmanns- dóttur, f. 17.1. 1916. Alsystkini hans eru Sigurður Ingi, Hall- mann Ágúst, Jónína, Björg, Ósk- ar Þór og Jón Ólafur. Þorbjörg átti fyrir tvo syni Einar og Reyni. Garðar var þriðji yngstur og eru öll systkini hans á lífi utan Jónínu sem er látin. Garðar var kvæntur Árnýju Guðrúnu Jakobsdóttur, f. 31.5. 1956, hún var dóttir hjónanna Jakobs Sigvalda Sigurðs- sonar, f. 3.1. 1935, og Jónínu Margrétar Hermannsdóttur, f. 21.1. 1937. Fyrir átti Árný einn son, Jak- ob Myrkva Garðars- son, f. 22.11. 1974, sem Garðar gekk í föðurstað. Árný og Garðar gengu í hjónaband í ágúst 1977. Þau bjuggu lengst af í Keflavík og Njarðvík, en einnig á Akranesi og Selfossi. Garðar vann síðustu æviár sín hjá Íslenskum aðal- verktökum, en stærstan hluta ævi sinnar starfaði hann á þunga- vinnuvélum og sem bílstjóri. Útför hans fór fram í kyrrþey 22. febrúar 2018. Ég á eina minning, sem mér er kær: Í morgundýrð vafinn okkar bær og á stéttinni stendur hann hljóður, hann horfir til austurs þar ársól rís, nú er mín sveit eins og Paradís. Ó, hvað þú, Guð, ert góður. Ég á þessa minning, hún er mér kær. Og ennþá er vor og þekjan grær og ilmar á leiðinu lága. Ég veit að hjá honum er blítt og bjart og bærinn hans færður í vorsins skart í eilífðar himninum bláa. (Oddný Kristjánsdóttir) Í dag kveð ég bróður minn með þessu ljóði og þakka þau ár sem við fylgdumst að í þessu lífi. Ár- nýju, Jakobi og öllum þeim sem eiga um sárt að binda sendum við Þórdís okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Jón Ólafur og Þórdís. Við höfum kvatt kæran vin, Garðar Óskarsson eða Gæja eins og við kölluðum hann alltaf. Við fyrstu kynni mynduðust sterk tengsl okkar á milli því eiginkon- urnar eru æskuvinkonur. Við eig- um því langa sameiginlega sögu. Það er margs að minnast á svona stundum. Allar ferðirnar að Skógum í Þorskafirði þar sem leysa þurfti ýmis verkefni. Og ófá- ar voru ferðirnar að Hofi í Skaga- firði, þar sem Gæi lagði hönd á plóg við ýmsar framkvæmdir, hvort sem um var að ræða hita- veitulagnir eða byggingarfram- kvæmdir. Þótt unnið væri hörðum höndum þá var líka brugðið á leik, spilað og spjallað. Það eru líka aðrar sameiginleg- ar ferðir sem varðveitast í minn- ingunni. Ein af þeim er minnis- stæð ferð sem við fórum fjögur til Bandaríkjanna og heimsóttum m.a. musteri bahá’a í Wilmett. Fyrir nokkru fórum við svo saman til Ísraels til að heimsækja og skoða sögulega staði sem tengjast bahá‘í-trúnni. Þetta var reyndar önnur ferð þeirra hjóna þangað, því áður höfðu þau farið þangað ásamt syni sínum. Nú í desember áttum við svo pantaða ferð sem við náðum ekki að fara saman en stefnum á að fara hana síðar í minningu Gæja. Gæi og Árný kynntust bahá’í- trúnni fyrir réttum 40 árum og hún skipaði alla tíð stóran sess í lífi þeirra. Hvar sem þau bjuggu lögðu þau sitt af mörkum til upp- byggingar samfélagsins. Gæi var maður athafna en ekki orða. Hann var hæglátur, traustur, hjálpsam- ur og greiðvikinn. Hann var ráða- góður og miklaði ekki hlutina fyrir sér, heldur leysti viðfangsefnin eitt af öðru, hvort sem þau tengd- ust leik eða starfi. Það má því segja að leiðsögn Bahá’u’lláh þeg- ar hann sagði við fylgjendur sína: „Látið gerðir en ekki orð vera prýði yðar“ hafi alla tíð verið ein- kunnarorð Gæja og endurspeglast í öllu hans lífi, viðhorfi og fram- komu. Umhyggjan sem hann sýndi Árnýju, fjölskyldunni og vinum er aðdáunarverð. En svo gerist það haustið 2015 að þessi kraftmikli maður greinist með krabbamein á háu stigi. Það var strax ljóst að ekki væri von um lækningu en læknar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að reyna að hemja frekari vöxt, en því mið- ur gekk það ekki sem skyldi og Gæi kvaddi þetta líf tæplega tveimur og hálfu ári síðar. En það er okkur huggun í sorg- inni að við trúum því og treystum að lífið haldi áfram eftir tilveru okkar hér á jörð. Þetta viðhorf kristallast í orðum ’Abdu’l-Bahá þegar hann segir: „Að álíta að eftir dauða líkamans tortímist andinn er eins og að ímynda sér að fuglinn í búrinu muni tortímast ef búrið brotnar … Líkami okkar er eins og búrið og andinn eins og fugl- inn … ef búrið því brotnar mun fuglinn halda áfram að lifa og vera til, tilfinningar hans verða jafnvel ennþá sterkari, skynjun hans meiri og hamingja hans eykst.“ Við þökkum Gæja samfylgdina, hvatninguna og vináttuna gegnum árin. Minning hans mun lifa með okkur um ókomin ár. Hér kveðjum við mikinn öðling og góðan dreng og biðjum Guð og alla góða vætti að vaka yfir Árnýju og Kobba. Ragnheiður og Ólafur. Garðar Óskarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.