Morgunblaðið - 19.03.2018, Side 17

Morgunblaðið - 19.03.2018, Side 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2018 Eggert Smiður góður Jón Karlsson er handlaginn og iðinn við smíðar. Hann smíðar meðal annars skondna spýtukarla sem hann selur við þjóðveginn. Sumir þeirra lesa bækur, aðrir blása í flautur. Fyrir 115 árum kom út merkilegt rit, Lýð- menntun eftir Guð- mund Finnbogason, sem markaði tímamót í íslenskri alþýðu- fræðslu. Árið 1901 veitti Alþingi Guð- mundi tveggja ára styrk til að kynna sér uppeldis- og mennta- mál erlendis. Í bókinni stendur meðal annars: „Lestrarkunnátta er lykill að and- ans auði þjóðarinnar og jafnframt gjörir hún menn færa að rétta þann auð að öðrum. En hann er í því ólíkur öðrum auðæfum, að hann eyðist ekki þótt af honum sé tekið. Hann er líkur loganum sem brennur jafnskært, þótt þúsundir komi og tendri ljós sín við hann. .... Loks skal ég minnast nokkuð á málfræðikennsluna. Hingað til hefur mest áhersla verið lögð á orðmynda- fræðina, að kenna að skipa orðunum niður í flokka og beygja þau eftir kyni, tölu, föllum, stigum, persónum, háttum, myndum o.s.frv. Eflaust má leika sér að þessu, ef ekki er annað þarfara að nota tímann til. Þó væri ef- laust gagnlegra að verja meiri tíma til hins, að beina athygli nemandans að því, hvernig málið lifir og breytist í sálum manna og á vörum þeirra, sýna þeim hin helstu lög, er þessar breytingar hlýða, hvernig hljóðin breytast, hvernig ein orð- mynd hefur áhrif á aðra, hvernig orð fá smátt og smátt nýja merking, og ástæðurnar til þess í einstökum til- fellum, hvernig orðin fæðast, komast til valda, falla úr tign og deyja, hvernig orðum er haganlegast skip- að í setningu og hvað er mælikvarð- inn fyrir góðu og fögru máli. Slíkar athuganir getur hver meðalgreindur maður lært að gjöra og fengið þannig betri skilning á eðli málsins en þótt hann lærði að skipa hverju orði undir tiltekinn flokk í einhverri kennslu- bók í málfræði, sem í dag stendur, en á morgun verður í ofn kastað. Allar slíkar flokkaskiptingar eru að nokkru leyti handahóf, enda játa margir helstu málfræðingar að erfitt eða ómögulegt sé að finna flokka- skipting orða sem fullnægi hugs- unarréttum kröfum. Og eitt ætti að vera hverjum manni ljóst; sá sem er stálsleginn í því að heimfæra hvert orð undir tiltekinn flokk í orðmynda- fræðinni, hefur ekki með því lært að nota orðin. Hugsum oss leikfimiskennara sem ætlaði að kenna öðrum leikfimi á þann hátt að láta hann horfa á stökk og beygingar annarra, og læra NAFNIÐ á hverju stökki þeirra – læra að skipa hverju stökki undir ákveðinn flokk í kennslubók í leik- fimi. Eflaust mundi lærisveinninn á nokkrum tíma verða svo leikinn í þessu, að hann hiklaust gæti nefnt nafn á hverju stökki. En að stökkva sjálfur mundi hann kunna því sem næstum því jafn illa eftir sem áður, því að menn læra að stökkva með því að stökkva sjálfir, og eins læra menn að tala og rita málið á því að tala það og rita. Móðurmálið ætti að vera auga- steinn allra skóla frá 1. bekk barna- skólans og alla leið upp í gegnum lærða skólann. Því að það er veg- urinn sem leiðir til þekkingar á hugs- unarhætti og tilfinningalífi þjóðar- innar, lykillinn að öllu sem hún á best í vísindum, sögu og óði. ... Kennum æskulýðnum að elska „móðurmálið vort góða, hið mjúka og hið ríka“, kennum honum að beita því í þjónustu háleitra hugsjóna. Þá mun sannast, að í strengjum þess búa hljómar vekja dauða og sofandi.“ Ég velti fyrir mér hvort ástæða sé til að dusta rykið af bók Guðmundar Finnbogasonar og skoða áherslur í íslenskukennslu? Eða eru kennslu- aðferðir heilagar, meitlaðar í stein aðalnámskrár? Ég hef skrifað yfir þrjátíu bækur og tel mig hafa þokka- leg tök á tungumálinu en ég gæti ekki greint frumlag, umsögn eða andlag í setningum. Og það hefur aldrei truflað mig. Ekkert frekar en að geta ekki útskýrt viðtengingar- hátt þátíðar. Dæmið um leikfimiskennarann er dágott. Sjálfur var ég þokkalegur í fótbolta, naut leiksins og náði ár- angri en ég hef ekki hugmynd um hve stórt markið er, fjarlægðin frá endalínu að vítateig, hversu stór markteigurinn er eða annað sem til- heyrir vellinum. Er orðið tímabært að einfalda mál- ið, leggja enn frekari áherslu á lest- ur, þjálfun og orðaforða og það sem skiptir raunverulegu máli? Eftir Þorgrím Þráinsson »Ég hef skrifað yfir þrjátíu bækur og tel mig hafa þokkaleg tök á tungumálinu en ég gæti ekki greint frumlag, umsögn eða andlag í setningum. Þorgrímur Þráinsson Höfundur er rithöfundur Erum við að flækja málið? Öflugt einkaframtak hefur á stuttum tíma byggt upp ferðaþjón- ustu á Íslandi sem kröftuga atvinnugrein. Með svona hraðri upp- byggingu hafa ekki all- ar fjárfestingar verið vel ígrundaðar og margt var ófyrirséð. Afkoma greinarinnar er mjög mismunandi og stýrist að stærstum hluta af fjar- lægðinni frá alþjóðaflugvellinum og höfuðvígjum fjármagnsins. Í nýlegri úttekt KPMG kom fram að tap er á hótelrekstri á landsbyggð- inni á meðan hótel á Reykjavíkur- svæðinu og Suðurlandi hagnast. Líklegt er að þannig muni það að öllu óbreyttu verða í nán- ustu framtíð. Ítrekað hefur komið fram í skoðanakönn- unum að ferðamenn koma til að skoða nátt- úrufegurð landsins. Sú fegurð einskorðast ekki við Suðvesturhornið og Suðurlandið. Sam- göngukerfið og aðrir innviðiðir voru ekki í stakk búnir til að taka við þeim gífu- lega fjölda ferðamanna sem nú sækir Ísland heim. Valkostir ferðamanns- ins stýrast því af samgöngum en ekki náttúrufegurð. Þannig hefur fjár- haglegur ávinningur af ferða- mennskunni endað að mestu hjá fyr- irtækjum sem eru heppilega staðsett. Þau fyrirtæki eru því betur undir- búin til að vinna úr því sem í vændum er. Við sem tókum þátt í uppstokkun íslensks sjávarútvegs á tíunda ára- tugnum sjáum yfirvofandi ferla í ís- lenskri ferðaþjónustu líka þeim sem við gengum í gegnum eftir innleið- ingu kvótakerfisins. Nú eru það ferðamenn en ekki fiskur sem munu skapa auðinn. Í sjávarútveginum áttum við okkur sameiginlegan vettvang sem var Landsamband íslenskra útvegs- manna. LÍÚ. Þar var greininni haldið saman með heraga og skoðanir sem ekki hentuðu þeim sterku voru ekki vel séðar. Það var óskrifuð regla að gagnrýna ekki kerfið útávið. Í ferðamennskunni er mikið um lít- il fyrirtæki með veikan fjárhag. Ekk- ert er því óeðlilegt við að ferða- mennskan fari í gegnum hagræðingu og uppstokkun á næstu misserum. Betur staðsettu fyrirtækin munu renna inn í þau fjárhagslega sterku og fyrirtæki á svæðum með lakar samgöngur verða undir. Líklegt er að enn einu sinni gefi landsbyggðin eftir í baráttunni. Í sjávarútveginum var það aðgang- urinn að fjármagni sem réð því hverj- ir komust yfir veiðiheimildir og urðu ofan á í grimmri samkeppni. Þeir sem sýndu mestu hörkuna og gengu lengst í uppkaupum á fiskveiðiheim- ildum urðu ofan á. Ef sambærileg uppstokkun er framundan í ferðamennskunni þá ættum við að vera á varðbergi gagn- vart því hvernig fjármagni úr sam- eignlegum sjóðum verður ráðstafað. Það er jú náttúra Íslands sem við er- um að selja til ferðamanna. Hún er sameign okkar eins og fiskimiðin. Eftir Róbert Guðfinnsson » Í ferðamennskunni er mikið um lítil fyrirtæki með veikan fjárhag. Ekkert er því óeðlilegt við að ferðamennskan fari í gegnum hagræðingu og uppstokkun á næstu misserum. Róbert Guðfinnsson Höfundur er athafnamaður. Miklar breytingar framundan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.