Morgunblaðið - 21.03.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 21.03.2018, Síða 11
Frambjóðendur Efstu menn á framboðs- lista Samfylkingarinnar á Akranesi. Nýr oddviti framboðslista Samfylk- ingarinnar í kosningum til bæjar- stjórnar Akraness í vor er Val- garður Lyngdal Jónsson, bæjar- fulltrúi. Nýir frambjóðendur í 2. og 3. sæti eru þær Gerður Jóhanns- dóttir héraðsskjalavörður og Bára Daðadóttir félagsráðgjafi. Næstu sæti þar á eftir skipa þau Kristinn Hallur Sveinsson landfræð- ingur og Guðjón Viðar Guðjónsson rafvirki og Ása Katrín Bjarnadóttir, nemi í umhverfisskipulagi. Nýr oddviti Samfylkingar á Akranesi FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2018 NÝTT NÝTT Verið velkomin • Peysur • Bolir • Túnikur • Vesti • Jakkar • Leggings • Kjólar • Kvartbuxurnar komnar í 4 litum Vinsælu heimagallarnir alltaf til í mörgum litum og í stærðum S-4XL Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Guðmundur Rúnar Sig- hvatsson, fyrrverandi skólastjóri Austurbæjar- skóla í Reykjavík, lést sl. mánudag á Landspítala, 66 ára að aldri. Guðmundur fæddist 12. október 1951 á Húsa- vík, sonur hjónanna Sig- hvats Bergsteins Kjart- anssonar múrara og Guðrúnar Magneu Aðal- steinsdóttir verkakonu. Fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur þegar Guð- mundur var fimm ára. Hann gekk í Breiðagerð- is- og Réttarholtsskóla og hóf nám í Kennaraskólanum 1969. Guðmundur lauk kennaranámi árið 1973 og hóf það ár störf sem kennari við Austurbæjar- skóla. Hann var ráðinn yfirkennari ár- ið 1983 og skólastjóri árið 1995 og gegndi því starfi til ársins 2015. Á námsárum sínum og sumar- leyfum vann Guðmundur við hval- skurð hjá Hval hf. í Hvalfirði. Þá vann hann einnig um árabil við ættfræði- rannsóknir hjá Þjóð- sögu. Eftir að hann lét af störfum sem skóla- stjóri beindi hann kröftum sínum að Holl- vinafélagi Austurbæj- arskóla. Hann lét sér annt um gamla skóla- muni, kom í veg fyrir að þeim yrði fleygt og leiddi ásamt Arnfinni Jónssyni, fyrsta for- manni félagsins, starf þeirra sem komu á laggirnar Skólamuna- stofu Austurbæjarskólans. Eiginkona Guðmundar var Ragn- heiður Jónsdóttir. Þau skildu. Börn þeirra eru Atli Örn og Sigríður Hrönn. Sambýliskona Guðmundar er Gunnhildur Friðþjófsdóttir. Dóttir Gunnhildar og stjúpdóttir Guð- mundar er Soffía Tinna. Útför Guð- mundar verður gerð frá Hallgríms- kirkju 28. mars kl. 13. Andlát Guðmundur Sighvatsson Halla Björk Reynisdóttir, flug- umferðarstjóri og fv. formaður bæj- arráðs, verður í 1. sæti Lista fólksins á Akureyri við kosningarnar í vor. Halla Björk sat í bæjarstjórn fyrir L-listann 2010 til 2014 þegar fram- boðið hafði hreinan meirihluta. Listi fólksins fékk tvo menn kjörna 2014 og er í meirihlutasamstarfi við Fram- sóknarflokk og Samfylkingu. Andri Teitsson, framkvæmdastjóri Fallorku, verður í 2. sæti listans, Hildur Betty Kristjánsdóttir skipar 3. sætið, Þorgeir Finnsson það 4. og Geir Kristinn Aðalsteinsson, fv. for- seti bæjarstjórnar, tekur slaginn á ný eftir eins kjörtímabils hlé og sest í 5. sæti. Athylgi vekur að Brynhildur Pétursdóttir, fyrrverandi alþingis- maður Bjartrar framtíðar, er í 10. sæti L-listans. Halla Björk snýr aftur Morgunblaðið/Skapti Framboð Halla Björk og Andri Teitsson skipa tvö efstu sætin. Hilda Jana Gísladóttir, sjónvarps- kona á N4, verður í efsta sæti á framboðslista Samfylkingarinnar á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosn- ingar í vor. Þetta er frumraun Hildu Jönu í stjórnmálum. Hún hefur lengi unn- ið við fjölmiðla og síðustu ár verið sjónvarpsstjóri, og um tíma einnig annar tveggja framkvæmdastjóra, hjá N4 en lætur nú af störfum þar. Dagbjört Pálsdóttir bæjarfulltrúi er í öðru sæti, Heimir Haraldsson, náms- og starfsráðgjafi, er í þriðja sæti og Unnar Jónsson í því fjórða. Samfylkingin á nú tvo bæjarfull- trúa. Í upphafi kjörtímabilsins var Logi Már Einarsson odd- viti listans en settist síðar á þing og er nú formaður flokks- ins. Sigríður Huld Jónsdóttir, sem einnig var kjörin í bæjar- stjórn 2014, tók við sem skólameist- ari Verkmenntaskólans á kjörtíma- bilinu og ákvað að hætta í bæjar- stjórn en skipar 11. sæti. Hilda Jana efst á lista Samfylkingarinnar Hilda Jana Gísladóttir Listi VG í Hafnarfirði fyrir sveit- arstjórnarkosningarnar í maí var samþykktur í fyrrakvöld. Núverandi bæjarfulltrúi VG í Hafnarfirði, Elfa Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir, er oddviti listans. Fjölnir Sæmundsson, lögreglu- fulltrúi og varaþingmaður er í 2. sæti og Kristún Birgisdóttir, sér- fræðingur í framhaldsskólamálum, er í 3. sæti. Í næstu sætum eru Júlíus Andri Þórðarson laganemi, Valgerður Bláklukka Fjölnisdóttir hjúkrunar- nemi, Davíð Arnar Stefánsson, verkefnastjóri hjá Landgræðslu ríkisins, Elsa S. Þorvaldsdóttir iðjuþjálfi og Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna 7́8. Elva Dögg leiðir lista VG í Hafnarfirði Listi VG Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir bæjarfulltrúi leiðir listann í Hafnarfirði. 2018 Þórdís Lóa Þórhallsdóttir rekstr- arhagfræðingur verður oddviti Viðreisnar í Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum. Í öðru sæti listans er Pawel Bartoszek, stærðfræðingur og fyrrverandi al- þingismaður Viðreisnar. Í þriðja sæti er Diljá Ámundadóttir, al- mannatengill og varaborgar- fulltrúi. Þetta kom fram á opnum félags- fundi flokksins í gær. Þar var samþykkt tillaga uppstillingar- nefndar að framboðslista flokksins fyrir komandi kosningar. Um er að ræða fullskipaðan 46 einstaklinga framboðslista og þar sem rík áhersla er lögð á fjöl- breyttan bakgrunn frambjóðenda auk dreifingar í aldri, kyni og bú- setu, að því er kemur fram í til- kynningu. Í fjórða sæti listans er Gunnlaugur Bragi Björnsson, við- skiptafræðingur. Vilborg Guðrún Sigurðardóttir grunnskólakennari er í fimmta sæti. Geir Finnsson, formaður Uppreisnar ungliða- hreyfingar Viðreisnar í Reykjavík, er í sjötta sæti listans og Arna Garðarsdóttir, mannauðsstjóri Landbúnaðarháskóla Íslands, í því sjöunda. Þórdís leiðir Viðreisn í borginni Ljósmynd/aðsend Frambjóðendur Hluti af þeim hóp sem býður fram í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.