Morgunblaðið - 21.03.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2018
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í
21. mars 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 99.37 99.85 99.61
Sterlingspund 139.39 140.07 139.73
Kanadadalur 75.92 76.36 76.14
Dönsk króna 16.398 16.494 16.446
Norsk króna 12.838 12.914 12.876
Sænsk króna 12.116 12.186 12.151
Svissn. franki 104.31 104.89 104.6
Japanskt jen 0.9362 0.9416 0.9389
SDR 144.15 145.01 144.58
Evra 122.16 122.84 122.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 148.7765
Hrávöruverð
Gull 1312.75 ($/únsa)
Ál 2070.0 ($/tonn) LME
Hráolía 66.01 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Úrvalsvísitalan í
Kauphöll Íslands
hefur nú hækkað
um rétt ríflega
8% það sem af er
ári. Er það all-
nokkru meira en
heildarvísitala
allra hlutabréfa á
aðallistanum en
hún hefur hækkað um tæp 5,4% á
árinu.
Í gær nam velta á aðalmarkaði
tæpum 2,1 milljarði króna. Langmest
voru viðskipti með bréf Marel eða
um 718 milljónir króna. Hækkuðu
bréf fyrirtækisins um 0,4% í þeim.
Næstmest var veltan með bréf Sím-
ans eða 370 milljónir. Hækkaði gengi
bréfa fyrirtækisins um 1,5% í við-
skiptunum. Þá voru einnig talsverð
viðskipti með bréf fasteignafélagsins
Reita og námu þau 308 milljónum
króna. Hækkuðu bréf félagsins um
tæp 0,4% í viðskiptunum.
Úrvalsvísitalan hækkað
um 8% frá áramótum
STUTT
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Veltuaukning í byggingarstarfsemi
nam 14,8% í fyrra en árið 2016 nam
aukningin 36,1%. Þetta sýna nýjar
tölur Hagstofunnar yfir veltu í virð-
isaukaskattsskyldri starfsemi hér á
landi. Tölurnar sýna þróunina milli
áranna 2016 og 2017 í heild sinni en
einnig milli síðustu tveggja mánaða
hvors árs um sig. Þær tölur sýna
einnig að hægja tók verulega á veltu
í byggingarstarfseminni undir lok
ársins, þ.e. í nóvember og desember.
Vöxturinn milli fyrrnefndra mánaða
2016 og 2017 var 8,6% en hafði numið
34,5% milli 2015 og 2016.
Hægir einnig á ferðaþjónustu
Áfram halda umsvif í ferðaþjón-
ustunni að vaxa og þannig jókst velt-
an á sviði rekstrar gististaða og veit-
ingahúsa um 9,5% á nýliðnu ári.
Nam hún 189 milljörðum króna,
samanborið við 173 milljarða árið á
undan. Vöxturinn er hins vegar mun
minni en milli áranna 2015 og 2016
þegar hann nam 26,9%. Einnig vek-
ur athygli að síðustu tvo mánuði síð-
asta árs nam aukningin frá
samanburðartímabilinu 2016 aðeins
1,7% en aukningin yfir sama tímabil
2015 til 2016 var 34%.
Bílaleiga heldur áfram að aukast
og nam veltuaukningin á því sviði
12,5% í fyrra og nam 51 milljarði,
samanborið við 45 milljarða árið á
undan.
Sjávarútvegur gefur enn eftir
Velta í sjávarútvegi dregst áfram
saman milli ára og heldur sú þróun
áfram frá fyrra ári. Þannig reyndist
velta í fiskveiðum, fiskeldi og vinnslu
sjávarafurða 318 milljarðar í fyrra,
samanborið við 348 milljarða árið
2016. Er það samdráttur upp á 8,6%.
Árið 2015 nam veltan hins vegar 395
milljörðum. Hún hefur því á tveimur
árum dregist saman um tæp 20%.
Verulegur samdráttur hefur einn-
ig orðið á sviði heild- og umboðs-
verslunar með fisk, en sá liður er eðli
máls samkvæmt nátengdur veltu
annarra þátta sjávarútvegsins.
Dróst heild- og umboðsverslunin
saman um 15% frá fyrra ári og nam
193 milljörðum. Á fyrra ári var sam-
drátturinn 9,9%. Uppsafnaður sam-
dráttur tveggja ára nemur því á
þessu sviði tæpum 23%.
Innt eftir ástæðunum fyrir þess-
um samdrætti segir Sigrún Hall-
dórsdóttir hjá Hagstofunni að fleiri
en ein skýring kunni að liggja þar að
baki.
„Verkfall í sjávarútvegi hafði mikil
áhrif á veiðar og vinnslu en þá munar
einnig mikið um þau gengisáhrif sem
orðið hafa. Krónan hefur styrkst
verulega á síðustu tveimur árum.“
Rafræn þjónusta erlendis
frá vex gríðarlega
Athygli vekur að sá liður í útgáfu
Hagstofunnar yfir veltu í virðisauka-
skattsskyldri starfsemi sem vex
mest milli ára er liðurinn „Erlendir
aðilar sem selja rafræna þjónustu“.
Sigrún segir að stofnunin hafi ákveð-
ið að birta sérstakan lið yfir þessa
veltu í ljósi þess hversu ört hún hefur
vaxið. Nemur aukningin milli ára
94%. Þó verður að hafa í huga að í
samhengi við aðra liði sem Hagstof-
an tiltekur er veltan á þessu sviði
mjög lág, reyndist 7 milljarðar í
fyrra en hafði vaxið úr fjórum millj-
örðum árið áður.
„Við tókum þessa ákvörðun fyrir
um hálfu ári. Þarna er um veltu að
ræða sem tengist þjónustu sem er-
lend fyrirtæki veita en notkunin á
þjónustunni fer fram hér á landi.
Þarna er ekki síst um að ræða
áskriftar- og streymisþjónustu af
ýmsu tagi og inni í þessum tölum eru
án nokkurs vafa velta tengd fyrir-
tækjum á borð við Netflix og
Spotify.“
Sigrún bendir á að hin mikla veltu-
aukning kunni að skýrast af því að
fleiri og fleiri fyrirtæki nái upp í lág-
marksveltu sem þurfi til að hafa svo
starfsemin falli undir skattskylduna.
Það gerist hins vegar fljótt þegar
sífellt fleiri nýti sér þjónustu af fyrr-
nefndu tagi.
Hægir verulega á veltuaukn-
ingu í byggingarstarfsemi
Dæmi um þróun vsk-skyldrar starfsemi
nóv.-des.
2016
nóv.-des.
2017
breyting,
% 2016 2017
breyting,
%
Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða 49 54 11,2 348 318 -8,6
Heild- og umboðsverslun með fisk 30 32 6,9 227 193 -15,0
Framleiðsla málma 32 38 18,7 198 222 12,1
Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og
vinnsla hráefna úr jörðu 57 62 8,6 281 323 14,8
Olíuverslun 16 19 14,6 110 124 12,4
Rekstur gististaða og veitingarekstur 27 27 1,7 173 189 9,5
Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum 7 8 17,2 45 51 12,5
Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur 13 14 3,1 97 108 11,5
Erlendir aðilar sem selja rafræna þjónustu 1 2 19,2 4 7 93,2
Heimild: Hagstofa Íslands
Velta í milljörðum kr.
Einnig hægir á ferðaþjónustunni Sjávarútvegurinn gaf verulega eftir í fyrra
Morgunblaðið/Hari
Umsvif Byggingarstarfsemi hefur
vaxið fiskur um hrygg síðustu ár.
Samkvæmt nýrri könnun Gallup
meðal stjórnenda 400 stærstu fyrir-
tækja landsins telja stjórnendurnir í
heild að aðstæður séu nú góðar í at-
vinnulífinu. Þó telja margir að þær
fari versnandi á næstu sex mánuð-
um.
Í könnuninni kemur einnig fram
að stjórnendurnir búist við 3% verð-
bólgu á næstu 12 mánuðum, rúmlega
2% hækkun á verði vöru og þjónustu
fyrirtækjanna á ársgrundvelli og að
gengi krónunnar veikist um 2%.
Stjórnendur telja, samkvæmt
könnuninni, að hækkun launakostn-
aðar verði meginskýringin á hækkun
á verði vöru og þjónustu fyrirtækj-
anna.
Starfsfólk ekki vandamál
Hvað varðar stöðuna á vinnu-
markaði telja tveir þriðju hlutar
stjórnendanna skort á starfsfólki
ekki vera vandamál. Könnunin gefur
til kynna umtalsverða fjölgun starfa,
því stjórnendur búast við 1,3% fjölg-
un starfsmanna á almennum vinnu-
markaði á næstu sex mánuðum eða
sem nemur 1.700 störfum.
Í niðurstöðum könnunarinnar sést
að flestir stjórnendur sjá fram á auk-
inn hagnað á þessu ári. Tæplega
helmingur stjórnenda býst við svip-
uðum hagnaði fyrirtækjanna sem
þeir stýra á þessu ári og því síðasta,
þriðjungur býst auknum hagnaði en
20% minnkandi. Nánast enginn
munur er á mati stjórnenda útflutn-
ingsfyrirtækja og annarra fyrir-
tækja hvað hagnaðarhorfur varðar.
tobj@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Starfsfólk Stjórnendur búast við
fjölgun starfsmanna á markaðinum.
Stjórnendur telja
aðstæður góðar
Versnar næstu
sex mánuði Spá
3% verðbólgu