Morgunblaðið - 21.03.2018, Side 20

Morgunblaðið - 21.03.2018, Side 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2018 Það er ástæða til að fagna vel heppnuðum og málefnalegum landsfundi Sjálfstæðis- flokksins um helgina. Samstaðan og ein- drægnin var mikil. Forysta flokksins er skipuð öflugum leið- togum sem njóta mik- ils stuðnings og trausts. Á landsfundinum var ég kosinn formaður velferðarnefndar enda verkefnið mér mjög hugleikið. Ég þakka kærlega fyrir þann stuðning. Þannig get ég verið þátttakandi í mótun stefnu Sjálfstæðisflokksins í þessum mikilvæga málaflokki. Ekki síst skiptir þetta höfuðborgina miklu máli. Klárum meðferðarkjarna og rannsóknarhús við Hringbraut Ég talaði á fundinum mjög ákveðið fyrir því, að áfram verði haldið af fullum krafti að byggja upp þann áfanga sem nú er í gangi við Landspítala og ljúka því verkefni sem allra fyrst. Það snýst um meðferð- arkjarnann, sem er bráðamóttaka, gjör- gæsla, röntgen, seg- ulómun og önnur myndgreiningar- starfsemi, rannsóknar- starfsemi, skurðstofur, aðhlynning og 200 ein- staklingsherbergi fyrir veikustu sjúklingana. Það verkefni er nú þegar á fjárlögum þessa árs og á fjárlagaáætlun til næstu ára. Hús- næðið er að stórum hluta full- hannað, en reynslan kennir okkur að í opinberum framkvæmdum, ekki síst stórum og fjárfrekum, þarf stuðning, eftirfylgni og aðhald. Það er nýtt í stefnu Sjálfstæðis- flokksins að nú skuli einnig hugað að staðarvali fyrir framtíðarupp- byggingu sjúkrahúsþjónustu í borg- inni með góðar samgönguleiðir að leiðarljósi. Þannig verði horft til nýrra og breyttra þarfa og fleiri valkosta fyrir starfsmenn og sjúk- linga og hugsanlega annars konar sérhæfingu og þjónustu á næstu áratugum. Byggja þarf upp öflugri heilsugæslu, hjúkrunarrými, end- urhæfingarstarfsemi og sér- fræðiþjónustu á mörgum sviðum, ekki síst fyrir eldri borgara. Þeim fer sífellt fjölgandi. Ekki er nauð- synlegt eða skynsamlegt að öll sjúkrahússtarfsemi sé á einum stað í bráðasjúkrahúsi sem á að vera há- skólasjúkrahús í fremstu röð rann- sókna og kennslu á sviði heilbrigðis- mála. Nýtt staðarval getur einnig létt undir með framtíðaruppbygg- ingu Landspítala við Hringbraut og endurnýjun á eldra húsnæði. Móta eigendastefnu og styðja við stjórnendur spít- alans með sérstakri stjórn Það er einnig nýmæli að álykta að skipa skuli sérstaka stjórn yfir Landspítala til stuðnings við stjórn- endur og eftirfylgni með eigenda- stefnu spítalans. Það á að tryggja skýrari stefnumörkun Alþingis, sem fulltrúa eiganda Landspítala, sem er almenningur í landinu. Formleg eigendastefna hefur aldrei verið mótuð, hvað þá fengið tilhlýðilegan stuðning innan spítalans. Mótun heilbrigðisstefnu og tengt því eig- endastefnu fyrir Landspítala há- skólasjúkrahús er verkefni sem Sjálfstæðisflokkurinn á að taka for- ystu í og er alls ekki sett til höfuðs læknum eða stjórnendum spítalans. Skýr og ábyrg stefna og samstaða er styrkleiki Sjálfstæðisflokksins Ég hafði komið að smíði þeirrar landsfundarályktunar sem sam- þykkt var á málefnafundi í velferð- arnefnd og síðan nánast sam- hljóma af landsfundarfulltrúum. Það var því að lokum mjög góð sátt um þetta á fundinum, þótt vissulega séu einnig til þau sjón- armið að hætta eigi núverandi framkvæmdum við Hringbraut og byrja aftur á nýrri staðarvals- greiningu fyrir eitt stórt þjóðar- sjúkrahús á einhverjum öðrum stað. Þegar á reynir eru samt fáir tilbúnir að taka þá áhættu sem fylgir slíkri kúvendingu í bygging- armálum Landspítala. Skýr stefna í þessu máli, eins og öðrum, er einn af styrkleikum Sjálfstæðisflokksins. Það er verk- efni Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík að endurheimta höfuð- borgina og ljúka þessum verk- efnum og öðrum sem skipta höf- uðmáli fyrir Reykvíkinga og reyndar alla landsmenn. Megi okkur öllum ganga vel í því verk- efni. Eftir Þorkel Sigurlaugsson » Það er nýtt í stefnu Sjálfstæðisflokksins að nú skuli einnig hugað að staðarvali fyrir fram- tíðaruppbyggingu sjúkrahúsþjónustu í borginni með góðar samgönguleiðir að leiðarljósi. Þorkell Sigurlaugsson Höfundur er formaður velferð- arnefndar Sjálfstæðisflokksins. thorkellsig@gmail.com Vel heppnaður landsfundur Sjálfstæðisflokksins Ole Anton Bieltvedt skrifar í Morgunblaðið 9. mars um hreindýra- veiðar og þá sér- staklega um veiðar á hreindýrskúm. Ole Anton er annt og um- hugað um velferð dýra og er það vel. SKOT- VÍS setur velferð dýra og siðfræði veiða í for- gang í sínu fræðslu- starfi og stefnumótun. Þessi málaflokkur er því skot- veiðimönnum hugleikinn. Það örlar þó á misskilningi í grein- inni sem ég tel rétt að benda á. Kálf- arnir eru ekki 8 vikna við upphaf veiða. Miðburður nefnist það er helm- ingur hreinkúa tveggja ára og eldri er borinn. Miðburður ræðst að miklu leyti af tímasetningu fengitíma sem aftur ræðst af ástandi kúnna á haust- in (Reimers 1989). Árið 2005 var mið- burður kúa á Vestur-Öræfum 13. maí t.d. Júní og júlí telja saman 61 dag og ef bætt er við 9 dögum maí (sem er lokaburðartími kálfa að öllu jöfnu) þá eru dagarnir um 70 sem gera 10 vik- ur. Fyrstu 10 daga veiðitímans eru um 80-100 beljur felldar, svo lang- stærstur hluti kvótans er felldur þeg- ar kálfarnir eru fullra 12 vikna. Með hlýnandi loftslagi hefur burðartími kúa færst framar á vorið og á sínum tíma var það metið svo að 10 vikna kálfar væru orðnir sjálfbærir og því óþarfi að fella þá með kúnum. Ekkert hefur komið fram sem bendir til ann- ars. Hreindýraveiðimenn vilja fella bráðina á sem sársaukaminnstan hátt og án þess að valda öðrum dýrum í hjörðinni óþarfa röskun. Því barðist SKOTVÍS fyrir því að heimilt er nú að nota hljóðdeyfa við veiðar. Með slíkri notkun verður hjörðin mun ró- legri og minnst truflun verður af veið- unum. SKOTVÍS hefur varað við að stytta virkan veiðitíma því þá er hætta á að daglegt álag á einstakar hjarðir verði of mikið. Þegar talað er um virkan veiðitíma þá er ekki saman að jafna tveimur fyrstu vikum ágúst og tveim- ur síðustu vikum september vegna minnkandi dagsbirtu. Stækkandi kvótar á takmörkuðum veiðitíma kalla líka á að dýrin fái ekki næga hvíld til að nærast. Það hlýtur að vera kappsmál að dýrin fái örugglega næði til að hvílast og beita sér. Áhrif hreindýra á beitarland hafa verið nokkuð skoðuð. Þau nærast 50-70% á svip- aðri fæðu og sauðfé. En þau eru sérstaklega við- kvæm fyrir sinni eigin ofbeit þar sem þau nærast mikið á fléttum sem eru mjög seinvaxnar teg- undir. Því er það þekkt að hrein- dýrastofnar geta hrunið þegar slíkt ástand skapast. Til að halda stofn- inum utan marka ofbeitar er veitt úr honum árlega að fengnum tillögum Náttúrustofu Austurlands og Hrein- dýraráð fjallar síðan um. Tillögur um kvóta berast síðan ráðherra frá Um- hverfisstofnun. Ferlið er vandað og ítarlegt og ákvarðanir um veiðar og kvóta eru ekki úr lausu lofti gripnar. SKOTVÍS ber fullt traust til þessa ferlis og styður ákvörðun ráðherra. Að lokum bendi ég á texta um hreindýr sem birtist á bls 194 í skýrslu sem unnin var fyrir umhverf- is og auðlindaráðuneytið og kom út 2013. „Ekki er kveðið á um verndun hreindýra í þeim alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að og hafðir voru til hliðsjónar við vinnu nefndarinnar. Hins vegar eru hreindýr framandi tegund í íslenskri náttúru sem gæti orðið ágeng vegna beitaráhrifa ef stofninum er ekki stjórnað. Sam- kvæmt samningnum um líffræðilega fjölbreytni ber því skylda til að tryggja að hreindýrastofninn verði ekki svo stór að hann valdi tjóni, fyrst og fremst á gróðri.“ Veiðar á hreindýrs- kúm og lífvænleiki hreindýrskálfa Eftir Áka Ármann Jónsson Áki Ármann Jónsson »Hreindýraveiðimenn vilja fella bráðina á sem sársaukaminnstan hátt og án þess að valda öðrum dýrum í hjörð- inni óþarfa röskun. Höfundur er líffræðingur, fyrrver- andi veiðistjóri og formaður SKOT- VÍS. Leiðarahöfundur Morgunblaðsins fór í gær ranglega með staðreyndir um áhorf og hlustun á miðla RÚV. Skal það leið- rétt hér. Í umræddum leið- ara fór höfundur rangt með notkun þjóðar- innar á miðlum RÚV og sagði m.a.: „Nú sýna mælingar að frá því kl. 18.15 síðdegis fram til morg- uns hlustar varla nokkur maður á Ríkisútvarpið og fáir á Ríkissjón- varpið.“ Það er auðvelt að sannreyna staðreyndir málsins, því að Gallup mælir daglega notkun á öllum helstu ljósvakamiðlum hér á landi. Þessar tölur eru opinberar og hver sem er getur kynnt sér þær á heimasíðu Gallup. Mikil dagleg notkun Á þessum tíma, síð- degis frá kl. 18.15 til kl. 19, stilla um 20% þjóðarinnar á útvarps- stöðvar RÚV og hlusta í lengri eða skemmri tíma, 14% hlusta eitt- hvað á Bylgjuna og um 2,3% á K100. Út- varpshlustun lands- manna er svo mun meiri þegar að „kjör- tími“ útvarps er skoð- aður. Á sama tímabili horfa daglega um 57% þjóðarinnar á dagskrá sjónvarps RÚV en til samanburðar má geta þess að um 15% lands- manna horfa á Sjónvarp Símans og 36% horfa á Stöð 2 skv. sömu mæl- ingum. Af þessum tölum má sjá að fullyrðing leiðarahöfundar stenst ekki. Mikilvægur miðill Ýmsar aðrar opinberar kannanir eru gerðar á stöðu fjölmiðla og gagnlegt er að rifja upp helstu nið- urstöður þeirra af þessu tilefni. Samkvæmt síðustu mælingu MMR á trausti fjölmiðla nýtur Frétta- stofa RÚV trausts tæplega 70% þjóðarinnar en næsti fjölmiðill þar á eftir nýtur trausts um 40% þjóð- arinnar. Þegar Gallup spurði í fyrra hver væri mikilvægasti fjölmiðill þjóðarinnar nefndu um 72% að RÚV væri mikilvægasti fjölmiðill þjóðarinnar en næsti miðill sem kom þar á eftir var nefndur í um 6% tilvika. Hlutdeild RÚV í áhorfi og hlustun hefur haldist stöðug undanfarin ár, þrátt fyrir fjölgun nýrra miðla á markaði. Staðreyndir um áhorf og hlustun á miðla RÚV Eftir Valgeir Vilhjálmsson Valgeir Vilhjálmsson Höfundur er markaðsrannsóknar- stjóri RÚV. » Athugasemd við leiðara Morgun- blaðsins í gær. Það var magnað að lesa status á fésbók hjá Degi B. Eggerts- syni nú fyrir nokkru þar sem hann fullyrti að þrátt fyrir hækkun á leigu á síðasta ári í félagslega húsnæðinu þá myndi borgin verja leigjendur með húsaleigubótum. Hann orðaði þetta svo: „Hækkunin var 5% en samhliða henni hækkaði borgin húsaleigubætur og sér- stakar húsaleigubætur sem vörðu leigjendur félagsins algerlega fyr- ir breytingunni, og bætti jafn- framt stöðu leigjenda með lágar tekjur á almennum markaði.“ Ég held að allir þekki einhvern í stórfjölskyldunni sem hefur þurft að leita á náðir félagslega kerf- isins einhvern tímann yfir ævina. Af því að ég þekki smá til varð- andi málin í Seljahlíð, hef fylgst með því hversu mikið högg þau hafa þurft að þola sem þar búa í þjónustuíbúðunum þar sem leigan hefur hækkað allt uppí 80% á skömmum tíma þá verð ég að segja að þessi orð borgarstjóra Reykjavíkur eru óvænt. Samkvæmt mínum upplýsingum eru aðilar í 28 íbúðum að fá húsnæðisbætur af 44 (á heimasíðu þeirra segir reyndar að íbúðirnar séu 49). Þarna geta verið vikmörk, þarna geta verið ónákvæmar upplýsingar og hvað sem er en eitt er ljóst, það er ekki verið að verja alla leigjendur, að- eins suma. Hinir sitja uppi með svarta pétur. Það fólk sem hefur þurft að leita þangað og hefur náð að safna saman einhverjum milljónum króna yfir starfsævina fær ekki bæturnar. Auðvitað varði meiri- hlutinn ekki þetta fólk. Sumir myndu segja: æi, þarna var Dagur borgarstjóri að fara ónákvæmlega með staðreyndir. Aðrir myndu segja, æi, hann vissi ekki betur. Eða þetta var kannski smá ónákvæmt, eða svona frekar mikið ónákvæmt en hann meinti vel. En þeir sem voru ekki varðir fyrir hækkunum myndu bara segja: „Þetta er ekki rétt hjá Degi.“ Ónákvæm fullyrðing borgarstjóra Eftir Börk Gunnarsson »Ég hef fylgst með því hversu mikið högg þau hafa þurft að þola sem þar búa í þjónustuíbúðunum þar sem leigan hefur hækk- að allt upp í 80% á skömmum tíma. Börkur Gunnarsson Höfundur er 1. varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.